Síða 2 af 3

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Þri 25. Jún 2013 08:07
af Klaufi
Zorky skrifaði: Já það kallast fréttir visir,dv rúv, stöð 2 BBC, CNN, hafa líka fjallaðu um þetta :þ

Hér ein af af mörgum
http://www.visir.is/snowden-ekki-a-leid ... 3130629668" onclick="window.open(this.href);return false;
Ég spyr aftur, rock-solid sannanir?

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Þri 25. Jún 2013 08:34
af beatmaster
Það versta við þetta mál er að það er eiginlega flestöllum almenningi sama, sjáðu bara bland.is, það er enginn að tala um þetta þar og mikið af fólki sem að hefur ekki hugmynd um hvað þetta Snowden mál snýst.

Ég held að stór hluti internetnotenda telji sig hafa voða litla hagsmuna að gæta og sé í rauninni alveg sama því að það finnst netnotkunin sín svo lítilvæg og finnst það hafa svo lítið að fela.

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Þri 25. Jún 2013 09:00
af Stutturdreki
Klaufi skrifaði:
Zorky skrifaði: Já það kallast fréttir visir,dv rúv, stöð 2 BBC, CNN, hafa líka fjallaðu um þetta :þ

Hér ein af af mörgum
http://www.visir.is/snowden-ekki-a-leid ... 3130629668" onclick="window.open(this.href);return false;
Ég spyr aftur, rock-solid sannanir?
Hann sást víst síðast fara upp í bíl með sendiráðsmönnum Equadors sem sóttu hann út á flugvöll í Moskvu.

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Þri 25. Jún 2013 09:02
af ponzer
Ein góð frá PirateBay :)

Mynd

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Þri 25. Jún 2013 09:10
af appel
Stutturdreki skrifaði:
Klaufi skrifaði:
Zorky skrifaði: Já það kallast fréttir visir,dv rúv, stöð 2 BBC, CNN, hafa líka fjallaðu um þetta :þ

Hér ein af af mörgum
http://www.visir.is/snowden-ekki-a-leid ... 3130629668" onclick="window.open(this.href);return false;
Ég spyr aftur, rock-solid sannanir?
Hann sást víst síðast fara upp í bíl með sendiráðsmönnum Equadors sem sóttu hann út á flugvöll í Moskvu.
E.t.v. í sendiráði ekvadors í moskvu!

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Þri 25. Jún 2013 09:48
af appel
Nei, nú segja rússar að hann hafi aldrei komið inn í landið, og hafi ekki einu sinni farið úr flugvélinni sem lenti í moskvu! Hmmm....

Þeir eru trikkí þessir NSA agentar (fyrrverandi) :)

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Þri 25. Jún 2013 09:58
af Stutturdreki
Hann kann þá amk. að fara huldu höfði :)

Öruggasta leiðinn fyrir hann að komast hvert sem hann er að reyna að fara er væntanlega ef engin veit hvar hann er, hvaða leið hann er að fara og hvert hann er að fara.

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Mán 01. Júl 2013 19:57
af Skari
Er ég sá eini sem finnst fáranlegt að fleiri og fleiri lönd hafa verið að koma fram og heimta útskýringar af hverju var
verið að njósna um sig og finnast þetta alvarlegt mál og vill svo enginn hjálpa þeim sem koma með þetta á yfirborðið.

Af hverju ætti einhver að hætta á því í framtíðinni að opinbera svona gögn vitandi það að það er enginn tilbúinn að rétta fram hjálparhönd.

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Mán 01. Júl 2013 23:04
af marijuana
Skari skrifaði:Er ég sá eini sem finnst fáranlegt að fleiri og fleiri lönd hafa verið að koma fram og heimta útskýringar af hverju var
verið að njósna um sig og finnast þetta alvarlegt mál og vill svo enginn hjálpa þeim sem koma með þetta á yfirborðið.

Af hverju ætti einhver að hætta á því í framtíðinni að opinbera svona gögn vitandi það að það er enginn tilbúinn að rétta fram hjálparhönd.
Mögulega vegna þess að bandaríkin geta beitt svo gífurlega miklum þrýsting, viðskiptaþrýsing eða öðru, sem gerir þau væntanlega smeyk við að hjálpa. Nákvamlega eins og Bandaríkin hótuðu að gera við Ekvador ef þeir myndu hjálpa Snowden. Með fyrirvara samt um að ég er ekkert alltof fróður um þessi mál, en það sem mér dettur einna helst í hug. :oops:

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Fim 04. Júl 2013 13:33
af darkppl
http://visir.is/bandarisk-stjornvold-br ... 3130709598" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Fim 04. Júl 2013 13:57
af demaNtur
Hann kíkti til mín í kaffi áðan \:D/


ekki segja NSA/CIA/FBI 8-[

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Fim 04. Júl 2013 14:53
af appel
Nú er alþingi að fara kannski að kjósa um hvort veita eigi Snowden ríkisborgararétt!!

http://www.ruv.is/frett/leggja-til-ad-s ... orgararett" onclick="window.open(this.href);return false;

Íslendingar, saman stöndum við, saman föllum við!

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Fim 04. Júl 2013 14:56
af Haflidi85
Hér er undirskriftarlisti ef menn hafa áhuga á að styðja þennan mæta mann --- > http://austurvollur.is/" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Fim 04. Júl 2013 15:02
af appel
Haflidi85 skrifaði:Hér er undirskriftarlisti ef menn hafa áhuga á að styðja þennan mæta mann --- > http://austurvollur.is/" onclick="window.open(this.href);return false;
Veistu hvað, ég óska honum Snowden alls hins besta, ég styð hans málstað, en mér líst reyndar ekkert á blikinu um að veita honum hæli hér. Ég tel að Bandaríkin séu orðin of öfgafull, og Íslandi gæti orðið nokkru tjóni. Mér kæmi ekki á óvart að íslenskum fyrirtækjum verði gert ókleift að starfa í BNA, og íslenskir ríkisborgarar muni ekki fá að ferðast til BNA eða munu verða fyrir miklu áreiti. Það er aldrei að vita um þetta, sérstaklega þegar Obama sjálfur er í málinu.

Menn hafa borið þetta saman við Bobby Fischer málið, en í því máli voru bara low-level lögregluyfirvöld, alls ekki jafn háttsettir og í máli Snowden.

Ég vil að stærra ríki veiti Snowden hæli, t.d. Rússland, Kína, Þýskaland og álíka, ríki sem er ekki hægt að beita þvingunum. Það er svo auðvelt að beita Íslandi þvingunum, sjáðu bara þegar Bretar beittu hryðjuverkalögunum á okkur og frystu allar íslenskar eignir í Bretlandi og stöðvuðu allt fjármagnsflæði til og frá landinu. Öllum var skítsama um þetta. Bandaríkin gætu auðveldlega beitt okkur slíkum þvingunum og öllum væri jafnskítsama. En þau gætu ekki beitt stærri löndum slíkum þvingunum, það væri stríðsyfirlýsing.

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Fim 04. Júl 2013 15:12
af Haflidi85
já að sjálfsögðu, en það er auðvitað íslenskra stjórnmálamanna að meta, við almúginn getum ekki gefið okkur upp allar þær forsendur sem liggja að baki þ.e. hvaða hótanir eða þvinganir Bandarisk stjórnvöld munu beita vs það hversu margar þjóðir og einstaklingar i alþjóðasamfélaginu munu in the end standa með Íslandi ef við tækjum hann að okkur. Mér finnst að það minnsta sem við getum gert er að sýna að við styðjum gjörðir þessa manns, burt séð frá þvi hvort in the end það borgi sig fyrir Íslendinga að taka hann til landsins, en til þess að taka þessa lokaákvörðun þá kusum við stjórnvöld sem eiga að vera fullfær um að taka ákvörðun sem þessa og við þá ákvörðunartöku finnst mér eðlilegt að þau geri sér grein fyrir afstöðu þjóðarinnar.

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Fim 04. Júl 2013 15:21
af appel
Það mun enginn "standa með" íslendingum. Sjáðu bara hvernig frakkar brugðust við þegar CIA lét þá vita að Snowden væri hugsanlega í þotu Morales forseta Bólivíu, þeir lokuðu lofthelginni fyrir þotunni og hún þurfti að lenda í Austurríki þar sem var leitað í henni. Portúgal, Ítalía og Spánn lokuðu held ég líka lofthelginni fyrir þotu Morales. Þarna voru stór evrópsk lönd sem brutu alþjóðleg lög með því að loka lofthelginni fyrir þotu sem bar þjóðhöfðingja, bara útaf orðrómi um Snowden!

Evrópskur stuðningur líklegur? Það stórefast ég um.

Þýskaland er kannski eini aðilinn sem er óvíst með, en líklega eru þeir með framsalssamninga við BNA.

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Fim 04. Júl 2013 15:29
af Stutturdreki
Það er einmitt skemmtileg hræsni að á sama tíma og 'stóru' Evrópu þjóðirnar (þar á meðal Frakkland) hneikslast á njósnum BNA þá er ekkert þeirra tilbúið að veita Snowden friðhelgi.

Sýnist allt stefna í gamla góða 'skjótum sendiboðan'..

Það væri lofsvert ef Ísland myndi veita honum hæli, það myndi samt líklega hafa slæm áhrif á samskipti okkar við BNA og fara illa með mörg fyrirtæki sem eiga mikið undir í viðskiptum við þá.

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Fim 04. Júl 2013 15:45
af appel
Stutturdreki skrifaði:Það er einmitt skemmtileg hræsni að á sama tíma og 'stóru' Evrópu þjóðirnar (þar á meðal Frakkland) hneikslast á njósnum BNA þá er ekkert þeirra tilbúið að veita Snowden friðhelgi.

Sýnist allt stefna í gamla góða 'skjótum sendiboðan'..

Það væri lofsvert ef Ísland myndi veita honum hæli, það myndi samt líklega hafa slæm áhrif á samskipti okkar við BNA og fara illa með mörg fyrirtæki sem eiga mikið undir í viðskiptum við þá.
Frakkar stunda massívar njósnir sjálfir, sambærilegar við PRISM:

France 'has vast data surveillance' - Le Monde report
http://www.bbc.co.uk/news/world-europe-23178284" onclick="window.open(this.href);return false;

Engin furða að þeir vilji ekki veita uppljóstrurum hæli, enda vilja þeir helst að Snowden verði víti til varnaðar.

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Fim 04. Júl 2013 16:20
af Sallarólegur
Mynd

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Fim 04. Júl 2013 19:25
af Klaufi
Jæja, komið frumvarp:
http://www.althingi.is/altext/142/s/0078.html

Heyrði útundan mér að þetta hefði verið rætt í dag, veit einhver eitthvað um það?

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Fim 04. Júl 2013 20:13
af Stuffz
Haflidi85 skrifaði:Hér er undirskriftarlisti ef menn hafa áhuga á að styðja þennan mæta mann --- > http://austurvollur.is/" onclick="window.open(this.href);return false;
hmm

veit ekki hvort frá persónuverndarsjónarmiðum það megi sýna kennitölur fólks nema það hafi gefið leyfi fyrir því.

þetta er svo pottþétt of interest listi fyrir NSA lol bara takk fyrir að safna þessum upplýsingum saman fyrir okkur heyri ég þá fyrir mér segja lol

þar fyrir utan mætti hreinsa listann betur af augljóslega fake skráningum :P

Mynd

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Fim 04. Júl 2013 20:15
af lukkuláki
Það á eftir að fara yfir allan listann það verður gert.

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Lau 06. Júl 2013 00:20
af braudrist
Hann vissi alveg áhættuna að svíkja sitt eigið land. Hann er föðurlandssvikari og á skilið að rotna í fangelsi.

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Lau 06. Júl 2013 00:25
af Yawnk
braudrist skrifaði:Hann vissi alveg áhættuna að svíkja sitt eigið land. Hann er föðurlandssvikari og á skilið að rotna í fangelsi.
:face

Re: Hvar er Snowden?

Sent: Lau 06. Júl 2013 00:37
af trausti164
braudrist skrifaði:Hann vissi alveg áhættuna að svíkja sitt eigið land. Hann er föðurlandssvikari og á skilið að rotna í fangelsi.
Þú ert hálfviti, hvernig í ósköpunum var hann að svíkja sitt eigið land?
Eru ríkistjórnir orðnar að löndum núna? NEI, hann sveik svikula ríkistjórn og sagði fólki heimsins frá ógeðinu sem að er í gangi í ameríku og bretlandi og frakklandi o.s.f.v. Hann er hetja og hann á ekkert nema það allra besta skilið.