Síða 2 af 16
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Þri 21. Jan 2014 20:16
af stefhauk
Var líka að lenda í þessu í nóvember bættu 2 x auka gagnamagni á mig fannst þetta fáranlegt þar sem ég ég vinn mikið og er ekki mikið heima og nota alltaf deildu til að dl sem er reyndar orðin eitthvað sjeikí núna vegna erlendir aðilar eru að komast inná hana. horfi nánast aldrei á youtube myndbönd eða skíkt. Enn samt sem áður hækkaði dl gríðarlega. Endaði með því að ég fór yfir í tal tók 120gb pakka á sama verði og 100 gb pakki kostar hjá vodafone.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Þri 21. Jan 2014 21:06
af indiemo
hmmmm...3 jan er líka risastór hjá mér.....fleiri með svoleiðis?
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Þri 21. Jan 2014 21:16
af Garri
Já.. byrjunin á janúar var svakaleg hjá mér.. ekkert download eða neitt sérstakt eftir 1 jan, þá var eitthvað verið að sækja.
En þetta feitletraða er ekki eðlilegt.
01. janúar 2014 8.351 MB 8,16 GB Niðurhal
02. janúar 2014 5.121 MB 5,00 GB Niðurhal
03. janúar 2014 6.121 MB 5,98 GB Niðurhal
04. janúar 2014 1.106 MB 1,08 GB Niðurhal
05. janúar 2014 1.690 MB 1,65 GB Niðurhal
06. janúar 2014 3.553 MB 3,47 GB Niðurhal
07. janúar 2014 1.720 MB 1,68 GB Niðurhal
08. janúar 2014 1.893 MB 1,85 GB Niðurhal
09. janúar 2014 5.172 MB 5,05 GB Niðurhal
10. janúar 2014 1.306 MB 1,28 GB Niðurhal
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Þri 21. Jan 2014 21:20
af SIKk
:VARÚÐ: Eftirfarandi orð eru persónuleg skoðun og ekki ætluð til að særa einn né neinn
Sorry drengir en..
Fólk á að vera löngu farið að sjá að Vodafone er ekki rétti aðilinn til að kaupa sína þjónustu frá

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Þri 21. Jan 2014 23:46
af Sallarólegur
Titanium skrifaði:Èg hef líka tekð eftir aukningu búin að vera að þurfa að stækka pakkann síðastliðna mánuði .Svo fèkk èg ljósnet í des og stækkaði í 250 gb í leiðinni . Var núna að skoða janúar og þetta er meira enn nokkru sinni . Við erum ekki að downloada mikið en strákarnir mínir 3 eru í net leikjum eins og league of legends, minecraft , ps3 sem er tengd að vísu líka tengd við netflx . Gagnamagnið er núna komið í 210 gb fyrir janúar...Er þetta eðlilegt miðað við netleiki og að streyma ?
Netflix í klst = 2.8 GB, svo að t.d. eru 14GB fimm klst. á Netflix.
LOL og PS3 tekur um 30-50Mb á klst. í spilun, svo meira ef uppfærslur koma til.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 22. Jan 2014 00:10
af kthordarson
ég væri nú ekkert að böggast yfir þessu ef ég væri með netflix eða videostreaming í gangi
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 22. Jan 2014 00:43
af Tbot
Held að það sé frekar spurning um hvað sé í lagi hjá þessu fyrirtæki.
http://www.dv.is/frettir/2014/1/22/veit ... omul-gogn/" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 22. Jan 2014 10:10
af linenoise
Ég er í sama hér. Byrjaði að aukast gífurlega niðurhalið fyrir 3 mánuðum. Svo voru þeir náttúrulega svo sniðugir að vera búnir að breyta skilmálunum hjá sér seinasta vor, þannig að það bætist við aukagagnamagn sjálfkrafa. Þeir eru búnir að rukka mig um auka 20 þús síðan í okt.
Að breyta skilmálum með einum bloggpósti. Er það löglegt?
Skítafyrirtæki, fyrir utan lekandann hjá þeim.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 22. Jan 2014 10:26
af Stutturdreki
Hjá mér líka, yfirleitt hef ég átt afgang af mínum 100GB en upp á síðkastið hefur þetta alltaf farið yfir. Venjuleg netnotkun hjá mér er svona 1-3 GB á dag, eftir því hvað strákurinn minn spilar mikið online eða hlustar mikið á spotify. En hinsvegar ef hann horfir á nokkur youtube myndbönd rýkur þetta upp.
Er ekki með dagsetningarnar á hreinu en einhvern af fyrstu dögum janúar, gæti verið 3., var notkunin yfir 12GB og á fyrstu 10 dögunum fór hún yfir 70GB.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 22. Jan 2014 10:47
af Garri
Eru guttarnir þarna ekki bara að svindla.. það eina sem guttar kunna og það vel.
Viss um að þeir eru að spegla þetta en hafa breytt spegluðu Youtbue niðurhali í erlent niðurhal.
Senda kæru á þá til einhvers eftirlitsins sem ætti að hafa eftirlit með þessu.
Auðvelt ætti að vera að sjá breytingu á niðurhali sem þeir greiða fyrir sjálfir og svo því sem þeir rukka fyrir, sérstaklega yfir áramótin.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 22. Jan 2014 11:48
af AntiTrust
Ef satt reynist, þá er líka spurningin um hvort þeir eru bara að brjóta gegn góðum viðskiptaháttum, frekar en lög. Þeim hlýtur að vera frjálst að setja eins mikið efni og þeim sýnist í flýtiminni á þjónum innanhúss hjá þeim til að spara sjálfir traffíkina, burtséð frá því hverju það skilar til notenda.
Svo getur vel verið að það brjóti í bága við Akamai/Google skilmála.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 22. Jan 2014 12:39
af Garri
AntiTrust skrifaði:Ef satt reynist, þá er líka spurningin um hvort þeir eru bara að brjóta gegn góðum viðskiptaháttum, frekar en lög. Þeim hlýtur að vera frjálst að setja eins mikið efni og þeim sýnist í flýtiminni á þjónum innanhúss hjá þeim til að spara sjálfir traffíkina, burtséð frá því hverju það skilar til notenda.
Svo getur vel verið að það brjóti í bága við Akamai/Google skilmála.
Þeir mega rukka fyrir speglunina.. en þeir verða þá að gera það undir þeim formerkjum,
alls ekki undir formerkjum erlends niðurhals.
Það má ekki ljúga að viðskiptavinum.. ekki ennþá allavega. Jafnvel þótt ýmislegt hafi mátt efir að þetta varð einkavætt.
Man þá daga þegar maður var með internet, GSM, síma og borgaði í kringum 3-4000 kr. á þriggja mánaða fresti. Næstum daginn eftir að þetta varð einkavætt, þá borgði maður sömu upphæð.. mánaðarlega, svo hækkaði þetta bara og hækkaði, eftir því sem tækninni fleytti fram og þetta varð ódýrara í rekstri.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 22. Jan 2014 17:32
af Sallarólegur
http://www.vodafone.is/blog/2014/01/mei ... gagnamagn/" onclick="window.open(this.href);return false;
Góðar fréttir fyrir suma, getur slökkt á sjálfvirku og þú færð meira gagnamagn ef þú ert í dýrari áskriftarleið. Þó verðurðu að vera með sjálfvirka áfyllingu til þess að nýta þessi kjör.
Þetta DNS vandamál er þó undarlegt, en ég efast að Vodafone sé skylt að spegla traffík. Þetta er þó líklega einhver bilun.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 22. Jan 2014 17:55
af Daz
Garri skrifaði:
Man þá daga þegar maður var með internet, GSM, síma og borgaði í kringum 3-4000 kr. á þriggja mánaða fresti. Næstum daginn eftir að þetta varð einkavætt, þá borgði maður sömu upphæð.. mánaðarlega, svo hækkaði þetta bara og hækkaði, eftir því sem tækninni fleytti fram og þetta varð ódýrara í rekstri.
Ég man þá tíð að ég var með 170 þúsund í heildarmánaðarlaun og það þótti bara nokkuð gott.
Svo man ég þegar þetta voru allt engi.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 22. Jan 2014 18:12
af hkr
Er hjá Vodafone og traffíkin hjá mér hækkaði líka fyrir sirka 3 mánuðum, spurning með hvernig þeir taka á spegluninni og öllu því.
En annars er mæling nokkuð rétt hjá mér, þá daga sem ég er nánast ekkert heima er hún rétt undir gb en töluvert meiri venjulega.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 22. Jan 2014 18:32
af egillth
Titanium skrifaði:Èg hef líka tekð eftir aukningu búin að vera að þurfa að stækka pakkann síðastliðna mánuði .Svo fèkk èg ljósnet í des og stækkaði í 250 gb í leiðinni . Var núna að skoða janúar og þetta er meira enn nokkru sinni . Við erum ekki að downloada mikið en strákarnir mínir 3 eru í net leikjum eins og league of legends, minecraft , ps3 sem er tengd að vísu líka tengd við netflx . Gagnamagnið er núna komið í 210 gb fyrir janúar...Er þetta eðlilegt miðað við netleiki og að streyma ?
Netflix borðar nettenginguna þína ef þú hefur í hæstu gæðum. Twitch streams eru líka nokkuð dugleg að nota bandvídd.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 22. Jan 2014 22:01
af kthordarson
Á mínum síðum er hægt að skoða niðurhalið frá Ágúst 2013. Í ágúst var ég ný búinn að stækka DL pakkann úr 30 í 50 gig.
Í ágúst eru amk 4 mjög stórir dagar, miðað við fyrri meðaltöl.

- 01 voda-agu-2013.png (22.35 KiB) Skoðað 1505 sinnum
Í september virðist þetta vera nokkuð eðlilegt. Enginn dagur yfir 5 gig.

- 02 voda-sep-2013.png (23.79 KiB) Skoðað 1505 sinnum
Október, halló! Sjáið dag 24.

- 03 voda-okt-2013.png (21.64 KiB) Skoðað 1505 sinnum
Á þessum tíma er mig farið að gruna eitthvað. Stækka samt í 100 gig.
Nóvember, dagur 24 aftur ?

- 04 voda-nov-2013.png (21.22 KiB) Skoðað 1505 sinnum
Desember, þá er þetta jafnað út. Allir dagar yfir 4 gig. Áður var undantekning að einn stakur dagur fór yfir 4.

- 05 voda-des-2013.png (20.6 KiB) Skoðað 1505 sinnum
Janúar, download sprengja 2 jan og svo svipað og des.

- 06 voda-jan-2014.png (19.88 KiB) Skoðað 1505 sinnum
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Mið 22. Jan 2014 22:33
af hkr
kthordarson skrifaði:Á mínum síðum er hægt að skoða niðurhalið frá Ágúst 2013. Í ágúst var ég ný búinn að stækka DL pakkann úr 30 í 50 gig.
Djöfull er asnalegt að ég þurfi annað hvort að vera með gsm símann minn hjá vodafone eða fara einhverja krókaleið til þess að skrá mig á þessa síðu..

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Fim 23. Jan 2014 14:05
af Baldurmar
Hvernig er með IPv6 og Vodafone ?
Ég sé stundum IPv6 hjá torrent peers, getur verið að Vodafone lesi allar IPv6 sem erlendar ?
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Fim 23. Jan 2014 14:30
af stefhauk
Held að það þurfi alvarlega að fara líta á þessi mál hjá þeim virðast mjög margir hérna hafa lennt í því að downloadið er að rjúka upp úr öllu valdi á einhverjum einum degi í mánuði.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Fim 23. Jan 2014 16:04
af RazerLycoz
stefhauk skrifaði:Held að það þurfi alvarlega að fara líta á þessi mál hjá þeim virðast mjög margir hérna hafa lennt í því að downloadið er að rjúka upp úr öllu valdi á einhverjum einum degi í mánuði.
ég er sammála þér.maður er bara með tvær pc tölvur og ein fartölva hérna í heimilinu en allir eru úti að vinna og skóla þegar maður mætir heima og maður kikjir á gagnamagnið þá er það komið uppí 4-5gb á degi þegar maður er ekki heima

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Fim 23. Jan 2014 18:03
af Akumo
Hjá mér og 3 öðrum sem ég hef athugað hjá er 2. jan uppúr öllu valdi, það getur bara ekki verið að þetta sé rétt hjá þeim.
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Fim 23. Jan 2014 18:09
af kthordarson
Eruði búnir að hafa samband við vodafone og biðja um að þetta verði athugað ?
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Fim 23. Jan 2014 21:06
af indiemo
indiemo skrifaði:hmmmm...3 jan er líka risastór hjá mér.....fleiri með svoleiðis?
var 2 jan hjá mér líka sem var huge.....
Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????
Sent: Fös 24. Jan 2014 00:06
af chaplin
Ég veit að Tal bjóða upp á sundurliðun þar sem farið er yfir allt niðurhal, það er villa á þeirra enda er það frítt en ef þetta er í raun "feil" hjá þér þarftu að borga fyrir þjónustuna sem er um 20-35k.