Síða 2 af 2

Re: Hvar fæ ég svona lyklaborð?

Sent: Þri 19. Mar 2013 18:34
af mercury
ekki frá því að ég eigi svona borð niðri í geimslu einhvernstaðar.

Re: Hvar fæ ég svona lyklaborð?

Sent: Þri 19. Mar 2013 19:31
af FriðrikH
Uppboð, hlýtur að fá fúlgur fyrir það miðað við umræðurnar í þessum þræði!

Re: Hvar fæ ég svona lyklaborð?

Sent: Þri 19. Mar 2013 19:41
af kizi86
dang, er akkúrat með svona lyklaborð og ætlaði að fara að fá mér nýtt.. pabbi missti sigarettu a borðið og tok ekki eftir þvi og nokkrir takkar eru orðnir mjög stífir.. verður vist ekkert af þvi að fá nytt svona..


ps einhver hérna sem á ónýtt svona borð og vill gefa? vantar bara nokkra takka, space, L, og eikkern einn i viðbot

Re: Hvar fæ ég svona lyklaborð?

Sent: Þri 19. Mar 2013 21:23
af ponzer
rapport skrifaði:Græn Framtíð "graenframtid.com" átti einhver lyklaborð sem voru rest af einhverjum gömlum vörulager...

Minnir að þau hafi verið svona þunn með fartölvutökkum...

Best að kíkja bara á þá og kanna hvort að það stemmi...
Var að senda þeim línu, sjáum hvað kemur útút því. Takk fyrir ábendinguna.

Ég er búinn að ath hjá BT og þeir eiga þetta ekki lengur til

Vita menn um fleiri staði sem þessi borð gætu leynst ?

Re: Hvar fæ ég svona lyklaborð?

Sent: Þri 19. Mar 2013 21:47
af Black
Ég á eitt svona.Ekki til sölu :evillaugh

Re: Hvar fæ ég svona lyklaborð?

Sent: Þri 19. Mar 2013 21:48
af KermitTheFrog
Talaði í dag við mann í símann í vinnunni þar sem hann spurði um svona borð. Veit ekki hvort það hafi verið einhver ykkar.

En þessi borð eru ekki fáanleg í dag (allavega ekki á Íslandi). Despec er umboðs- og dreifingaraðili Logitech á Íslandi. Það væri besti staðurinn að leita á.

Eins og búið er að benda á er K120 borðið einna líkast þessu. Mjúkir og hljóðlátir low-profile takkar. Reyndar vantar þessa media takka á það.

Re: Hvar fæ ég svona lyklaborð?

Sent: Þri 19. Mar 2013 22:28
af ponzer
KermitTheFrog skrifaði:Talaði í dag við mann í símann í vinnunni þar sem hann spurði um svona borð. Veit ekki hvort það hafi verið einhver ykkar.

En þessi borð eru ekki fáanleg í dag (allavega ekki á Íslandi). Despec er umboðs- og dreifingaraðili Logitech á Íslandi. Það væri besti staðurinn að leita á.

Eins og búið er að benda á er K120 borðið einna líkast þessu. Mjúkir og hljóðlátir low-profile takkar. Reyndar vantar þessa media takka á það.

Það var ekki ég :)

Ég ætla að prófa að hafa samband við Despec og sjá hvort þeir eigi þetta til.

Re: Hvar fæ ég svona lyklaborð?

Sent: Þri 19. Mar 2013 22:34
af mercury
annars geturu fengið mitt fyrir lítið. notað í nokkra mán. kanski smá abuse man ekki alveg. þarf að tékka ástandið á því ;)

Re: Hvar fæ ég svona lyklaborð?

Sent: Þri 19. Mar 2013 23:31
af ponzer
mercury skrifaði:annars geturu fengið mitt fyrir lítið. notað í nokkra mán. kanski smá abuse man ekki alveg. þarf að tékka ástandið á því ;)
Tjékkaðu á því og láttu mig vita - ég er til í að taka það ef það lítur vel út