Síða 2 af 2
Re: Cat5 tengingar-hjálp
Sent: Mið 16. Júl 2014 23:54
af Oak
Nei sýndu okkur mynd af RJ45 endanum þínum. Tengillinn er alveg réttur.
Re: Cat5 tengingar-hjálp
Sent: Fim 17. Júl 2014 00:07
af Magni81
jonsig skrifaði:Get selt þér mola töng á 2þúsund
á tvær.
Ég á molatöng
en áttu gaurinn til að ýta vírunum niður
Ég skal kíkja á molann og taka mynd.
Re: Cat5 tengingar-hjálp
Sent: Fim 17. Júl 2014 00:13
af jonsig
Nei
ég hef ekki átt LSA-Plus töng í 5 ár . Og fyrir utan það þá eru þær að verða úreltar ,þannig að þær eru slæm fjárfesting . Sé samt oft rafvirkja nota þær á 110 socket XD.
Þú sérð að þetta er lsa-plus þegar tennurnar eru á ská á tengibrettinu (þitt tilfelli) . Á algengara systeminu eru þær beinar .
Re: Cat5 tengingar-hjálp
Sent: Fim 17. Júl 2014 00:24
af gardar
Sallarólegur skrifaði:
Þegar ég skoða þetta betur, þá er snúran rétt - en litakóðinn á þessu boxi er vitlaus.
Skoðaðu númerin á tenglinum, þau stemma við litina. Rásirnar í tenglinum sjá væntanlega til þess að þetta komi rétt út.
Re: Cat5 tengingar-hjálp
Sent: Fim 17. Júl 2014 00:25
af Oak
jonsig er reyndar ekki símsmiður en er öðru hvoru að puncha inna panil en í lang flestum tilfellum fæ ég bretti sem er fyrir LSA ég er kannski að fá þetta gamla í hendurnar í hvert skipti...
Re: Cat5 tengingar-hjálp
Sent: Fim 17. Júl 2014 05:23
af Skari
Sýnist allt vera rétt hjá þér, hefði giskað á að þú snúir RJ-45 molanum vitlaust en fyrst þú segist hafa annan netkapal til samanburðar þá er það í góðu.
Tengillinn er rétt tengdur og þú getur hætt að hugsa um hann, eina sem ég ráðlegg þér þó að gera er að ganga ekki frá þessu svona, frekar kaupa sér puncher og gera þetta almennilega.
Eina sem ég gæti giskað á að sé í raun að einhver vír hafi ekki náð að klemmast nógu vel í RJ-45 molanum, það sem þú gætir gert er að halda á molanum og snúa upp á kapalinn, beygja hann til við molann og sjá hvort einhver vír dregst til baka.
Nú ef það finnst ekkert úr því þá er spurning hvort einhverjir vírarnir séu skammhleyptir, að þú hafir skorið of djúpt þegar þú varst að afeingra kápuna.
Fyrir utan þetta þá er voða lítið sem hægt er að gera meira nema hafa rétt mælitæki, gætir t.d. notað paratester og ætti hann ekki að vera svo dýr
Re: Cat5 tengingar-hjálp
Sent: Fim 17. Júl 2014 18:21
af arons4
Sallarólegur skrifaði:Oak skrifaði:þetta er alveg rétt tengd í tenglinum en ég er farinn að hallast að því að þú sért með RJ45 molan öfugan.
Nei sallarólegur þannig á röðin ekki að vera. nema að þú farir þá eftir númerunum.
Þegar ég skoða þetta betur, þá er snúran rétt - en litakóðinn á þessu boxi er vitlaus.
Tengdu boxið í sömu röð og snúran - og þú ert góður. Kannski tengdirðu þá í vitlausri röð seinast.
Málið er, ef þú nærð einu pari rétt(tveir vírar) þá ertu með 10Mb samband um snúruna - það gæti verið ástæðan fyrir því að þú hafir verið að detta út.
Þegar þú nærð tveimur pörum réttum, fjórum vírum ertu kominn með 100Mb samband.
Ef þú nærð svo öllum 4 pörunum réttum, þá ertu kominn með gigabit kapal(1000Mb).
Hér er til dæmis pinout af 100Mb kapli, þessi týpa fylgir ýmsum tækjum sem styðja ekki Gigabit:
[mynd]
Þetta er bara rangt.
Prentrásin á boxinu sér um að víxla röðinni þannig hún sé rétt í tenglinum(Sérð tölurnar við litina, það er röðin sem verður í tenglinum sjálfum, sem er sú sama og á blaðinu).
Blaðið sýnir rétta röð á molanum en passaðu sammt þegar þú setur hann á að hann snúi rétt(klemman niður og koparinn upp þá er 1 vinstra megin)
jonsig skrifaði:Nei
ég hef ekki átt LSA-Plus töng í 5 ár . Og fyrir utan það þá eru þær að verða úreltar ,þannig að þær eru slæm fjárfesting . Sé samt oft rafvirkja nota þær á 110 socket XD.
Þú sérð að þetta er lsa-plus þegar tennurnar eru á ská á tengibrettinu (þitt tilfelli) . Á algengara systeminu eru þær beinar .
Það er mjög mismunandi, ég nota lsa+ puncharann td töluvert meira(Hausarnir eru allstaðar og það er ennþá verið að selja þá, verkfærin eru langt frá því úrelt).
Auk þess er hægt að fá svona töng fyrir mjög lítið og ef 2-3000kr töng sparar manni verktaka er það varla slæm fjárfesting.
Líka hægt að fá svona sem hægt er að skipta um haus.
Re: Cat5 tengingar-hjálp
Sent: Fim 17. Júl 2014 20:08
af Magni81
Takk fyrir þetta. Það klikkar ekki að fá ráð hérna inni
Re: Cat5 tengingar-hjálp
Sent: Fim 17. Júl 2014 20:13
af jonsig
Bláa töngin er "110" og virkar fyrir socket sem eru þvert á miðju.
LSA plus er ávalt vinsæl þar sem rafvirkjar upp til hópa spá ekkert í hvaða verkfæri þeir nota , svo er ég ekkert svo viss með þá sem flytja þær inn.
Re: Cat5 tengingar-hjálp
Sent: Fim 17. Júl 2014 23:43
af BugsyB
fáðu þér puncher - hvernig þetta er tengt í tengill er til skammar - afeinagrað og sett með skrúfjarni - það er eðlilegt að það verði vesen á því - það er ekkert mála ð skemma tenglana með skrúfjarni - reddaðu þér punser eða verslaðu þér svona gulan afeinagrara og það er hægt að nota endan á honum til að puncha, ef þú finnur ekkert út úr þessu, þá skal ég gera þetta fyrir þig ódýrt
Re: Cat5 tengingar-hjálp
Sent: Fös 18. Júl 2014 02:40
af Sallarólegur
BugsyB skrifaði:fáðu þér puncher - hvernig þetta er tengt í tengill er til skammar - afeinagrað og sett með skrúfjarni - það er eðlilegt að það verði vesen á því - það er ekkert mála ð skemma tenglana með skrúfjarni - reddaðu þér punser eða verslaðu þér svona gulan afeinagrara og það er hægt að nota endan á honum til að puncha, ef þú finnur ekkert út úr þessu, þá skal ég gera þetta fyrir þig ódýrt
Word á þetta.
Hef sjálfur mikla reynslu af vandamálum með IPTV myndlykla, eins og Vodafone og Síminn bjóða upp á.
Ef það eru einhver furðuleg vandamál, pixlar, myndir leigjast ekki, HD rásir flökta - þá er það yfirleitt lögnin sem veldur.
Þeir símvirkjar sem ég hef rætt við vilja hafa HEILA snúru - alla leið frá neti(router/ljósleiðaraboxi) og beint í myndlykil. Engin box, engir tenglar, bara heila snúru, alla leið.
Bara smá 'protip' - ef einhver hérna hyggst setja upp svona box-kerfi heima hjá sér
Þetta sleppur með tölvur, þær geta auðveldlega misst nokkra pakka í villur, þær eru þá leiðréttar á nokkrum millísekúndum og enginn finnur fyrir neinu. Myndlyklar hinsvegar þola ekkert svona flökt á signali, því það er stanslaus 3-10Mb straumur um snúruna, eftir því í hversu góðum gæðum efnið er - það er ekki hægt að leiðrétta jafn auðveldlega - og þá eins og fyrr segir, getur myndin pixlast og hin ótrúlegustu vandamál fylgt í kjölfarið.
Re: Cat5 tengingar-hjálp
Sent: Fös 18. Júl 2014 04:26
af Skari
Held það hafi aldrei verið spurning að hann hafi ætlað að puncha þetta inn eftir að flestir hafi verið búnir að benda honum á það, að þetta hafi bara verið tímabundið til að sjá hvort hann fengi samband
Re: Cat5 tengingar-hjálp
Sent: Fös 18. Júl 2014 08:23
af Magni81
Skari skrifaði:Held það hafi aldrei verið spurning að hann hafi ætlað að puncha þetta inn eftir að flestir hafi verið búnir að benda honum á það, að þetta hafi bara verið tímabundið til að sjá hvort hann fengi samband
Mikið rétt
Re: Cat5 tengingar-hjálp
Sent: Fös 18. Júl 2014 09:50
af jonsig
Sallarólegur
Það er hægt að ganga bara frá kaplinum almennilega þá skiptir engu hvort þú látir kapalinn frá ljósboxi enda í tengli . Bara kjánalegt að hafa kapal dingla útúr veggdós með mola á .
Hvað er símvirki í dag ?, hélt að þeir væru horfnir af yfirborði jarðar.
Re: Cat5 tengingar-hjálp
Sent: Fös 18. Júl 2014 12:31
af Sallarólegur
jonsig skrifaði:Bara kjánalegt að hafa kapal dingla útúr veggdós með mola á .
Ekkert kjánalegt við það ef það er snyrtilega gengið frá því
Persónulega finnst mér þetta til dæmis ekkert rosalega fallegt:
Re: Cat5 tengingar-hjálp
Sent: Fös 18. Júl 2014 19:23
af Magni81
Jæja allt klappað klárt núna. Fékk með puncher frá Íhlutum. Skoðaði molann og ég hafði óvart víxlað bláa og bláa/hvíta.
Re: Cat5 tengingar-hjálp
Sent: Fös 18. Júl 2014 19:28
af Skari
Sallarólegur skrifaði:jonsig skrifaði:Bara kjánalegt að hafa kapal dingla útúr veggdós með mola á .
Ekkert kjánalegt við það ef það er snyrtilega gengið frá því
Persónulega finnst mér þetta til dæmis ekkert rosalega fallegt:
@Sallarólegur, enda hefur þú líka fundið einhvern ljótasta tengil sem er, + það þarf ekkert loftnetstengil lengur.. ideal verður allt nettengt.
Einnig að það er ekkert að því að hafa þetta í tenglum, eina sem þarf að passa er að losa sem minnst af snúningnum fyrir hvert par.
@Magni81, flott að þetta sé komið í lag !