Síða 2 af 2

Re: Sickbeard Search Provider fyrir Deildu.net

Sent: Fös 05. Apr 2013 18:14
af scucca
Sæll,

Fyrst og fremst þakka ég fyrir þetta framtak.

Eg er að keyra sickbeard af Win2k8R2 vél, og skráarstrúktúrinn virðist vera heldur frábrugðinn þeim sem myndast á Linux uppsetningu.

Til að byrja með lét ég reyna á að setja allar skrár frá þér í \lib\sickbeard.zip, þar sem .py skrárnar eru flestar geymdar, en það virðist ekki duga.

Hefurðu hugmynd um hvernig ég get komið þessu í gang hérna? Eða er þetta add-on yfirhöfuð í boði á Windows?

Re: Sickbeard Search Provider fyrir Deildu.net

Sent: Þri 16. Apr 2013 10:30
af starionturbo
Snilldar framtak, mun klárlega nýta mér þetta.

400 villan sýnist mér vera eitthvað blöff, þetta er í raun og veru 500 server timeout, sem útskýrir þetta randomness.

Re: Sickbeard Search Provider fyrir Deildu.net

Sent: Mið 17. Júl 2013 16:05
af berteh
Er einhver að nota þetta ennþá ? Ég var að setja þetta upp og það gekk allt snuðrulaust fyrir sig en ég sé ekki deildu undir providers, er ég að miskilja eitthvað ?

Re: Sickbeard Search Provider fyrir Deildu.net

Sent: Mið 17. Júl 2013 16:50
af fedora1
Ég er amk. að nota þetta. Virkar ágætlega.
Fór settings, search settings og virkjaði torrents í torrent flipanum og svo configa Deildu í search providers

Re: Sickbeard Search Provider fyrir Deildu.net

Sent: Mið 17. Júl 2013 17:03
af berteh
Þú hittir naglann á höfuðið! takk fyrir þetta, var búinn að renna í gegn um þetta en hef gleymt að velja save :D

Re: Sickbeard Search Provider fyrir Deildu.net

Sent: Mán 30. Sep 2013 19:42
af Opes
Hmmm. Ég var að setja þetta upp hjá mér í Mac Server heima. Hún virðist ekki finna neina þætti. Kemur alltaf bara "No downloads were found
Couldn't find a download for Breaking Bad - 5x16 - Felina" t.d. Einhver annar að lenda í þessu?

Re: Sickbeard Search Provider fyrir Deildu.net

Sent: Mið 18. Des 2013 22:04
af capteinninn
Ég kann ekkert á forritunarmál en væri til í að finna út hvernig ég get sett upp deildu aðgang á SickBeard.

Er þetta alger höfuðverkur ?

Re: Sickbeard Search Provider fyrir Deildu.net

Sent: Mán 13. Jan 2014 23:38
af capteinninn
Ég prófaði að setja þetta upp á XP vél og það gekk svona glimrandi vel með CouchPotato en ég er í mesta basli við Sickbeard.

Ég fann þessar fínu leiðbeiningar (reyndar fyrir TPB en virkaði líka fyrir Deildu forkið hans trymbils)
http://sickbeard.com/forums/viewtopic.php?f=9&t=6605" onclick="window.open(this.href);return false;

Ég fylgdi þeim eftir og allt var komið í mjög góð mál þangað til ég reyndi að finna þætti með þessari uppsetningu. SB virðist ekki getað fundið neina þætti alveg sama hvað ég leita að. Veit einhver hvað gæti verið vandamálið?

Re: Sickbeard Search Provider fyrir Deildu.net

Sent: Mán 17. Feb 2014 15:59
af villisnilli
já ég er að lenda í því sama næ að starta þessu og sé deildu og læt user name og pass en þetta segist ekki finna neina þætti á deilu, em ég smelli yfir á piratebay þá finnur sickbeardinn strax þætti.

Re: Sickbeard Search Provider fyrir Deildu.net

Sent: Þri 25. Feb 2014 19:32
af trymbill
Ég er því miður fluttur af landi brott og hef þ.a.l. enga sláandi þörf til að halda þessu við. Það mætti einhver fork-a repo-ið mitt og laga þetta, kæmi mér ekki á óvart að html-ið hafi breyst á þessum 7 mánuðum, líklega auðvelt fix.

Re: Sickbeard Search Provider fyrir Deildu.net

Sent: Þri 25. Feb 2014 21:16
af kthordarson
ég er með eitthvað skítamix í gangi hérna:
https://github.com/kthordarson/Sick-Beard-deildu" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Sickbeard Search Provider fyrir Deildu.net

Sent: Mán 31. Mar 2014 23:47
af trymbill
Ég var að enda við að laga CouchPotato providerinn og ætlaði að skoða SickBeard í leiðinni. Það rifjaðist hinsvegar upp fyrir mér hversu hræðilegur kóðabasinn (nýyrði) er og hversu ómögulegt það er að viðhalda 3rd party providerum í honum. Ég ætla því að halda mig fjarri, í það minnsta þangað til ég flyt heim :)

Re: Sickbeard Search Provider fyrir Deildu.net

Sent: Mán 11. Ágú 2014 23:20
af Zedith
Sælir, einhver fengið Couchpotato-deildu til að virka í windows umhverfi?
Ég fæ allavega ekkert upp í torrent providers.

Sé að skrárnar í "couchpotato\core\media\movie\providers\torrent" eru á forminu awesomehd.py og svo awesomehd.pyc
Í zip skránni er bara main.py og _init_.py.

/Zedith

Re: Sickbeard Search Provider fyrir Deildu.net

Sent: Lau 09. Maí 2015 19:50
af capteinninn
Sælir.

Var að prófa að henda aftur upp Couchpotato en það virðist ekki virka með icetracker lengur.

Reyndi að prófa mig áfram en kann ekkert í python og það gekk ekki, fæ bara villu:

Kóði: Velja allt

ERROR[core.media._base.searcher] There aren't any providers enabled for your downloader (torrent,torrent_magnet). Check your settings.
Ég prófaði að copera IPTorrent providerinn og breyta öllum linkum (mad python skills) í icetracker.org eða undirsíður eftir því sem á við en þetta virðist ekki virka eins og er.

Undarlegt samt því að þessi villa bendir til þess að þetta sé ekki eitthvað að provider heldur að downloader en ég er að nota blackhole aðferðina