Síða 2 af 3

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 22:53
af rapport
Nördaklessa skrifaði:ég er ekki trúaður maður, en er ekki þessi óþolandi atheist með sinn boðskap, ef trúarbrögð hjálpar fólki í gegnum daginn þá er það gott að blessað mín vegna
Ekki trúaður en ert samt að leggja blessun þína yfir fólk sem trúir????

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 23:06
af Gerbill
rapport skrifaði:
Nördaklessa skrifaði:ég er ekki trúaður maður, en er ekki þessi óþolandi atheist með sinn boðskap, ef trúarbrögð hjálpar fólki í gegnum daginn þá er það gott að blessað mín vegna
Ekki trúaður en ert samt að leggja blessun þína yfir fólk sem trúir????
Hvað er að því? Má fólk ekki trúa því sem það vill, svo lengi sem það haldi því fyrir sig?

Ég er ekki trúaður en er sama þótt að fólk trúi, hinsvegar eru nokkrir hlutir sem angra mig.
Þegar börn eru heilaþvegin, öfgatrúafólk, ríkisrekin trúarbrögð, það að prestar á Íslandi séu með hærri grunnlaun en ýmsar heilbrigðistéttir (t.d. sjúkraþjálfar, iðjuþjálfar, hjúkrunarfræðingar)

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 23:56
af Stuffz
tja Tæknikallar eru kannski ekki með trúuðustu hópunum.

en hvort guð sé til eða ekki hefur lítið að gera með hvernig Jón eða Palli kjóa að iðka trú sína á honum, þ.e.a.s. ef fólk er fífl þá hlítur að að koma framm í öllu sem það gerir, trúariðkun innifalin.

Fyrir mitt leiti þá tel ég mig ekki geta fullyrt af eða á með vissu um tilvist Guðs, svo skilst mér að hugmyndir fólks misjafnar um hvað er Guð, ég hef hinsvegar gott ýmindunarafl og get séð fyrir mér eitthvað aðeins stærra en eitthvern gaur sem er góður á hjólabretti, það er víst staðreynd að þróaðari samfélög hafa haft heilsteyptari mynd af guðdómi en vanþróðari, þeir sem trúðu á stokka og steina lutu í lægra haldi fyrir þeim sem höfðu stærri og flóknari trúarlegri útlistanir, þetta er kannski ekki ósvipað öðrum kerfum í okkar samfélögum, þau bestu enda á toppnum.

Samt ég held það blundi í öllum hirðingjatrú frumbernskunnar þ.e.a.s ef líf manns er krufið til mergjar þá eru ýmsir hlutir sem maður getur ekki útskýrt fyllilega afhverju maður gerir svona en ekki hinsegin nema vera kominn yfir í hjátrú og þesslags.

Og þá vaknar spurning, er Hjátrú ekki Trú, og ef Hjátrú er trú þá flokkast kannski fleiri en maður hefði trúað í fyrstu sem trúaðir eftir allt eða?

Mér finnst gaman af Heimspekilegum vangaveltum ;)

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Mið 16. Apr 2014 08:17
af stefhauk
Ég er ekki trúaður og hef aldrei verið á bara eftir að segja mig úr þjóðkirkjunni.

En þó ég sé ekki trúaður þá trúi ég á líf eftir dauðan hvort sem maður verður draugur eða fæðist aftur sem einhver lífvera.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Mið 16. Apr 2014 10:28
af Hannesinn
Ég læt nú flestar svona umræður eiga sig, en ég er samt militant trúleysingi. Þeir sem horfa framhjá rökhugsun og trúa á guð, álfa, eftirlíf, eða hvaða vitleysu sem tekur að nefna, verða sjálfkrafa kjánar í mínum bókum. Það virðist vera einhver tískubylgja að hætta að trúa á hinn kristna guð en trúa samt á "eitthvað annað" sem á uppruna í trúarbrögðum, eins og að verða stjörnuryk í kosmóinu, endurfæðast sem eitthvað annað, verða svífandi andi og taka þátt í lífinu en núna bara sem áhorfandi.

Fólk er greinilega bara ekki tilbúið að sætta sig við að enda sem ormafóður, og taka sinn þátt í hringrás náttúrunnar. Það þarf alltaf eitthvað grand finale. :)

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Mið 16. Apr 2014 10:45
af Batrell
Stuffz skrifaði:tja Tæknikallar eru kannski ekki með trúuðustu hópunum.

en hvort guð sé til eða ekki hefur lítið að gera með hvernig Jón eða Palli kjóa að iðka trú sína á honum, þ.e.a.s. ef fólk er fífl þá hlítur að að koma framm í öllu sem það gerir, trúariðkun innifalin.

Fyrir mitt leiti þá tel ég mig ekki geta fullyrt af eða á með vissu um tilvist Guðs, svo skilst mér að hugmyndir fólks misjafnar um hvað er Guð, ég hef hinsvegar gott ýmindunarafl og get séð fyrir mér eitthvað aðeins stærra en eitthvern gaur sem er góður á hjólabretti, það er víst staðreynd að þróaðari samfélög hafa haft heilsteyptari mynd af guðdómi en vanþróðari, þeir sem trúðu á stokka og steina lutu í lægra haldi fyrir þeim sem höfðu stærri og flóknari trúarlegri útlistanir, þetta er kannski ekki ósvipað öðrum kerfum í okkar samfélögum, þau bestu enda á toppnum.

Samt ég held það blundi í öllum hirðingjatrú frumbernskunnar þ.e.a.s ef líf manns er krufið til mergjar þá eru ýmsir hlutir sem maður getur ekki útskýrt fyllilega afhverju maður gerir svona en ekki hinsegin nema vera kominn yfir í hjátrú og þesslags.

Og þá vaknar spurning, er Hjátrú ekki Trú, og ef Hjátrú er trú þá flokkast kannski fleiri en maður hefði trúað í fyrstu sem trúaðir eftir allt eða?

Mér finnst gaman af Heimspekilegum vangaveltum ;)
Ég verð að segja varðandi punkt þinn um að bestu kerfi samfélagsins endi á toppnum er held ég ekki alveg rétt. Það að segja að t.d Ásatrú hafi lagst útaf vegna þess að Kristni hafi verið betra "kerfi" stenst enga skoðun. Mig grunar að þú sért að tilvitna í frægu setningu Darwins: "Survival of the fittest" Ég er því miður ekki viss um að þessi staðhæfing nái yfir samfélagsleg kerfi eins og trúarbrögð og fl. heldur snýst þetta um einstaklingana sem stjórnar kerfunum. Þessu til rökstuðnings er hægt að spyrja sig afhverju er auður jarðarinnar eins misskipt eins og raun ber vitni.

Einnig er ég ekki alveg að skilja punktinn um hjátrú, enn stutt svar er að hjátrú hlýtur að sjálfsögðu að vera trú, trú á að eitthvað komi fyrir ef þú framkvæmir eitthvað eða framkvæmir ekki eitthvað. trú á að draugar, álfar og aðrar yfirnáttúrulegar verur séu tilhttp://is.wikipedia.org/wiki/Hj%C3%A1tr%C3%BA

Annars til að svara spurningu þráðarhöfundar þá er ég ekki trúaður, ég reyni að bera virðingu fyrir fólki sem trúir í hófi. Enn ég hef enga þolinmæði fyrir öfgum og margt sem fer í taugarnar á mér varðandi hversu vernduð trúarbrögð eru og þeirra talsmenn, t.d ef þú ert prestur í einhverju trúfélagi þá hafir þú leyfi til að dreifa hatri og fordómum án neinna afleiðinga.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Mið 16. Apr 2014 11:36
af depill
Gerbill skrifaði:
rapport skrifaði:
Nördaklessa skrifaði:ég er ekki trúaður maður, en er ekki þessi óþolandi atheist með sinn boðskap, ef trúarbrögð hjálpar fólki í gegnum daginn þá er það gott að blessað mín vegna
Ekki trúaður en ert samt að leggja blessun þína yfir fólk sem trúir????
Hvað er að því? Má fólk ekki trúa því sem það vill, svo lengi sem það haldi því fyrir sig?

Ég er ekki trúaður en er sama þótt að fólk trúi, hinsvegar eru nokkrir hlutir sem angra mig.
Þegar börn eru heilaþvegin, öfgatrúafólk, ríkisrekin trúarbrögð, það að prestar á Íslandi séu með hærri grunnlaun en ýmsar heilbrigðistéttir (t.d. sjúkraþjálfar, iðjuþjálfar, hjúkrunarfræðingar)
Ég held hann hafi verið að gera grín að því að þú værir ekki trúaður en vildir samt blessa.

My 5 cents
Ég vill trúa að það sé bæði eithvað eftir þetta líf og það sé eithvað æðri máttar og geri það. Hvort það sé "Guð" það hef ég ekki hugmynd um. Eina sem ég held er bara að það sé eithvað eftir þetta og það sé eithvað yfir okkur.

Ég trúi ekki á presta né biskaupa og hef aldrei trúað því að 3 eða 5 ára háskólanám geti gefið mér beina línu til Guðs ( veit ekki hvað námið er langt, þannig ég set 3-5 ár )
Mér finnst gott og blessað að fólk vilji stunda sýna trú eða trúleysi svo lengi sem enginn er að troða því uppá mig, né aðra. Það á að vera minn valkostur.

Mér finnst að það sé ekkert sem réttlætir ríkisstyrki Kirkjunnar. Ef fólk vill greiða prestum fyrir þjónustu sína er það meira en frjálst að gera það. Það má til dæmis hugsa um það sé jafnvel replacement fyrir sálfræðiþjónustu að einhverju leyti. En ég vill ekki að ríkið greiði neitt inní neina trúarstofnun, þær eiga bara að geta rekið sig eins og aðrar áhugamannastofnanir.

Aftur fólk er frjálst að gera og trúa því sem það vill, svo lengi sem það affectar mig ekki ( fjárhagslega eða öðruvísi ) :) og ég í raun og veru skil ekki afhverju við "ríkið" erum ekki löngu búin að segja kirkjunni bara að núna á ríkið jarðinar og þið fáið ekki neitt og þurfið bara að fjármagna ykkur eins og allir hinir með frjálsum framlögum.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Mið 16. Apr 2014 13:30
af jojoharalds
(á marr að taka þátt í þessari umræðu?) sjitt,
höfum þetta einfaldlega og eins gróft og hægt er að hafa það,

marr lifir í vonina stundum, og trúir á það,
en þegar bróðir manns hengir sjálfan sig áður en hann varð að 18 ára aldri, þá spyr marr sig,
ef þetta helvíti þarna uppi væri til hefði hann ekki tekið saklausa sál af þessari jörð.

(Ekki misskilja mig en svona er þetta bara)

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Mið 16. Apr 2014 14:29
af Nördaklessa
rapport skrifaði:
Nördaklessa skrifaði:ég er ekki trúaður maður, en er ekki þessi óþolandi atheist með sinn boðskap, ef trúarbrögð hjálpar fólki í gegnum daginn þá er það gott að blessað mín vegna
Ekki trúaður en ert samt að leggja blessun þína yfir fólk sem trúir????
það er minn tebolli að troða nefi mínu í rútínur og venjur annara...

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Mið 16. Apr 2014 14:31
af Nördaklessa
depill skrifaði:
Gerbill skrifaði:
rapport skrifaði:
Nördaklessa skrifaði:ég er ekki trúaður maður, en er ekki þessi óþolandi atheist með sinn boðskap, ef trúarbrögð hjálpar fólki í gegnum daginn þá er það gott að blessað mín vegna
Ekki trúaður en ert samt að leggja blessun þína yfir fólk sem trúir????
Hvað er að því? Má fólk ekki trúa því sem það vill, svo lengi sem það haldi því fyrir sig?

Ég er ekki trúaður en er sama þótt að fólk trúi, hinsvegar eru nokkrir hlutir sem angra mig.
Þegar börn eru heilaþvegin, öfgatrúafólk, ríkisrekin trúarbrögð, það að prestar á Íslandi séu með hærri grunnlaun en ýmsar heilbrigðistéttir (t.d. sjúkraþjálfar, iðjuþjálfar, hjúkrunarfræðingar)
Ég held hann hafi verið að gera grín að því að þú værir ekki trúaður en vildir samt blessa.

My 5 cents
Ég vill trúa að það sé bæði eithvað eftir þetta líf og það sé eithvað æðri máttar og geri það. Hvort það sé "Guð" það hef ég ekki hugmynd um. Eina sem ég held er bara að það sé eithvað eftir þetta og það sé eithvað yfir okkur.

nei ég er ekki trúaður, og ég var ekki að gera grin, ef nágranni minn trúir á krist er það bara í besta lagi mín vegna, því mér er svo skítsama hvað menn trúa og trúa ekki á, allir hafa sitt

Ég trúi ekki á presta né biskaupa og hef aldrei trúað því að 3 eða 5 ára háskólanám geti gefið mér beina línu til Guðs ( veit ekki hvað námið er langt, þannig ég set 3-5 ár )
Mér finnst gott og blessað að fólk vilji stunda sýna trú eða trúleysi svo lengi sem enginn er að troða því uppá mig, né aðra. Það á að vera minn valkostur.

Mér finnst að það sé ekkert sem réttlætir ríkisstyrki Kirkjunnar. Ef fólk vill greiða prestum fyrir þjónustu sína er það meira en frjálst að gera það. Það má til dæmis hugsa um það sé jafnvel replacement fyrir sálfræðiþjónustu að einhverju leyti. En ég vill ekki að ríkið greiði neitt inní neina trúarstofnun, þær eiga bara að geta rekið sig eins og aðrar áhugamannastofnanir.

Aftur fólk er frjálst að gera og trúa því sem það vill, svo lengi sem það affectar mig ekki ( fjárhagslega eða öðruvísi ) :) og ég í raun og veru skil ekki afhverju við "ríkið" erum ekki löngu búin að segja kirkjunni bara að núna á ríkið jarðinar og þið fáið ekki neitt og þurfið bara að fjármagna ykkur eins og allir hinir með frjálsum framlögum.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Mið 16. Apr 2014 14:32

Sent: Mið 16. Apr 2014 15:34
af Gislinn
Nördaklessa skrifaði:nei ég er ekki trúaður, og ég var ekki að gera grin, ef nágranni minn trúir á krist er það bara í besta lagi mín vegna, því mér er svo skítsama hvað menn trúa og trúa ekki á, allir hafa sitt
Depill var að vitna í það sem rapport sagði.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Mið 16. Apr 2014 17:06
af svanur08
Þið seigist margir ekki vera trúaðir samt haldiði örugglega flestir jólin :happy

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Mið 16. Apr 2014 17:09
af AndriKarl
svanur08 skrifaði:Þið seigist margir ekki vera trúaðir samt haldiði örugglega flestir jólin :happy
Enda var haldið upp á jól löngu áður en kristin trú tróð sér upp á þau

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Mið 16. Apr 2014 18:08
af tveirmetrar
AndriKarl skrifaði:
svanur08 skrifaði:Þið seigist margir ekki vera trúaðir samt haldiði örugglega flestir jólin :happy
Enda var haldið upp á jól löngu áður en kristin trú tróð sér upp á þau
BURN! :fly

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Mið 16. Apr 2014 19:08
af fallen
svanur08 skrifaði:Þið seigist margir ekki vera trúaðir samt haldiði örugglega flestir jólin :happy
Trú hefur ekkert með mín jól að gera. Tilefni til að eyða tíma með fjölskyldu og vinum, skiptast á gjöfum og borða góðan mat. Allir sem ég þekki halda jólin, ekki kristmessu. Enda væri það dálítið galið að halda upp á afmæli manns í desember sem fæddist um mitt sumar, þ.e.a.s. ef hann var þá nokkurn tímann til.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Mið 16. Apr 2014 20:01
af Sallarólegur
svanur08 skrifaði:Þið seigist margir ekki vera trúaðir samt haldiði örugglega flestir jólin :happy
Það er ekkert að því að halda upp á menningarlega siði sem við höfum erft án þess að trúa einhverri þvælu sem var sett upp til þess að svara þeim ósvöruðu spurningum sem menn höfðu um lífið og tilveruna fyrir þúsundum ára.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Fim 17. Apr 2014 00:53
af Hrotti
AndriKarl skrifaði:
svanur08 skrifaði:Þið seigist margir ekki vera trúaðir samt haldiði örugglega flestir jólin :happy
Enda var haldið upp á jól löngu áður en kristin trú tróð sér upp á þau

Nákvæmlega!
samt virðist þessi jólaspurning alltaf koma upp þegar að talið berst að trú eða trúleysi og líka þegar að banna á trúboð í skólum.

Af Vísindavefnum:

Talið er að vetrarsólstöðuhátíðir af ýmsu tagi hafi verið haldnar víða á norðurhveli jarðar löngu áður en kristnin kom til sögunnar. Til dæmis var orðið jól til í norrænum málum löngu fyrir kristnitöku og sama gildir um orðið yule í ensku. Ætla má að skammdegið hafi verið erfiður tími fyrir fólk til forna og því hafi þótt full ástæða til fagnaðar þegar sól fór að hækka aftur á lofti eftir 21. eða 22. desember. Með tímanum var öðrum þáttum sem tengdust trúarbrögðum á viðkomandi stað svo fléttað inn í þessar sólstöðuhátíðir.

Og hérna er restin af greininni.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Fim 17. Apr 2014 01:29
af Nariur
Ég hvet ótrúaða sem ekki hafa skráð sig úr þjóðkirkjunni til að gera það. Það er mjög einfalt, það þarf bara að skrá sig inn með íslykli og breyta skráningunni.
Hér er beinn linkur: https://innskraning.island.is/?id=afgreidsla.skra.is" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Fim 17. Apr 2014 02:28
af rapport
Nördaklessa skrifaði:
rapport skrifaði:
Nördaklessa skrifaði:ég er ekki trúaður maður, en er ekki þessi óþolandi atheist með sinn boðskap, ef trúarbrögð hjálpar fólki í gegnum daginn þá er það gott að blessað mín vegna
Ekki trúaður en ert samt að leggja blessun þína yfir fólk sem trúir????
það er minn tebolli að troða nefi mínu í rútínur og venjur annara...
minn líka, virðist vera ;-)

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Fim 01. Maí 2014 13:09
af Nördaklessa
talandi um trúarbrögð...hvernig fer þetta í menn hérna á íslandi?
http://www.dailymail.co.uk/news/article ... -meat.html" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Fim 01. Maí 2014 13:14
af Yawnk
Nördaklessa skrifaði:talandi um trúarbrögð...hvernig fer þetta í menn hérna á íslandi?
http://www.dailymail.co.uk/news/article ... -meat.html" onclick="window.open(this.href);return false;
#-o ](*,) ](*,) :wtf

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Fim 01. Maí 2014 16:37
af Nördaklessa
Yawnk skrifaði:
Nördaklessa skrifaði:talandi um trúarbrögð...hvernig fer þetta í menn hérna á íslandi?
http://www.dailymail.co.uk/news/article ... -meat.html" onclick="window.open(this.href);return false;
#-o ](*,) ](*,) :wtf

Hvað? þetta er ekkert annað er bölvaður yfirgangur

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Fim 01. Maí 2014 17:01
af AntiTrust
Ég ætla að vera 5 ára og neita að trúa þessari frétt frá DailyMail.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Fim 01. Maí 2014 17:57
af beggi702
Ég er ekki trúaður en segi samt guð blessi þig þegar einhver hnerrar.. geri þið það sama ?