Síða 2 af 2
Re: Server storage pæling
Sent: Fös 24. Jan 2014 09:22
af nidur
AntiTrust skrifaði:keyra VM's á local storage á host vélinni
Já planið var alltaf að keyra VM á local storage, en það sem ég var að velta fyrir mér er þegar allt efnið sem VM/plex er að keyra er á NAS ætti maður að reyna að beintengja þær saman og setja upp iSCSI
Hafa t.d. 1gbit link beint á milli vm/nas og svo eru þær báðar tengdar með 1gbit inn á Lan, kannski bara óþarfa vitleysa.
bigggan skrifaði:goðir NAS i dag eru td frá Synology
Synology eru mjög flottir en það er einmitt hardwareið sem ég er ekki að fíla.
Re: Server storage pæling
Sent: Fös 24. Jan 2014 09:30
af AntiTrust
nidur skrifaði:AntiTrust skrifaði:keyra VM's á local storage á host vélinni
Já planið var alltaf að keyra VM á local storage, en það sem ég var að velta fyrir mér er þegar allt efnið sem VM/plex er að keyra er á NAS ætti maður að reyna að beintengja þær saman og setja upp iSCSI
Hafa t.d. 1gbit link beint á milli vm/nas og svo eru þær báðar tengdar með 1gbit inn á Lan, kannski bara óþarfa vitleysa.
Tjah, það er í raun engin þörf fyrir iSCSI tengingu þarna á milli, Plex getur lesið network share alveg jafn vel og local disk, eins og iSCSI targetið myndi koma upp sem. Þú ert líka í rauninni að blanda saman tveim file system umhverfum, þeas þú vilt væntanlega keyra ZFS á FreeNAS, en þú tapar þeim möguleika ef þú ætlar svo að nota iSCSI þar sem clientinn, í þessu tilfelli file serverinn, þarf að styðja file systemið. Værir í raun betur settur með því að setja upp ZFS volume og exporta því yfir SMB/CIFS.
Re: Server storage pæling
Sent: Fös 24. Jan 2014 09:47
af nidur
AntiTrust skrifaði:Værir í raun betur settur með því að setja upp ZFS volume og exporta því yfir SMB/CIFS.
Nákvæmlega það sem ég var að hugsa.
Takk fyrir hjálpina, ómetanlegt að fá fólk sem veit hvað það er að tala um í svona pælingar, vonandi hjálpar þessu þráður einhverjum í sínum pælingum.