Síða 2 af 2

Re: smá hjálp - Toyota verkst

Sent: Þri 05. Mar 2013 16:30
af Dazy crazy
skrifbord skrifaði:ja takk þetta litli en ég kann alveg að mæla smurningu. svoldið sem heitir leti.
Af hverju er verið að hjálpa manni sem nennir ekki einu sinni að mæla smurninguna á bílnum sínum. Er sjálfsbjargarviðleitni að deyja út?

Re: smá hjálp - Toyota verkst

Sent: Þri 05. Mar 2013 17:59
af toybonzi
Er hann farinn að eyða eitthvað óeðlilega miklu?

Ef svo er og hann gengur óreglulega þá er líklegur orsakavaldur súrefnisskynjarinn í pústinu. Ef það kvikindi fer að verða leiðinlegt, sótað eða bilað þá fara rollurnar að hegða sér undarlega.

Það kom reyndar ekki check engine ljós en bíllinn varð allt annar eftir að ég skipti honum út. Einnig er mjög gott að skoða kerti og þræði, sérstaklega ef þér finnst vera kominn grófur gangur í hann...svona eins og hann gangi ekki á öllum.

Samt eins með það, ekkert check engine ljós sem kemur út af því.

Re: smá hjálp - Toyota verkst

Sent: Þri 05. Mar 2013 18:04
af JoiMar
Þetta hljómar eins og kerti eða háspennu keflli, hugsa að það sé ekkert voðalega dýrt :)

Re: smá hjálp - Toyota verkst

Sent: Þri 05. Mar 2013 19:36
af pattzi
urban skrifaði:
skrifbord skrifaði: Hafði fengið að vita hjá starfsm á bensínstöð og annars staðar að þyrfti ekki að hafa áhyggjur þetta væri bara bilun í tölvubúnaði. Nú hins vegar er þetta ljos farið að blikka og snúningshraði minnkar var í hægagangi í 900 til 1.1 en er núna í 500 (ef þið fattið)
kv
það er voðalega lítið sem að er "bara bilun í tölvubúnaði"
semasgt, orðið bara á ekkert heima í þessari setningu.


já og það að snúningshraði í hægagangi eftir að bíll hafi verið orðinn heitur sé í 900 - 1100 snúningum er einfaldlega of mikið, ef að ég man rétt þá ætti hann að vera í kringum 750 (miðað við bensínvél það er að segja)
Getur bara alveg verið bilun í tölvubúnaði veit um bíl þar sem öll ljós eru í mælaborðinu og tölvan er bara í fokki í þessum bíl því allt í einu fara þau og svo koma þau öll aftur en ekkert amar að bílnum ef þetta er núllstillt kemur þetta bara aftur

NiveaForMen skrifaði:Nei, olían á vélinni hefur ekkert með þetta að gera.

A) Láttu bilanagreina bílinn
B) Láttu gera við bílinn
C) Láttu svo smyrja bílinn.
Skoda octavia hjá okkur

Kemur vélarljós eftir 10.000 km ef maður skiptir ekki um síu

eða biður um service og svo kemur vélarljós en hann er keyrður 20-30000 km á sömu síu og olíu bara 10-40 samt allt í lagi með hann

Re: smá hjálp - Toyota verkst

Sent: Þri 05. Mar 2013 23:55
af urban
pattzi skrifaði:
urban skrifaði:
skrifbord skrifaði: Hafði fengið að vita hjá starfsm á bensínstöð og annars staðar að þyrfti ekki að hafa áhyggjur þetta væri bara bilun í tölvubúnaði. Nú hins vegar er þetta ljos farið að blikka og snúningshraði minnkar var í hægagangi í 900 til 1.1 en er núna í 500 (ef þið fattið)
kv
það er voðalega lítið sem að er "bara bilun í tölvubúnaði"
semasgt, orðið bara á ekkert heima í þessari setningu.


já og það að snúningshraði í hægagangi eftir að bíll hafi verið orðinn heitur sé í 900 - 1100 snúningum er einfaldlega of mikið, ef að ég man rétt þá ætti hann að vera í kringum 750 (miðað við bensínvél það er að segja)
Getur bara alveg verið bilun í tölvubúnaði veit um bíl þar sem öll ljós eru í mælaborðinu og tölvan er bara í fokki í þessum bíl því allt í einu fara þau og svo koma þau öll aftur en ekkert amar að bílnum ef þetta er núllstillt kemur þetta bara aftur
Þú ert að misskilja mig.

Re: smá hjálp - Toyota verkst

Sent: Mið 06. Mar 2013 02:45
af Pandemic
Ég er með Mözdu sem fór alltaf rosalega langt niður í lausagangi og hikstaði(bílinn hristist eins og það væri eitthvað misfire),kraftlaus og já almenn leiðindi.
Þá var þetta EGR lokan sem var föst og ég spreyjaði bara EGR hreinsi á hana þar sem hún var föst útaf sóti og það bjargaði þessu.

Re: smá hjálp - Toyota verkst

Sent: Mið 06. Mar 2013 07:39
af littli-Jake
pattzi skrifaði: eða biður um service og svo kemur vélarljós en hann er keyrður 20-30000 km á sömu síu og olíu bara 10-40 samt allt í lagi með hann
Hvað meinaru bara 10-40?

Re: smá hjálp - Toyota verkst

Sent: Mið 06. Mar 2013 15:30
af Dazy crazy
littli-Jake skrifaði:
pattzi skrifaði: eða biður um service og svo kemur vélarljós en hann er keyrður 20-30000 km á sömu síu og olíu bara 10-40 samt allt í lagi með hann
Hvað meinaru bara 10-40?
hann er að vísa í seigju olíunnar sem hann notaði geri ég ráð fyrir

Re: smá hjálp - Toyota verkst

Sent: Mið 06. Mar 2013 17:31
af littli-Jake
Dazy crazy skrifaði:
littli-Jake skrifaði:
pattzi skrifaði: eða biður um service og svo kemur vélarljós en hann er keyrður 20-30000 km á sömu síu og olíu bara 10-40 samt allt í lagi með hann
Hvað meinaru bara 10-40?
hann er að vísa í seigju olíunnar sem hann notaði geri ég ráð fyrir
Ég veit vel að 10-40 stendur fyrir seigju olíunar. Fanst þetta hljóma eins og hann væri að meina að þetta væru einhverjar gæðatölur.