Jæja. Mér sýnist þið ekki hafið lesið lengra en 1 línu í póstinum frá mér.
Kiddi: Ég hef mjög gott umburðarlyndi fyrir newbies("n00bum").
Umburðarlyndið hefur kannski ekki skinið í gegn þar sem ég sagði að upphafspósturinn hafði verið illa útfærður.
En mér sýnist á spjallborðinu hérna að Voffinn gefur sig ekki út fyrir að vera einhver newbie.
Það er enginn sem veit allt. Það er enginn sem getur séð allar hliðarnar á hlutunum.
Það er einmitt málið. Hinsvegar á fólk ekki að hoppa upp um leið og einhver hefur aðra sýn á hlutunum
og það sjálft. Eins og einkennist af svörunum við póstinum mínum.
GuðjónR: Hvar kemur fram í póstinum mínum að ég sé að setja út á þá sem ég tel kunna minna en ég.
Eða öllu heldur, hvar kemur fram að ég telji mig kunna meira en aðrir?
Ég tala ekkert í póstinum um hver kann hvað og hvað mikið.
Ég átta mig heldur ekki alveg á hvernig ég er að dissa spjallið til að vekja athygli á eigin spjalli.
Ef þú ert að vitna í undirskriftina mína, þá var ég búinn að gleyma þessum link, en eins og þú kannski
best sérð þá er sú síða ekki með neinu virku spjalli. Heldur er hún miklu meira hobbí fyrir mig í að leika mér og setja upp
og prufa mig áfram með mismunandi hluti.
Bætt við: Ég var að kíkja á routing, veit ekki hver af ykkur hérna var með þetta djók í "comments" þar? (miðað við delete póstana... voffinn og elv koma helst til greina, án þess að ég hengi mig upp á það.)
MezzUp: Ég hafði nú ekki ætlað mér að skjóta á einstaklinga hérna, en hvað varðar "attitjúd" eins og sumir hérna voru
að setja út á hjá mér. Þá er þitt ekki sérstaklega gott.
Bætt við: Sérstaklega ekki af stjórnanda að vera.
gummol: ?
Ég er því miður ekki nógu heppinn til að hafa verið þess heiðurs aðnjótandi að sjá hvað elv og voffinn skrifuðu.
Það sem ég skrifaði gekk út á það að fólk ætti ekki að vera að endurtaka hlutina.
Mér þykir einnig leiðinlegt að þurfa að endurtaka það sem ég sagði, í þeirri von að þið náið því í þetta skiptið.
Spjallkerfið herna virkar þannig, að ef það er til grein um eitthvað, og einhver bætir við póst, þá færist greinin efst.
Þannig má best fylgjast með þegar fólk bætir einhverju við.
Þannig að ef það er til grein um málefni X(í þessu tilfelli Landssímann) þá er nóg að bæta við í þá grein,
en ekki að stofna nýja grein um málefni X.
Einnig ættu stjórnendur að fylgjast aðeins með þessu, og sé fólk mikið að stofna greinar um sama málefnið, að benda fólki
á aðrar greinar, og færa póstana úr greininni sem var stofnuð yfir í eldri greinina.
kiddi: varðandi að koma hlutunum kurteisislegra frá sér. Þá máttu endilega benda mér á hvað það er sem má betur fara.
Þ.e.a.s. benda mér á hvað ég skrifaði vitlaust, og hvernig ég mætti orða það betur.
Sé ég sammála þér er það í fínu lagi, sé ég ósammála þá mun ég rökstyðja afhverju.
Þannig ganga hlutirnir best fyrir sig.
Ég einmitt tel mig hafa verið að benda á hvað fólk hefur verið að gera vitlaust, og hvað það ætti að gera betra.
Jú ég skal viðurkenna að sumir hlutar póstsins hafa ekki verið of kurteisir. En ég skal athuga það í ef/þegar ég
pósta eitthvað aftur.