Síða 2 af 3

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Sun 14. Apr 2013 19:52
af Xovius
Garri skrifaði:Endilega lýstu þessu betur með hárblásarann og klakann..
Virkar þannig að þú hitar beygluna svo málmurinn þenst aðeins út og snöggkælir hann svo sem gerir það að verkum að hann dregst oft nógu hratt saman til að beyglan poppi út.
Líka fínt að nota þrýstiloft á brúsa í staðinn fyrir klaka, ef þú snýrð brúsanum á hvolf kemur út ofurkældur vökvi.

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Sun 14. Apr 2013 20:01
af chaplin
Garri skrifaði:Endilega lýstu þessu betur með hárblásarann og klakann..
Ég gerði það ekki, félagi minn sagðist ætla að "redda" þessu fyrir mig, fékk svo bílinn til baka með enga dæld, hélt lengi að þetta hafi verið spaug hjá honum með klakann/þurís eða hvað hann nefndi, en svo virðist vera að þetta sé víst hægt.

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Sun 14. Apr 2013 20:12
af arons4

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Sun 14. Apr 2013 20:23
af Swanmark
Vá, videoið sem Arons4 póstaði. Amazing :p

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Sun 14. Apr 2013 20:31
af Glazier
Má nota þessa hita/frysta aðferð á hvaða beyglur sem er?
Sama hvort þær eru með kvössum brúnum eins og þessi: http://phoenixpdr.com/images/doording1.jpg" onclick="window.open(this.href);return false;

eða "mjúkum" brúnum eins og þessi: http://www.dent-technique.co.uk/dent_re ... 009003.jpg" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Sun 14. Apr 2013 20:45
af tdog
Garri skrifaði:Endilega lýstu þessu betur með hárblásarann og klakann..
Já ég er líka forvitinn um þetta.

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Sun 14. Apr 2013 20:48
af arons4
tdog skrifaði:
Garri skrifaði:Endilega lýstu þessu betur með hárblásarann og klakann..
Já ég er líka forvitinn um þetta.
Þetta eru nú engin geimvísindi, bara hitar beigluna og svæðið í kring eins vel og þú getur með hárblásara, og kælir það svo eins snöggt og þú getur, skiptir í raun ekki máli hvort þú notir hárblásara og klaka eða hitabyssu eða hvað annað álíka, fólk notar hárblásara því þú getur ekki ekki hitað OF mikið.

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Sun 14. Apr 2013 21:04
af rapport
Plaststuðara o.þ.h. er hægt að mýkja mikið með sjóðandi vatni úr hraðsuðukatli og ýta beyglum auðveldlega út aftur...

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Mán 15. Apr 2013 04:40
af Danni V8
arons4 skrifaði:
tdog skrifaði:
Garri skrifaði:Endilega lýstu þessu betur með hárblásarann og klakann..
Já ég er líka forvitinn um þetta.
Þetta eru nú engin geimvísindi, bara hitar beigluna og svæðið í kring eins vel og þú getur með hárblásara, og kælir það svo eins snöggt og þú getur, skiptir í raun ekki máli hvort þú notir hárblásara og klaka eða hitabyssu eða hvað annað álíka, fólk notar hárblásara því þú getur ekki ekki hitað OF mikið.
Þetta virkar mjög takmarkað, bara á stórar beyglur og alls ekki á vel gerað bíla með einhverja almennilega þykkt í málminum. Annað en þessir vísitölu beyglur sem öll myndböndin eru tekin á.

Annars þá hef ég einusinni hurðað bíl. Það gerðist í algjöru hugsunarleysi að minni hálfu fyrir 9 árum síðan, eða þegar ég var 17 ára. Það skildi eftir sig dæld í bílnum sem ég hurðaði. Ég var alveg í rusli yfir því og bauðst til að borga eiganda bílsins sprautun á hurðinni til að laga þetta en hann afþakkaði það. Ég er ennþá með samviskubit yfir þessu!

Síðan í fyrra þá lét ég mála alla vinstri hliðina á bílnum mínum eftir örlítið óhapp á bílstjóra hurðinni. Í sömu viku var komin hurðardæld og rispa á afturhurðina. Það gerðist í vinnunni, ég vissi hvaða dag og allt. En þar sem ég vinn 12 tíma í senn og hver sem er gæti hafa lagt við hliðiná í millitíðinni og það eru engar myndarvélar á starfsmannastæðinu var enginn séns fyrir mig að komast að því hver hurðaði bílinn minn.

Hin hliðin er orðin eins og stigabretti eftir hurðanir.

BARA FOKKING PIRRANDI!!

Þegar ég fer í Kringluna eða í Smáralindina t.d., þá legg ég ekki skakkt í tvö stæði eins og margir asnar vilja gera til að forðast hurðanir. Heldur legg ég lengra í burtu þar sem enginn annar leggur og labba bara lengra í staðinn fyrir að koma að bílnum með nýja dæld þegar ég kem til baka.

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Mið 17. Apr 2013 15:25
af Carragher23
Lenti í þessu um daginn,

lagði bílnum mínum beint fyrir utan Ísbúð Vesturbæjar, kærastan mín sat í bílnum meðan ég hljóð inn að kaupa bragðaref.

Í millitíðinni kemur kona á X5 Bmw, með krakka afturí, hún strögglar mikið að koma bílnum í stæðið ( ég var ekki lagður ólöglega, bara þröngt stæði eins gerist ) og bendir á kærustuna mína að færa bílinn sem hún sá ekki ástæðu til að gera, enda bara 2-3 mínútur í mig.

Uppúr þessu náði hún að troða sér í stæðið en byrjar á að bomba hurðinni sinni í spegilinn farþegamegin á mínum bíl, treður sér svo útúr bílnum meðan hurðin nuddast utan í spegilinn, því næst opnar hún afturhurðina til að ná krakkanum út, hurðar auðvitað afturhurðina mína líka.

Svo labbar hún inná tælenska matstaðinn sem er þarna og ég labba út með ísinn minn, kærastan mín segir mér hvað gerðist og ég auðvitað sæki kellinguna um leið, sem án djóks NEITAÐI fyrir þetta, tók ekki mál að hún hefði hurðað bílinn.

Svo virðurkenndi hún þetta loksins en reyndi að afsaka sig með því að hún hafi beðið kærustuna mína um að færa sig, en það skiptir auðvitað engu andskotans máli.

Þetta voru 2 pínulitlar rispur, ég tók myndir af öllu, tók niður símann hjá henni og fór með þetta beint í tryggingarnar.

Óþolandi svona pakk

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Mið 17. Apr 2013 15:40
af tlord
djö pjatt er þetta, svona er óhjákvæmilegt. Bílar rispast/hurðast. Sama með parkett ofl. Takið bara róandi í fyrstu 2 skiptin, svo hættir þetta að skipta máli. Á einhverjum tímapunkti má svo laga ef þetta fer að verða áberandi mikið. Bíll er bara blikkdolla...

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Mið 17. Apr 2013 15:47
af AntiTrust
tlord skrifaði:djö pjatt er þetta, svona er óhjákvæmilegt. Bílar rispast/hurðast. Sama með parkett ofl. Takið bara róandi í fyrstu 2 skiptin, svo hættir þetta að skipta máli. Á einhverjum tímapunkti má svo laga ef þetta fer að verða áberandi mikið. Bíll er bara blikkdolla...
.. Pjatt?! Þetta er SKEMMD á EIGN! Beygla á minn bíl þýðir peningaútlát fyrir mig eða peningatap við sölu. Þetta er EKKI PJATT! Það er hægt að kalla ýmsa bíla á götunni blikkdollur, en ég set mína 5m kr. bifreið ekki í þann flokk, frekar en aðrir sem eiga fína bíla og þykir annt um.

Skemmdir á hlutum eru óhjákvæmilegar, en þegar þær gerast þá skulu þær vera bættar af þeim sem veldur!

Kv, gaurinn sem elskar bílana sína jafnmikið og millifótardjásnið.

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Mið 17. Apr 2013 15:56
af tlord
ef ég ætti svona svakalegan bíl (5m) myndi ég reikna með 50Þ á 6 mánaða fresti í einhverja rispumeðferð, frekar en að vera taugahrúga alltaf...

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Mið 17. Apr 2013 16:01
af Benzmann
einfalt mál, geyma ágætis hníf í bílnum, ef einhver gerir þetta aftur við þig og þú kemst upp um hann, bara rista þá annað dekkið á bílnum hans í staðinn, ef hann ætlar að fara með stæla eins og þessi krakki sem hurðaði þig þarna.

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Mið 17. Apr 2013 16:06
af Gúrú
Benzmann skrifaði:einfalt mál, geyma ágætis hníf í bílnum, ef einhver gerir þetta aftur við þig og þú kemst upp um hann, bara rista þá annað dekkið á bílnum hans í staðinn, ef hann ætlar að fara með stæla eins og þessi krakki sem hurðaði þig þarna.
Þetta spjallborð okkar verður sífellt töffaðara.

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Mið 17. Apr 2013 16:06
af AntiTrust
tlord skrifaði:ef ég ætti svona svakalegan bíl (5m) myndi ég reikna með 50Þ á 6 mánaða fresti í einhverja rispumeðferð, frekar en að vera taugahrúga alltaf...
Þú ert þá að tala um fínmössun og leirhreinsun. Það eru hlutir sem ég sé um sjálfur, enda búinn að detaila bíla lengi vel, og get reddað smárispum sjálfur. Ég er búinn að þurfa að gera við hurðanir/smáskemmdir á bílnum mínum eftir aðra 3-4x á þessum 18mánuðum sem ég hef átt bílinn og það hefur sko kostað meira en 50þúsund á 6mánaða fresti að meðaltali - sem er btw EKKI kostnaður sem ég á að gera ráð fyrir afþví að ef fólk væri ekki SVONA MIKIÐ FÍFL(!) þá hefði ég ekki þurft að greiða krónu fyrir neina af þessum viðgerðum.

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Mið 17. Apr 2013 16:09
af bixer
tlord skrifaði:ef ég ætti svona svakalegan bíl (5m) myndi ég reikna með 50Þ á 6 mánaða fresti í einhverja rispumeðferð, frekar en að vera taugahrúga alltaf...
En fólk sem setur stórann hluta af peningunum sínum í bílinn sinn? minn kostaði 2m. sem er frekar mikið miðað við að ég er ekki orðinn 18 og borga alveg sjálfur fyrir bílinn. svo lendi í ég þessu, er með eina stóra beyglu Á SKOTTINU eftir eitthvað, hef verið hurðaður 4-6 sinnum frá því ég keypti hann(í janúar) hugsaðu bara um eitthvað sem þér þykir vænt um, alltaf leiðinlegt þegar hlutir verða fyrir skemmdum sérstaklega þegar það er ekkert mál að koma í veg fyrir þær.

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Mið 17. Apr 2013 16:15
af tlord
bixer skrifaði:

það er frekar vanþroskað að þykja vænt um bíl. (sorry) reyndu að þroskast (vel meint)

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Mið 17. Apr 2013 16:17
af Bjosep
tlord skrifaði:

:guy \:D/

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Mið 17. Apr 2013 16:22
af Lexxinn

Vanþroskað að þykja vænt um bíl? Er þér þá alveg sama um peningana sem þú setur í þínar eignir? Þér væri þá líklegast alveg sama ef ég mundi koma og stunda veggjakrot á heimili þínu er það ekki? Helling af fólki hefur gaman af því að hafa bílana sína vel útlítandi og það er ákveðin væntumþykja, þannig ef eitthver hurðar bílinn þá er það alveg mjög leiðinlegt atvik. Held þú skiljir heldur ekki tilgang þráðarins. Umræðan var að fólki væri alveg sama um eigur annarra þar sem virðing kemur nr 1,2 og 3.

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Mið 17. Apr 2013 16:25
af AntiTrust
tlord skrifaði:
það er frekar vanþroskað að þykja vænt um bíl. (sorry) reyndu að þroskast (vel meint)
Veit eiginlega ekki hvernig ég á að svara þessu. Nei - það er sko ekki vanþroskað. Við erum efnishyggjuskepna. Stórt hús, flottur bíll, öflug tölva, nýlegur snjallsími, peningar í veskinu - þetta viljum við flest, og sitjum oftast stóran part af lífinu á námsbekk til þess að m.a. eignast fyrrnefnda hluti. Þegar maður hefur mikið fyrir því að eignast hlut sem manni langar í, þá vitaskuld þykir manni vænt um þann hlut.

Það er ekkert öðruvísi að hurða/keyra á nýlegan/vel með farinn bíl og láta eigandann ekki vita og að stela af mér 50-100þúsund. Nákvæmlega enginn munur í mínum huga.

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Mið 17. Apr 2013 16:28
af ASUStek
eina fólk sem er vanþroskað er fólk sem hurðar bíl og reynir að komast upp með það, sem það gerir því miður oft.

ef ég myndi koma heim til þín og í förum mínum væri þessi ógeðslegi spreyjbrúsi sem inniheldur þann lit sem þú hatar og ég mundi herramanslega
skrefa upp að dyrum þínum og gera eina flotta skakka,klunnalega línu. reyndu að sannfæra mig að þú myndir endilega vilja borga það og værir ekkert reiður ef þú myndir sjá mig gera það
og ég myndi neita og labba í burtu.

(myndi gera þetta svona 1-6 á mánuði.)

og einu sinni á 2 ára fresti legga eitt gott högg af sleggju á einhvern steyptanvegg á húsi þínu.

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Mið 17. Apr 2013 16:31
af AntiTrust
Þetta er nefnilega alveg jafn gilt dæmi. Húsið er alveg nothæft fyrir því, og einstaklingnum er jafnvel alveg sama um útlitið - en þetta þýðir hinsvegar að hann fær minna fyrir eignina þegar kemur að sölu. Hvort sem fólki er annt um hlutina sína eða ekki, þá vill maður yfirleitt reyna að hámarka/viðhalda verðgildi á því sem maður á.

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Mið 17. Apr 2013 16:33
af dori
Ekki að ég sé að gera lítið úr því þegar fólk er að hegða sér eins og dick en hús fellur í allt annan flokk en bifreiðar fjárfestingarlega. Þú reynir að viðhalda/hámarka verðgildi fasteignar. Það eina sem þú getur gert fyrir bílinn þinn er að vona að hann hrapi ekki of mikið í verði.

Re: Að hurða bíl, er fólki sama um aðra?

Sent: Mið 17. Apr 2013 16:35
af tlord
það þarf að mála hús af og til, rispur og smádældir á bílum er í svipuðum klassa. Ég gerði einusinni sýnilega dæld á nýlegan bíl með að reka innkaupapoka með 2l gosflösku í hann. Sem betur fer fékk ég ekki taugaáfall.. :cry: