Síða 2 af 3

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 28. Ágú 2013 12:43
af emmi
Þetta er nú meiri lúxusinn sem þið búið við sem ná ljósleiðaranum. Maður er alltaf að sjá meira og meira hvað Ljósnet Símans er mikið prump. Þeir eru varla búnir að leggja Ljósnetið þegar 50/25 er orðið úrelt. :guy

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 28. Ágú 2013 13:08
af AntiTrust
Verður spennandi að sjá hvort VDSLið þróast yfir í vectoring, þá erum við að horfá amk 100Mbit bandvídd.

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 28. Ágú 2013 13:11
af ponzer
Er eitthvað vitað hvenær Voda fer að bjóða upp á meira en 100Mbps ? Ég er með 4 Gen ljósbreytu og bíð spenntur eftir meiri hraða.

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 28. Ágú 2013 13:16
af emmi
VDSL'ið styður alveg 100Mb, vandamálið með VDSL er að drægnin er skelfileg.

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 28. Ágú 2013 14:05
af Arkidas
Er í 170 póstnúmeri og er ekki með neina af þessum gerðum af ljósleiðaraboxi (mitt er dökkgrátt). Get ég tengst þessu ef ég borga þennan 18þ kall eða er þetta bara fyrir þessi upptöldu póstnúmer af einhverri annarri ástæðu en vegna endabúnaðarins?

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 28. Ágú 2013 15:01
af AntiTrust
Bara í boði í þessum hverfum, væntanlega þar sem það er bara búið að uppfæra þann endabúnað í Gbit.

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 28. Ágú 2013 15:14
af einarth
Arkidas skrifaði:Er í 170 póstnúmeri og er ekki með neina af þessum gerðum af ljósleiðaraboxi (mitt er dökkgrátt). Get ég tengst þessu ef ég borga þennan 18þ kall eða er þetta bara fyrir þessi upptöldu póstnúmer af einhverri annarri ástæðu en vegna endabúnaðarins?
Þú ert með 1. kynslóð - allra fyrstu tækin voru svört en ekki hvít eins og á myndinni.

200/400 er ekki í boði í 170 eins og er - en líklega er ekki langt í það (nema þú búir í Eiðistorgi-spes case)..

Kv, Einar.

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 28. Ágú 2013 15:16
af AntiTrust
Svona fyrst þú ert að spekúlera með tímasetningar á annað borð, e-ð plan með 221/Vellina í Hfj?

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 28. Ágú 2013 16:06
af Arkidas
einarth skrifaði:
Arkidas skrifaði:Er í 170 póstnúmeri og er ekki með neina af þessum gerðum af ljósleiðaraboxi (mitt er dökkgrátt). Get ég tengst þessu ef ég borga þennan 18þ kall eða er þetta bara fyrir þessi upptöldu póstnúmer af einhverri annarri ástæðu en vegna endabúnaðarins?
Þú ert með 1. kynslóð - allra fyrstu tækin voru svört en ekki hvít eins og á myndinni.

200/400 er ekki í boði í 170 eins og er - en líklega er ekki langt í það (nema þú búir í Eiðistorgi-spes case)..

Kv, Einar.
Ok takk fyrir það!

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 28. Ágú 2013 16:48
af einarth
AntiTrust skrifaði:Svona fyrst þú ert að spekúlera með tímasetningar á annað borð, e-ð plan með 221/Vellina í Hfj?
Get ekki svarað því 100% en reikna með því fljótlega :)

Kv, Einar.

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 28. Ágú 2013 17:11
af Gretz
Og talandi um póstnúmer, einhverjar upplýsingar um 105?

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 28. Ágú 2013 17:22
af dabbiso
Einnig Norðurbakka, 220 hafnarfirði.
Hér er búið að leggja allar lagnir. Það á bara eftir að blása...
Er þetta á einhverju plani sem þú hefur hjá þér?

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 28. Ágú 2013 20:55
af einarth
Nei hef engar frekari upplýsingar aðrar en að við stefnum á að bjóða 200/400 hjá öllum sem eru með ljósleiðara - það mun hinsvegar gerast í skrefum.

Sama má segja með að bjóða nýjum hverfum að tengjast Ljósleiðaranum - við erum að tengja ný hverfi á hverju ári en getum ekki gefið nákvæmar tímasetningar.

Læt ykkur vita þegar meira liggur fyrir með 200/400...

Kv, Einar.

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 28. Ágú 2013 21:27
af hagur
Hvenær ætli Vodafone fari að bjóða uppá 200-400mbit hraða? Veit einhver? GrimurD, ert þú ekki starfsmaður Voda með innherjaupplýsingar? ;-)

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mán 09. Des 2013 12:29
af AntiTrust
Señor Einar, ekki eru dags. fyrir uppfærslur komnar e-rstaðar í opinberanleg skjöl?

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mán 09. Des 2013 14:48
af einarth
Nei...ekkert komið á blað ennþá.

Læt vita þegar frekari upplýsingar liggja fyrir..

Kv, Einar.

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mán 09. Des 2013 14:58
af AntiTrust
Danke, bíð spenntur.

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 02. Apr 2014 13:16
af einarth
Jæja - þá erum við hjá Gagnaveitu Reykjavíkur búin að taka næsta skref með 200/400 Mb þjónustuna - vorum að bæta við fleiri póstnúmerum þar sem uppfærsla úr 100Mb er í boði.

Einnig er nú boðið uppá að skipta uppfærslugjaldi fyrir netaðgangstæki í 4 hluta (greiðsludreifing).

Sjá nánari upplýsingar hér: http://www.gagnaveita.is/Heimili/200400Mbshradi/

Það eru síðan ágætar líkur á að fleiri þjónustuveitur muni bjóða uppá þessu þjónustu á næstunni.

Kv, Einar.

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 02. Apr 2014 13:49
af tanketom
einarth skrifaði:Jæja - þá erum við hjá Gagnaveitu Reykjavíkur búin að taka næsta skref með 200/400 Mb þjónustuna - vorum að bæta við fleiri póstnúmerum þar sem uppfærsla úr 100Mb er í boði.

Einnig er nú boðið uppá að skipta uppfærslugjaldi fyrir netaðgangstæki í 4 hluta (greiðsludreifing).

Sjá nánari upplýsingar hér: http://www.gagnaveita.is/Heimili/200400Mbshradi/

Það eru síðan ágætar líkur á að fleiri þjónustuveitur muni bjóða uppá þessu þjónustu á næstunni.

Kv, Einar.

smá spurning, ég er með hybrid ljósleiðara box, er wifi innbyggt i þessum tækjum? Ef svo er, hvernig virki eg það

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 02. Apr 2014 14:20
af hkr

Eru þetta öll hverfin í þessum póstnúmerum?
Var að skoða þetta þegar þetta kom hér fyrst og þá var þetta ekki komið í mitt hverfi þó svo að ég sé í 110.

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 02. Apr 2014 14:37
af Stutturdreki
hkr skrifaði:

Amk. ekki algilt, er að flytja til innann 210, var með ljós en það er ekki í boði í nýja plássinu, þótt mér skiljist að allt sé til staðar.

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 02. Apr 2014 14:47
af einarth
smá spurning, ég er með hybrid ljósleiðara box, er wifi innbyggt i þessum tækjum? Ef svo er, hvernig virki eg það
Við bjóðum þjónustuveitum uppá þann möguleika að nota netaðgangstæki sem router/wifi punkt - það er hinsvegar engin af þeim af selja þann fídus.

Eru þetta öll hverfin í þessum póstnúmerum?
Var að skoða þetta þegar þetta kom hér fyrst og þá var þetta ekki komið í mitt hverfi þó svo að ég sé í 110.
Það er einungis verið að tala um hvaða póstnúmer bjóða uppá uppfærslu í 200/400Mb - sem á þá auðvita einungis við þá sem eiga kost á ljósleiðara í viðkomandi póstnúmeri.

Það er ekki þannig að við bjóðum uppá ljósleiðara allstaðar í viðkomandi póstnúmerum (erum t.d. varla byrjaðir á Hafnarfirði).

Kv, Einar.

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 02. Apr 2014 14:55
af hkr
einarth skrifaði:Það er einungis verið að tala um hvaða póstnúmer bjóða uppá uppfærslu í 200/400Mb - sem á þá auðvita einungis við þá sem eiga kost á ljósleiðara í viðkomandi póstnúmeri.

Það er ekki þannig að við bjóðum uppá ljósleiðara allstaðar í viðkomandi póstnúmerum (erum t.d. varla byrjaðir á Hafnarfirði).
Er með ljósleiðara í gegnum Vodafone og var með það líka þegar ég sendi GR póst og spurði um þetta en fékk þau svör að þetta væri ekki í boði:
Það er ekki cat5 eða multimode í þínu húsi og ættu innanhússlagnirnar að ráða við að lágmarki 1Gbps. Hins vegar er GR því miður ekki farin að bjóða upp á 400Mbps tengingar í þínu hverfi eins og er.
Ég var því að pæla hvort að þetta væri komið allstaðar í 110 þar sem ljósleiðari er nú þegar.

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Mið 02. Apr 2014 15:14
af einarth
Sæll.

Já - ef þú ert með ljósleiðara nú þegar og ert í 110 þá er þetta í boði - en auðvita aðeins með þeim þjónustuveitum sem selja þetta.

Veit ekki afhverju þú hefur fengið þetta svar - en ef þú sendir mér PM get ég kannað málið.

Kv, Einar.

Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni

Sent: Fim 03. Apr 2014 09:49
af Halli25
Sá að gagnaveitan ætlar að klára ljósleiðaravæðingu í Hveragerði í sumar, hvaða hraða ætliði að byrja á þar? Beint í 400?