Síða 2 af 3

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fös 16. Ágú 2013 18:29
af sfannar
Man einhver hér hvað enski boltinn kostaði þegar hann var hjá Símanum eða Skjánum?

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fös 16. Ágú 2013 18:32
af hfwf
sfannar skrifaði:Man einhver hér hvað enski boltinn kostaði þegar hann var hjá Símanum eða Skjánum?
3þús eða svo

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fös 16. Ágú 2013 18:45
af Xovius
hfwf skrifaði:
Xovius skrifaði:
Daz skrifaði:
rattlehead skrifaði:fyrir galin sparkunnanda sem notar ekki netið er þetta ágætis díll. Fyrir ykkur flesta sem fara vel yfir 100 gígin á mánuði horfir málið allt öðruvísi.
Þá kostar 3000 kr að bæta við 120 gb. Eða 6000 kr að bæta við 240 gb.

Ef ég væri ekki eins og hagur fastur með netið mitt annarstaðar, þá myndi ég kanna þetta betur.
Skil einmitt ekki hvað allir erunað væla yfir litlu gagnamagni. Ódýrara að hækka magnið þarna en hjá nokkrum öðrum netfyrirtækjum..
Kannski ódýrara en þarna færð í pakkanum 10gb með pakkanum, svo kostar 40gb 1000kr, sem þú þarft bókað að fá þér nema þú sért eingöngu þá meina ég eingöngu að skoða netið lítillega. Þannig ég sé þetta bara enganveginn sem gott útspil.

edit: getur bætt við 40gb 6 sinnum svo hækkar gjaldskráin í 2000kr per 20gb.
Já, en það er alveg óþarfi að rukka þá sem ekki nota 10gb fyrir meira. Finnst þetta bara fínasta leið...

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Sun 18. Ágú 2013 12:10
af atlist
AntiTrust skrifaði:Bara svo það sé á tandurhreinu, þessi 12 mánaða binding á einungis við sjónvarpsáskriftina? Er sumsé hægt að segja TV áskriftinni upp og halda neti?
Já, skuldbindingin er einungis fyrir sjónvarpsáskriftina. Það þarf að greiða upp restina af samningnum þegar þú hættir með sjónvarpsáskriftina innan þessa 12 mánuða. En þú getur hætt með net og síma innan þessa 12 mánuða.

Kv. Atli Stefán
Starfsmaður 365

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Sun 18. Ágú 2013 12:35
af atlist
hallihg skrifaði:Það er 10 gb innifalið í erlent, sem er djók, og bara hægt að bæta við 40 gb í sex skipti? Þetta er væntanlega eitthvað tekjumódel.

Ef þetta erlenda niðurhal væri ekki svona lágt hefði ég eflaust stokkið á þetta til að fá enska.
Það eru 10GB innifalin í Enska pakkanum (kostnaðarlausu fyrsta árið). Virði 3490 kr.
Svo greiðir þú 1000 kr. fyrir hver hafin 40GB (365 valdi einfalt módel og öðruvísi).
Verðið fyrir þá sem eru í Enska pakkanum er þá
[*]50GB - 1000 kr.
[*]90GB - 2000 kr.
[*]170GB - 4000 kr.
[*]250GB - 6000 kr.
Svo 20GB á 2000 kr. eftir það.

Vodafone 50GB tenging á Ljósleiðara kostar 4670 kr. vs. 1000 kr. fyrsta árið hjá 365. Eftir fyrsta árið kosta 50GB hjá 365 4490 kr., sem er samt ódýrara.
Síminn 40GB tenging á Ljósneti kostar 5890 kr., sem er dýrara en 365.

Fín verð fyrsta árið og svo eftir það ár eru samkeppnishæf :)

Kv. Atli Stefán
Starfsmaður 365

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Sun 18. Ágú 2013 22:36
af intenz
Þar sem Síminn er ekki með 100 Mbit og Vodafone netið finnst mér ömurlegt, þá hefði ég stokkið á þetta - en dealbreaker er verðið og þetta hlægilega 10 GB erlenda.

Sent from my GT-I9300 using Tapatalk 4

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Sun 18. Ágú 2013 22:59
af Daz
intenz skrifaði:Þar sem Síminn er ekki með 100 Mbit og Vodafone netið finnst mér ömurlegt, þá hefði ég stokkið á þetta - en dealbreaker er verðið og þetta hlægilega 10 GB erlenda.

Sent from my GT-I9300 using Tapatalk 4
Miðað við póstana frá "Starfsmanni" 365 hér í þræðinum verður boðið uppá netið stakt á samkeppnishæfu verði. Þessi pakki er bara búinn til til að fegra hækkunina á enska boltanum og reyna að næla í marga inn í netáskrift hjá þeim um leið.

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Sun 18. Ágú 2013 23:03
af AntiTrust
intenz skrifaði:Þar sem Síminn er ekki með 100 Mbit og Vodafone netið finnst mér ömurlegt, þá hefði ég stokkið á þetta - en dealbreaker er verðið og þetta hlægilega 10 GB erlenda.

Sent from my GT-I9300 using Tapatalk 4
Forvitni, hvað var að angra þig með Vodafone netið? Ljós geri ég ráð fyrir?

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Mán 19. Ágú 2013 12:26
af tlord
áskriftarsjónvarp er að fara í vaskinn hjá þeim. þeir ætla í fjarskipti...þe 365

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Mán 19. Ágú 2013 13:46
af AntiTrust
Bara tímaspursmál hvenær erlendar VOD þjónustur hasla sér völl hérna heima, þá geta flest fjarskiptafyrirtæki og efnisveitur gleymt stórum parti af tekjumódelinu sínu.

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Mán 19. Ágú 2013 13:50
af tlord
AntiTrust skrifaði:Bara tímaspursmál hvenær erlendar VOD þjónustur hasla sér völl hérna heima, þá geta flest fjarskiptafyrirtæki og efnisveitur gleymt stórum parti af tekjumódelinu sínu.
það eru milliliðirnir (eða sá partur af starfsemi) sem eru að fara illa, þeir sem kaupa efni hjá framleiðanda til að selja það á einhverjum markaði

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Mán 19. Ágú 2013 14:01
af AntiTrust
tlord skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Bara tímaspursmál hvenær erlendar VOD þjónustur hasla sér völl hérna heima, þá geta flest fjarskiptafyrirtæki og efnisveitur gleymt stórum parti af tekjumódelinu sínu.
það eru milliliðirnir (eða sá partur af starfsemi) sem eru að fara illa, þeir sem kaupa efni hjá framleiðanda til að selja það á einhverjum markaði
Mikið rétt, en það er líka ágætis peningur sem ISPar verða af ef leiga á myndlyklum minnkar, og það fer alveg klárlega partur af hverju leigðu VOD efni til ISP'anna þar sem þeir sjá um geymslu á efninu og mest af umstanginu í kringum það.

En ætli myndlyklarnir endi ekki með að verða plugin hæfir, og breytast bara í combo tæki, netstreymi og liveTV.

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Mán 19. Ágú 2013 15:20
af Sallarólegur
atlist skrifaði: Vodafone 50GB tenging á Ljósleiðara kostar 4670 kr. vs. 1000 kr. fyrsta árið hjá 365. Eftir fyrsta árið kosta 50GB hjá 365 4490 kr., sem er samt ódýrara.
Síminn 40GB tenging á Ljósneti kostar 5890 kr., sem er dýrara en 365.

Fín verð fyrsta árið og svo eftir það ár eru samkeppnishæf :)

Kv. Atli Stefán
Starfsmaður 365

Ekki gleyma því að þegar þú ferð til Símans/Vodafone þarftu ekki að borga 9000 kr. fyrir enska boltann til þess að fá internet ;)

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Mán 19. Ágú 2013 15:36
af Daz
Sallarólegur skrifaði:
atlist skrifaði: Vodafone 50GB tenging á Ljósleiðara kostar 4670 kr. vs. 1000 kr. fyrsta árið hjá 365. Eftir fyrsta árið kosta 50GB hjá 365 4490 kr., sem er samt ódýrara.
Síminn 40GB tenging á Ljósneti kostar 5890 kr., sem er dýrara en 365.

Fín verð fyrsta árið og svo eftir það ár eru samkeppnishæf :)

Kv. Atli Stefán
Starfsmaður 365

Ekki gleyma því að þegar þú ferð til Símans/Vodafone þarftu ekki að borga 9000 kr. fyrir enska boltann til þess að fá internet ;)
Þarft þess ekki heldur hjá 365. Eða ekki miða við að verðin eru þarna í boði niðurbrotin niður á þjónustulið.

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Mán 19. Ágú 2013 15:41
af beatmaster
Hvað kostar enski boltinn án internets?

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Mán 19. Ágú 2013 17:00
af hagur
beatmaster skrifaði:Hvað kostar enski boltinn án internets?
8990 kr, sem er það glataða við þetta allt saman.

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Mið 21. Ágú 2013 18:22
af playman
Var að sjá þetta hérna.
http://markadsmal.blogspot.dk/2013/08/s ... i-slm.html" onclick="window.open(this.href);return false;
15þ kr fyrir pakkann!

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Mið 21. Ágú 2013 21:32
af intenz
AntiTrust skrifaði:
intenz skrifaði:Þar sem Síminn er ekki með 100 Mbit og Vodafone netið finnst mér ömurlegt, þá hefði ég stokkið á þetta - en dealbreaker er verðið og þetta hlægilega 10 GB erlenda.

Sent from my GT-I9300 using Tapatalk 4
Forvitni, hvað var að angra þig með Vodafone netið? Ljós geri ég ráð fyrir?
Pingaði illa í netleikjum. Já ljós. :dissed

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 22. Ágú 2013 10:19
af I-JohnMatrix-I
Hér er flott grein þar sem einhver fer yfir þetta allt saman.

http://markadsmal.blogspot.com/2013/08/ ... i-slm.html" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 22. Ágú 2013 11:23
af kaktus
ef þeir hringdu í mig myndi ég borga nokkur þúsund kalla fyrir að þurfa ekki að horfa á enska boltann
spurning hvort það sé ekki næsta markaðsherferð

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 22. Ágú 2013 11:32
af Daz
kaktus skrifaði:ef þeir hringdu í mig myndi ég borga nokkur þúsund kalla fyrir að þurfa ekki að horfa á enska boltann
spurning hvort það sé ekki næsta markaðsherferð
En þú getur það! Kaupir þessa áskrift þeirra á 8990 kr + aukagjöldin sem þarf ekki að tala um, sleppir að horfa á enska boltan sem fylgir með og þá ertu að borga alveg 30-50% meira fyrir netið þitt og símann en aðrir. Win win segi ég nú bara.

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 22. Ágú 2013 16:25
af GuðjónR
playman skrifaði:Var að sjá þetta hérna.
http://markadsmal.blogspot.dk/2013/08/s ... i-slm.html" onclick="window.open(this.href);return false;
15þ kr fyrir pakkann!

Ari Edwald virðist frekar pirraður á þessari umfjöllun.
http://www.dv.is/consumer/2013/8/21/eg- ... engur-til/" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fim 22. Ágú 2013 17:13
af stefhauk
Ég ákvað að kaupa áskrift af enska boltanum enn hélt áfram með áskrift hjá vodafone á netinu nota bene er ég ekki að borga netið heima enn þau á heimilinu höfðu engan áhuga á að skipta þegar var hringt í þau þegar ég verslaði enska boltan þessi 10 gb á mánuði er mesta grín sem ég veit um hefði verið flott árið 2002.

Þetta er bara ávísun á vesen vera borga gagnaveitu, 365 og svo Vodafone til að geta haft afruglara.

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fös 23. Ágú 2013 11:14
af playman
GuðjónR skrifaði:
playman skrifaði:Var að sjá þetta hérna.
http://markadsmal.blogspot.dk/2013/08/s ... i-slm.html" onclick="window.open(this.href);return false;
15þ kr fyrir pakkann!

Ari Edwald virðist frekar pirraður á þessari umfjöllun.
http://www.dv.is/consumer/2013/8/21/eg- ... engur-til/" onclick="window.open(this.href);return false;
Honum er nú bara nær að hafa ekki auglíst fullt verð en ekki part úr verði.
8.900kr er ekki það sama og ~15.000kr

Re: 365 byrjaðir að bjóða upp á ljósleiðara/ljósnet

Sent: Fös 23. Ágú 2013 13:02
af chaplin
atlist skrifaði: Það eru 10GB innifalin í Enska pakkanum (kostnaðarlausu fyrsta árið). Virði 3490 kr.
Svo greiðir þú 1000 kr. fyrir hver hafin 40GB (365 valdi einfalt módel og öðruvísi).
Verðið fyrir þá sem eru í Enska pakkanum er þá
[*]50GB - 1000 kr.
[*]90GB - 2000 kr.
[*]170GB - 4000 kr.
[*]250GB - 6000 kr.
Svo 20GB á 2000 kr. eftir það.

Vodafone 50GB tenging á Ljósleiðara kostar 4670 kr. vs. 1000 kr. fyrsta árið hjá 365. Eftir fyrsta árið kosta 50GB hjá 365 4490 kr., sem er samt ódýrara.
Síminn 40GB tenging á Ljósneti kostar 5890 kr., sem er dýrara en 365.

Fín verð fyrsta árið og svo eftir það ár eru samkeppnishæf :)

Kv. Atli Stefán
Starfsmaður 365
Er ég að skilja þetta rétt, en 10GB kosta 3.490 kr og er það eingöngu frítt fyrsta árið? Svo eftir það, ef maður vill væra sig upp í 50 GB þá bætast við 4.490 kr (eftir fyrsta árið).

Er þá verðið fyrst árið fyrir
  • Fótboltinn
  • Internet 50 GB
  • Línugjald gagnaveitur
  • Leiga á router
  • Leiga á myndlykli
14.430 kr á mánuði og eftir fyrsta árið hækkar það í 17.920 kr á mánuði?