Síða 2 af 5
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....
Sent: Mið 17. Okt 2012 23:26
af Yawnk
Kjáni skrifaði:Yawnk skrifaði:Held ég geri þetta nú ekki, hef ekki snert aflgjafa áður, og miðað við það sem Garri sagði hér áðan að ég gæti skemmt eitthvað, kannski betra að kunna þetta amk 10% áður en maður fer í þetta
maður kann þetta aldrei fyrir en maður prófar
Hehehe já, en þú gætir alveg eins líkt þessu við eitthvern sem hefur aldrei keyrt bíl áður og þú bara hendur honum inn í bílinn og segir keyrðu, maður kann það ekki fyrr en maður prófar!
Orðið vel seint núna, væri bara vesen að gera þetta ef hann slær út eða vesen.
Skaðar svosem engan að skutlast í Tölvutek með hann bara, ætla að gera það.
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....
Sent: Mið 17. Okt 2012 23:46
af Hnykill
haha shit ! ..þú ert einn óheppinn náungi verð ég bara að segja
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....
Sent: Mið 17. Okt 2012 23:50
af Yawnk
Hnykill skrifaði:haha shit ! ..þú ert einn óheppinn náungi verð ég bara að segja
Heh, já finnst þér ekki... þetta er hryllingur! ;(
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....
Sent: Mið 17. Okt 2012 23:53
af DerrickM
Yawnk skrifaði:Hnykill skrifaði:haha shit ! ..þú ert einn óheppinn náungi verð ég bara að segja
Heh, já finnst þér ekki... þetta er hryllingur! ;(
Vona að þetta fari vel hjá þér, örugglega fáránlega leiðinlegt að lenda í þessu
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....
Sent: Fim 18. Okt 2012 00:28
af Garri
Mætti ég voga mér að spyrja hvernig þú veist fyrir víst að það er aflgjafinn sem er farinn?
Öryggi í töflu getur slegið út. Ég er með tveggja fasa öryggi sem oft eru að slá út, jafnvel bara þegar pínulítil síma hleðslutæki eru sett í samband. Öryggin orðin slöpp og þola lítið eða illa spennufall.
Það gæti alveg eins verið allt í lagi með aflgjafann og tölvuna.. slærð örygginu inn aftur og prófar að kveikja á tölvunni. Í versta falli kveikir hún ekki á sér eða slær út örygginu aftur, hafðu bara slökkt á öðrum tækjum þegar þú prufar.
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....
Sent: Fim 18. Okt 2012 07:14
af Yawnk
Garri skrifaði:Mætti ég voga mér að spyrja hvernig þú veist fyrir víst að það er aflgjafinn sem er farinn?
Öryggi í töflu getur slegið út. Ég er með tveggja fasa öryggi sem oft eru að slá út, jafnvel bara þegar pínulítil síma hleðslutæki eru sett í samband. Öryggin orðin slöpp og þola lítið eða illa spennufall.
Það gæti alveg eins verið allt í lagi með aflgjafann og tölvuna.. slærð örygginu inn aftur og prófar að kveikja á tölvunni. Í versta falli kveikir hún ekki á sér eða slær út örygginu aftur, hafðu bara slökkt á öðrum tækjum þegar þú prufar.
Ég veit það nú ekki fyrir víst, en það er besta ágiskunin, ef það slær allt í einu út bara í mínu herbergi þar sem var bara kveikt á tölvunni, engu öðru, hvað annað ætti þetta að vera?
Svo er ég alveg handviss að ég hafi heyrt skrítið hljóð úr tölvunni rétt áður en þetta gerðist, en ég get ekki verið viss, svo vil ég nú helst ekki fara að reyna að starta tölvunni með mögulega - ónýtum aflgjafa.
Og því að ég hef lent í þessu áður með einmitt þessa vél, þá tek ég enga sjénsa.
Better safe then sorry!
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....
Sent: Fim 18. Okt 2012 07:58
af Yawnk
Eða kannski er það rétt hjá þér... þetta gæti jafnvel sparað mér ferð upp í Tölvutek, en er virkilega þorandi að prófa aflgjafa sem gæti verið ónýtur? gæti hann ekki skemmt út frá sér?
Er nóg bara að tengja hann bara við móðurborðið með 20+4 power kaplinum, og svo í rafmagn?
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....
Sent: Fim 18. Okt 2012 08:38
af Moldvarpan
Ég er fékk mér Thermaltake Toughpower XT 675w, í tölvutækni fyrir rúmu ári síðan. Virkilega þægilegur og vandaður aflgjafi.
Það hefur alveg slegið út rafmagnið í herberginu, þegar ég var að nota 470GTX og síðan 580GTX. Greinin í herberginu hjá mér rétt ræður við öflug skjákort. En aldrei hefur það skemmt aflgjafa hjá mér.
En það væri gaman að heyra í starfsmönnum tölvutek, eru þessir Thermaltake Smart með svona gríðarlega háa bilanatíðni?
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....
Sent: Fim 18. Okt 2012 08:44
af Moldvarpan
Yawnk skrifaði:Eða kannski er það rétt hjá þér... þetta gæti jafnvel sparað mér ferð upp í Tölvutek, en er virkilega þorandi að prófa aflgjafa sem gæti verið ónýtur? gæti hann ekki skemmt út frá sér?
Er nóg bara að tengja hann bara við móðurborðið með 20+4 power kaplinum, og svo í rafmagn?
Þetta er frekar einfalt,
http://www.youtube.com/watch?v=VXzrCr0RLm4
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=20&t=40922 - Þetta er þráðurinn þegar minn dó.
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....
Sent: Fim 18. Okt 2012 10:36
af Klemmi
Yawnk skrifaði:Svo er ég alveg handviss að ég hafi heyrt skrítið hljóð úr tölvunni rétt áður en þetta gerðist, en ég get ekki verið viss
Uppáhalds setningin mín í dag
En annars skil ég vel að þú sért orðinn þreyttur á þessum aflgjöfum ef þetta er sá þriðji í röðinni sem er að deyja. Ég veit það þó fyrir víst að Thermaltake vörurnar eru almennt ekki drasl.
Við höfum hrúgað út Thermaltake aflgjöfum, bæði ódýrum og dýrum línum og hafa þeir reynst okkur ótrúlega vel. Jafn vel það vel að við þorum að hafa ódýran og ómerkilegan 430W Thermaltake aflgjafa í servernum hjá okkur
Annars höfum við ekki verið með Smart-línuna, svo ég get ekki talað af neinni reynslu þar.
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....
Sent: Fim 18. Okt 2012 14:08
af Yawnk
Klemmi skrifaði:Yawnk skrifaði:Svo er ég alveg handviss að ég hafi heyrt skrítið hljóð úr tölvunni rétt áður en þetta gerðist, en ég get ekki verið viss
Uppáhalds setningin mín í dag
En annars skil ég vel að þú sért orðinn þreyttur á þessum aflgjöfum ef þetta er sá þriðji í röðinni sem er að deyja. Ég veit það þó fyrir víst að Thermaltake vörurnar eru almennt ekki drasl.
Við höfum hrúgað út Thermaltake aflgjöfum, bæði ódýrum og dýrum línum og hafa þeir reynst okkur ótrúlega vel. Jafn vel það vel að við þorum að hafa ódýran og ómerkilegan 430W Thermaltake aflgjafa í servernum hjá okkur
Annars höfum við ekki verið með Smart-línuna, svo ég get ekki talað af neinni reynslu þar.
Hahaha! er að lesa þetta yfir aftur og ég hló
var svolítil þreyta í manni kannski
Ég fékk svar frá einum hér, man ekki hver það var sem sagði : Ef það heitir eitthvað í líkingu við ''Smart'' þá áttu yfirleitt að forðast það!
Lagði ekki í að reyna að ræsa hann sjálfur, læt frekar Tölvutek um það bara, ætla að fara í dag.
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....
Sent: Fim 18. Okt 2012 16:12
af Yawnk
Jæja! Fór með hann í Tölvutek og þeir athuguðu hann á staðnum.
Það reyndist ekkert vera að aflgjafanum, og hann er í notkun núna í þessari sömu vél.... Þetta skil ég bara ekki...
Það eina sem var í gangi í herberginu þegar það sló út í gær, var tölvan, hátalarar, skjár og lítill borðlampi, það er ekkert annað í stöðunni en að það hafi verið aflgjafinn að verki, samt virkar hann eins og nýr?
Allaveganna, þetta var ágætt að hann hafði ekki skemmst, og ég vona að hann geri það ekki í framtíðinni.. hætt'su thermaltake! hræðir mig svo!
Svo langar mig líka að vita hver er munurinn á mínum :
http://tolvutek.is/vara/thermaltake-sma ... 20mm-vifta" onclick="window.open(this.href);return false; - Thermaltake Smart 730W (Minn)
Og þessum tveimur :
http://tolvutek.is/vara/thermaltake-st- ... 20mm-vifta" onclick="window.open(this.href);return false;
http://tolvutek.is/vara/thermaltake-tou ... 40mm-vifta" onclick="window.open(this.href);return false;
Samt er þetta allt nærrum 750W, afhverju er 10.000kr munur? (Ég veit að wattastærð er ekki allt, en samt)
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart -Le
Sent: Fim 18. Okt 2012 16:26
af Jimmy
Er herbergið þitt það eina sem er á þessari grein?
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart -Le
Sent: Fim 18. Okt 2012 16:27
af Yawnk
Jimmy skrifaði:Er herbergið þitt það eina sem er á þessari grein?
Já, sér öryggi fyrir öll herbergin.
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart....
Sent: Fim 18. Okt 2012 16:33
af Eiiki
Nýtnin aðallega. Svo er þessi á 30k sennilega að skila einhverjum fallegum amperfjölda út á stærstu greinarnar sbr mynd:
60Amper á 12v greinina og 25amper á 5v og 3.3v. Það er nú alveg ágætt
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart -Le
Sent: Lau 20. Okt 2012 01:19
af Yawnk
Nei hvur andskotinn! nú sló hann út aftur fyrir um það bil 2 mín, bara í mínu herbergi eins og fyrra atvikið.
Kveikti bara aftur á vélinni og allt í gúddí... er þetta eðlilegt?
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart -Le
Sent: Lau 20. Okt 2012 01:33
af playman
Það hlítur að vera eithvað að rafmagninu hjá þér.
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart -Le
Sent: Lau 20. Okt 2012 01:38
af Yawnk
playman skrifaði:Það hlítur að vera eithvað að rafmagninu hjá þér.
Afhverju segirðu það? ég bara spyr..
Miðað við að ég hef haft miklu meira load á þessari grein, get til dæmis nefnt það að eitt skipti var ég með 3 tölvur á sömu greininni í nokkra daga, og ekkert svona gerðist, það er ekkert að rafmagninu hér..
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart -Le
Sent: Lau 20. Okt 2012 01:39
af vesley
Yawnk skrifaði:playman skrifaði:Það hlítur að vera eithvað að rafmagninu hjá þér.
Afhverju segirðu það? ég bara spyr..
Miðað við að ég hef haft miklu meira load á þessari grein, get til dæmis nefnt það að eitt skipti var ég með 3 tölvur á sömu greininni í nokkra daga, og ekkert svona gerðist, það er ekkert að rafmagninu hér..
Tengdu tölvuna við annað öryggi.
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart -Le
Sent: Lau 20. Okt 2012 03:38
af Hnykill
Jæja .. verð bara segja það.. það er ekkert að tölvunni þinni né aflgjafanum, það eru einhverjar sveiflur í rafmaginu hjá þér ! 3x aflgjafar að fara í röð eða straumurinn er ekki alveg í lagi hjá þér ??
Það er eitthvað í ólagi með strauminn hjá þér drengur.. þetta er ekkert "aflgjafinn" eða Thermaltake að kenna.. það er eitthvað ekki í lagi með rafmagnið hjá þér strákur.. ekkert meira en það !
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart -Le
Sent: Lau 20. Okt 2012 09:26
af vesi
er ekki málið að fá sér góðann vara-aflgjafa sem tekur þetta spennufall/topp af greinini hjá þér..
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart -Le
Sent: Lau 20. Okt 2012 12:07
af Yawnk
Skaðar ekki að athuga, skal tengja vélina við aðra grein.
Svona fjöltengi með ''Surge protector'' er það eitthvað sem gagnast?
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart -Le
Sent: Lau 20. Okt 2012 12:53
af Squinchy
Hvernig rafkerfi er í húsinu þínu? (er jarðtenging í lagi eða jarðtenging yfirhöfuð, er 1 öryggi per grein eða 2?)
í hvaða hverfi ertu?
hvað er öryggið mörg A og hvað er það gamalt (sirka/eða gefa upp brand name/taka mynd af því og posta)
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart -Le
Sent: Lau 20. Okt 2012 13:05
af Moldvarpan
Eins og ég sagði fyrr í þræðinum, að þá er t.d. greinin sem ég hef tölvuna hjá mér á, mjög tæp þegar ég er með öflug skjákort í tölvunni.
Þá er oft nóg að stinga hleðslutæki í eða úr sambandi, í herberginu við hliðiná, sem er á sömu grein, og þá slær út.
En þegar AXP aflgjafinn dó, þá sló ekki út. Það var bara í miðjum leik sem hann dó.
Bara deila minni reynslu á útslætti heh
Re: Nú fer ég að vera vitlaus.... Thermaltake 730w Smart -Le
Sent: Lau 20. Okt 2012 13:15
af Yawnk
Squinchy skrifaði:Hvernig rafkerfi er í húsinu þínu? (er jarðtenging í lagi eða jarðtenging yfirhöfuð, er 1 öryggi per grein eða 2?)
í hvaða hverfi ertu?
hvað er öryggið mörg A og hvað er það gamalt (sirka/eða gefa upp brand name/taka mynd af því og posta)
Auðvitað er jarðtenging, og hún er í gúddí.
Það eru 3 herbergi + salerni á hæðinni sem ég er á, það er 1 10A öryggi fyrir mitt herbergi og eitt annað herbergi, sem aldrei er notað ( s.s aldrei neitt meira í sambandi heldur en lampi = safnaraherbergi )
Ég er í Reykjavík 104 á Langholtsveginum.
Öryggin eru standard 10A, pæling að fara í 13?
Það var skipt um allt heila klabbið hér fyrir kannski 10-15 árum.