Síða 2 af 2
Re: Vantar meira gagnamagn. Hvert er best að snúa sér?
Sent: Lau 17. Ágú 2013 02:44
af J1nX
kíkir bara í browser history hjá honum þegar hann fer út

Re: Vantar meira gagnamagn. Hvert er best að snúa sér?
Sent: Lau 17. Ágú 2013 03:31
af DJOli
Hvaða fyrirtæki á íslandi fyrir utan Símann, Hringiðuna, Vodafone og Tal bjóða upp á internet?.
Re: Vantar meira gagnamagn. Hvert er best að snúa sér?
Sent: Lau 17. Ágú 2013 11:09
af Sera
Ég er í sömu stöðu, 4 tölvur á heimilinu og notum Netflix mikið. Ég er að kaupa 140 GB hjá símanum sem hreinlega brenna upp. Í gær hurfu t.d. 3.3 GB á einni klukkustund og það var ein tölva á netrápi og einn að horfa á netflix. Ég er búin að stilla netflix þannig að það sé aðeins 300 mb. á klukkutíma - skil ekki hvernig niðurhalið getur þá farið í 3.3 GB á klukkutíma. Ég er líka að fá 3 daga í röð með 13-16 GB á sólahring og slökkt á öllum tölvum yfir nóttina. Ég held að það hljóti að vera eitthvað að hjá Símanum í gagnamælingu.
En mig vantar sárlega meira niðurhal, 140 GB er greinilega ekki nóg fyrir 4 heimilistölvur, lítið að downloada en slatti horft á kvikmyndir í gegnum Netflix og aðra miðla.
Re: Vantar meira gagnamagn. Hvert er best að snúa sér?
Sent: Lau 17. Ágú 2013 11:23
af urban
Sera skrifaði:
En mig vantar sárlega meira niðurhal, 140 GB er greinilega ekki nóg fyrir 4 heimilistölvur, lítið að downloada en slatti horft á kvikmyndir í gegnum Netflix og aðra miðla.
og hvað er það annað en download ?
Re: Vantar meira gagnamagn. Hvert er best að snúa sér?
Sent: Lau 17. Ágú 2013 11:45
af Sera
urban skrifaði:Sera skrifaði:
En mig vantar sárlega meira niðurhal, 140 GB er greinilega ekki nóg fyrir 4 heimilistölvur, lítið að downloada en slatti horft á kvikmyndir í gegnum Netflix og aðra miðla.
og hvað er það annað en download ?
auðvitað download, held þú vitir samt hvað ég var að meina, ekki mikið niðurhal á öðru en kvikmyndum í gegnum streaming. Geri mér fullkomlega grein fyrir því að vefsíðuráp og allt sem gert er á erlendum síðum er niðurhal. Enda myndi mín 140GB tenging alveg duga ef ég væri bara að rápa á vefsíðum og ekki streyma neinu videoi.
p.s. sendi fyrirspurn á símann um hvort þeir myndu ekki bjóða upp á stærri pakka en 140 GB þar sem Vodafone er að bjóða 250 GB og alveg spurning um að flytja sig yfir til þeirra fyrir 1500 kr. meira á mánuði. Ég þarf að borga 1700 kr. hjá símanum fyrir auka 10 GB, þá er ég komin í sama gjald fyrir 150 Gb hjá símanum en 250 GB hjá Vodafone.
Re: Vantar meira gagnamagn. Hvert er best að snúa sér?
Sent: Lau 17. Ágú 2013 13:07
af joishine
Smá ábending útaf þú sagðist klára 140gb.
Síminn hækkar 140gb leiðina uppí 170gb 1. september án þess að hækka gjaldið.
Það er verið að breyta leiðunum úr 10, 40, 80 og 140 í 10, 50, 100, 170
Veist allavegana af því

Re: Vantar meira gagnamagn. Hvert er best að snúa sér?
Sent: Lau 17. Ágú 2013 13:50
af DJOli
Ég held að 30gb hækkun geri lítið en að hækka 'neyslutölu' gagnamagns hjá símanum sem þeir gætu notað einhvern daginn til að auglýsa 'fólk notar okkar gagnamagn mest'.
Re: Vantar meira gagnamagn. Hvert er best að snúa sér?
Sent: Lau 17. Ágú 2013 15:01
af AntiTrust
DJOli skrifaði:Ég held að 30gb hækkun geri lítið en að hækka 'neyslutölu' gagnamagns hjá símanum sem þeir gætu notað einhvern daginn til að auglýsa 'fólk notar okkar gagnamagn mest'.
Hver í ósköpunum væri gróðinn af því? Það er fjöldi viðskiptavina sem talar hvað mest, ekki notkunarstattar hefði ég haldið.
Re: Vantar meira gagnamagn. Hvert er best að snúa sér?
Sent: Lau 17. Ágú 2013 15:51
af daddni
Síðast þegar ég hringdi til að kaupa meira gagnamagn hjá símanum var mér sagt að það er verið að tala um að stækka efsta pakkann uppí 240GB á mánuði
Re: Vantar meira gagnamagn. Hvert er best að snúa sér?
Sent: Lau 17. Ágú 2013 16:36
af Sera
joishine skrifaði:Smá ábending útaf þú sagðist klára 140gb.
Síminn hækkar 140gb leiðina uppí 170gb 1. september án þess að hækka gjaldið.
Það er verið að breyta leiðunum úr 10, 40, 80 og 140 í 10, 50, 100, 170
Veist allavegana af því

Gott að vita af því, ég er alveg í startholunum að skipta yfir til Vodafone og fá 250 gb fyrir 1500 kr. meira en Síminn rukkar fyrir 140 gb. Heldurðu að þeir muni ekki bjóða stærri pakka en 170gb ?
Re: Vantar meira gagnamagn. Hvert er best að snúa sér?
Sent: Lau 17. Ágú 2013 17:11
af AntiTrust
Síminn mun alveg örugglega elta sinn stærsta samkeppnisaðila.
Re: Vantar meira gagnamagn. Hvert er best að snúa sér?
Sent: Lau 17. Ágú 2013 20:43
af Oak
Hidemyass vpn-ið er ekki að gefa mér neitt frítt niðurhal. Það telur ennþá hjá hringdu.
Re: Vantar meira gagnamagn. Hvert er best að snúa sér?
Sent: Lau 17. Ágú 2013 23:53
af GrimurD
Oak skrifaði:Hidemyass vpn-ið er ekki að gefa mér neitt frítt niðurhal. Það telur ennþá hjá hringdu.
Ertu ekki 100% tengdur við íslenska serverinn?
Re: Vantar meira gagnamagn. Hvert er best að snúa sér?
Sent: Sun 18. Ágú 2013 02:27
af Oak
Ég ætla að prufa að hafa þetta í nokkra daga í gangi og sjá hvort að þetta sé ekki örugglega að virka.
Ég er tengdur Iceland, Reykjavík

Re: Vantar meira gagnamagn. Hvert er best að snúa sér?
Sent: Fim 29. Ágú 2013 21:28
af Sera
Sá þetta hjá Símanum áðan:
Vinsamlegast athugið
Vegna bilanna þá er verið að endurreikna erlent niðurhal frá 20.júní.
Því ber að taka upplýsingunum hér með fyrirvara.
Búið verður að endurreikna erlenda niðurhalið á næstu dögum.
Re: Vantar meira gagnamagn. Hvert er best að snúa sér?
Sent: Fim 29. Ágú 2013 23:46
af Tesy
Sera skrifaði:urban skrifaði:Sera skrifaði:
En mig vantar sárlega meira niðurhal, 140 GB er greinilega ekki nóg fyrir 4 heimilistölvur, lítið að downloada en slatti horft á kvikmyndir í gegnum Netflix og aðra miðla.
og hvað er það annað en download ?
auðvitað download, held þú vitir samt hvað ég var að meina, ekki mikið niðurhal á öðru en kvikmyndum í gegnum streaming. Geri mér fullkomlega grein fyrir því að vefsíðuráp og allt sem gert er á erlendum síðum er niðurhal. Enda myndi mín 140GB tenging alveg duga ef ég væri bara að rápa á vefsíðum og ekki streyma neinu videoi.
p.s. sendi fyrirspurn á símann um hvort þeir myndu ekki bjóða upp á stærri pakka en 140 GB þar sem Vodafone er að bjóða 250 GB og alveg spurning um að flytja sig yfir til þeirra fyrir 1500 kr. meira á mánuði. Ég þarf að borga 1700 kr. hjá símanum fyrir auka 10 GB, þá er ég komin í sama gjald fyrir 150 Gb hjá símanum en 250 GB hjá Vodafone.
Hringdu er að bjóða 250GB á 5.995kr sem er 2.675 kr minna en Vodafone.