Síða 2 af 2

Re: Langar þig að vinna þér inn BTC (verðgildi um 430-500$)?

Sent: Mið 14. Maí 2014 00:04
af Oak
Þarna ertu að borga þeim minnst $150 fyrir þetta...og þarftu svo ekki að leggja pening í þetta eftir það? þ.e.a.s. einhvern pening til að starta þessu?

Re: Langar þig að vinna þér inn BTC (verðgildi um 430-500$)?

Sent: Mið 14. Maí 2014 00:05
af Lunesta
yfirleitt aldrei sniðugt að nota þessa botta.. alltaf e-jir sem vita hvernig þeir virka og
græða bara á þeim. Gróðaprósentan er bara sett inn svo fólk búist frekar við gróða.
Myndi ekki endilega kalla þetta scam en mæli gegn þessu.

Re: Langar þig að vinna þér inn BTC (verðgildi um 430-500$)?

Sent: Mið 14. Maí 2014 05:05
af Gúrú
Guð minn almáttugur er ég á Vaktinni eða heimskasta spjallborði allra tíma?

Ef það væri einhver svona auðveld leið til að græða háar fjárhæðir og einhver hefði aðgang að þeim
hvað er það sem ÞIÐ sem sýnið þessu áhuga haldið að þeim vanti YKKUR í?

Haldið þið að þeir hafi ekki aðgang að nægri reikningsgetu?
Haldið þið að þeir hafi ekki aðgang að nægri bandvídd?
Haldið þið að þeir hafi ekki aðgang að nógu mörgum auðkennum?
"Hey, ég er búinn með ALLA sem ég þekki í lífinu og vini og ættingja þeirra, best að byrja að bjóða handahófskenndum einstaklingum á internetinu þetta tilboð"

Spyrjið ykkur að þessu.

Spyrjið ykkur að því á nákvæmlega tímapunktinum sem guztiZ87 sendir ykkur á slóð sem er http://www.s" onclick="window.open(this.href);return false;íða.com/r?=43934934 (r eins og í referral)
eða fáið e-mail frá "honum" sem er frá http://www.s" onclick="window.open(this.href);return false;íða.com af hverju það er. Af hverju væri kerfið sett upp þannig ef hann gerði þetta af góðfýsni sinni?
Af hverju skiptir það fyrirtækið eða hann máli hver bauð ykkur?

Re: Langar þig að vinna þér inn BTC (verðgildi um 430-500$)?

Sent: Mið 14. Maí 2014 07:11
af Oak
guztiZ87 hefur ekki ennþá sett inn neinar upplýsingar eða link...

þessi robot þarna er ekkert easy money en gæti hinsvegar alveg mögulega virkað...þetta er náttúrlega bara kaupa lágt selja aðeins hærra dæmi...

Re: Langar þig að vinna þér inn BTC (verðgildi um 430-500$)?

Sent: Mið 14. Maí 2014 08:44
af dori
MIg langaði bara að heyra hvaða vitleysu hann væri að fara að koma með.

Re: Langar þig að vinna þér inn BTC (verðgildi um 430-500$)?

Sent: Mið 14. Maí 2014 09:30
af ManiO
MyndMynd

Re: Langar þig að vinna þér inn BTC (verðgildi um 430-500$)?

Sent: Mið 14. Maí 2014 19:03
af guztiZ87
Gúrú skrifaði:Guð minn almáttugur er ég á Vaktinni eða heimskasta spjallborði allra tíma?

Ef það væri einhver svona auðveld leið til að græða háar fjárhæðir og einhver hefði aðgang að þeim
hvað er það sem ÞIÐ sem sýnið þessu áhuga haldið að þeim vanti YKKUR í?

Haldið þið að þeir hafi ekki aðgang að nægri reikningsgetu?
Haldið þið að þeir hafi ekki aðgang að nægri bandvídd?
Haldið þið að þeir hafi ekki aðgang að nógu mörgum auðkennum?
"Hey, ég er búinn með ALLA sem ég þekki í lífinu og vini og ættingja þeirra, best að byrja að bjóða handahófskenndum einstaklingum á internetinu þetta tilboð"

Spyrjið ykkur að þessu.

Spyrjið ykkur að því á nákvæmlega tímapunktinum sem guztiZ87 sendir ykkur á slóð sem er http://www.s" onclick="window.open(this.href);return false;íða.com/r?=43934934 (r eins og í referral)
eða fáið e-mail frá "honum" sem er frá http://www.s" onclick="window.open(this.href);return false;íða.com af hverju það er. Af hverju væri kerfið sett upp þannig ef hann gerði þetta af góðfýsni sinni?
Af hverju skiptir það fyrirtækið eða hann máli hver bauð ykkur?
Gúru, vinsamlegast grjót haltu þér saman í yfirlýsingunum ef þú þarft að koma með svona staðhæfingar. Þetta er ekki rétt hjá þér og reyndu að læra eðlileg samskipti, litli hroka- og fordómafulli karl.

Ef þér/einhverjum finnst ég dónalegur hér, berið þá bara saman við hans póst takk. Sami dónaskapur, bara á öðru formi.

Ég set inn link á PDF skjal sem ég er búinn að vera að íslenska núna seinna í kvöld þegar ég er búinn að þýða þetta skýrt og á sem skilmerkilegastan hátt ég get.

Kkv.,
Ágúst

Re: Langar þig að vinna þér inn BTC (verðgildi um 430-500$)?

Sent: Mið 14. Maí 2014 19:05
af guztiZ87
ManiO skrifaði:MyndMynd
Ok, fordómarnir hérna eru officially að kollkeyra fólk. Leyfðu fólki að koma sínu til skila áður en þú tjáir þig kæri vinur. Þetta lýsir eintómum hroka og fordómum hjá þér, ættir að sýna annað og betra af þér, og ég tala nú ekki um ef þú ert stjórnandi - engan veginn stjórnanda sæmandi.

Re: Langar þig að vinna þér inn BTC (verðgildi um 430-500$)?

Sent: Mið 14. Maí 2014 19:09
af guztiZ87
Yndislegt að sjá fordómana og hrokann hérna inni, jafnvel áður en ég er búinn að (OG HAFA MIKIÐ FYRIR) að íslenska þetta pdf skjal og setja link á það hérna inn. Meira að segja stjórnendur sýna af sér þessa barnalegu hegðun ÁÐUR en ég er búinn að koma þessu hérna inn.. afar lélegt það :thumbsd :thumbsd :thumbsd :thumbsd :thumbsd

En ég mun engu að síður setja inn link á íslenskað PDF seinna í kvöld svo þeir geti nýtt sér sem vilja, já ef þessir ástkæru stjórnendur, sem ég áður hafði ágætasta álit á, ákveða þá ekki í fýlukasti yfir mínum svörum að setja mig á bannlista af því að ég leyfi mér að svara þeim.

Kkv.,
Ágúst

Re: Langar þig að vinna þér inn BTC (verðgildi um 430-500$)?

Sent: Mið 14. Maí 2014 19:11
af guztiZ87
bixer skrifaði:þetta hljómar hrikalega vel en ég hef enga trú á þessu

ef þetta virkar þá skal ég gefa þér 50% af því sem ég græði
Sæll.
Ég hef ekki áhuga á að græða BTC út frá einhverjum síðuðsmellum eða öðru slíku frá öðrum. Notaðu bara upplýsingarnar í pdf-inu sem ég set inn nákvæmlega eins og þær eru - og njóttu.

Kkv.,
Ágúst

Re: Langar þig að vinna þér inn BTC (verðgildi um 430-500$)?

Sent: Mið 14. Maí 2014 19:13
af guztiZ87
GuðjónR skrifaði:Það gefur enginn neinum neitt, ef ég kemst að því að OP er að svíkja, svindla eða reyna að græða á Vökturum með vafasömum hætti þá þýðir það varanlegt bann án aðvörunar.
Þarna er alvöru stjórnandi á ferðinni!
Takk innilega og kærlega fyrir frábært svar sem stjórnanda sæmir! :happy :happy :happy

Kkv.,
Ágúst

Re: Langar þig að vinna þér inn BTC (verðgildi um 430-500$)?

Sent: Mið 14. Maí 2014 19:22
af GuðjónR
Þessi var harður á bak við skjáinn.
Notandi bannaður og þræði læst.