Síða 2 af 2

Re: HM í fótbolta

Sent: Þri 19. Nóv 2013 23:21
af appel
Þjóðin samtaka í klósettferðum
Mynd
http://www.dv.is/frettir/2013/11/19/thjodin-samtaka/" onclick="window.open(this.href);return false;

Oh my... eru þeir að fylgjast með klósettferðum mínum?

Re: HM í fótbolta

Sent: Mið 20. Nóv 2013 00:22
af svanur08
haha fáir íþróttamenn á vaktinni :happy

Re: HM í fótbolta

Sent: Mið 20. Nóv 2013 00:39
af AntiTrust
svanur08 skrifaði:haha fáir íþróttamenn á vaktinni :happy
Það er gerólíkt að stunda íþróttir eða sitja á rassgatinu og glápá þær í imbakassanum ;)

Re: HM í fótbolta

Sent: Mið 20. Nóv 2013 00:41
af littli-Jake
Alltaf finst mér jafn miður hvað nörda-bræður mínir eru hrikalega andsnúnir öllum hópíþróttum. Sérstaklega þessum vinsælu.

Re: HM í fótbolta

Sent: Mið 20. Nóv 2013 00:55
af AntiTrust
littli-Jake skrifaði:Alltaf finst mér jafn miður hvað nörda-bræður mínir eru hrikalega andsnúnir öllum hópíþróttum. Sérstaklega þessum vinsælu.
Bara svo ég tali fyrir mitt leyti, þá er ég á engan hátt mótfallinn íþróttum, hóp eða einstaklings. Ég styð nær allar íþróttir - en þá á ég líka við að stunda þær. Hef að sjálfsögðu ekkert á móti íþróttaáhorfi, en þessi fanatík sem er kringum fótboltann oft á það til að vera alveg full kjánaleg. Alveg upp að því marki að það er ekki nokkur leið að láta það framhjá sér fara.

Re: HM í fótbolta

Sent: Mið 20. Nóv 2013 01:01
af tdog
Ég þoli ekki menn sem sitja við skjáinn og tala við leikmenn eða dómarann...

Re: HM í fótbolta

Sent: Mið 20. Nóv 2013 01:19
af oskar9
AntiTrust skrifaði:
littli-Jake skrifaði:Alltaf finst mér jafn miður hvað nörda-bræður mínir eru hrikalega andsnúnir öllum hópíþróttum. Sérstaklega þessum vinsælu.
Bara svo ég tali fyrir mitt leyti, þá er ég á engan hátt mótfallinn íþróttum, hóp eða einstaklings. Ég styð nær allar íþróttir - en þá á ég líka við að stunda þær. Hef að sjálfsögðu ekkert á móti íþróttaáhorfi, en þessi fanatík sem er kringum fótboltann oft á það til að vera alveg full kjánaleg. Alveg upp að því marki að það er ekki nokkur leið að láta það framhjá sér fara.

Sérstaklega þegar bullurnar tala um liðið "sitt" í ensku sem við eða okkur.

" já við áttum fínan leik í gær, var samt ekki allveg sáttur þegar við skiptum X inná í staðinn fyrir Y, en mínir menn afgreiddu þetta vel og nú eigum við annan leik næstu helgi"

Fæ allveg fjaðrir á rassgatið :pjuke

Re: HM í fótbolta

Sent: Mið 20. Nóv 2013 07:48
af jericho
Íslendingar voru eins og smástrákar á móti ógnarsterkum króötum. Stressið líklega að fara með þá og þeir náðu aldrei neinu spili, þrátt fyrir rauða spjaldið hjá Mario Mandzckzcvzk.

Til þeirra sem eiga: í stað þess að rita ómerkilegar athugasemdir um að ykkur sé sama um íþróttir, landsliðið, eða því um líkt, nennið þið að halda skoðunum ykkar út af fyrir ykkur? Þessi þráður er um HM í fótbolta.

Re: HM í fótbolta

Sent: Mið 20. Nóv 2013 08:11
af Frost
littli-Jake skrifaði:Alltaf finst mér jafn miður hvað nörda-bræður mínir eru hrikalega andsnúnir öllum hópíþróttum. Sérstaklega þessum vinsælu.
Ég er engan vegin á móti íþróttum og hef mjög gaman að stunda þær. Hinsvegar þá skiptir það svo litlu sem engu máli fyrir mér hvernig við stöndum okkur í íþróttum sem þjóð. Fólk lætur þetta hafa of mikil áhrif á sig og verður steinhissa ef maður er ekki á sama blaði og þau.

Leitt með tapið samt.

Re: HM í fótbolta

Sent: Mið 20. Nóv 2013 09:04
af KermitTheFrog
jericho skrifaði:Til þeirra sem eiga: í stað þess að rita ómerkilegar athugasemdir um að ykkur sé sama um íþróttir, landsliðið, eða því um líkt, nennið þið að halda skoðunum ykkar út af fyrir ykkur? Þessi þráður er um HM í fótbolta.
Og hvernig eiga þær athugasemdir ekki heima hérna í umræðu? Bara af því að þær eru neikvæðar? Umræða snýst um að fá álit og inntak frá sem flestum, sama hvort neikvætt eða jákvætt.

Re: HM í fótbolta

Sent: Mið 20. Nóv 2013 09:27
af jericho
KermitTheFrog skrifaði:

Svo lengi sem athugasemdir/skoðanir snúast um HM í fótbolta, þá eiga þær heima hér. Aðrar ekki.

Re: HM í fótbolta

Sent: Mið 20. Nóv 2013 09:36
af worghal
jericho skrifaði:
KermitTheFrog skrifaði:
jericho skrifaði:Til þeirra sem eiga: í stað þess að rita ómerkilegar athugasemdir um að ykkur sé sama um íþróttir, landsliðið, eða því um líkt, nennið þið að halda skoðunum ykkar út af fyrir ykkur? Þessi þráður er um HM í fótbolta.
Og hvernig eiga þær athugasemdir ekki heima hérna í umræðu? Bara af því að þær eru neikvæðar? Umræða snýst um að fá álit og inntak frá sem flestum, sama hvort neikvætt eða jákvætt.
Svo lengi sem athugasemdir/skoðanir snúast um HM í fótbolta, þá eiga þær heima hér. Aðrar ekki.
Afsakid ad eg sagdi ekki "mer gaeti ekki verid meira sama um HM".
eg vona ad thu finnir thad i thinu vidkvaema hjarta ad fyrirgefa mer.
Eg skal passa mig i framtidinni ad rita nidur nokkur auka ord til ad tengja umraeduna betur vid thad sem eg skrifa svo merkingin komist sem formlegast til skila og allir seu anaegdir.

Re: HM í fótbolta

Sent: Mið 20. Nóv 2013 09:52
af vesley
Það virðist vera eitthver typpakeppni hér í gangi um það hver getur sagst hafa minnstan áhugann á þessari íþrótt.

Sjálfur hef ég gaman að því að horfa á eins og leikinn i gær þó ég horfi svo gott sem engann áhuga a þessari íþrótt og þá tala ég bæði um að stunda hana eða horfa á.

svipað með flest aðrar íþróttir ef einstaklingur/lið kemst langt þá hafa fleiri áhuga á því augnabliki sem verið er að sýna árangur, t.d. þegar annie mist keppti eða gunnar í ufc eða jafnvel þegar verið er að keppa í sundi þá eykst áhugi fólks á íþróttinni.

Re: HM í fótbolta

Sent: Mið 20. Nóv 2013 10:15
af Jimmy
vesley skrifaði:Það virðist vera eitthver typpakeppni hér í gangi um það hver getur sagst hafa minnstan áhugann á þessari íþrótt.
Það er nú bara alltaf þannig hérna á vaktinni hjá neckbeardunum þegar einhver íþróttaumræða poppar upp.

Þó svo við höfum ekki komist á HM í þetta skipti þá er þetta samt sem áður geggjuð reynsla fyrir hópinn sem landsliðið er með í dag.. Þetta á 100% eftir að skila sér í komandi keppnum þar sem kjarninn í þessum hóp eru ennþá bara "guttar", og fleiri góðir leikmenn á leiðinni upp í gegnum yngri landsliðin.

Framtíðin er björt, jei.

Re: HM í fótbolta

Sent: Mið 20. Nóv 2013 10:28
af jericho
worghal skrifaði:Afsakid ad eg sagdi ekki "mer gaeti ekki verid meira sama um HM".
[off-topic] Einmitt svona comment sem eiga bara ekki heima hérna [/off-topic]

on-topic: Ótrúlegt hvað Eiður Smári hefur afrekað á sínum félagsliðaferli. Leiðinlegt að hafa ekki náð að kóróna þann árangur með því að spila í Brasilíu.