Síða 2 af 3

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Lau 15. Feb 2014 16:28
af BaldurÖ
Lenti í svipuðu rugli með vinnsluminni í kísildalnum átti samt ekki von á því frá þeim :(

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Lau 15. Feb 2014 18:24
af mind
Kristján skrifaði:
mind skrifaði:
Swanmark skrifaði:Mitt plan er að fara með þessa 50k nótu og borga uppí 770. Finnst þetta bara vera rugl. Kannski smá mér að kenna að vera latur, og fara ekki fyrr.
760 er um 3% slakara en 670. En 760 er nýrri kynslóð og með tæknina sem fylgir því.
Ef maður hunsar allt nema hreina afkastamuninn, væri munurinn 1500-2000 krónur.
Ég sé ekki að nokkur maður né fyrirtæki nenni að gera mál úr því, frekar en að brúa bilið.

hvaða 760 kort sem er kemur aldrei nálægt því að vera 3% verra er 670 oc pe
670 kortið er með svo mikið betri overclock að það hálva væri hellingur
670 Reference 915-980Mhz
670 PE 1019-1079Mhz

11,3% OC venjulega, 10,1% OC í boost

vs

760 Reference 980-1033MHz
760 Gaming 1085-1150Mhz

10,7% OC venjulega, 11,3% OC í boost

Ég veit ekki hvar þessi gífurlegi overclock munur liggur.

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Lau 15. Feb 2014 18:31
af Kristján

Hæ ertu nýr?

hefuru heyrt um manual yfirklukk???? 670 "POWER" edition er miklu betra i yfirklukk en 760 draslið.
nema það sé til pe utgáfa eða lightninh eða hvað það heitir

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Lau 15. Feb 2014 19:20
af Swanmark
Kristján skrifaði:nema það sé til pe utgáfa eða lightninh eða hvað það heitir
kostar yfir 70þús
EDIT: nvm, ekki til. bara 770 lightning sem kostar 89990

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Lau 15. Feb 2014 19:29
af Kristján
Swanmark skrifaði:
Kristján skrifaði:nema það sé til pe utgáfa eða lightninh eða hvað það heitir
kostar yfir 70þús
EDIT: nvm, ekki til. bara 770 lightning sem kostar 89990
nkvl

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Lau 15. Feb 2014 19:45
af MuGGz
Alveg slakur að drulla yfir 760 kortin samt

Ég er að runna mitt á +125 á core og +700 á memory og kortið er í 60 gráðum í bf og nær ekki 50 gráðum í cs:go

Þannig þau eru engin drulla og yfirklukkast mjög vel!

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Lau 15. Feb 2014 20:01
af rapport
Varan er í ábyrgð = fá eins eða sambærilega.

Ef þú keyptir tíunda besta skjákort í boði, þá áttu núna að fá tíunda besta skjákort í boði...

Eða peninginn til baka.

Annars væri þetta eins og þú fengið þér Audi A4 sem bilaði eftir 2 ár og Hekla mundi bjóða þér Passat og segja "þetta er eiginlega alveg það sama"....

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Lau 15. Feb 2014 20:07
af KermitTheFrog
rapport skrifaði:Varan er í ábyrgð = fá eins eða sambærilega.

Ef þú keyptir tíunda besta skjákort í boði, þá áttu núna að fá tíunda besta skjákort í boði...

Eða peninginn til baka.

Annars væri þetta eins og þú fengið þér Audi A4 sem bilaði eftir 2 ár og Hekla mundi bjóða þér Passat og segja "þetta er eiginlega alveg það sama"....
Ha? Afþví að varan er mjög góð þegar hann kaupir hana, tæknin þróast og kortið úreldist, á hann þá að fá betra kort afþví að hann keypti svo gott kort á sínum tíma?

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Lau 15. Feb 2014 20:11
af Baldurmar
KermitTheFrog skrifaði:
rapport skrifaði:Varan er í ábyrgð = fá eins eða sambærilega.

Ef þú keyptir tíunda besta skjákort í boði, þá áttu núna að fá tíunda besta skjákort í boði...

Eða peninginn til baka.

Annars væri þetta eins og þú fengið þér Audi A4 sem bilaði eftir 2 ár og Hekla mundi bjóða þér Passat og segja "þetta er eiginlega alveg það sama"....
Ha? Afþví að varan er mjög góð þegar hann kaupir hana, tæknin þróast og kortið úreldist, á hann þá að fá betra kort afþví að hann keypti svo gott kort á sínum tíma?
Já! Hiklaust. 760 kortið er ekki í sömu línu og 670 kortið, hann á að fá X70 kort, ekki X60.

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Lau 15. Feb 2014 20:26
af mind
Kristján skrifaði: Hæ ertu nýr?

hefuru heyrt um manual yfirklukk???? 670 "POWER" edition er miklu betra i yfirklukk en 760 draslið.
nema það sé til pe utgáfa eða lightninh eða hvað það heitir
Ég gæti spurt þig hinu sama, en ég hef verið nógu lengi hérna til að vita það stendur fyrir neðan avatarinn þinn hversu nýr þú ert.
Kristján skrifaði:670 kortið er með svo mikið betri overclock að það hálva væri hellingur
Þú segir með, ekki býður uppá. Hvort sem þetta er skrif-villa eða þú ert núna að reyna breyta grundvelli viðmiðs veit ég ekki.

En fyrir utan að bjóða einungis persónulega fullyrðingu sem rök gagnvart staðreyndum, þá ertu hér að tala um hlut sem fyrnir ábyrgð.
Ef OP hefði verið gera slíka yfirklukkun ætti hann rétt á engu korti, en hann er að fá nýtt kort.
Heilbrigð hugsun segir manni því að ekki beri að gera ráð fyrir því að ætlunin sé að yfirklukka handvirkt nýja kortið, og þar með það viðmið án grundvallar.

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Lau 15. Feb 2014 21:18
af MrSparklez
rapport skrifaði:Varan er í ábyrgð = fá eins eða sambærilega.

Ef þú keyptir tíunda besta skjákort í boði, þá áttu núna að fá tíunda besta skjákort í boði...

Eða peninginn til baka.

Annars væri þetta eins og þú fengið þér Audi A4 sem bilaði eftir 2 ár og Hekla mundi bjóða þér Passat og segja "þetta er eiginlega alveg það sama"....
Sammála þessu.

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Lau 15. Feb 2014 21:41
af DabbiGj
Hann á að fá 760 kort sem er PE ekki 770 kort afþví að endingin er 70, Frekar augljóst að Nvidia setur vörulínurnar fram þannig að það er alltaf tekið eitt kynslóðarskref frammávið þ.e. 680 verður sambærilegt 770 o.s.f.

http://www.tomshardware.com/reviews/gam ... 107-7.html" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Lau 15. Feb 2014 22:02
af Baldurmar
DabbiGj skrifaði:Hann á að fá 760 kort sem er PE ekki 770 kort afþví að endingin er 70, Frekar augljóst að Nvidia setur vörulínurnar fram þannig að það er alltaf tekið eitt kynslóðarskref frammávið þ.e. 680 verður sambærilegt 770 o.s.f.

http://www.tomshardware.com/reviews/gam ... 107-7.html" onclick="window.open(this.href);return false;
Það er ekki hægt að hugsa það þannig, þá gæti hann alveg eins fengið AMD Radeon R9-280x t.d, sem "performar" svipað, en er ekki í raun sambærileg vara.

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Lau 15. Feb 2014 22:07
af Kristján
mind skrifaði:
Kristján skrifaði: Hæ ertu nýr?

hefuru heyrt um manual yfirklukk???? 670 "POWER" edition er miklu betra i yfirklukk en 760 draslið.
nema það sé til pe utgáfa eða lightninh eða hvað það heitir
Ég gæti spurt þig hinu sama, en ég hef verið nógu lengi hérna til að vita það stendur fyrir neðan avatarinn þinn hversu nýr þú ert.
Kristján skrifaði:670 kortið er með svo mikið betri overclock að það hálva væri hellingur
Þú segir með, ekki býður uppá. Hvort sem þetta er skrif-villa eða þú ert núna að reyna breyta grundvelli viðmiðs veit ég ekki.

En fyrir utan að bjóða einungis persónulega fullyrðingu sem rök gagnvart staðreyndum, þá ertu hér að tala um hlut sem fyrnir ábyrgð.
Ef OP hefði verið gera slíka yfirklukkun ætti hann rétt á engu korti, en hann er að fá nýtt kort.
Heilbrigð hugsun segir manni því að ekki beri að gera ráð fyrir því að ætlunin sé að yfirklukka handvirkt nýja kortið, og þar með það viðmið án grundvallar.
Þú veist alveg hvað ég er að tala um.

skiptir ekki málið hvort það fyrni ábyrgð hann getur allavega gert kortið þá miklu betra þegar ábyrgð er runnin út.

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Lau 15. Feb 2014 22:55
af mind
Kristján skrifaði: Þú veist alveg hvað ég er að tala um.

skiptir ekki málið hvort það fyrni ábyrgð hann getur allavega gert kortið þá miklu betra þegar ábyrgð er runnin út.
Já ég veit hvað þú ert að tala um, þú vilt að ábyrgð nái líka yfir óvitaða umframmögulega vöru.

En einhvernmeginn held ég að þú myndir mótmæla mikið ef þú yfirklukkaðir örgjörva og fengir svo auka reikning því hann væri klárlega betri en vitað var.

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Lau 15. Feb 2014 23:06

Ég er ekki að fatta ykkur...

Ef nuddtæki og víbrador líta nákvæmlega eins út, hafa sömu virkni en víbradorinn kostar tvöfallt meira, fer þá búðin að senda konum reikning ef þær fróa sér með nuddtæki?

Hvernig fólk notar vöruna skiptir engu máli, hann notaði þetta kort kannski sem bókastoð en hann á að fá allt sem er í vörulýsingunni á upphaflega kortinu, peninginn til baka eða sambærilega vöru að öllu leiti.

Hvaða grín er það að búðin endurgreiði ekki kortið að fullu?

Hvað ef hann tók kortið á raðgreiðslum og skuldar enn 55þ. ?

Absurd vinnubrögð.

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Lau 15. Feb 2014 23:55
af Minuz1
Hann ætti að fá betra kort án nokkurns efa, aldrei kort sem er lakara að hans mati.
Sá kostnaður sem af hlýst er sáralítill fyrir TL og ætti viðskiptin ekki að verða neikvæð.
Ég myndi hringja aftur í þá og athuga að við nánari skoðun þá ertu ekki alveg sáttur við þetta kort í skiptum fyrir þitt gamla.
Hvort þeir væru ekki tilbúnir til þess að loka þessu máli þannig að þú getir brosað aftur.

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Sun 16. Feb 2014 00:08
af Klemmi
rapport skrifaði:Varan er í ábyrgð = fá eins eða sambærilega.

Ef þú keyptir tíunda besta skjákort í boði, þá áttu núna að fá tíunda besta skjákort í boði...

Eða peninginn til baka.

Annars væri þetta eins og þú fengið þér Audi A4 sem bilaði eftir 2 ár og Hekla mundi bjóða þér Passat og segja "þetta er eiginlega alveg það sama"....
Það er ekki hægt að bera þetta saman, einfaldlega þar sem að þróunin í bílum er engan veginn jafn hröð og í skjákortum, einnig er almennt ekki skipt út bílnum í heild heldur er oftast gert við það sem er bilað. Það þarf að vera eitthvað svakalega mikið að til þess að það borgi sig að skipta bílnum út. Ef það kæmi upp sú staða að 2 ára bíllinn minn væri handónýtur vegna galla, þá myndi ég ekki búast við því að fá ókeyrt, nýrra módel af eins bíl beint úr kassanum í staðin.

Mér þykir ekki eðlilegt að hann fengi 770 kortið í staðin. Eðlilegast þætti mér að hann og búðin myndu komast að einhverju samkomulagi um hvað kortið hans væri verðmætt samanborið við GTX 760 og GTX 770, hann fengi svo að velja hvort hann myndi borga upp í GTX 770 eða fengi endurgreitt mismuninn niður í GTX 760. Af minni reynslu eru flestir viðskiptavinir mjög sáttir með að borga smotterí á milli upp í næsta skjákort fyrir ofan, þar sem þeir sem voru að fara í þetta dýr kort til að byrja með eru mjög spenntir fyrir glænýju, öflugra korti með nýrri ábyrgð fyrir smá milligreiðslu.

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Sun 16. Feb 2014 00:13
af mind
Jáhá... samlíkingarval sumra er vissulega visst áhyggjuefni. En hún á ekki samleið með því sem við erum að tala um.
rapport skrifaði:Hvaða grín er það að búðin endurgreiði ekki kortið að fullu?
Útgáfa nýrri og betri hluta rýrir verðgildi forvera sinna, þetta er almenn vitneskja.
Jafnvel þó skjákortið hefði verið ópnað, núna ári síðar hefur það ekki sama verðgildi. Nýrri útgáfur sem skila sömu niðurstöðum eru ódýrari og því fer verðgildi hlutsins niður miðað við það.

Myndir þú greiða honum þessar 76þús krónur ef kortið væri nýtt?
Ef ekki, hvernig er hægt að gera sömu kröfu standandi hinu megin við borðið.

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Sun 16. Feb 2014 00:37
af Minuz1
mind skrifaði:Jáhá... samlíkingarval sumra er vissulega visst áhyggjuefni. En hún á ekki samleið með því sem við erum að tala um.

Sú samlíking sem þú velur þér á við um bíla líka, en þróunin er töluvert hægari jú.

Ber neytandinn eða seljandinn ábyrgð á því að gallaða varan sem hann fékk hefur fallið í virði?
Held það sé í raun kjarninn í umræðunni hér.

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Sun 16. Feb 2014 00:48
af mind
Minuz1 skrifaði: Sú samlíking sem þú velur þér á við um bíla líka, en þróunin er töluvert hægari jú.

Ber neytandinn eða seljandinn ábyrgð á því að gallaða varan sem hann fékk hefur fallið í virði?
Held það sé í raun kjarninn í umræðunni hér.
Ég var nú reyndar ekki með samlíkingu um bíla, og átti við samlíkingu Rapport sem innihélt hjálpartæki svefnherbergisins :D

Neytandinn ætti að öllu jöfnu að fara með vöruna til baka þegar gallans verður uppvíst, fyrir ári síðan hefði þetta örugglega verið ekkert mál þegar þessi kynslóð skjákorta var í gangi. Þessi tímamunur og a eins vara sé ekki til lengur, það flækir málin og línan hvað er sanngjarnt verður ekki eins skýr.

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Sun 16. Feb 2014 08:21
af hkr
Minuz1 skrifaði:Ber neytandinn eða seljandinn ábyrgð á því að gallaða varan sem hann fékk hefur fallið í virði?
Held það sé í raun kjarninn í umræðunni hér.
Það væri gaman að vita hvað TL fær út úr RMA fyrir þetta kort, hvort það sé "lækkað verð" eða kaupverðið eða jafnvel ekkert.

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Sun 16. Feb 2014 12:34
af Garri
mind skrifaði:Jáhá... samlíkingarval sumra er vissulega visst áhyggjuefni. En hún á ekki samleið með því sem við erum að tala um.
rapport skrifaði:Hvaða grín er það að búðin endurgreiði ekki kortið að fullu?
Útgáfa nýrri og betri hluta rýrir verðgildi forvera sinna, þetta er almenn vitneskja.
Jafnvel þó skjákortið hefði verið ópnað, núna ári síðar hefur það ekki sama verðgildi. Nýrri útgáfur sem skila sömu niðurstöðum eru ódýrari og því fer verðgildi hlutsins niður miðað við það.

Myndir þú greiða honum þessar 76þús krónur ef kortið væri nýtt?
Ef ekki, hvernig er hægt að gera sömu kröfu standandi hinu megin við borðið.
Þessi vandi ætti að leiða bæði framleiðendur og seljendur til þeirrar lausnar að selja ekki ónýtt drasl.

Ég á eina hörmungarsögu varðandi svona dót. Reyndar ekki fyrir sjálfan mig, heldur son minn. Um er að ræða, Playstation 3 eða PS3 tölvu. Byrjaði á að kaupa fyrstu sem kom.. hún dó. Keypti aðra hjá Elko og þá með auka ábyrgð. Hún dó eftir rúm tvö ár en ábyrgðin dekkaði hana. Senda hana suður (minnir í Són) en þeir sögðu að þessi tölva væri ekki til lengur (fat 40GB) og væru að bíða eftir að fá skipti tölvu að utan.. það liðu 1-2 mánuður þar til ég trompaðist og hótaði þeim öllu illu.. fékk fat tölvu til baka, minnir 80GB sem duggði samt aðeins 1-2 ár.

Þá var ég búinn að fá nóg. Keypti nýjustu slim týpuna og hún hefur dugað síðan. Drengurinn reyndar búinn að fá PS4 en það var ekki með mínu samþykki enda stimpla ég þetta dót sem algjört drasl og ekki komandi nálægt þessu og það ekki einu sinni með töngum. Hörmungarsaga PS4 speglast líka ágætlega á kommentakerfum Amazon.. vel yfir þúsund alvarlegar kvartanir.

Þessi vanvirðing við kaupendur að selja þeim 3ja og 4ja flokks drasl fyrir okur fé er eitthvað sem neitandinn á ekki að samþykkja. Og það skiptir neytendur nákvæmlega engu máli hvort framleiðandinn sé búinn að búa til 10 útgáfur í millitíðinni frá því að þeir seldu og þar til ábyrgð rennur út.. orðið ábyrgð þýðir ekki eitthvað sem framleiðandi getur túlkað eftir eigin höfði.

Og ef seljandi kýs að selja vörur frá drasl framleiðanda.. ja, þá er það nákvæmlega hans eiginn hausverkur á meðan lög vernda kaupendur.

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Sun 16. Feb 2014 13:16
af mind
Garri skrifaði: Þessi vandi ætti að leiða bæði framleiðendur og seljendur til þeirrar lausnar að selja ekki ónýtt drasl.

Ég á eina hörmungarsögu varðandi svona dót. Reyndar ekki fyrir sjálfan mig, heldur son minn. Um er að ræða, Playstation 3 eða PS3 tölvu. Byrjaði á að kaupa fyrstu sem kom.. hún dó. Keypti aðra hjá Elko og þá með auka ábyrgð. Hún dó eftir rúm tvö ár en ábyrgðin dekkaði hana. Senda hana suður (minnir í Són) en þeir sögðu að þessi tölva væri ekki til lengur (fat 40GB) og væru að bíða eftir að fá skipti tölvu að utan.. það liðu 1-2 mánuður þar til ég trompaðist og hótaði þeim öllu illu.. fékk fat tölvu til baka, minnir 80GB sem duggði samt aðeins 1-2 ár.

Þá var ég búinn að fá nóg. Keypti nýjustu slim týpuna og hún hefur dugað síðan. Drengurinn reyndar búinn að fá PS4 en það var ekki með mínu samþykki enda stimpla ég þetta dót sem algjört drasl og ekki komandi nálægt þessu og það ekki einu sinni með töngum. Hörmungarsaga PS4 speglast líka ágætlega á kommentakerfum Amazon.. vel yfir þúsund alvarlegar kvartanir.

Þessi vanvirðing við kaupendur að selja þeim 3ja og 4ja flokks drasl fyrir okur fé er eitthvað sem neitandinn á ekki að samþykkja. Og það skiptir neytendur nákvæmlega engu máli hvort framleiðandinn sé búinn að búa til 10 útgáfur í millitíðinni frá því að þeir seldu og þar til ábyrgð rennur út.. orðið ábyrgð þýðir ekki eitthvað sem framleiðandi getur túlkað eftir eigin höfði.

Og ef seljandi kýs að selja vörur frá drasl framleiðanda.. ja, þá er það nákvæmlega hans eiginn hausverkur á meðan lög vernda kaupendur.
Ég veit ekki alveg hversu ráðlegt það er að svara þessu. Innleggið er mjög litað af einhverju sem virðist vera það að framleiðendur séu meira og minna reyna svindla á neytendum, og höfundur viðurkennir að missa stjórn á skapi sínu og bera fram hótanir til að ná sínu fram.

Eina sem mér dettur í hug er að hér vanti skilning á hvernig fjöldaframleiðsla er og virkar, og einnig að vörur eru verðlagðar samkvæmt því. Það er vitað að fjöldaframleiddar vörur geta bilað, þegar þú greiðir fyrir vöruna veistu að varan þín gæti bilað og ef svo gerist þá er ábyrgð á vörunni til að taka á því.

Að setja PS4 undir sama hatt og PS3, vélbúnaðurinn er svo ólíkur undir þessu að mér myndi ekki detta það í hug.
Ef þér finnst þúsund kvartanir mikið, treystir þú þér til að smíða leikjatölvu fyrir þennan pening, selja 100.000 eintök og fá færri en 1.000 kvartanir?
orðið ábyrgð þýðir ekki eitthvað sem framleiðandi getur túlkað eftir eigin höfði.
Að sama skapi þýðir orðið ábyrgð ekki eitthvað sem neytandi getur túlkað eftir eigin höfði.

Re: Fór með gallað 670 Power Edition í TL

Sent: Sun 16. Feb 2014 13:26
af Garri
Vá.. hvað þú ert firrtur.

Það er margt sem er selt í mun fleiri eintökum en PS4 tölvur. Og hefur ekki brot af þeim kvörtunum. Þessar 1000 kvartanir sem ég sá á Amazon fyrir einum eða tveimur mánuðum voru komnar eftir aðeins rúman mánuð í sölu.

Rúman mánuð!!!

Og nota bene, það kvarta ekki allir sem fá ónýtar tölvur í kommentakerfi Amazon dot kom.

Eins. Svona vara á að duga eitthvað meir en mánuð og ljóst að þetta dót er algjört drasl og ég ráðlegg öllum sem er ekki sama um tíma sinn og peninga, að sniðganga vörur frá þessum "framleiðenda"

Spurning sem þú mátt spyrja sjálfan þig að. Ef þúsund kvartanir eru komnar á mánuði.. hvað verða komnar margar bilanir eftir 2 ár? En fjögur ár?

Og í ljósi þess.. ef opinberar kvartanir sýna aðeins brot af því sem að er, hversu mikið af þessu drasli er þá ónýtt?