Síða 2 af 2
Re: Hringdu telur ekkert gagnamagn
Sent: Þri 01. Júl 2014 21:05
af vesley
AntiTrust skrifaði:Ótrúlega flott og metnaðarfullt concept - En að bjóða upp á þetta fyrir 50-400Mbit tengingar er ekkert grín. Daginn sem ég sé solid gögn/reynslusögur af því að þetta hafi ekki víðtæk áhrif á erlendan hraða mun ég hoppa yfir.
Sammála þér þar, fylgist spenntur með þessu!
Re: Hringdu telur ekkert gagnamagn
Sent: Þri 01. Júl 2014 21:14
af g0tlife
Re: Hringdu telur ekkert gagnamagn
Sent: Þri 01. Júl 2014 23:37
af Karmine
Þetta er geðveikt.
Nú þarf ég bara finna alla sem ég þekki sem nota ADSL og henda þeim á Hringdu xD
Re: Hringdu telur ekkert gagnamagn
Sent: Þri 01. Júl 2014 23:59
af Xberg
Ég er búin að vera í viðskiptum við Hringdu með ljósleiðara nánast síðan þeir komu á markaðinn.
Var oft orðið þreittur á lélegum hraða innanlands og mest utanlands, hátt ping og netið mjög oft að detta út klukkutímanum saman.
Enn í dag er ég mjög sáttur með mín viðskipti við Hringdu, eftir að þeir löguðu kerfið hjá sér þá hefur allt verið 99.9% hjá þeim, hraðinn góður, lágt ping, mjög stöðugt net og ekkert vesen með reikningana.
Ég er með 100.GB pakka hjá þeim og hef stundum farið vel yfir það, en hef aldrei verið rukkaður aukalega.
Ég bendi öllum sem ég þekki að fara í viðskipti við Hringdu og nú þegar búin að fá ca.10.mans til að fara yfir til þeirra með sín viðskipti.
Glæsileg framför hjá Hringdu
. Núna þurfiði bara að fara koma með 200.Mb til 1.Gb tengingar.
Re: Hringdu telur ekkert gagnamagn
Sent: Þri 01. Júl 2014 23:59
af Tesy
ICH BIN SPENNTUR!
Ég er með 250gb núna og fjölskyldan mín er einhvern veginn alltaf nálægt því að klára.
Re: Hringdu telur ekkert gagnamagn
Sent: Mið 02. Júl 2014 01:32
af Minuz1
Ég væri til í að missa eitthvað af gagnamagninu sem ég hef hjá hringdu fyrir meiri stöðuleika og jafnvel meira redundancy í útlandatengingum.
Re: Hringdu telur ekkert gagnamagn
Sent: Mið 02. Júl 2014 10:26
af fannar82
Djöfull er ég ánægður með þetta hjá ykkur, en djöfull er ég smeykur um að tölvuleikja MS-ið mitt er farið til anskotans núna
, en það er svosém í lagi ég ætti að vera gera allt annað en að spila cs:go
Re: Hringdu telur ekkert gagnamagn
Sent: Fös 04. Júl 2014 08:11
af aether
Hringdu eru tærir snillingar.
Ég er og hef verið hjá þeim síðan ég heyrði fyrst um þá, og ég er reglulega að sannfæra vini um að koma til Hringdu.
Ég lendi sjaldan/aldrei í vandræðum með netið og í eiginlega öllum tilfellum þá er vandamálið innanhúss.
Re: Hringdu telur ekkert gagnamagn
Sent: Þri 22. Júl 2014 00:14
af Danni V8
Er einhver í Keflavík hjá Hringdu?
Ég var að færa mig yfir til þeirra og er að lenda í alveg glötuðu neti. 130ms á nánast öllum erlendum serverum. Spyke-ar stundum uppí 200. Var alltaf solid 40-60 hjá Símanum.
Re: Hringdu telur ekkert gagnamagn
Sent: Þri 22. Júl 2014 00:19
af fannar82
fannar82 skrifaði:Djöfull er ég ánægður með þetta hjá ykkur, en djöfull er ég smeykur um að tölvuleikja MS-ið mitt er farið til anskotans núna
, en það er svosém í lagi ég ætti að vera gera allt annað en að spila cs:go
Naiiild it, msið farið til anskotans. Verð samt að gefa Hringdu það að þeir eru allir af vilja gerðir að reyna laga þetta og skillst að þeir séu að vinna í málunum núna
Re: Hringdu telur ekkert gagnamagn
Sent: Mið 23. Júl 2014 18:18
af GunniH
Danni V8 skrifaði:Er einhver í Keflavík hjá Hringdu?
Ég var að færa mig yfir til þeirra og er að lenda í alveg glötuðu neti. 130ms á nánast öllum erlendum serverum. Spyke-ar stundum uppí 200. Var alltaf solid 40-60 hjá Símanum.
fannar82 skrifaði:fannar82 skrifaði:Djöfull er ég ánægður með þetta hjá ykkur, en djöfull er ég smeykur um að tölvuleikja MS-ið mitt er farið til anskotans núna
, en það er svosém í lagi ég ætti að vera gera allt annað en að spila cs:go
Naiiild it, msið farið til anskotans. Verð samt að gefa Hringdu það að þeir eru allir af vilja gerðir að reyna laga þetta og skillst að þeir séu að vinna í málunum núna
Sælir!
Við viljum vera ótrúlega transparent í svona málum og erum ekki að fela neitt, við erum að sjálfsögðu meira en tilbúnir að leysa þetta með ykkur - og höfum núþegar byrjað á því. Til þess að gera grein fyrir því hvað er að þá erum við með 2 linka erlendis til, einn sem fer til Canada og þaðan til Bandaríkjanna og hinn sem að fer til Bretlands og svo Evrópu. Það sem er að gerast er að við erum að peera ykkur í vitlausa átt (yfirleitt bara á leiðinni til baka). Þ.e.a.s. ef þið tengist við leikjaserver í Þýskalandi þá fariði út til Bretlands, þaðan inn í meginland Evrópu og til Þýskalands. Í stað þess að fara sömu leið til baka að þá heldur BGP að það sé betra fyrir ykkur að fara frá Þýskalandi yfir hafið til USA og heim til Íslands. Þetta veldur því að latency'ið ykkar snarhækkar og er því miður til vandræða. Þetta hefur mikið skánað hjá okkur á síðustu mánuðum og eru margir leikir komnir í fullkomið horf. Það er hinsvegar mun einfaldara fyrir okkur að leysa þetta fyrir leiki sem að eru með fasta leikjaservera því þá getum við lagfært þá leið sem að þú tengist við serverinn. Þegar þú spilar leik eins og CS:GO að þá ertu að hoppa á milli helling af leikjaserverum og getum við ekki lagað hvern einn og einasta eins og þetta er í dag.
Við munum gera okkar besta til að lagfæra þessar rútur til að bæta svartímann á netinu hjá okkur og ef að þið hendið á mig maili (
gunnar@hringdu.is) með þeim leik sem þið eruð að spila ásamt þeim serverum sem þið spilið oftast á að þá ætti ég að geta leyst málið hjá ykkur. Hinsvegar munum við nú á næstunni fara í róttækari breytingar til þess að laga þetta permanently. Það er því miður aðeins meiri vinna og liggja fleiri hlutir þar að baki, þetta er hinsvegar efst á listanum hjá okkur því þetta virðist vera það sem hrjáir okkur mest og er það algjör skömm þar sem erlenda gáttin hjá okkur er í fínu standi, hraðinn er að skila sér vel og höfum við aldrei verið í betra standi en í dag. Þegar við klárum þessar lagfæringar þá verðum við óstöðvandi!
Kveðja,
Gunnar
Re: Hringdu telur ekkert gagnamagn
Sent: Mið 23. Júl 2014 19:23
af fannar82
GunniH skrifaði:Danni V8 skrifaði:Er einhver í Keflavík hjá Hringdu?
Ég var að færa mig yfir til þeirra og er að lenda í alveg glötuðu neti. 130ms á nánast öllum erlendum serverum. Spyke-ar stundum uppí 200. Var alltaf solid 40-60 hjá Símanum.
fannar82 skrifaði:fannar82 skrifaði:Djöfull er ég ánægður með þetta hjá ykkur, en djöfull er ég smeykur um að tölvuleikja MS-ið mitt er farið til anskotans núna
, en það er svosém í lagi ég ætti að vera gera allt annað en að spila cs:go
Naiiild it, msið farið til anskotans. Verð samt að gefa Hringdu það að þeir eru allir af vilja gerðir að reyna laga þetta og skillst að þeir séu að vinna í málunum núna
Sælir!
Við viljum vera ótrúlega transparent í svona málum og erum ekki að fela neitt, við erum að sjálfsögðu meira en tilbúnir að leysa þetta með ykkur - og höfum núþegar byrjað á því. Til þess að gera grein fyrir því hvað er að þá erum við með 2 linka erlendis til, einn sem fer til Canada og þaðan til Bandaríkjanna og hinn sem að fer til Bretlands og svo Evrópu. Það sem er að gerast er að við erum að peera ykkur í vitlausa átt (yfirleitt bara á leiðinni til baka). Þ.e.a.s. ef þið tengist við leikjaserver í Þýskalandi þá fariði út til Bre
Kveðja,
Gunnar
Frábært
Bara svo það er skýrt var ég ekki að setja út á þjónustuna hjá ykkur sem virðist vera til fyrirmyndar.
.
Re: Hringdu telur ekkert gagnamagn
Sent: Fim 24. Júl 2014 03:27
af Danni V8
Þakka svarið Gunnar. Vonandi leysist þetta for good sem fyrst.