Síða 2 af 3

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Fös 14. Des 2012 12:15
af dori
Moldvarpan skrifaði:En hvernig á að leysa þetta? Gera Já gjaldþrota með að rífa af þeim gagnagrunninn tilbaka? Þeir keyptu þennan gagnagrunn á sínum tíma, fyrir ca. milljarð. Svo hefur þetta fyrirtæki vaxið, og viðskiptin aukist gríðarlega frá því þetta var keypt.
Já verður ekkert gjaldþrota ef þeir eiga ekki þennan gagnagrunn. Já er ennþá eigandi Já.is og er handhafi 118. Þetta fyrirtæki er að gera svo marga hluti rétt að það ætti ekki í neinum vandræðum með að vera í samkeppni við önnur fyrirtæki á þessum markaði.

Það eina sem myndi breytast er að þá væri ekki hægt að borga eigendum hundruð milljóna í arð (það er hægt að reka fyrirtæki, líka ung fyrirtæki eins og þetta, án þess).

Annars held ég að þó svo að það væri "best" að þessi gagnagrunnur væri alveg opinn að það myndi bara kosta miklu meiri pening fyrir skattborgara að ætla að gera þetta "hjá hinu opinbera". Hvaða stofnun ætti að sjá um hann? Er sú stofnun tilbúin í það álag sem því fylgir eða þyrfti að bæta við stöðugildum? Ég held það yrði flop.

Það ætti bara að loka þessari holu í lögunum og skikka Já.is til að rukka bara sanngjarnt verð fyrir uppflettingar.
GuðjónR skrifaði:Var ég að misskilja eitthvað í Kastljósi? var ekki sagt að þei borgðuð 1 milljón á ári í leigu til ríkissins fyrir afnot af þessum grunni? Veltan væri um 1000 milljónir og hagnaður yfir 250 milljónir á ári.
Það er fyrir númerið 118 skildist mér. Sem er náttúrulega skammarlega lítið.

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Fös 14. Des 2012 12:21
af Moldvarpan
GuðjónR skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:Þeir keyptu þennan gagnagrunn á sínum tíma, fyrir ca. milljarð. Svo hefur þetta fyrirtæki vaxið, og viðskiptin aukist gríðarlega frá því þetta var keypt.
Var ég að misskilja eitthvað í Kastljósi? var ekki sagt að þei borgðuð 1 milljón á ári í leigu til ríkissins fyrir afnot af þessum grunni? Veltan væri um 1000 milljónir og hagnaður yfir 250 milljónir á ári.

Nei, eins og ég sagði, þetta er allt á netinu.

http://www.siminn.is/um-simann/frettase ... tem154865/

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Fös 14. Des 2012 12:57
af starionturbo
Ekki hægt að rippa já.is ? gef því 50.000 requests.

þarf ekki nema 20 manna botnet til að scrape-a þetta á hálftíma.

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Fös 14. Des 2012 13:07
af tlord
símafélögin eiga bara að reka þennan basic grunn saman, kostnaður í sama hlutfalli og númer.

allir eiga að geta sótt í frítt hann með api.

þau eru nú þegar að reka svipaðan grunn með rétthafaupplýsingum

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Fös 14. Des 2012 13:53
af raRaRa
Þegar ég vann fyrir eitt fyrirtæki þá varð ég svo reiður vitandi þeir væru að borga fyrir hverja uppfléttingu. Ég endaði með því að skrifa custom http request á ja.is sem gerði nákvæmlega það sama frítt.

Önnur hobby hugmynd var að búa til botta sem myndu vinna saman við að dæla inn upplýsingum frá ja.is yfir á minn grunn :) Sú hugmynd fór ekki langt þar sem ég hafði lítinn tíma.
Kannski ætti maður að kíkja á það aftur.

Til að mótmæla ja.is þá lét ég fjarlægja öll símanúmer sem ég á.

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Fös 14. Des 2012 15:47
af raRaRa
Annars er ég mjög forvitinn, hvernig fengu ja.is leyfi til að birta símanúmer og aðrar persónulegar upplýsingar einstaklinga á vef sínum án þeirra samþykkis?

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Fös 14. Des 2012 17:10
af tlord
fólk gengur frá því hjá sínu símafélagi hvort það vill vera í símaskrá eða ekki. eða frekar þarf að óska eftir að vera EKKI í skránni. sum símafélög kalla þetta leyninúmer og rukka mánaðargjald fyrir að vera ekki í símaskrá, já, wtf hóst! voda hóst!

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Fös 14. Des 2012 17:16
af Haxdal
tlord skrifaði:sum símafélög kalla þetta leyninúmer og rukka mánaðargjald fyrir að vera ekki í símaskrá, já, wtf hóst! voda hóst!
:face
Leyninúmer virkar þannig að þegar þú hringir í einhvert annað númer þá fær viðkomandi númer ekki að vita símanúmerið þitt, m.ö.o. númeraleynd.. hefur ekkert með símaskránna að gera.
Fólk þarf að skrá sig sérstaklega í Símaskránna ef það vill það, símfélögin eru ekki að skófla upplýsingum í símaskránna án þess að vera beðin um það.

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Fös 14. Des 2012 17:23
af tlord
Haxdal skrifaði:
tlord skrifaði:sum símafélög kalla þetta leyninúmer og rukka mánaðargjald fyrir að vera ekki í símaskrá, já, wtf hóst! voda hóst!
:face
Leyninúmer virkar þannig að þegar þú hringir í einhvert annað númer þá fær viðkomandi númer ekki að vita símanúmerið þitt, m.ö.o. númeraleynd.. hefur ekkert með símaskránna að gera.
Fólk þarf að skrá sig sérstaklega í Símaskránna ef það vill það, símfélögin eru ekki að skófla upplýsingum í símaskránna án þess að vera beðin um það.

neibb þetta er ekkert m.ö.o. Leyninúmer og númeraleynd eru mismunandi vörur hjá þeim.

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Fös 14. Des 2012 17:28
af tdog
Búa til API við HÍN (hið íslenska númerafélag) og þá er þetta ekkert mál.

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Fös 14. Des 2012 17:50
af Haxdal
tlord skrifaði: neibb þetta er ekkert m.ö.o. Leyninúmer og númeraleynd eru mismunandi vörur hjá þeim.
Þetta er sami hluturinn, bara klúður hjá vefdeildinni hjá Vodafone..

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Fös 14. Des 2012 18:02
af tdog
Rangt, það er hægt að vera með leyninúmer (Private caller) og svo númeraleynd, s.s bara rauðmerkt símanúmer sem eru ekki skráð í símaskrá og þarf auðkeningu til þess að skoða í kerfum símafélaganna.

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Fös 14. Des 2012 18:11
af Haxdal
ég var nú að hringja í vodafone og fékk þar staðfest að þetta væri sama þjónustan svo ég væri nú ekki að fara með einhverjar fleipur :baby

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Fös 14. Des 2012 19:00
af urban
Haxdal skrifaði:ég var nú að hringja í vodafone og fékk þar staðfest að þetta væri sama þjónustan svo ég væri nú ekki að fara með einhverjar fleipur :baby
það breytir því nú samt ekki að ég get hringt í þig úr númeri sem að er ekki skráð á já.is (þar að leiðandi með númeraleynd)
en þú sérð samt alveg úr hvaða númeri ég er að hringja, þar sem að ég er ekki með leyninúmer.

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Fös 14. Des 2012 20:54
af Stuffz
varðandi taxtann sem þeir buðu samkeppnisaðilanum uppá þá fór ég að velta fyrir mér þar sem mér virtist taxtinn vera byggður á gengi dollarans, hve mikið af flettingum er selt erlendis og hverjir eru þá helst að kaupa svona upplýsingar?
Gislinn skrifaði:
intenz skrifaði: ...

En hvernig væri ef einhver tæki sig til og afritaði gagnagrunninn hjá Já.is? Svokallaður "Hrói Höttur" :megasmile
Ekki myndi ég nenna að halda þeim gagnagrunni up-to date. :guy
amm og yrði líka bara "counter-productive" hugmynd á endanum held ég :ninjasmiley

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Lau 15. Des 2012 00:33
af Benzmann
mér fyndist nú réttast að Póst-og fjarskiptastofnun sæji um þetta, og að við myndum fá 120kr í vasann okkar fyrir hverja uppfléttingu á okkar nafni eða símanúmeri

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Lau 15. Des 2012 01:38
af intenz
Stuffz skrifaði:varðandi taxtann sem þeir buðu samkeppnisaðilanum uppá þá fór ég að velta fyrir mér þar sem mér virtist taxtinn vera byggður á gengi dollarans, hve mikið af flettingum er selt erlendis og hverjir eru þá helst að kaupa svona upplýsingar?
Gislinn skrifaði:
intenz skrifaði: ...

En hvernig væri ef einhver tæki sig til og afritaði gagnagrunninn hjá Já.is? Svokallaður "Hrói Höttur" :megasmile
Ekki myndi ég nenna að halda þeim gagnagrunni up-to date. :guy
amm og yrði líka bara "counter-productive" hugmynd á endanum held ég :ninjasmiley
Ekki fundin væri einhver leið til að leyfa viðkomandi að breyta upplýsingum um sjálfan sig. T.d. senda viðkomandi staðfestingarkóða með skilo.is

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Lau 15. Des 2012 04:07
af intenz
starionturbo skrifaði:Opna open source gangrunn með rippaðann ja.is grunn sem base.
Bjóða svo uppá vefskráningu og breytingu tengda við rafræn skilríki.
win-win díll
Eða bara staðfestingarkóða á númer viðkomandi með skilo.is

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Sun 16. Des 2012 16:51
af raRaRa
Ætli það sé gegn lögum að búa til þjón sem skilar nafni eftir símanúmeri, sem bakvið tjöldin framkvæmir http request á http://ja.is" onclick="window.open(this.href);return false; og svo regex til að sækja nafnið?
Hver yrði þá kosturinn að borga ja.is fyrir þjónustu sem ég eða aðrir myndu bjóða frítt? ;)

Er fólk ekki annars að borga fyrir þessa þjónustu í ja.is appinu sem fléttir upp nafn eftir númeri? Það væri ótrúlega gaman að búa til fría samkeppni gegn ja.is með því að nota ja.is. Hvað geta þeir gert gegn því?

Ja.is gætu lokað á IP töluna sem framkvæmir öll þessi requests. Framhjá leið væri að láta client framkvæma request (í appinu a.m.k.).
Önnur leið væri að hafa stóran lista af proxy þjónum sem framkvæma request.

Hvað finnst ykkur? Ef þetta er löglegt þá mun ég pottþétt búa til open-source þjón (líklega skrifaður í .NET) sem fléttir upp nafn út frá númeri.

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Sun 16. Des 2012 16:54
af urban
raRaRa skrifaði:Ætli það sé gegn lögum að búa til þjón sem skilar nafni eftir símanúmeri, sem bakvið tjöldin framkvæmir http request á http://ja.is" onclick="window.open(this.href);return false; og svo regex til að sækja nafnið?

nú verð ég bara að spyrja.
afhverju að standa í þessu ?
og til hvers ?

semsagt hver er tilgangurinn ?

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Sun 16. Des 2012 16:56
af appel
Svo þegar einhver fjarlægir númerið sitt úr símaskránni, það uppfærist hjá Já.is... en kerfið þitt gerir ekki ráð fyrir því að menn geti afskrá sig, og þá er viðkomandi enn skráður hjá þér og kærir þig svo til yfirvalda fyrir að birta ólöglegar upplýsingar um sig.

Það er auðvelt að búa til svona símanúmeragagnagrunn... þetta er eitthvað sem er gert í "Forritun 101", en það er margt annað sem þarf að huga að sem þú veist ekki endilega um. T.d. er skyldur sem hvíla á herðum þeim sem birta slíkar símanúmeraupplýsingar opinberlega.

Auk þess held ég nú að Já.is endi á að kæra þig fyrir stuld á upplýsingum.

Þú græðir ekki neitt á þessu nema vandræði.

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Sun 16. Des 2012 16:59
af raRaRa
urban skrifaði:
raRaRa skrifaði:Ætli það sé gegn lögum að búa til þjón sem skilar nafni eftir símanúmeri, sem bakvið tjöldin framkvæmir http request á http://ja.is" onclick="window.open(this.href);return false; og svo regex til að sækja nafnið?
Hver yrði þá kosturinn að borga ja.is fyrir þjónustu sem ég eða aðrir myndu bjóða frítt? ;)

Er fólk ekki annars að borga fyrir þessa þjónustu í ja.is appinu sem fléttir upp nafn eftir númeri? Það væri ótrúlega gaman að búa til fría samkeppni gegn ja.is með því að nota ja.is. Hvað geta þeir gert gegn því?

Ja.is gætu lokað á IP töluna sem framkvæmir öll þessi requests. Framhjá leið væri að láta client framkvæma request (í appinu a.m.k.).
Önnur leið væri að hafa stóran lista af proxy þjónum sem framkvæma request.

Hvað finnst ykkur? Ef þetta er löglegt þá mun ég pottþétt búa til open-source þjón (líklega skrifaður í .NET) sem fléttir upp nafn út frá númeri.
nú verð ég bara að spyrja.
afhverju að standa í þessu ?
og til hvers ?

semsagt hver er tilgangurinn ?
Tilgangurinn væri að bjóða landsmönnum fría þjónustu til að sækja upplýsingar frá ja.is og þrýsta á ja.is að hafa þessa þjónustu fría.

Hvað væri hægt að gera með þessa þjónustu? T.d. búa til frítt app fyrir Android/iOS sem sækir nafn út frá símanúmeri sem er ekki skráð í símanum.

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Sun 16. Des 2012 17:00
af appel
raRaRa skrifaði:

Þú mátt alveg vinna verkefni fyrir mig ókeypis.

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Sun 16. Des 2012 17:01
af raRaRa
appel skrifaði:Svo þegar einhver fjarlægir númerið sitt úr símaskránni, það uppfærist hjá Já.is... en kerfið þitt gerir ekki ráð fyrir því að menn geti afskrá sig, og þá er viðkomandi enn skráður hjá þér og kærir þig svo til yfirvalda fyrir að birta ólöglegar upplýsingar um sig.

Það er auðvelt að búa til svona símanúmeragagnagrunn... þetta er eitthvað sem er gert í "Forritun 101", en það er margt annað sem þarf að huga að sem þú veist ekki endilega um. T.d. er skyldur sem hvíla á herðum þeim sem birta slíkar símanúmeraupplýsingar opinberlega.

Auk þess held ég nú að Já.is endi á að kæra þig fyrir stuld á upplýsingum.

Þú græðir ekki neitt á þessu nema vandræði.
Nei, ég er að tala um að þjónninn myndi senda http request á ja.is og sækja upplýsingarnar en ekki vista þær. Og jafnvel ef það yrði vandamál þá gæti þetta verið 100% client based án þess að þurfa þjón bakvið tjöldin.

(Breytt, bætti við nánari skýringu):

Til að hafa þetta á hreinu:

Notandi fléttir upp símanúmerið xxx-xxxx
Þjónninn sendir venjulegt http request á ja.is (allveg eins og ef þú opnar http://ja.is" onclick="window.open(this.href);return false; og leitar eftir númeri). Svo skoðar þjónninn gögnin sem hann fékk til baka frá ja.is og skilar svo nafninu.

Þarna erum við að tala um að nota ja.is til að sækja gögnin og ef einhver lætur fjarlægja sig frá ja.is þá myndi hann ekki koma fram frá þjóninum.

Annað dæmi sem snýst ekki um að nota þjón, sem yrði að vera gert í forriti/app:
Notandi fléttir upp númerið xxx-xxxx
Forritið á tölvu viðkomandi sendir venjulegt http request á ja.is (og gerir það sama og þjónninn gerði).

Re: Já.is og einokun þeirra á markaðinum

Sent: Sun 16. Des 2012 17:12
af Moldvarpan
En finnst ykkur 230 milljónir í hagnað á ársgrundvelli svona rosalega miklir peningar, þegar þið takið tillit til stærðar Já, þeir eru með milli 100-150 manns í vinnu. Margt annað í samfélaginu að skila eigendum MUN meiri hagnaði.

Það er 1/4 af upphæðinni sem eigendurnir notuðu til að kaupa Já á sínum tíma.

Já er frekar dýr þjónusta, en þeir bjóða líka fólki að nota hana frítt, t.d. á netinu. Eitt mánaðargjald fyrir appið, og þú færð öll númer beint í símann. Þetta mánaðargjald er álíka eins og hringja einu sinni í 118 til að fá upplýsingar.

Það er markmið flestra sem koma nýjir á markað að bjóða betri verð en keppinauturinn, en svo þegar á hólminn er komið, þá snýst reksturinn um hagnað.