Síða 2 af 3

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Lau 25. Maí 2013 14:31
af GuðjónR
hfwf skrifaði:
Klemmi skrifaði:....
...Fáðu þér bara bjór og þegiðu.
Óþarfa dónaskapur að segja mönnum að þegja.

Hvað varðar topicið þá hef ég ekki farið í bíó fyrir sjálfan mig síðan í maí 2003 en þá sá ég Matrix í einhverjum lúxussal.
Hef farið nokkrum sinnum með börnin á teiknimyndir, sá einhverntíman teiknimynd í Smárabíó, hún var ekki í fókus og þegar það kom hlé þá kom upp "pásumerki" og síðan eftir hlé "play" ... þetta var svo mikið crap að það var engu líkara en myndin væri tekin af netinu í lélegum gæðum og sýnd með lélegum sjónvarpsflakkara.

Eftir þetta þá liðu 4 ár þangað til ég fór næst í bíó en það var í fyrra í Egilshöll, hef síðan þá farið þrisvar með börnin þangað og það er alveg toppurinn.
Sætin góð, fínn halli á salnum þannig að manneskja sem er yfir 150cm skyggir ekki á hálft tjaldið.

Persónulega þá finnst mér 100000000x betra að horfa á góðar myndir heima hjá mér, þá get ég tekið pásu þegar mér hentar, horft á atriði aftur ef mér sýnist svo og engin SMS sjúklingur í salnum að trufla mig eða endalaust skrjáf í poppinu hjá næsta manni.

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Lau 25. Maí 2013 14:47
af upg8
Þarf ekki einhver að láta heilbrigðiseftirlitið vita af því úr hvernig krana fólk á að sækja kalt drykkjarvatn úr?

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Lau 25. Maí 2013 15:28
af lukkuláki
upg8 skrifaði:Þarf ekki einhver að láta heilbrigðiseftirlitið vita af því úr hvernig krana fólk á að sækja kalt drykkjarvatn úr?
Í Egilshöll er vatnið í vatnsbrunnum við hliðina á sjoppunni. Algjör snilld en það þarf að borga 50 kall fyrir glasið ef ég man rétt.

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Lau 25. Maí 2013 16:02
af AntiTrust
lukkuláki skrifaði:
upg8 skrifaði:Þarf ekki einhver að láta heilbrigðiseftirlitið vita af því úr hvernig krana fólk á að sækja kalt drykkjarvatn úr?
Í Egilshöll er vatnið í vatnsbrunnum við hliðina á sjoppunni. Algjör snilld en það þarf að borga 50 kall fyrir glasið ef ég man rétt.
Ekki bara það, heldur er manni BANNAÐ að fá stórt glas fyrir vatn! Ég er ekki oft dónalegur við starfsfólk, en þarna lét ég eitt stórt "HAAAAAAAAAAAA?!" flakka þegar manneskjan sagði að það væri bannað að láta mig fá stórt glas undir vatn.

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Lau 25. Maí 2013 20:33
af hagur
Ohhh ég elska að fara aldrei í bíó.

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Lau 25. Maí 2013 20:39
af appel
Í gamla daga voru til svokölluð kommúnuklósett, þar sem fólk gat komið saman, skitið, og spjallað um veðrið og hægðir sínar.

Mynd

Bíó minna mig á þetta atferli, að koma saman í sal og horfa á kvikmynd með bláókunnugu fólki.

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Lau 25. Maí 2013 20:46
af Icelandgold
GuðjónR skrifaði:
Eftir þetta þá liðu 4 ár þangað til ég fór næst í bíó en það var í fyrra í Egilshöll, hef síðan þá farið þrisvar með börnin þangað og það er alveg toppurinn.
Sætin góð, fínn halli á salnum þannig að manneskja sem er yfir 150cm skyggir ekki á hálft tjaldið.
Egillshöll er bara annað líf en önnur bíó...

GuðjónR skrifaði:Persónulega þá finnst mér 100000000x betra að horfa á góðar myndir heima hjá mér, þá get ég tekið pásu þegar mér hentar, horft á atriði aftur ef mér sýnist svo og engin SMS sjúklingur í salnum að trufla mig eða endalaust skrjáf í poppinu hjá næsta manni.
Ég gæti ekki verið meira Samála ,Svo erum sumir sem slökkva ekki á símanum sínum svo er hringt í þá og þeir staðnir upp og koma hálfri min seinna aftur.

appel skrifaði:Í gamla daga voru til svokölluð kommúnuklósett, þar sem fólk gat komið saman, skitið, og spjallað um veðrið og hægðir sínar.

Mynd
Dafuq

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Lau 25. Maí 2013 22:38
af Kristján
appel skrifaði:
Kristján skrifaði:
appel skrifaði:Ég hafði efast um að fara í bíó, en lét mig hafa það að fara, enda vildi ég gjarnan sjá þessa mynd.

Eftir þessa upplifun þá er ég alfarið hættur að fara í bíó. Ég fæ sambærilega upplifun úr cam útgáfum á piratebay.
biddu alveg hægur.

er svona erfitt að spura hvar myndin er sýnd eða?
Heyrru... ég fór í _bíó_ og bjóst við bestu upplifun á myndinni. Ég fer ekki oft í bíó, 2ja-3ja ára fresti. Fór síðast á Avatar. Hví á ég að spyrja í hvaða sal myndin er sýnd og bara vita hvaða salur er bestur?

Ég vil fá eitthvað betra en upplifun sem er sambærileg því að hún er sýnd á venjulegum projector með tveimur hátölurunum. Að þeir skuli vera að smala fólki inn í þessa litlu "B" sali er "beyond me". Enginn metnaður í að gefa sem bestu upplifun, bara metnaður í að rukka í botn fyrir ömurlega "B" upplifun.
vá hvað þú ert svona týpiskur ógeðslega leiðinlegur kúnni greinilega, það er svo erfit að taka 10 min og athuga í hvaða sal myndin er sýnd og svo vera safe á þvi og spyrja í bíóinu, jésuss hvað þú getur vælt hérna maður.

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Sun 26. Maí 2013 01:46
af capteinninn

Það er nú skrítið að stærsta mynd sem er í bíóum á hverjum tíma sé ekki sýnd í aðalsal kvikmyndahúsa. Sérstaklega ekki þegar kvikmyndahúsin auglýsa að þeir séu með bestu og flottustu gæðin.

Mér finnst samt óþarfi að naðrast í staffi í sjoppunum með vatnsglösin. Mér finnst það líka pirrandi að þurfa að borga fyrir þau en staffið í sjoppunum er örugglega búið að heyra fólk kvarta yfir þessu milljón sinnum og þau geta lítið gert í þessu. Get samt alveg skilið ef fólk hefur ekki farið í bíó nýlega að kvarta en það er nokkuð síðan þau byrjuðu að gera þetta.

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Sun 26. Maí 2013 01:49
af Gúrú
hannesstef skrifaði:Mér finnst samt óþarfi að naðrast í staffi í sjoppunum með vatnsglösin. Mér finnst það líka pirrandi að þurfa að borga fyrir þau
Vissirðu að glös kosta peninga? :o

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Sun 26. Maí 2013 02:05
af Orri
Gúrú skrifaði:
hannesstef skrifaði:Mér finnst samt óþarfi að naðrast í staffi í sjoppunum með vatnsglösin. Mér finnst það líka pirrandi að þurfa að borga fyrir þau
Vissirðu að glös kosta peninga? :o
Ég er nokkuð viss um að bíóhúsin fá Coke og Pepsi glösin ókeypis frá Vífilfelli/Ölgerðinni, sem og popp pokana frá Símanum/Vodafone :)

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Sun 26. Maí 2013 02:11
af Gúrú
Orri skrifaði:

Í ótakmörkuðu magni fyrir alla notkun? Það væri nú skemmtilegt.

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Sun 26. Maí 2013 02:15

Líklegast eftir þörfum, allaveganna nóg... Í Sambíóunum Álfabakka (og Kringlunni og Keflavík eftir því sem ég best veit) eru vatnsglösin ókeypis.

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Sun 26. Maí 2013 02:33
af hfwf
Langaði bara henda inn snöggri afsökunarnbeiðni, það var ekki málið að mógða einn né neinn eða vera með dónaskap, bjórinn talaði soldið til mín á meðan og afsaka það alveg innilega.

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Sun 26. Maí 2013 04:35
af DJOli
Er einmitt með 40" sjónvarp og above decent 2.0 hljóðkerfi bara upp á að þurfa ekki að láta mér detta í hug að fara í bíó.
Ef einhver ný kvikmynd kemur út þá er bara hægt að bjóða vinunum í heimsókn. Alltaf nægt pláss, og ekkert vesen.

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Sun 26. Maí 2013 11:29
af Sallarólegur
Ég vel yfirleitt myndir/bíóhús eftir því hvort það sé sýnt í Sal 1.

Salur 1 í Egilshöll er algjör draumur, salur 1 í Laugarásbíó er líka mjög næs.
Svo stendur Smárabíó alltaf fyrir sínu, með mjög góð sæti í öllum sölum.

En annars get ég ekki tekið þátt í þessari gömlu 'sayin' að það sé betra að horfa á myndir heima, fara í bíó er bara góð skemmtun í góðra vina hópi.

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Sun 26. Maí 2013 16:19
af jonmar90
fer oftast í sal 1 i eigilshöll, en upp á síðkastið hef ég verið að fara í vip i alfabakka eða luxus i smara, er alveg að fýla þá sali, hljóð og mynd samsvarar sér mjög vel, þetta tjald í eigilshöllinni er eiginlega of stórt, finnst það skoma niðrá myndgæðunum

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Sun 26. Maí 2013 16:45
af Sallarólegur
Gúrú skrifaði:
hannesstef skrifaði:Mér finnst samt óþarfi að naðrast í staffi í sjoppunum með vatnsglösin. Mér finnst það líka pirrandi að þurfa að borga fyrir þau
Vissirðu að glös kosta peninga? :o
Glösin eru yfirleitt auglýsing.

Mynd

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Sun 26. Maí 2013 17:52
af Manager1
Appel þú ættir ekki að dæma gæði bíóa á Íslandi eftir sal B í Laugarásbíói eða í raun ekki eftir neinum sal B í hvaða bíói sem er. Það er löngu vitað að það er ekki boðið uppá sömu gæði í stóru sölunum og minni sölunum.

Þú ættir að prufa að fara aftur í Laugarásbíó, fara í sal A og sjá hvernig hann er, því það er stórkostlegur munur á þessum tveimur sölum og dæma svo bíóin eftir þá upplifun. Þú gætir líka farið í sal A í Egilshöll, það er ansi ólík upplifun og salur B í Laugarásbíói :)

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Þri 28. Maí 2013 16:40
af vesley
Er reyndar sammála að salur B í Laugarásbíó er bara djók.

Salur A þar er hinsvegar mjög góður, góð og stór sæti og fínt bil á milli raða þannig höfuðið á næsta manni truflar ekki.

Egilshöll stendur líka alltaf fyrir sínu, eina sem þeir klikkuðu illa á var einangrunin á milli salanna.

Er hinsvegar nánast hættur að fara í Smárabíó, finnst þeir ekki vera alveg að standa undir sínu eftir að Sambíó og Laugarás uppfærðu hjá sér.

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Þri 28. Maí 2013 16:52
af appel
Í raun er það sem pirrar mig mest er að þurfa að bíða svona lengi eftir að geta séð mynd heima hjá mér.

Ætli Star Trek myndin komi ekki í VOD eftir svona 5 mánuði? Kannski líklega í haust? Þetta er fáránlegt.

Ég vildi sjá hana í stórum sal, en gerði þau mistök að bíða í eina viku eftir að hún var frumsýnd og þá var ég búinn að missa af henni í stóra salnum. Absúrd.

Núna hangir hún í B og C sölum bíóhúsanna í mánuð í viðbót áður en hún dettur í "hiatus" í 4 mánuði.

Ég gæti alveg beðið í 2 vikur frá því að hún var frumsýnd í bíóhúsum þar til ég get horft á hana heima hjá mér, en marga marga mánuði er bara of langur tími.

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Þri 28. Maí 2013 17:00
af AntiTrust
Tjah, þú þarft auðvitað ekki að bíða eftir því í 5 mánuði *piratewink*. En þetta er sömuleiðis nákvæmlega ástæðan fyrir því að pirating er eins vinsælt og það er, það er ekki verið að hlusta á kröfur neytenda, og þeir mega sitja eftir með "sárt ennið" eins og þeir vilja meina þar til við fáum löglega það sem við getum fengið ólöglega.

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Þri 28. Maí 2013 17:03
af appel
AntiTrust skrifaði:Tjah, þú þarft auðvitað ekki að bíða eftir því í 5 mánuði *piratewink*. En þetta er sömuleiðis nákvæmlega ástæðan fyrir því að pirating er eins vinsælt og það er, það er ekki verið að hlusta á kröfur neytenda, og þeir mega sitja eftir með "sárt ennið" eins og þeir vilja meina þar til við fáum löglega það sem við getum fengið ólöglega.
Einsog ég sagði upphaflega, ég vildi sjá myndina í "bestu gæðum" og fá "alvöru upplifun". En lenti svo í einhverjum heimatilbúnum kofa í laugarásbíó, ömurlegum hljóðgæðum og lélegu 3d, ýkt svekktur.

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Þri 28. Maí 2013 17:03
af Gúrú
Sallarólegur skrifaði:
Gúrú skrifaði:
hannesstef skrifaði:Mér finnst samt óþarfi að naðrast í staffi í sjoppunum með vatnsglösin. Mér finnst það líka pirrandi að þurfa að borga fyrir þau
Vissirðu að glös kosta peninga? :o
Glösin eru yfirleitt auglýsing.
Þýðir ekki að það sé ekki peningur í því að selja þau. :)

Re: So... fór í bíó í gær

Sent: Þri 28. Maí 2013 18:07
af svanur08
Mér finnst bassinn í Egilshöll alltof hátt stilltur miðað við hljóðið.