Síða 2 af 4

Sent: Þri 02. Nóv 2004 10:37
af Vilezhout
það var bara uppá að geta horft á fleirri enn eina læsta rás í einu, t.d. að á laugardegi þegar óli og palli vilja horfa á fótboltann á sýn þá geti gunna og gagga horft á opruh eða öfugt ^_^

Sent: Þri 02. Nóv 2004 10:57
af arro
Sælir,

er ekki einhver sem er kominn með þennan afruglara til í að mynda hann ???

Eina mynd af back panelnum og síðan eina af miðanum sem segir til um serialnúmer tegund osfrv.

Muna bara að þurrka út seríalnúmerið, langar ekkert að sjá það heldur bara versionið osfrv.

Mætti líka fylgja með mynd af smartkortinu.

kv/ Arró

Sent: Þri 02. Nóv 2004 12:22
af Pandemic
Þetta tæki er spooky það downloadar firmware update sjálfkrafa ætli að monitori ekki hvað maður horfi á ?
Ég skírði Omega satan þetta er nice möguleiki.

Sent: Þri 02. Nóv 2004 15:21
af MezzUp
Pandemic skrifaði:Þetta tæki er spooky það downloadar firmware update sjálfkrafa ætli að monitori ekki hvað maður horfi á ?
Nei, til þess þyrfti það að geta sent gögn, og þá þarf meira en örbylgjuloftnet?

Sent: Þri 02. Nóv 2004 16:54
af arro
Það getur væntanlega tekið á móti updatei .... þ.e. ÍÚ getur væntanlega sent út update ... þ.e. pushað þessu á clientana.

Sent: Þri 02. Nóv 2004 17:40
af MezzUp
arro skrifaði:Það getur væntanlega tekið á móti updatei .... þ.e. ÍÚ getur væntanlega sent út update ... þ.e. pushað þessu á clientana.
já, ég var að svara hinu sko, þ.e. hvort að þeir geti ekki fylgst með því sem að maður er að horfa á.

Sent: Þri 02. Nóv 2004 19:04
af Pandemic
En hvernig gat þá afruglarinn fattað að hann þyrfti update hann hefur væntanlega þurft að senda til Uí og athuga hvort það væri til ný uppfærsla :S

Sent: Þri 02. Nóv 2004 19:52
af gumol
Þeir senda nátturlega bara update með reglulegu millibili.

Sent: Þri 02. Nóv 2004 19:53
af MezzUp
Pandemic skrifaði:En hvernig gat þá afruglarinn fattað að hann þyrfti update hann hefur væntanlega þurft að senda til Uí og athuga hvort það væri til ný uppfærsla :S
Nei, ÍÚ hefur bara sent update sem að tækið tekur við og setur upp, einsog arro benti á.

Sent: Þri 02. Nóv 2004 21:24
af Zkari
Hvernig virkar þetta Digital sjitt eiginlega? Er þetta tengt við internetið einhvernvegin? :?:

Sent: Þri 02. Nóv 2004 21:32
af MezzUp
Zkari skrifaði:Hvernig virkar þetta Digital sjitt eiginlega? Er þetta tengt við internetið einhvernvegin? :?:
Nei, bara stafrænar sendingar í loftinu (100101010) frekar heldur hliðrænan(analog) sem að getur misst gæði á leiðinni.

Sent: Þri 02. Nóv 2004 23:01
af Snorrmund
HVernig er það með sjónvarpskort, ég er með kort með BT8x8 kubbasetti, get ég notað það í þetta? þ.e... ætla ekki að afrugla heldur bara vera með þetta til að horfa á útsendingar frá afruglaranum, þarsem sjónvarp kostar aðeins meira en sjónvarpskort, þá fékk ég mér bara kort frekar :)

Sent: Þri 02. Nóv 2004 23:03
af Pandemic
Þetta update drasl er rusl það var að koma nýtt í dag og afruglarinn crashar bara þegar ég reyni að downloada :S

Sent: Mið 03. Nóv 2004 10:15
af StarDu$t
en þeir byrja ekki að afhenda lyklana fyrr en 5. nóv :evil:

Sent: Mið 03. Nóv 2004 11:36
af gnarr
það ku vera rangt. þeir byrjuðu að afhenda þá síðasta föstudag.

Sent: Mið 03. Nóv 2004 13:40
af gumol
Á maður ekki að fá ókeypis örbylgjuloftnet frá þeim líka ef maður er ekki með það?

Sent: Mið 03. Nóv 2004 18:20
af MezzUp
gumol skrifaði:Á maður ekki að fá ókeypis örbylgjuloftnet frá þeim líka ef maður er ekki með það?
Veit ekki, en efa það.

Sent: Mið 03. Nóv 2004 18:24
af CraZy
jú þad stod einhverstadar,en bara á medan byrdir endast :/

Sent: Mið 03. Nóv 2004 22:09
af skipio
Bara ef maður skuldbindur sig í 12 mánuði, skilst mér.

En úff, skelfilega kemur RÚV (og Omega) illa út hjá þeim. Enda ekki nema eðlilegt þar sem þeir taka analog merkið úr loftinu, pakka því sem MPEG og senda aftur út sem stafrænt.

Sent: Mið 03. Nóv 2004 23:16
af gumol
Held að M12 áskrifendur (þeir sem hafa verið í áskrift í 12 mánuði) fái loftnet ef þeir eru ekki með loftnet. Hef allavega heyrt eitthvað um það í auglýsingum.

Ég ætla að prófa að hringja á morgun og spurja :)

Sent: Fim 04. Nóv 2004 07:25
af gnarr
mikið gagn í þvíað hafa verið áskrifandi í 12 mánuði en aldrei hafa verið með loftnet. það er álíka og ða gera 12 mánaða adsl samning og vera ekki með símatengi ;)

Sent: Fim 04. Nóv 2004 09:20
af MezzUp
gnarr skrifaði:mikið gagn í þvíað hafa verið áskrifandi í 12 mánuði en aldrei hafa verið með loftnet. það er álíka og ða gera 12 mánaða adsl samning og vera ekki með símatengi ;)
Erum að tala um að þeir sem að hafi verið með venjulegt loftnet fái örbylgjuloftnet ;)

Sent: Fim 04. Nóv 2004 12:34
af gnarr
ok :lol:

Sent: Fim 04. Nóv 2004 19:27
af gumol
Þá er það komið á hreynt. Við fáum loftnet ókeypis en við þurfum að sjá um uppsetningu sjálf.
Svo ég var að spá, er þetta eitthvað sem maður gæti gert sjálfur eða verður að fá einhvern í þetta?

Sent: Fim 04. Nóv 2004 20:22
af MezzUp
gumol skrifaði:Þá er það komið á hreynt. Við fáum loftnet ókeypis en við þurfum að sjá um uppsetningu sjálf.
Svo ég var að spá, er þetta eitthvað sem maður gæti gert sjálfur eða verður að fá einhvern í þetta?
Pabbi skellti upp okkar örbylgjuloftneti með ease