Síða 2 af 2
Re: Kínverjarnir að reyna rippa music streamer lol
Sent: Þri 28. Jan 2014 12:44
af vesley
jonsig skrifaði:Ég skil alveg hverju þú ert að vonast eftir en það er rangt ,stereophiles eða audiophiles hafa yfirleitt mjög þjálfaða hlustunareiginleika til að taka eftir mismunandi útfærslum á hljómflutningi . Þetta er einfaldlega heimur sem margir hafa ekki áhuga né getu til að komast inní .
Fyrir hve löngu siðan áttiru ekkert nema sennheiser? 1ár? mjög stutt siðan þú fórst að eignast "audiophile" dót, getur ekki sagst sjálfur vera þjálfaður þar sem þú ert hvorki með margra ára reynslu í tónlistargeiranum
þar sem þú hefur hvorki unnið við tónlist né verið í audiophile bransanum lengi.
þessi "blind test" sýna að æfingin og reynslan sýnir að fólk á erfitt með að greina muninn.
Re: Kínverjarnir að reyna rippa music streamer lol
Sent: Þri 28. Jan 2014 12:45
af jonsig
Daz skrifaði:Mér þetti þetta betri umræða ef rasisminn myndi minnka og skýrari staðhæfingar tækju við þeim.
t.d.
"Kínverskt drasl er drasl!" (Er þá annað drasl gott?)
"Kínverjar að kópera amerísk gæði!" (Ameríkanar framleiða svotil ekki neitt sjálfir af raftækjum, þau eru öll framleidd í Kína)
Osfrv.
Það sem er framleitt í Kína og af Kínverjum er ekki meira drasl en annað, það sem er "of ódýrt til að vera satt", er það líklega, burtséð frá því hvort það er framleitt í Kína eða á Raufarhöfn.
Rasismi ? Ekkert frekar en þegar ég segi að frakkar geri lélega bíla .
Og ég sé að reyna vera rosa audiophile ? u nei hef sagt á öðrum þráðum að ég er bara entry -level . Hef ekki áhuga á að kaupa hátalara sem er 4milljón krónur stykkið til að ganga alla leið. Og í öðru lagi skil ég ekki af hverju ég ætti að vera að grobba mig af því , ekkert frekar en ég væri að stunda sjóköfun eða álíka .
Re: Kínverjarnir að reyna rippa music streamer lol
Sent: Þri 28. Jan 2014 13:07
af dori
jonsig skrifaði:Og ég sé að reyna vera rosa audiophile ? u nei hef sagt á öðrum þráðum að ég er bara entry -level . Hef ekki áhuga á að kaupa hátalara sem er 4milljón krónur stykkið til að ganga alla leið. Og í öðru lagi skil ég ekki af hverju ég ætti að vera að grobba mig af því , ekkert frekar en ég væri að stunda sjóköfun eða álíka .
Núna er mér skítsama um það sem þú ert að segja í flestu en... Hrokinn í þér lekur af tölvuskjánum mínum þegar ég opna þræðina þína.
Re: Kínverjarnir að reyna rippa music streamer lol
Sent: Þri 28. Jan 2014 13:13
af tdog
Kínverjar að reyna að rippa music streamer ... er þetta ekki bara venjulegt low end hljóðkort?
Re: Kínverjarnir að reyna rippa music streamer lol
Sent: Þri 28. Jan 2014 13:18
af jonsig
það má kalla mig ýmislegt . En þetta er bara mín sýn á hlutina, þetta apparat sem þráðurinn er um er sýnidæmi um hvernig nöfnum er stolið af flottum græjum og látið á ripp off til þess að hagnast .
Kannski virka ég hrokafullur en það síðasta sem ég geri er að joina þræði með öðrum til að hópast að einum og drulla yfir hann , það er lægst í lágkúrunni .
Re: Kínverjarnir að reyna rippa music streamer lol
Sent: Þri 28. Jan 2014 13:22
af Televisionary
Hefurðu prófað Audioquest Dragonfly? Hann kom mér verulega á óvart.
jonsig skrifaði:Ég finn stóran mun að nota HRT music streamerII+ á Yamaha aventage . En music streamer II+ kostar mjög mikið .
hljómsýn eru að selja high end dac´s . Alveg frá 25þús og uppúr .
streamerII+ er að performa eins og 300þúsund kall græja. Og alger draumur fyrir treable, bass og soundstage lovera .
Mín viðbrögð við að prufa eftirfarandi
fiio e3= ehh
fiio e10= bloated bassi
Music streamer II = Wow 25k?
Music streamer II+= OMFG nice bassi!
Music streamer Pro = í vinnslu
Re: Kínverjarnir að reyna rippa music streamer lol
Sent: Þri 28. Jan 2014 13:23
af jonsig
Nei en ég hefði virkilega áhuga á því . Hef heyrt flotta hluti um það unit .
Re: Kínverjarnir að reyna rippa music streamer lol
Sent: Þri 28. Jan 2014 13:30
af Predator
jonsig skrifaði:Ég skil alveg hverju þú ert að vonast eftir en það er rangt ,stereophiles eða audiophiles hafa yfirleitt mjög þjálfaða hlustunareiginleika til að taka eftir mismunandi útfærslum á hljómflutningi . Þetta er einfaldlega heimur sem margir hafa ekki áhuga né getu til að komast inní .
Ef þú myndir lesa það sem ég linkaði á þá áttarðu þig á því að það er enginn munur sem heyrist, eini munurinn sem er til staðar er vegna þess að fólk reiknar með því að heyra mun á 1000kr magnara og 100.000kr magnara en þegar allt kemur til alls heyrir enginn mun, nema að ímyndaður sé.
Re: Kínverjarnir að reyna rippa music streamer lol
Sent: Þri 28. Jan 2014 13:39
af jonsig
Algjör misskilningur að ég hafi ekki lesið yfir þetta . Kannski hugmyndin sem þú ert búinn að ákveða að eigi við mig.
Mest af þessum linkum voru hátalaravírar debunked sem gefur alveg gaum. Þarna var einnig linkur sem ritstjórar hljómtækjatímarita taka ekki mark á vissri rannsókn þar sem þeim finnst þetta miðað að því að kasta rýrð á audiophiles .
Á sömu síðu eru linkar yfir allt sem hafa komið út positive fyrir audiophiles
http://www.head-fi.org/t/513481/are-bli ... ve-results" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Kínverjarnir að reyna rippa music streamer lol
Sent: Þri 28. Jan 2014 13:46
af Daz
jonsig skrifaði:
Rasismi ? Ekkert frekar en þegar ég segi að frakkar geri lélega bíla .
Það er líka rasismi. Að alhæfa um eithvert málefni byggt á þjóðerni/kynþætti er rasismi. Ef þú ert ósamála því þá er það bara af því að þú ert rasisti eins og allir Íslendingar.
Re: Kínverjarnir að reyna rippa music streamer lol
Sent: Þri 28. Jan 2014 13:51
af jonsig
Daz skrifaði:jonsig skrifaði:
Rasismi ? Ekkert frekar en þegar ég segi að frakkar geri lélega bíla .
Það er líka rasismi. Að alhæfa um eithvert málefni byggt á þjóðerni/kynþætti er rasismi. Ef þú ert ósamála því þá er það bara af því að þú ert rasisti eins og allir Íslendingar.
Vá talandi um alhæfingar . Ég er búinn að útskýra af hverju í mörgum tilfellum blessaðir kínverjarnir hafa enga ástæðu til að vanda varninginn sinn , og vitnaði í grein hjá the telegraph
Re: Kínverjarnir að reyna rippa music streamer lol
Sent: Þri 28. Jan 2014 14:05
af Tbot
Daz skrifaði:jonsig skrifaði:
Rasismi ? Ekkert frekar en þegar ég segi að frakkar geri lélega bíla .
Það er líka rasismi. Að alhæfa um eithvert málefni byggt á þjóðerni/kynþætti er rasismi. Ef þú ert ósamála því þá er það bara af því að þú ert rasisti eins og allir Íslendingar.
Reynsla flestra af frönskum bílum er sú að þeir bila oft og endast illa.
Ef þú Daz ætlar að reyna halda því fram að Kínverjar framleiða bara topp vöru þá veit ég ekki í hvaða heimi þú lifir.
Flestir þeir sem fylgjast með heimsfréttum hafa rekist á greinar þar sem kemur fram að sum (minni) hátæknifyrirtæki eru hætt að láta framleiða fyrir sig rafeindabúnað í Kína.
Hvers vegna - geta ekki treyst því að fyrirskrifaðir íhlutir séu notaðir.
Re: Kínverjarnir að reyna rippa music streamer lol
Sent: Þri 28. Jan 2014 14:06
af vesley
jonsig skrifaði:Daz skrifaði:jonsig skrifaði:
Rasismi ? Ekkert frekar en þegar ég segi að frakkar geri lélega bíla .
Það er líka rasismi. Að alhæfa um eithvert málefni byggt á þjóðerni/kynþætti er rasismi. Ef þú ert ósamála því þá er það bara af því að þú ert rasisti eins og allir Íslendingar.
Vá talandi um alhæfingar . Ég er búinn að útskýra af hverju í mörgum tilfellum blessaðir kínverjarnir hafa enga ástæðu til að vanda varninginn sinn , og vitnaði í grein hjá the telegraph
Það að þú vitnar aðeins í 1 grein og staðhæfir að allir kínverjar framleiða þá drasl vörur sýnir bara fáfræðina þína þar sem stór hluti af þessu dóti eru framleitt í Kína, best þegar þú sagðir við mig um daginn að það væru bara mongólítar sem myndu nota þétta frá Kína, enn ein staðhæfingin þín þar sem þú sagðir þar að allir kínverskir þéttar væru bölvað drasl.
Þú flakkar svoleiðis á milli þess að Sennheiser sé fyrir mongólíta og fólk á "starfsbraut" noti bara svoleiðis eða þeir sem horfa á "dvergaklám" einu brandaranir sem maður heyrir þig segja í dag
Auðvitað kemur haugur af óvönduðu kínversku drasli en það er líka bara allt í lagi, þú og flestir hafa vit fyrir því að þegar þetta er komið undir ákveðið verð er þetta orðið of gott til að vera satt.
Re: Kínverjarnir að reyna rippa music streamer lol
Sent: Þri 28. Jan 2014 14:13
af Tbot
Predator skrifaði:jonsig skrifaði:Ég skil alveg hverju þú ert að vonast eftir en það er rangt ,stereophiles eða audiophiles hafa yfirleitt mjög þjálfaða hlustunareiginleika til að taka eftir mismunandi útfærslum á hljómflutningi . Þetta er einfaldlega heimur sem margir hafa ekki áhuga né getu til að komast inní .
Ef þú myndir lesa það sem ég linkaði á þá áttarðu þig á því að það er enginn munur sem heyrist, eini munurinn sem er til staðar er vegna þess að fólk reiknar með því að heyra mun á 1000kr magnara og 100.000kr magnara en þegar allt kemur til alls heyrir enginn mun, nema að ímyndaður sé.
Þetta er nú ekki rétt. Fólk er annars vegar með misjafnlega góða heyrn frá náttúrunnar hendi og hins vegna þjálfaða.
Síðan spilar inn í hvort þú sért farinn að tapa heyrn og hvort þér sé sama.
Re: Kínverjarnir að reyna rippa music streamer lol
Sent: Þri 28. Jan 2014 15:04
af dori
Eru ekki bestu hlutirnir með
svona þétta jonsig?
Re: Kínverjarnir að reyna rippa music streamer lol
Sent: Þri 28. Jan 2014 15:27
af jonsig
Ég sé ekki hvernig þessi á að vera betri , timbrið virkar bara sem einangrun og eykur hitamyndun í þéttinum og eins og flestir vita þá er hiti einn mesti böðull á þétta fyrir utan kannski sagtenntur straumur og yfirspenna.
Re: Kínverjarnir að reyna rippa music streamer lol
Sent: Þri 28. Jan 2014 15:31
af Daz
Tbot skrifaði:Daz skrifaði:jonsig skrifaði:
Rasismi ? Ekkert frekar en þegar ég segi að frakkar geri lélega bíla .
Það er líka rasismi. Að alhæfa um eithvert málefni byggt á þjóðerni/kynþætti er rasismi. Ef þú ert ósamála því þá er það bara af því að þú ert rasisti eins og allir Íslendingar.
Reynsla flestra af frönskum bílum er sú að þeir bila oft og endast illa.
Ef þú Daz ætlar að reyna halda því fram að Kínverjar framleiða bara topp vöru þá veit ég ekki í hvaða heimi þú lifir.
Flestir þeir sem fylgjast með heimsfréttum hafa rekist á greinar þar sem kemur fram að sum (minni) hátæknifyrirtæki eru hætt að láta framleiða fyrir sig rafeindabúnað í Kína.
Hvers vegna - geta ekki treyst því að fyrirskrifaðir íhlutir séu notaðir.
Reynsla flestra af "nafngreind tegund af bíl" er slæm. Það að bíllinn sé franskur hefur ekkert með það að gera, ekki frekar en að íhluturinn sé kínverskur. Þar liggur rasisminn, að alhæfa um þjóð/þjóðarbrot/kynþátt.
Ég sagði ekkert um að kínverskar vörur væru afbragðsgóðar, eða alltaf góðar. Mér er meinilla við þegar mér eru lagð orð í munn eða undir fingur. Bara það að alhæfa "kínverskt er alltaf drasl" er rangt, í það minnsta siðferðislega, ef ekki raunverulega.
jonsig skrifaði:Daz skrifaði:jonsig skrifaði:
Rasismi ? Ekkert frekar en þegar ég segi að frakkar geri lélega bíla .
Það er líka rasismi. Að alhæfa um eithvert málefni byggt á þjóðerni/kynþætti er rasismi. Ef þú ert ósamála því þá er það bara af því að þú ert rasisti eins og allir Íslendingar.
Vá talandi um alhæfingar . Ég er búinn að útskýra af hverju í mörgum tilfellum blessaðir kínverjarnir hafa enga ástæðu til að vanda varninginn sinn , og vitnaði í grein hjá the telegraph
Gott að þú sást alhæfinguna, þú skilur þá vonandi betur hvað ég er að meina.
Re: Kínverjarnir að reyna rippa music streamer lol
Sent: Þri 28. Jan 2014 16:44
af jonsig
1. þessi þráður er kominn útí rugl .
2. noun racism
the belief that all members of each race possess characteristics, abilities, or qualities specific to that race, especially so as to distinguish it as inferior or superior to another race or races:
theories of racism
það er hægt að teygja þetta hugtak í allar áttir , og varast ætti að vera nota það lauslega þar sem það skemmir bara í baráttunni við raunverulegt kynþáttahatur !
3.
Þessir meintu fordómar mínir í garð kínverja hafa gert mér það kleyft að sniðganga mest allan rafbúnað made in china , og sparað mér hellings vandræði . Sérstaklega eftir að síðasta made in china psu´ið mitt sprakk í tætlur um miðja nótt hjá mér í fyrra . Þetta er bara þeirra stjórnfyrirkomulag sem hefur komið þeim í þess að stöðu og þessi spillta kínastjórn sem brýtur flest öll mannréttindi í bókinni .