Síða 2 af 2

Re: Hvaða mediaplayer/streaming græja?

Sent: Sun 31. Ágú 2014 20:30
af Ukar
elri99 skrifaði:En er Google Cast og PlayTo for Chromecast að virka?
Þekki ekki þar sem ég er ekki komin með chromecast - en það væri áhugavert að vita :)

Re: Hvaða mediaplayer/streaming græja?

Sent: Sun 31. Ágú 2014 22:16
af slowhands
Amazon FireTV kostar 23.990 kr komið heim með pantadu.is - ég ætlaði að reikna þetta út á shopusa.is en það vefst fyrir mér í hvaða gjaldflokk þetta fer, "tölvubúnaður og minniskort" ?

Re: Hvaða mediaplayer/streaming græja?

Sent: Sun 31. Ágú 2014 22:33
af ArnarF
Ég er mjög ánægður með WD TV Live

Mynd

Uppsetningin er eftirfarandi : Borðtölvan -> Ethernet tengi í routerinn -> Ethernet tengi í WD TV Live -> HDMI tengi í heimabíóið -> HDMI tengi í sjónvarpið

Semsagt ég er með kvikmyndina/þáttinn í folder sem er deilt til WD TV Live og þaðan streamað í sjónvarpið frá borðtölvunni.

Re: Hvaða mediaplayer/streaming græja?

Sent: Sun 31. Ágú 2014 22:50
af Ukar
ArnarF skrifaði:Ég er mjög ánægður með WD TV Live

Virkar þetta með Netflix og þ.h.?

Re: Hvaða mediaplayer/streaming græja?

Sent: Sun 31. Ágú 2014 23:13
af ArnarF
Ukar skrifaði:
ArnarF skrifaði:Ég er mjög ánægður með WD TV Live

Mynd

Uppsetningin er eftirfarandi : Borðtölvan -> Ethernet tengi í routerinn -> Ethernet tengi í WD TV Live -> HDMI tengi í heimabíóið -> HDMI tengi í sjónvarpið

Semsagt ég er með kvikmyndina/þáttinn í folder sem er deilt til WD TV Live og þaðan streamað í sjónvarpið frá borðtölvunni.

Virkar þetta með Netflix og þ.h.?
Já ég er með Netflix sett upp með unblock US leiðinni

http://support.unblock-us.com/customer/ ... unblock-us" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Hvaða mediaplayer/streaming græja?

Sent: Sun 31. Ágú 2014 23:17
af snakkop
Sony heimabíó kerfi getur bara sett play á bíómynd gegnum Windows media player

Re: Hvaða mediaplayer/streaming græja?

Sent: Mán 01. Sep 2014 18:56
af krissi24
Ég er einmitt í sömu hugleiðingum nema ég er að hugsa um fyrir PLEX, og þá fjartengingu við PLEX server.

Re: Hvaða mediaplayer/streaming græja?

Sent: Þri 02. Sep 2014 00:13
af AntiTrust
krissi24 skrifaði:Ég er einmitt í sömu hugleiðingum nema ég er að hugsa um fyrir PLEX, og þá fjartengingu við PLEX server.
Virkar fínt, er með tvo aðila sem eru með FireTV sem streyma bara frá mér og hafa lítið kvartað.

Re: Hvaða mediaplayer/streaming græja?

Sent: Þri 02. Sep 2014 03:18
af krissi24
AntiTrust skrifaði:
krissi24 skrifaði:Ég er einmitt í sömu hugleiðingum nema ég er að hugsa um fyrir PLEX, og þá fjartengingu við PLEX server.
Virkar fínt, er með tvo aðila sem eru með FireTV sem streyma bara frá mér og hafa lítið kvartað.
Fæst þetta nokkuð hér á landi? Hvað kostar að panta svona með öllum gjöldum? :p

Re: Hvaða mediaplayer/streaming græja?

Sent: Sun 07. Sep 2014 23:04
af Ukar
AntiTrust skrifaði:Fyrir 50GB, lítið. Ef miðað er við HD (720p) á Netflix þá erum við að tala um tæpa 17klst af efni, eða rúmlega hálftíma á dag.

Nei, ég myndi ekki ganga svo langt að segja að þetta sé plug and play. Til þess að streyma úr vél heima hjá þér eru nokkrar leiðir, besta leiðin ef þú spyrð mig er Plex og Plex er mjög straight forward.

Fyrir uppsetningu á Netflix, Prime, Hulu etc þarftu að kaupa þér DNS þjónustu til þess að geta blekkt þjónusturnar úti að þú sért í landi sem leyfir þessar þjónustur. Slík þjónusta kostar um 500-1000kr á mánuði, flestar eru nær lægra markinu. Að setja DNS þjónana inn í FireTV er sáraeinfalt. Að búa til aðgangana er oft langdregið, en tiltölulega einfalt. Ef þú ert bókstaflega óviti þegar kemur að tölvum þá er líklega betra að hafa e-rn sem þekkir betur til með þér í þetta, en þegar það er búið að setja þetta upp þá er þetta lítið sem þarf að pæla, annað en að horfa og njóta. Með DNS, Netflix og Amazon Prime áskrift ertu að borga ~3þús kr á mánuði.
Ein spurning með uppsetninguna - ég hef aðeins verið að googla og lesa um þetta og rekist á umræður þar sem talað er um að það sé vesen að hlaða niður öppunum og stundum vesen að fá þetta til að virka ef maður er ekki með bandarískan greiðslumiðil hjá Amazon. Hefur þú lent í svoleiðis og hver er lausnin ef svo er?

Re: Hvaða mediaplayer/streaming græja?

Sent: Sun 07. Sep 2014 23:40
af AntiTrust
Get lítið tjáð mig um það þar sem ég hef einungis sett þessi tæki upp fyrir vini, nota þetta ekki sjálfur. Öll þau fríu forrit sem þau hafa viljað sækja hafa installast vandræðalaust, Youtube, Vimeo, Netflix etc. Plex kostaði $5 ef ég man rétt og gekk sú færsla upp í fyrsta try.