Síða 2 af 2

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fös 14. Jún 2013 06:47
af hkr
þorri69 skrifaði:Ég tók líka eftir að nýi diskurinn titraði mjög mikið miðað við hinn diskinn sem ég hef í turninum.
þorri69 skrifaði:Er með coolermaster silencio 550 og tók það fram í símanum og á verkstæðinu. þetta var WD blue. er með ssd fyrir stýrikerfi.
:guy

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fös 14. Jún 2013 11:26
af Stutturdreki
hkr skrifaði:
þorri69 skrifaði:Ég tók líka eftir að nýi diskurinn titraði mjög mikið miðað við hinn diskinn sem ég hef í turninum.
þorri69 skrifaði:Er með coolermaster silencio 550 og tók það fram í símanum og á verkstæðinu. þetta var WD blue. er með ssd fyrir stýrikerfi.
:guy
Mynd

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fös 14. Jún 2013 12:13
af rapport
hkr skrifaði:
þorri69 skrifaði:Ég tók líka eftir að nýi diskurinn titraði mjög mikið miðað við hinn diskinn sem ég hef í turninum.
þorri69 skrifaði:Er með coolermaster silencio 550 og tók það fram í símanum og á verkstæðinu. þetta var WD blue. er með ssd fyrir stýrikerfi.
:^o

Mynd

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fös 14. Jún 2013 12:23
af GuðjónR
I smell a troll !

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fös 14. Jún 2013 12:24
af snjokaggl
Dúndraðir þú HDD sem var í góðu lagi nema "háværari en SSD" í jörðina?

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fös 14. Jún 2013 12:30
af worghal
also, er ekki gluggi á milli þín og bílastæðissins þegar þú ert staddur á annari hæð? :^o

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fös 14. Jún 2013 12:32
af Eiiki
wtf did I just read?

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fös 14. Jún 2013 12:33
af KermitTheFrog
snjokaggl skrifaði:Dúndraðir þú HDD sem var í góðu lagi nema "háværari en SSD" í jörðina?
Ég hef alveg encounterað diska sem víbra meira en annar diskur af sömu tegund. Getur vel verið að það hafi verið eitthvað ólag á disknum en þessi viðbrögð eru alveg út úr kú hjá op.

Sent from my GT-I9505 using Tapatalk 4 Beta

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fös 14. Jún 2013 15:04
af þorri69
hehe. vill taka það fram að ég er með er með einn ssd og einn hdd + þessi sem ég tók úr turninum. mér er alveg sama um nokkra þússara, ég kom af stað umræðu :megasmile

ps. svona ætla ég að verða þegar ég verð stór. :megasmile :megasmile :megasmile
http://www.youtube.com/watch?v=ZGLXJ_aQQVQ

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fös 14. Jún 2013 15:29
af gRIMwORLD
þorri69 skrifaði:hehe. vill taka það fram að ég er með er með einn ssd og einn hdd + þessi sem ég tók úr turninum. mér er alveg sama um nokkra þússara, ég kom af stað umræðu :megasmile
Já þú gerðir það all rækilega. "Þarna er á ferðinni maður með ójálfráðar handahreyfingar. Ekki rétta honum brothætta hluti!"

Hver hefur ekki fengið "nei" á einum stað en staðið á rétti sínum og fengið í gegn þá þjónustu sem hann á skilið hjá næsta aðila, yfirleitt skörinni hærra í valdastiganum?
Það sem þú gerðir er hreint út sagt fyrir neðan allar hellur og kemur þjónustunni hjá Tölvulistanum ekkert við. Sýnir bara að þú getur hagað þér eins og krakki. Gæti :pjuke þegar ég les svona.

Hef enga samúð með þér, punktur.

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fös 14. Jún 2013 16:21
af theodor104
worghal skrifaði:það sem ég sé við þetta að þú tapaðir einhverjum þúsundköllum og TL græddu nokkra þúsundkalla. :happy
TL töpuðu líklega á þessu þar sem að þeir misstu líkleg viðskipti við hann í framtíðinni. Ef að verkstæði TL hefði innihaldið fagmenn sem að tækju eftir svona galla í hörðum disk og einfaldlega látið hann hafa annan í staðinn hefðu allir unnið. Þrátt fyrir öfgakennd viðbrögð hans þá finnst mér starfsfólk á verkstæði TL ekki vera að gera sína vinnu, ég hef reynslu af því sjálfur.

Ég sé við þetta að hann hafi tapað einhverjum þúsundköllum og að TL hafi misst framtíðar kúnna, ekki grætt nokkra þúsundkalla.

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fös 14. Jún 2013 16:23
af ÓmarSmith
I dont even ....




Ég sé bara ofsreiði og stórt fail hjá viðskiptavin.
Fyrir utan að halda að verkstæðið sé viljandi Ekki að reyna að skipta út gölluðum hlut er kjánaskapur. Tölvulistinn í dag er langt í frá sama apparat og þegar Ásgeir snillingur var og hét og réð þar ríkjum.


Hef alltaf fengið topp þjónustu þar undanfarin og aldrei vesen að skipta út biluðum vörum.

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fös 14. Jún 2013 17:33
af rapport
Þetta er lýsandi dæmi um þjónustuna hjá TL.

Þeir skipta ekki út diskum strax sem þeir telja að séu í lagi... er það ekki?

Hann var ekki sammála og henti diskinum.

Þetta er ekkert voða drama, bara álit TL og op á hvernig HDD á að performa er ekki það sama.

Og á hann að þurfa að kalla í yfirmann aog standa í einhverju stappi?

Frekar en að eyða meiri tíma í TL, bara eyða pening annarstaðar. Meikar perfect sense.


Ég er ekki að segja að TL hafi verið að gera eitthvað rangt, en hann gerði heldur ekkert rangt.

Bara hans viðbrögð og hann að tjá skoðanir sínar á þjónustunni.

Tók styttri tíma en að senda þeim meil og líklega 10.000 sinnum skemmtilegra.

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fös 14. Jún 2013 20:23
af þorri69
rapport skrifaði:Þetta er lýsandi dæmi um þjónustuna hjá TL.

Þeir skipta ekki út diskum strax sem þeir telja að séu í lagi... er það ekki?

Hann var ekki sammála og henti diskinum.

Þetta er ekkert voða drama, bara álit TL og op á hvernig HDD á að performa er ekki það sama.

Og á hann að þurfa að kalla í yfirmann aog standa í einhverju stappi?

Frekar en að eyða meiri tíma í TL, bara eyða pening annarstaðar. Meikar perfect sense.


Ég er ekki að segja að TL hafi verið að gera eitthvað rangt, en hann gerði heldur ekkert rangt.



Bara hans viðbrögð og hann að tjá skoðanir sínar á þjónustunni.

Tók styttri tíma en að senda þeim meil og líklega 10.000 sinnum skemmtilegra.
:happy
þetta var ekki gert í reiðiskasti, bara að tjá mína skoðun.

Re: Tölvulistinn.

Sent: Lau 15. Jún 2013 19:30
af gRIMwORLD
Og ætlist þið til að þetta eigi að vera fyrstu viðbrögð fyrirtækja??? Taka orð viðskiptavinar trúanlegu, taka til baka búnað sem þeir geta ekki lengur ábyrgst að hafi fengið góða meðferð (frá því viðskiptavinur keypti vöru og þangað til hann skilaði henni), láta viðskiptavin hafa nýja vöru og hvað svo?? Selja sem nýtt/notað, senda í ábyrgðarviðgerð til framleiðanda og fá svo mögulega aftur í hausinn.

Það er standard praktík að gera ráð fyrir að búnaður sé í lagi ef ekkert finnst athugavert að hlutnum við fyrstu skoðun. Hef lengið verið í þessum bransa og staðið báðum megin við borðið.

En bottom line er að ef þetta er þín leið til að tjá þína skoðun þá er það bara í fínu lagi. En að halda því fram að þjónusta á einhverjum stað sé verri en ella því þú fékkst ekki þínu framgengt í fyrstu tilraun er bara fásinna. Haltu áfram að veifa puttanum. Það eru eflaust fleiri sem veifa öðrum putta á móti fegnir að losna við svona viðskiptavin.

Re: Tölvulistinn.

Sent: Sun 16. Jún 2013 03:27
af DabbiGj
Verð að standa með tölvulistanum í þessu og get bara lítið annað gert en að undra mig á vitleysunni í þráðarhöfundi.