Síða 2 af 2
Sent: Mán 13. Sep 2004 12:57
af gumol
Head og body innihalda aðal efni síðunnar, síðan væri frekar tilgangslaus án þeirra.
Þetta á kanski að vera samkvæmt einhverjum stöðlum en er ekki nauðsynlegt fyrir síðuna!
http://validator.w3.org/check?uri=http%3A%2F%2Flinux.is
http://validator.w3.org/check?uri=http% ... Fvaktin.is
En ég er nátturlega bara þrjóskur og veit ekkert í minn haus eins og venjulega, right?
Update:
gnarr skrifaði:Llíklega eitthvað sem er voðalega sniðugt fyrir linux og makka notendur..
Held nú að firefox og safari séu ekkert í vanda með þetta.
Sent: Mán 13. Sep 2004 13:34
af Voffinn
Þetta er einsog að baka köku og sleppa einu kryddi. Kakan er æt, lítur kannski alveg eins út EN HÚN ER EKKI EINSOG UPPSKRIFTIN!
Til hvers helduru að menn séu að skrifa þessa staðla? TIL AÐ FARA EFTIR ÞEIM! Staðlar eru líkt og lög. Ég stoppa kannski ekki á stöðvunarskyldu, ég er lögbrjótur, en það virkar. Ég sleppi að hafa DOCTYPE, ég er ekki að fara eftir staðlinum, en það virkar.
Edit: Að reyna að validate'a linux.is er högg fyrir neðan mitti! Það hefur enginn verið að sjá um þessa síðu í mörg ár. Tékkaðu frekar
þetta

Sent: Mán 13. Sep 2004 13:59
af gumol
Þetta er líka athyglisvert
http://validator.w3.org/check?uri=http% ... gentoo.org
http://validator.w3.org/check?uri=http% ... adbraut.is
Núna er ég hættur, ég lofa...(ligaramerki)
(ps. hvað kemur það málinu við þótt síðan sé gömul, hefur þetta ekki verið staðallinn frá upphafi?
Sent: Mán 13. Sep 2004 14:05
af gnarr
þetta er nú bara venjulegt phpbb forum og tengist ekkert forritun á síðunni sjálfri. það eru margir gallar í phpbb.
Sent: Mán 13. Sep 2004 14:07
af gumol
gnarr skrifaði:þetta er nú bara venjulegt phpbb forum og tengist ekkert forritun á síðunni sjálfri. það eru margir gallar í phpbb.
Málið er bara, og ég held að ég sé ekki að koma inn, að þetta skiptir litlu sem engu máli.
Ef maður fer yfir á rauðu ljósi eða stoppar ekki við stöðvunarskyldu þá getur maður lennt í árekstri og eða fengið sektir. Hvað gerist ef maður sleppir þess? Ekkert
Voffinn (eða þið) vill halda þessu nákvæmlega eftir staðlinum
Mér er sama um staðalinn ef þetta virkar fullkomlega.
Við ættum að geta verið sammála um það.
Sent: Mán 13. Sep 2004 14:19
af Voffinn
Ég var nú líka aðeins bara að fíflast í þér... en hraðbraut.is síðan er ógeð!
(ég var nú ekki búinn að validate'a hratt.net, var að laga hana fyrir tveim tímur.)
Sent: Mán 13. Sep 2004 14:33
af Stutturdreki
gumol skrifaði:Hvað gerist ef maður sleppir þess? Ekkert
Voffinn (eða þið) vill halda þessu nákvæmlega eftir staðlinum
Mér er sama um staðalinn ef þetta virkar fullkomlega.
Við ættum að geta verið sammála um það.
Sko,, er ekki 'staðall' þannig að ef þú ferð eftir honum þá virkar altl fullkomnlega?
Ef þú sleppir því að fara eftir staðlinum þá er ekki víst að htmlið þitt virki fullkomnlega en kannski ertu svo heppinn að það gerir það.
Hér er náttúrulega verið að tala um að ekkert sé fullkomið nema hægt sé að skoða það í hvaða browser sem er á hvaða platform sem er hvar sem er í heiminum án nokkura vandræða..
Sent: Mán 13. Sep 2004 15:23
af gumol
Og hvaða browser skilur þetta ekki?
Sent: Mán 13. Sep 2004 17:39
af viddi
Sent: Mán 13. Sep 2004 17:47
af gumol
Hef ekki hugmynd, fer líklega ekki nógu nákvæmlega eftir stöðlunum
En varstu í rétti í bílslysinu?

Sent: Mán 13. Sep 2004 18:17
af viddi
ég myndi segja að við höfum verið báðir í órétti hinn gagnvart hraða og við vorum að beygja inn á bensínstöð
Sent: Þri 14. Sep 2004 17:47
af MezzUp
Nýrri strangari staðlar held ég að séu til þess að tölvan þurfi ekki að eyða jafn miklum tíma í leiðrétta síðunni(t.d. finna hvaða doctype á að vera o.þ.h.) og sparar þannig örgjörvaafl, sem að getur verið gott t.d. í lófatölvum
Sent: Þri 14. Sep 2004 17:59
af dabb
gumol skrifaði:Ekkert mál að gera fallegan kóða með Front Page td. (
http://www.gumol.com )
En Word er ekki vefsíðuforrit. Ég myndi aldrei nota það til að búa til heimasíðu.
Hvaða merki er þetta alltaf?
Sent: Þri 14. Sep 2004 18:21
af gumol
Ég man eftir að hafa teiknað þetta með puttanum í disk einhvertíman eftir að hafa verið að borða hakk og spagettí.
Þetta er bara merkið sem ég nota td. á svona spjallborðum til að auðvelda þeim sem les að sjá hver er að tala. Enginn annar sem er með nokkuð líkt þessu.
Sent: Þri 14. Sep 2004 19:07
af tms
gumol skrifaði:Ef maður fer yfir á rauðu ljósi eða stoppar ekki við stöðvunarskyldu þá getur maður lennt í árekstri og eða fengið sektir. Hvað gerist ef maður sleppir þess?
Ef maður er keyrandi í gegnum lönd og borgir og fær ekki upplýsingar að það egi að stoppa þegar kemur grænt ljós, en keyra þegar kemur rautt lendiru í vandamálum. Þessi staðall er ekki til að pirra mann og gera lífið erfiðara, heldur svo browserinn sé viss hvernig á að sýna síðuna. Maður hefur oft ferið inn á íslenskar síður og íslenskustafirnir koma upp sem UTF-8 rugl og þurft að breyta þessu manually. Þessi staðall er alveg nánast ónauðsýnlegur fyrir íslendinga sem skoða enskar/íslenskar síður, en það eru fleiri tungumál og stafir til í heiminum.
Sent: Þri 14. Sep 2004 19:19
af MezzUp
gumol skrifaði:Ég man eftir að hafa teiknað þetta með puttanum í disk einhvertíman eftir að hafa verið að borða hakk og spagettí.
hehe, töff

Sent: Fös 22. Okt 2004 12:08
af Dagur
Ef þú vilt nota WYSIWYG forrit sem fer eftir stöðlum þá er málið að nota
NVU
Sent: Fös 22. Okt 2004 12:12
af noizer
Það er svo hægt að læra um heimasíðu gerð á
W3 Schools
Sent: Fös 22. Okt 2004 13:42
af MezzUp
Hilmar skrifaði:Það er svo hægt að læra um heimasíðu gerð á
W3 Schools
second that, ómissandi refrence síða þegar maður þarf að fletta einhverju upp þegar maður er að gera síðu
Sent: Fös 22. Okt 2004 14:19
af elv
Bara nota Yahoo Site Builder...eins einfalt og það gerist...alltaf hægt að laga kóðan seinna

Sent: Þri 26. Okt 2004 12:21
af mbh
Það held ég!! Ein lítil fyrirspurn og þráðurinn er orðin þrjár síður!!
Bara nota Yahoo Site Builder...eins einfalt og það gerist...alltaf hægt að laga kóðan seinna
Þetta virðist vera eitthvað fyrir mig! Takk fyrir þetta elv.
Það er nú einhvernvegin þannig að þegar maður er með fjögura manna fjölskyldu + kött í tvem vinnum og með hobby, þá er eiginnilega ekki tími til að læra eitthvað nýtt

Sent: Þri 26. Okt 2004 12:43
af elv
mbh skrifaði:Það held ég!! Ein lítil fyrirspurn og þráðurinn er orðin þrjár síður!!
Bara nota Yahoo Site Builder...eins einfalt og það gerist...alltaf hægt að laga kóðan seinna
Þetta virðist vera eitthvað fyrir mig! Takk fyrir þetta elv.
Það er nú einhvernvegin þannig að þegar maður er með fjögura manna fjölskyldu + kött í tvem vinnum og með hobby, þá er eiginnilega ekki tími til að læra eitthvað nýtt

Skil það vel ....enda nota ég bara þetta, og eins ég sagði þá er alltaf hægt að laga kóðan seinna þegar nördanir fara að garga
