Síða 2 af 3
Sent: Fös 12. Nóv 2004 12:16
af Pandemic
Coppertop skrifaði::8) Jæja fyrst maður er farinn að vinna hjá bestu tölvubúðinni í bænum
Ég hélt það stæði í reglum að maður ætti ekki að fullyrða um svona hluti
Sent: Fös 12. Nóv 2004 12:19
af Coppertop
Allavega er ekki verið að tala um mig
ég hef aldrei póstað neinu inn á huga né bt.is, bara hlegið að vitleysunni þar
Sent: Fös 12. Nóv 2004 17:08
af MezzUp
Þræði læst vegna fáránlegs titils!
Menn eiga að lesa reglurnar áður en að þeir stunda þetta!
Ég er nú ekki svo viss um að Task.is vilji að þú notir logo'ið þeirra þótt að þú vinnir þarna, því annars gætu menn haldið að þú sést í forsvari fyrir þá eða álíka, og gætu tengt vitleysuna úr þér við verslunina.
Edit: hætti við að læsa þegar ég sá hvað það voru kominn mörg svör. Hvað eru menn að breyta gömlum bréfum
Sent: Fös 12. Nóv 2004 17:16
af elv
Þetta er einn af ástæðunum að ég vil breyta í 15min edit
Sent: Fös 12. Nóv 2004 18:07
af CendenZ
sniðugt .
Sent: Lau 13. Nóv 2004 21:36
af Coppertop
Vitleysuna í mér....
name one?
Re: 3200 939 clockast í 2.6
Sent: Lau 13. Nóv 2004 21:39
af elv
Coppertop skrifaði:Jæja titill ekki svo fáránlegur lengur eða hvað
Viltu veðja, clockast-------------klukka er nú töluvert fallegra að sjá heyra
Sent: Lau 13. Nóv 2004 22:22
af Coppertop
Happy? herra Elv...
Sent: Lau 13. Nóv 2004 22:25
af MezzUp
Coppertop skrifaði:Vitleysuna í mér....
name one?
Henda út efninu í upprunalegu bréfi margsinnis, og brjóta um leið reglurnar með því að hafa ekki lýsandi titil.
Svo, vinnurru hjá task eða ekki? Voru þeir sáttir við að þú notaðir logo'ið þeirra?
Sent: Lau 13. Nóv 2004 22:34
af elv
Coppertop skrifaði:Happy? herra Elv...
Er að koma
Sent: Lau 13. Nóv 2004 22:38
af Coppertop
Hey c´mon var bara að reyna þóknast ykkur
Og já ég vinn hjá Task, og við höfum ekkert á móti því að ég noti logo´ið okkar.
Sent: Sun 14. Nóv 2004 11:12
af Voffinn
Þú veist af reglunni um að starfsmenn tölvubúða verða gera grein fyrir hjá hvaða búð þeir vinna hjá.
Sent: Sun 14. Nóv 2004 11:38
af MezzUp
Coppertop skrifaði::8) Jæja fyrst maður er farinn að vinna hjá bestu tölvubúðinni í bænum
Hann gerð það víst í fyrsta bréfinu, áður en hann fór að breyta þeim.
Task.is er önnur tölvubúðin sem að hefur lækkað í áliti hjá mér eftir að starfsmenn hennar koma fram undir merkjum/nafni tölvubúðarinnar hérna. Held að þetta sé eitthvað sem verslanir verða að passa uppá.
Sent: Sun 14. Nóv 2004 11:53
af Voffinn
MezzUp skrifaði:Coppertop skrifaði::8) Jæja fyrst maður er farinn að vinna hjá bestu tölvubúðinni í bænum
Hann gerð það víst í fyrsta bréfinu, áður en hann fór að breyta þeim.
Task.is er önnur tölvubúðin sem að hefur lækkað í áliti hjá mér eftir að starfsmenn hennar koma fram undir merkjum/nafni tölvubúðarinnar hérna. Held að þetta sé eitthvað sem verslanir verða að passa uppá.
Mér finnst ekki sniðugt þegar starfsmenn tölvubúða eru að auglýsa hérna. Mér er í rauninni meinilla við það, jafn illa við það og þegar það er verið að rakka einhverjar búðir niður.
Sent: Sun 14. Nóv 2004 13:09
af wICE_man
Menn meiga skrifa hérna þótt þeir vinni hjá tölvubúð, þeir þurfa bara að passa sig að það sem þeir skrifa getur haft áhrif til góðs eða ills fyrir fyrirtækið þeirra, allt eftir hversu vel vandaður málfluttningur það er sem þeir láta frá sér.
Það eru allir hérna vonandi nógu þroskaðir til að gera sér sjálfstæðar skoðanir en ég er þó á því að það sé ekki rétt aðferðarfræði að auglýsa fyrir eitthvað fyrirtæki hér á þráðunum og held að það virki öfugt, þ.e. menn tapi viðskiptum á því.
Það er þó að mínu viti í lagi að vekja athyggli á því þegar að menn fá nýja hluti til sín, en bara ef menn eru fyrstir til, annars er það endurtekningasamt
Sent: Sun 14. Nóv 2004 13:25
af MezzUp
skemmst er nú að minnast hr. 24/7 sem að ég held að hafi bara verið til skammar fyrir sitt fyrirtæki. Ég hef allavega ekki einusinni kíkt á heimasíðunni þeirra síðan blessunin átti í rifrildum hérna.
Held að fyrirtæki ættu að passa uppá starfsmenn sem að nota nöfn eða merki frá fyrirtækinu, og athuga að ef að menn gera það, þá hafa gjörðir þeirra hérna e.t.v. afleiðingar fyrir fyritækið.
Menn mega vitaskuld vinna hjá tölvubúðum og taka þátt í spjallinu, en muna bara að taka það fram að þeir vinna hjá ákveðinni tölvubúð(ef að umræðan snýst um það), og að þeir séu ekki í neinu forsvari fyrir tölvubúðina, þ.e. að skoðanir og svör þeirra séu þeirra eigin, en ekki búðarinnar.
Sent: Mið 24. Nóv 2004 00:43
af gnarr
hefur einhver spáð í stærðarmuninum á 3200+ s939 og 3200+ s754.
s754 er 130nm og með 1MB af L2
s939 er 90nm og með 512KB af L2
í s754 tekur 1MB L2 rúmlega 50% af kjarnanum. það þýðir eins örgjörfi með 512KB cache er rúmelga 25% minni.
130²=16900
90²=8100
semsagt:
s939 90nm = 75% / 16900 * 8100 = 35%
kjarninn í s939 3200+ er semsagt umþaðbil 35% af kjarnanum í s754 3200+.
svo fyrir utan það, þá keyrir s939 3200+ á 1.4v en s754 3200+ á 1.55v. svo að það er talsverður "heat-output" munur á þeim.
Sent: Mið 24. Nóv 2004 01:14
af wICE_man
Já gnarr, enda eru Winchester kjarnarnir að nota innan við 67W sem er áætlað fyrir topp módelið, sennilega 2.8GHz örrinn sem kemur seint á næsta ári.
3000+ er t.d. að nota um 30W sem er nálægt því sem 1.6GHz Centrino (banias kjarni) er að nota.
Sent: Fim 25. Nóv 2004 15:23
af Bendill
Ég vildi bara benda á það að þótt þú fáir svona örgjörva þá er ekki öruggt að þú náir 2.6Ghz. Það er margt annað sem spilar inn í, eins og minni, móðurborð og gott loftflæði í kassa. Ég vildi bara benda á þetta þar sem það eru margir sem vita lítið um yfirklukkun og sjá þetta og halda að þeir geti fengið ofurvél fyrir lítinn pening.
Eins og stendur í þessari grein frá Anandtech, þá notast þeir við móðurborð sem þeir vita að kemst í 290Mhz brautarhraða sem er ekki gengið að vísu. Fólk þarf allavega að velja vel þau móðurborð sem þau ætla að kaupa. Síðan er minnið, miðað við þessar tölur þá hafa þeir verið að nota þokkalegasta minni og eins og við vitum þá kostar "high performance" vinnsluminni hér á landi all nokkrar skeljar og ég efast um að það fáist minni sem tekur 290Mhz brautarhraða á 1:1, en því má alltaf redda með minnis deilum.
Ég er alls ekki að segja að þetta sé ekki fýsilegt, þessir örgjörvar eru algjör snilld og mig langar afskaplega mikið í eitt kvikindi, en það er ekki alltaf "pottþétt" að maður nái þessum hraða, þá síður á lofti. Örgjörvar geta verið mismunandi og eru sumir sem fara langt en aðrir komast varla upp fyrir sjálfgefin hraða....
Sent: Fim 25. Nóv 2004 15:31
af Birkir
Ætti ekki að vera sjéns á að ná 1:1 á 290fsb með DDR500 ?
Hugsanlega með því að hækka bara cl um hálfan?
Sent: Fös 26. Nóv 2004 16:40
af Bendill
Birkir skrifaði:Ætti ekki að vera sjéns á að ná 1:1 á 290fsb með DDR500 ?
Hugsanlega með því að hækka bara cl um hálfan?
Það gæti verið, en það er alls ekki algilt, ég myndi meirasegja ganga svo langt að segja í fæstum tilvikum
Hér er hlekkur sem sýnir yfirklukkun á þessum örgjörvum...
Sent: Sun 28. Nóv 2004 04:00
af wICE_man
Jamm, það getur verið alveg jafn gott að nota low-latency minni eins og OCZ platinum edition PC3200, þau eru að ná DDR580 með hægum timings.
Sent: Sun 28. Nóv 2004 20:46
af gnarr
hvað um DDR500 corsair minnin hjá att.is ? eru þau ekki að ná alveg 580 á 3-4-4-8 ?
Sent: Sun 28. Nóv 2004 21:44
af fallen
Sent: Sun 28. Nóv 2004 22:45
af gnarr
samkvæmt því sem stendur á att.is er þetta:
http://www.att.is/product_info.php?cPath=41_16_157&products_id=1011 minni CL2 . en í manualnum með því stendur að það sé 3-4-4-8. annars stendur við minnið sem þú póstaðir "low latency", svo það er líklegast 2-2-2-7