Síða 2 af 2
Re: Símasölufólk að ónáða mig !
Sent: Fim 08. Maí 2014 15:55
af Nariur
Þeir láta mann vera ef maður biður þá um það. Mig er farið að gruna að þið séuð haldnir félagsfælni á háu stigi.
Re: Símasölufólk að ónáða mig !
Sent: Fim 08. Maí 2014 16:03
af jonsig
Ég hugsa símann minn bara sem samskiptatæki þurfi ég að hafa samband við einhvern aðila í einkaerindagjörðum og til að vinir og fjölskylda mín geti haft samband , ég vissulega keypti ekki þennan síma til þess að eitthvað random lið útí bæ geti verið að reyna pimpa einhverju drasli inná mig .
Ef ég þarf að kaupa eitthvað til að hafa á heimilinu eða bíl þá fer ég yfirleitt bara beint á consumerreports.org ég ætla ekki að láta hagsmunaaðila ráðleggja mér hvað ég á að kaupa .
Og tryggingarnar kaupi ég bara af tryggingasala sem ég þekki
Re: Símasölufólk að ónáða mig !
Sent: Fim 08. Maí 2014 21:46
af Gúrú
Nariur skrifaði:Þeir láta mann vera ef maður biður þá um það.
Það er ekki rétt í mörgum tilfellum. Ef ekki bara flestum.
Nariur skrifaði:Mig er farið að gruna að þið séuð haldnir félagsfælni á háu stigi.
Hvernig tengist þetta félagsfælni?
Það er óþolandi að standa upp frá einhverju til að sækja símann og finna út að það er fyrirtæki að ónáða mann enn eina ferðina.
Re: Símasölufólk að ónáða mig !
Sent: Fim 08. Maí 2014 22:01
af beggi83
Ég ákvað á sýnum tíma að taka þetta skrefinu lengra! Ég var orðinn svo pirraður á þessu að ég ákvað að taka leik á þetta. eftir að hafa upplifað nokkur skipti þar sem Sölumaður íslands eða Sérfræðingur íslands um tryggingar eða allt mögulegt höfðu truflað mitt kvöld. Mitt plan virkaði því ég fæ aldrei símtöl lengur. Það sem ég gerði....
Var að fara í persónur. Herma eftir Pétur jóhann... Öskra í síman Hvað segir Kjellin.... Skipta um persónu Reyna herma eftir Páll óskar ég ÉG ,..... Er þetta ÉG í símanum...... Tala svo hratt um ekkki neitt.... EF hinn aðilinn reyndi að tala þá talaði ég ennþá hærra og hraðar... EFtir smátíma gefst fólk upp því það veit að maður er eyða tímanum þeirra með nákvæmlega sama hætti og það er eyða mínum dýrmæta tíma.. OFtast dey ég úr hlátri þegar er skellt á mig. Með þessu náði ég að gera leiðinlegt símtal í skemmtilegt símtal fyrir mig!
Re: Símasölufólk að ónáða mig !
Sent: Fim 08. Maí 2014 22:26
af Revenant
Grípa framí og segja "Hef ekki áhuga bless" og skella svo á. Óþarfi að láta viðkomandi fara í gegnum handritið sitt bara svo að maður geti sagt bless.
Re: Símasölufólk að ónáða mig !
Sent: Fim 08. Maí 2014 22:45
af Frantic
Einn símasölumaður sem var að selja bláa kortið var tekinn svona í vinnunni hjá mér í dag.
Náðum að halda honum í amk 15 mín bara með einhverju bulli og þá sagði sá sem tók símtalið, "Ætla að frekar að fá mér stúdentakortið, takk bless!"
Ódýr skemmtun en ég öfunda ekki svona símasölufólk.
Re: Símasölufólk að ónáða mig !
Sent: Fim 08. Maí 2014 22:48
af MrSparklez
Hahah ég náði bara í biblíu úr bókahilluni og fór að röfla.
Hann var ekki lengi að skella á.....
Re: Símasölufólk að ónáða mig !
Sent: Fim 08. Maí 2014 23:14
af arons4
Skemmtileg lausn á þessu
https://www.youtube.com/watch?v=_1KqMnK_os4#t=46" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Símasölufólk að ónáða mig !
Sent: Fim 08. Maí 2014 23:24
af Frantic
haha ég tek þetta næst þegar ég lendi í svona símtali!
Re: Símasölufólk að ónáða mig !
Sent: Fös 09. Maí 2014 02:56
af Nariur
Gúrú skrifaði:Nariur skrifaði:Þeir láta mann vera ef maður biður þá um það.
Það er ekki rétt í mörgum tilfellum. Ef ekki bara flestum.
Nariur skrifaði:Mig er farið að gruna að þið séuð haldnir félagsfælni á háu stigi.
Hvernig tengist þetta félagsfælni?
Það er óþolandi að standa upp frá einhverju til að sækja símann og finna út að það er fyrirtæki að ónáða mann enn eina ferðina.
Ég hefði átt að quote-a síðasta innlegg. Við vorum að tala um afgreiðslufólk í verslunum.
Re: Símasölufólk að ónáða mig !
Sent: Mið 10. Jún 2015 10:45
af Heliowin
Djöfull man ég eftir því þegar ég fékk markaðssetningar símhringingu frá einhverju blindra félagi eða einhverju álíka nokkru eftir að hafa keypt augnlinsur um árið. Þarf ekki endilega að tengjast, en samt.
Ég er á bannskrá hjá þjóðskrá og ja.is en samt er ég að fá símhringingar frá aðilum sem ég er ekki í neinum tengslum við og eru að bjóða mér upp á eitthvað sem ég hef nákvæmlega engan áhuga á, alveg eins og með 99.999 % af öllum auglýsingum.
En ég ætla að kvarta næst.
Re: RE: Re: Símasölufólk að ónáða mig !
Sent: Mið 10. Jún 2015 11:10
af KermitTheFrog
Heliowin skrifaði:Djöfull man ég eftir því þegar ég fékk markaðssetningar símhringingu frá einhverju blindra félagi eða einhverju álíka nokkru eftir að hafa keypt augnlinsur um árið. Þarf ekki endilega að tengjast, en samt.
Ég er á bannskrá hjá þjóðskrá og ja.is en samt er ég að fá símhringingar frá aðilum sem ég er ekki í neinum tengslum við og eru að bjóða mér upp á eitthvað sem ég hef nákvæmlega engan áhuga á, alveg eins og með 99.999 % af öllum auglýsingum.
En ég ætla að kvarta næst.
Mig minnir nú að bannskrá já.is ofl þýði bara að það megi ekki taka númerið þitt þaðan. Ef þeir eru með einhvern annan lista, hvaðan sem hann er fenginn, er ekkert sem stoppar þá að hringja.
Var í svona sölu um mjög stutt skeið og það er alveg ótrúlegt hvað þetta virkar. Eins pirrandi og mörgum finnst þetta. Annars væri þetta ekki í gangi.
Re: RE: Re: Símasölufólk að ónáða mig !
Sent: Mið 10. Jún 2015 12:53
af Heliowin
KermitTheFrog skrifaði:
Mig minnir nú að bannskrá já.is ofl þýði bara að það megi ekki taka númerið þitt þaðan. Ef þeir eru með einhvern annan lista, hvaðan sem hann er fenginn, er ekkert sem stoppar þá að hringja.
Var í svona sölu um mjög stutt skeið og það er alveg ótrúlegt hvað þetta virkar. Eins pirrandi og mörgum finnst þetta. Annars væri þetta ekki í gangi.
Já, maður verður að hafa þetta í huga.
Ég er venjulega mjög leiðinlegur þegar það er hringt í mig til að selja mér eitthvað og það virðist hafa dugað mjög vel því þetta datt niður að mestu leyti í langan tíma og kom bara fyrir annaðslagið. En ég ákvað samt að setja mig á bannlista þjóðskráar og já, og eftir það hefur þetta bara verið að koma fyrir á nokkra mánaða fresti eða svo.
En ef það er ekki að virka að vera leiðinlegur þá þarf maður ef til vill að reyna að vera almennilegur í staðinn og spyrja hvort að það sé hægt að biðja viðkomandi aðila að fjarlægja mann af lista hjá sér í allavega 5 ár.
En ef þessir aðilar hafa ekki neitt slíkt í boði og eru að fara framhjá listum eins og bannlistum, þá býður það í raun upp á leiðindi við viðkomandi.
Re: Símasölufólk að ónáða mig !
Sent: Mið 10. Jún 2015 15:29
af Snorrmund
Þeir eru alveg svakalegir hjá einhverju tryggingamiðlunarfyrirtækinu. Hafa greinilega komist yfir einhvern lista yfir samstarfsfélaga mína og hringja svo í okkur og segja manni að Jón eða einhver samstarfsfélaginn hafi bent þeim á mann.
Re: Símasölufólk að ónáða mig !
Sent: Mið 10. Jún 2015 16:37
af fantis
Tek ávallt vel við kannanir sem eitthvað vit er í. En um leið og einhverjir lífeyrissjóðir eða ný kreditkort fyrirtæki hringja notfæri ég mig erlenda ættarnafnið og þykist ekki kunna Íslensku. Þeir eru ansi fljótur að gefast upp.
Re: Símasölufólk að ónáða mig !
Sent: Mið 10. Jún 2015 16:46
af Dr3dinn
Frúin er bannmarkert á ja.is og í þjóðskrá og það er hringt í hana á hverjum degi.
Ég er bara ekki skráður (hvergi) með símanúmer þá slepp ég við þetta rugl.
Re: Símasölufólk að ónáða mig !
Sent: Mið 10. Jún 2015 16:54
af astro
Lenti í einu um daginn.
Ég fór niðrí Heklu og prufukeyrði rafmagns e-UP, þurfti að afhenda ökuskirteini að sjálfsögðu við reynsluakstur,
en hann hefur greinilega tekið nafn/kt og flett mér upp eða eh, því ég fæ símhringingu daginn eftir.
"Blessaður félagi *Jón Jónsson hérna hjá Heklu"
"Uh, já hæ? (wtf)"
"Hvað segiru, langar þér ekki bara að ganga frá þessu?"
Ég afþakki, og fékk aftur símtal eftir viku með sömu óskum að ég myndi bara ganga frá þessum kaupum, liggur við símleiðis.
Er normið í dag að ganga á eftir öllum sem reynsluaka bíla ? Kanski er þetta ástæðan fyrir uppgangnum í sölu nýrra bíla, því bílasalarnir eru svo uppáþrengjandi og ágengir að það er að drepa þá!
Re: Símasölufólk að ónáða mig !
Sent: Mið 10. Jún 2015 17:11
af jongun
Afhverju fæ ég aldrei svona símhringingar?