Síða 2 af 2

Re: Stefnir þjóðin í ólæsi?

Sent: Þri 03. Des 2013 19:33
af NiveaForMen
Börnin eru ekki vandamálið. Foreldrarnir eru vandamálið, börnin eru afleiðingarnar.

Re: Stefnir þjóðin í ólæsi?

Sent: Þri 03. Des 2013 19:36
af Output
Jæja, ég held að þið megið alveg róa ykkur. Mér líður eins og þið eruð gamlir kallar að tala um hversu léleg og vond nýja kynslóðin er. "haha vá strákar tjekkið hvað þessir unlingar eru bara í tölvum í dag og borða helling af nammi og gosi!! vá hversu barnalegir!!"

just my $0.02.

Re: Stefnir þjóðin í ólæsi?

Sent: Þri 03. Des 2013 19:42
af KermitTheFrog
NiveaForMen skrifaði:Börnin eru ekki vandamálið. Foreldrarnir eru vandamálið, börnin eru afleiðingarnar.
Held þú hittir naglann á höfuðið þarna.

Það er ekki krökkunum að kenna að þeim finnist gaman í tölvuleikjum eða að lesa slúðurblöð. Afhverju ættu þeir að takmarka þann tíma og lesa bók? Unglingar eru enn að mótast og það er foreldranna hlutverk að hjálpa þeim að gera það.

Allt of margir sem eignast börn en hafa engan tíma til að sinna þeim. Þetta eru breyttir tímar frá því þegar mamman var heimavinnandi í meirihluta.

edit: kannski asnalega orðað, en ég vona að þið náið því sem ég er að segja.

Re: Stefnir þjóðin í ólæsi?

Sent: Þri 03. Des 2013 21:00
af Daz
KermitTheFrog skrifaði:
NiveaForMen skrifaði:Börnin eru ekki vandamálið. Foreldrarnir eru vandamálið, börnin eru afleiðingarnar.
Held þú hittir naglann á höfuðið þarna.

Það er ekki krökkunum að kenna að þeim finnist gaman í tölvuleikjum eða að lesa slúðurblöð. Afhverju ættu þeir að takmarka þann tíma og lesa bók? Unglingar eru enn að mótast og það er foreldranna hlutverk að hjálpa þeim að gera það.

Allt of margir sem eignast börn en hafa engan tíma til að sinna þeim. Þetta eru breyttir tímar frá því þegar mamman var heimavinnandi í meirihluta.

edit: kannski asnalega orðað, en ég vona að þið náið því sem ég er að segja.
Nógu asnalega orðað til að ég gat skilið þetta. (Var þetta nógu asnalega orðað?). Það er mikið til í þessu myndi ég halda.

Re: Stefnir þjóðin í ólæsi?

Sent: Mið 04. Des 2013 09:02
af playman

Re: Stefnir þjóðin í ólæsi?

Sent: Mið 04. Des 2013 12:34
af jericho
playman skrifaði:youtube
Skil ég þig rétt að þú viljir byrja "sérhæfingu" strax í grunnskóla? Af hverju að læra dönsku þegar maður notar hana aldrei (og så videre)? Mér finnst eðlilegast að í grunnskóla fái maður breiðan grunn og að honum loknum velur maður sér það sem maður hefur áhuga á, þ.e.a.s. í framhaldsskóla?

Re: Stefnir þjóðin í ólæsi?

Sent: Mið 04. Des 2013 13:39
af oskar9
Hvernig vilja menn þá mæla árangur ef útkoma á prófi er ekki sangjörn ?

Nemendur skiptast á skilaverkefnum, breyta orðalagi og skila því svo án þess að hafa hugmynd um hvað efnið er.

Hvernig ættum við að ákvarða hvort einhver sé búinn að ná tökum á t.d Stærðfræði 203 án þess að leggja fyrir hann próf og gefa honum einkunn ?

Re: Stefnir þjóðin í ólæsi?

Sent: Mið 04. Des 2013 14:00
af Klemmi
oskar9 skrifaði:Hvernig vilja menn þá mæla árangur ef útkoma á prófi er ekki sangjörn ?

Nemendur skiptast á skilaverkefnum, breyta orðalagi og skila því svo án þess að hafa hugmynd um hvað efnið er.

Hvernig ættum við að ákvarða hvort einhver sé búinn að ná tökum á t.d Stærðfræði 203 án þess að leggja fyrir hann próf og gefa honum einkunn ?
Mér dettur í hug einhverskonar SAW þolraun.

Mynd

Re: Stefnir þjóðin í ólæsi?

Sent: Mið 04. Des 2013 16:15
af vesley
oskar9 skrifaði:Hvernig vilja menn þá mæla árangur ef útkoma á prófi er ekki sangjörn ?

Nemendur skiptast á skilaverkefnum, breyta orðalagi og skila því svo án þess að hafa hugmynd um hvað efnið er.

Hvernig ættum við að ákvarða hvort einhver sé búinn að ná tökum á t.d Stærðfræði 203 án þess að leggja fyrir hann próf og gefa honum einkunn ?

Fjölbreytni, það er það sem vantar í mikið af kennslu.

Sjálfur er ég mikið hrifnari af símatskennslu heldur en lokaprófum, veit um allt allt of mikið af fólki sem lærir ekki neitt alla önnina rétt mætir til að skila einu og einu verkefni og mætir svo í lokaprófið og fær toppeinkunn í því það einfaldlega lærði 3 daga fyrir prófið og gleymir þessu öllu saman viku seinna.
Í símati þarftu að skila mjög reglulega verkefnum, reglulega eru minni próf úr því efni sem þú varst að læra á þessum tíma og nemendur þurfa að sýna árangur og metnað í tímunum, virkar ekki að sitja í símanum eða vera með hausinn á borðinu, fjölbreytnin er meiri í kennslunni.

Re: Stefnir þjóðin í ólæsi?

Sent: Mið 04. Des 2013 17:04
af KermitTheFrog
Málið er bara að það er auðveldara að komast upp með að gera sem minnst í símati/verkefnaskilum. Símatið prófar ekki endilega skilning þinn á efninu, heldur hversu góður þú ert í að skila því á blað. Hvaðan þetta efni kemur allt veltur á ýmsu. Þú gætir allt eins hafa gert topp verkefni en það sé enginn skilningur á bak við það. Rétt eins og nemandinn sem lærir þrem dögum fyrir próf og fær toppeinkunn. En prófsvörin hans komu allavega frá honum. Þú getur treyst á það að það sem hann svaraði rétt, það skildi hann. Á þessum tímapunkti hefur hann sýnt fram á að hann skilji námsefnið.

Ekki man ég neitt frekar um einhver eldfjöll sem ég gerði verkefni um í framhaldsskóla heldur en stærðfræðiaðferðirnar sem ég lærði fyrir síðustu jól. En maður er enga stund að rifja upp það sem maður hefur áður náð tökum á, þá sérstaklega eftir að hafa tekið próf úr því.

Símat er vissulega þægilegt fyrir nemandann, það finnst fæstum gaman að læra fyrir/taka próf. En að mínu mati eru próf markvissasta leiðin til að prófa skilning nemanda á námsefninu.

Re: Stefnir þjóðin í ólæsi?

Sent: Mið 04. Des 2013 17:26
af Klemmi
Ég er sammála Vesley varðandi símatið, en að stór partur eigi/megi vera minni kaflapróf.

Í stað þess að hafa eitt lokapróf sem gildir 60-70% að þá mega vera 4-5 minni yfir önnina sem gilda saman jafn mikið og lokaprófið. Þá ertu búinn að fyrirbyggja það að fólk geti komist í gegn á verkefnavinnu annara, eins og oft er raunin.

Þá ertu einnig búinn að fyrirbyggja það að einn slæmur dagur geti valdið því að þú fáir lélega einkunn.

Re: Stefnir þjóðin í ólæsi?

Sent: Mið 04. Des 2013 21:53
af Kosmor
Ég hef tekið kúrsa sem er samblanda af tveimur og fannst það frábær hugmynd.

4-5 kaflapróf yfir önnina og ef meðaleinkunn úr þeim er hærra en 8-9 gildir sú einkunn 100% af áfanganum, annars 50% og lokapróf 50%.
Mér fannst þetta virkilega góð gulrót fyrir nemendur að læra til að sleppa við próf og létta þannig á sér í lokaprófum. sem og þú lærir vel yfir önnina og nærð tökum á efninu.

Re: Stefnir þjóðin í ólæsi?

Sent: Mið 04. Des 2013 22:50
af Black
tl;dr

Re: Stefnir þjóðin í ólæsi?

Sent: Fim 05. Des 2013 01:41
af Sultukrukka
x

Re: Stefnir þjóðin í ólæsi?

Sent: Fim 05. Des 2013 02:41
af hkr
Daz skrifaði:
appel skrifaði:Maður veit ekki hvernig maður á að skilja svona fréttir. Kunna drengirnir ekki að lesa? Eða hvað er málið? Hvað er að lesa sér til gagns? Páfagaukalærdómur? Lesa Moby Dick?

Menntakerfið er bara úr sér gengið, það eru ekki allir eins, fólk lærir á misjafnan hátt, hefur misjafnan áhuga, hefur misjafna athygli og getu í mismunandi hluti. Markmið skólakerfisins á að hámarka hæfileika og möguleika hvers og eins einstaklings miðað við hans getu, ekki setja alla í sama mótið.
Miðað við þetta þá er "að lesa sér til gagns" að geta lesið 200 atkvæði á mínútu.
Ég tók eina blaðsíðu af handahófi úr einhverri skólaritgerð sem ég var með í tölvunni, hún var 590 atkvæði.
Sé ekki betur en að "að lesa sér til gamans" sé ekki hversu hratt þú lest, heldur hversu vel þú skilur hvað þú ert að lesa:
http://www.keepeek.com/Digital-Asset-Ma ... 01118-7-en" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Stefnir þjóðin í ólæsi?

Sent: Fim 05. Des 2013 11:36
af KermitTheFrog
Allt þetta tal um "áhuga" finnst mér frekar kjánalegt. Krakkar fyrir 10 árum höfðu ekkert meiri áhuga á dönsku, stærðfræði eða bókmenntum en krakkar í dag. Þeir bara komust ekki upp með neitt kjaftæði.

Re: Stefnir þjóðin í ólæsi?

Sent: Fim 05. Des 2013 12:39
af lukkuláki
Búa til alvöru námsefni í tölvurnar þá leysist þetta vandamál hratt og vel !
Gæti til dæmis verið í formi skemmtilegra leikja eða þrauta það eru breyttir tímar fólk þarf að átta sig á því og breyta öðru í samræmi við það.

Re: Stefnir þjóðin í ólæsi?

Sent: Fös 06. Des 2013 02:38
af Black
lukkuláki skrifaði:Búa til alvöru námsefni í tölvurnar þá leysist þetta vandamál hratt og vel !
Gæti til dæmis verið í formi skemmtilegra leikja eða þrauta það eru breyttir tímar fólk þarf að átta sig á því og breyta öðru í samræmi við það.

https://www.khanacademy.org" onclick="window.open(this.href);return false;

Þessi síða er tær snilld.Hér er einmitt búið að setja lærdóminn í skemmtilegt form.