Síða 2 af 2

Re: Besti bjórinn

Sent: Fös 15. Mar 2013 21:53
af Klaufi
Surtur 8.1

/Thread

Re: Besti bjórinn

Sent: Fös 15. Mar 2013 22:00
af oskar9
Íslenskur Bjór er ógeð, sérstaklega allt frá Egils og víking :pjuke , undantekning er Dökkur og Ljós kaldi sem eru allveg frábærir, annars er það Bitburger, Krombacker, Erdinger, ekki weissbier útgáfan samt og vitanlega allir í gleri

Re: Besti bjórinn

Sent: Fös 15. Mar 2013 22:35
af urban
oskar9 skrifaði:Íslenskur Bjór er ógeð, sérstaklega allt frá Egils og víking :pjuke , undantekning er Dökkur og Ljós kaldi sem eru allveg frábærir, annars er það Bitburger, Krombacker, Erdinger, ekki weissbier útgáfan samt og vitanlega allir í gleri
já það er um gera að bera saman ódýra íslenska lagerbjóra og síðan erdinger....

minn all time favorite er líklegast Holsten Premium, fæst bara því miður ekki hér á landi svo að ég viti til, mér áskotnuðust bara nokkrir kassar af honum fyrir nokkrum árum.

í ríkinu kaupi ég tuborg classic, stellu, budwar og þarna bjórinn með elgmerkinu á (alveg stolið úr mér nafnið á honum)

á pöbbinum smakka ég allt sem að til er á krana leffe blonde, stella og krombacher verða fyrir valinu í að halda áfram ef að þeir eru til.

síðan er náttúrulega alltaf gott að fá sér erdinger og álíka nammi öðru hverju, en það geri ég bara örsjaldan samt sem áður

Re: Besti bjórinn

Sent: Fös 15. Mar 2013 22:51
af Gislinn
Ulli skrifaði:Erdinger Dunkel og Weibbier
intenz skrifaði:Krombacher
Þetta eru menn með viti. Bæti bara Kronenbourg 1664 og Kalda við það sem Ulli og intenz sögðu og þá er uppáhaldið komið.

Annars er bjórdrykkja mín mikið takmörkuð af líkamlegu ástandi og því nenni ég ekki að standa í því að vera að drekka eitthvað ódýrt sull, þegar ég fæ mér bjór þá fæ ég mér bara það besta! \:D/

Re: Besti bjórinn

Sent: Fös 15. Mar 2013 23:09
af Frantic
Er sammála með Krombacher (er með einn í hönd), og Erdinger Dunkel.
Annars kaupi ég alltaf König Pilsener og Bitburger líka ef ég ætla að vera grand á því :D

Annars finnst mér synd hvað þýsku bjórarnir eru alltaf dýrir.
Maður splæsir í tvö stk König og maður er kominn uppí þúsund kall. Algjört rán því stk-ið er undir 100kr útí búð í þýskalandi.

Re: Besti bjórinn

Sent: Lau 16. Mar 2013 00:12
af appel
Sko, besti bjórinn er sá sem þér þykir bestur...

það segir mamma a.m.k.

Re: Besti bjórinn

Sent: Mán 18. Mar 2013 20:43
af CraZy
Stella og Soproni :happy

Re: Besti bjórinn

Sent: Mán 18. Mar 2013 21:25
af thiwas
Mér finnst IPA bjórar bestir, einnig Trappist, en besti íslenski bjórinn finnst mér vera Skjálfti og svo Pale Ale frá Gæðing.

Re: Besti bjórinn

Sent: Mán 18. Mar 2013 21:27
af marijuana
Tuborg Gold er minn uppáhalds... Hef ekki smakkað marga samt.

Re: Besti bjórinn

Sent: Mán 18. Mar 2013 21:53
af rango
Frost skrifaði:Stella Artois :happy
Minn maður! 8-[

Re: Besti bjórinn

Sent: Mán 18. Mar 2013 22:46
af Daz
PhilipJ skrifaði:
Daz skrifaði:Leffe. Blond. Brown. Alveg sama. Einn leffe er góð byrjun á öllu.
Mikið er ég sammála þér :D
Ofboðslega margir hérna sem hafa ekki smakkað Leffe.

Re: Besti bjórinn

Sent: Mán 18. Mar 2013 22:48
af worghal
Daz skrifaði:
PhilipJ skrifaði:
Daz skrifaði:Leffe. Blond. Brown. Alveg sama. Einn leffe er góð byrjun á öllu.
Mikið er ég sammála þér :D
Ofboðslega margir hérna sem hafa ekki smakkað Leffe.
eða bara einfaldlega "not worthy" til að fá að drekka hann :twisted:

Re: Besti bjórinn

Sent: Mán 18. Mar 2013 23:13
af axyne
Carlsberg.

Re: Besti bjórinn

Sent: Þri 19. Mar 2013 12:53
af BirkirEl
Duvel er minn uppáhalds bjór, svo er Stella alltaf góð.

Smakkaði Myrkva um daginn og hann var gríðarlega góður.

Sent from my GT-I9300 using Tapatalk 2

Re: Besti bjórinn

Sent: Þri 19. Mar 2013 13:44
af blitz
Ef maður þarf að kaupa 330ml bjór í miklu magni hvaða bjór mæla menn með?

Þyrfti helst að kosta undir 250kr per unit (sjá http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... yName=Bjor" onclick="window.open(this.href);return false;, raðað eftir verði)

Re: Besti bjórinn

Sent: Þri 19. Mar 2013 14:00
af Plushy
Mér finnst 500ml pilsnerinn sem er á 234kr reyndar alveg fínn...

annars er Carslberg og Polar Beer fínir í 330ml :)

Re: Besti bjórinn

Sent: Þri 19. Mar 2013 14:17
af Cascade
blitz skrifaði:Ef maður þarf að kaupa 330ml bjór í miklu magni hvaða bjór mæla menn með?

Þyrfti helst að kosta undir 250kr per unit (sjá http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... yName=Bjor" onclick="window.open(this.href);return false;, raðað eftir verði)

Bríó kostar 274kr fyrir 330ml

Held að það sé besti svona ódýri bjórinn