Síða 2 af 2

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Þri 28. Jan 2014 09:14
af capteinninn
gissur1 skrifaði:Volvo V70 R

Mynd
Man þegar ég fékk bílpróf þá átti mútta einn svona.

307 hestöfl í Volvo station er náttúrulega alger steypa

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Þri 28. Jan 2014 09:54
af elfaralfreds
Ferð ekkert í neitt minna en gamlann 7 sæta Land Rover Defender!
Nóg pláss þar

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Þri 28. Jan 2014 10:00
af audiophile
Hef átt nokkra bíla og er með barn. Besti bíll sem ég hef átt hvað varðar pláss er Mazda 6 station og mæli hiklaust með þeim. Er á Skoda Octavia núna með hlera og hann er líka frábær. Nóg pláss í skotti, þó aðeins minna aftursætisrými en Mazdan.

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Þri 28. Jan 2014 10:51
af hagur
Ég er með station Avensis árg. 2006 og er bara þokkalega ánægður með hann. Skottið er talsvert rúmgott og gott að keyra hann.

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Þri 28. Jan 2014 10:58
af rapport
hagur skrifaði:Ég er með station Avensis árg. 2006 og er bara þokkalega ánægður með hann. Skottið er talsvert rúmgott og gott að keyra hann.
Er ekki svo lagt undir hann?

Hef verið að sjá þessa bíla draga kviðinn í klakahjólförum allan janúar.

Ég geri kröfu um að það sé hægt að ferðast vandræðalaust á fjölskyldubílnum og að hann hafi fútt til að fara frammúr á minna en 20 sek.

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Þri 28. Jan 2014 11:16
af AndriKarl
V70R Allan daginn

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Þri 28. Jan 2014 11:38
af hagur
rapport skrifaði:
hagur skrifaði:Ég er með station Avensis árg. 2006 og er bara þokkalega ánægður með hann. Skottið er talsvert rúmgott og gott að keyra hann.
Er ekki svo lagt undir hann?

Hef verið að sjá þessa bíla draga kviðinn í klakahjólförum allan janúar.

Ég geri kröfu um að það sé hægt að ferðast vandræðalaust á fjölskyldubílnum og að hann hafi fútt til að fara frammúr á minna en 20 sek.
Jú, reyndar en það er einmitt búið að hækka minn upp. Eitthvað sem fyrri eigandi hefur látið gera, geri ég ráð fyrir.

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mið 29. Jan 2014 00:05
af arnarj
Þegar ég fór af stað að skipta út Avensis 4 dyra fyrir fjölskylduvænni bíl þá fór ég af stað með það í huga að kaupa Subaru station. Endaði á Hondu CRV. Báðir eyða svipað en skottið á CRV er miklu stærra svo munar einmitt rosalega miklu þegar maður er að festa krílið í stólinn að vera á háum bíl svo maður sé ekki alltaf að bogra sig. Skemmdi heldur ekki fyrir að verðið á þeim var svipað m.v. sömu árgerð.