Síða 2 af 3

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Sun 26. Ágú 2012 13:34
af BjarniTS
Ég er sammála með MS Hemmi.

En þessar kröfur eru auðvitað mjög hrokafullar vissulega en þeir þurfa líka að hafa beitt vopn í höndunum ef að þeir ætla að mæta framleiðanda eins og Samsung.
En eftir að hafa skoðað þetta betur , horft á fréttaumfjallanir og slíkt þá sé ég að þetta er ótrúlega þungt mál
Verið að skima einhver skjöl í málinu og manni dettur í hug svona leiðinlegar þrætur sem maður þarf stundum að standa í við fólk. Ég ætla samt að skjóta á að þetta sé langt frá því að vera búið. Það mun verða jarðskjálfti á farsímamarkaðnum ef að Samsung mun þurfa að hætta sölu á flaggskipunum sínum.

En við skulum horfa á Tim , hann viðurkennir alveg að þetta meingallað.
http://www.youtube.com/watch?v=bgdQJZjeF0E" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Sun 26. Ágú 2012 15:36
af audiophile
Djöfull hata ég þetta ógeðslega einkaleyfa drasl. Að geta átt einkaleyfi á hlut sem er ferkantaður með rúnuðum hornum er bara þroskaheft.

Ég hata líka Apple fyrir að vera gráðugir fávitar. Ég hef aldrei átt Apple vöru um ævina og þetta stimplar enn frekar að ég mun aldrei kaupa Apple vöru. Ég myndi segja að að ég ætli aldrei að gefa Apple einn einasta aur, en það er búið að eyðileggja það núna þar sem flestir framleiðendur þurfa að moka pening til apple fyrir að geta leyft notendum sínum að zomma inn á mynd með puttunum. ](*,)

:thumbsd

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Sun 26. Ágú 2012 15:43
af BjarniTS
audiophile skrifaði:Djöfull hata ég þetta ógeðslega einkaleyfa drasl. Að geta átt einkaleyfi á hlut sem er ferkantaður með rúnuðum hornum er bara þroskaheft.

Svona viðhorf hjálpar held ég voða lítið. Örugglega betra ef að þú myndir bara kynna þér hvað er um að vera. Þegar að þjófur er dæmdur fyrir vopnað rán þá færir þú seint að sakast við búðina sem hann rændi er það ?
Það er fyrst og fremst kerfið sem er ónýtt og þarfnast endurbóta.
Hvort að þú munt njóta þess að eiga Apple vöru um ævina eða ekki hefur engin mælanleg áhrif á málið. Þú værir í mesta lagi að gera sjálfum þér illt með að neyta þér um lífsgæði , en þetta væri svosem ekki ósvipað konsept og hungurverkfall.
http://9gag.com/gag/5170609" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Sun 26. Ágú 2012 16:02
af Gúrú
BjarniTS skrifaði:Þú værir í mesta lagi að gera sjálfum þér illt með að neyta þér um lífsgæði
Með sömu lógík er fásinna að halda ekki þræla og láta ekki myrða fólk sem að pirrar þig.

Mjög siðblind lógík.

Ég versla ekki Apple vörur vegna þess að þeir nýta sér barnaþrælkun talsvert of mikið fyrir minn smekk og það eru aðrir möguleikar í boði sem gera það ekki.
Á sama hátt versla ég ekki við Buy.is vegna þess að ég er ekki handviss um að það fyrirtæki borgi skatta eins og hinir möguleikarnir gera.

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Sun 26. Ágú 2012 16:11
af Minuz1
BjarniTS skrifaði:
audiophile skrifaði:Djöfull hata ég þetta ógeðslega einkaleyfa drasl. Að geta átt einkaleyfi á hlut sem er ferkantaður með rúnuðum hornum er bara þroskaheft.

Ég hata líka Apple fyrir að vera gráðugir fávitar. Ég hef aldrei átt Apple vöru um ævina og þetta stimplar enn frekar að ég mun aldrei kaupa Apple vöru. Ég myndi segja að að ég ætli aldrei að gefa Apple einn einasta aur, en það er búið að eyðileggja það núna þar sem flestir framleiðendur þurfa að moka pening til apple fyrir að geta leyft notendum sínum að zomma inn á mynd með puttunum. ](*,)

:thumbsd
Svona viðhorf hjálpar held ég voða lítið. Örugglega betra ef að þú myndir bara kynna þér hvað er um að vera. Þegar að þjófur er dæmdur fyrir vopnað rán þá færir þú seint að sakast við búðina sem hann rændi er það ?
Það er fyrst og fremst kerfið sem er ónýtt og þarfnast endurbóta.
Hvort að þú munt njóta þess að eiga Apple vöru um ævina eða ekki hefur engin mælanleg áhrif á málið. Þú værir í mesta lagi að gera sjálfum þér illt með að neyta þér um lífsgæði , en þetta væri svosem ekki ósvipað konsept og hungurverkfall.
http://9gag.com/gag/5170609" onclick="window.open(this.href);return false;
Þú ert að bera saman epli og appelsínur.

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Sun 26. Ágú 2012 16:43
af audiophile
Neyta mér um lífsgæði? Er ekki í lagi?

Apple er ekki með neina voru til sölu sem bætir lífsgæði mín framyfir eitthvað annað á markaðnum. Þeir eru að hægja á framför og koma illa við neytendur með hækkuðum verðum. Auðvitað er ekki hægt að ásaka Apple fullkomlega fyrir það heldur meingallað einkaleyfakerfi þar sem stórfyrirtæki kemur komið í veg fyrir að aðrir geti smellt tvisvar á skjá til að zooma á mynd. Hvað heldur þú að yrði sagt ef einhver fengi einkaleyfi yfir að tvísmella með mús á ljósmynd í tölvu?

Ég er persónulega enginn Samsung áhugamaður frekar en Apple maður enda á ég vörur frá hvorugu fyrirtæki, en mér er mikið sama um hvaða víðtæku áhrif þetta hefur á Google, Android og almennt allt sem viðkemur óvissri framtíð snjallsíma í heild sinni.

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Sun 26. Ágú 2012 16:55
af Revenant
Það sem er fyndnast í öllu þessu er að Apple kaupir stóran hluta af íhlutum í iPhone og iPad af Samsung.

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Sun 26. Ágú 2012 17:03
af rapport
Það sem mér finnst rangt við þetta er að það sé hægt að takmarka/hindra notkun á einhverri "sköpun".

Ég elska t.d. söguna um Hendrix og Dylan um lagið All along the watchtower...
Dylan has described his reaction to hearing Hendrix's version: "It overwhelmed me, really. He had such talent, he could find things inside a song and vigorously develop them. He found things that other people wouldn't think of finding in there. He probably improved upon it by the spaces he was using.
Eins og Dylan söng lagið þá var það helvíti gott...

http://www.youtube.com/watch?v=YanjY9Cs ... re=related" onclick="window.open(this.href);return false;

http://www.youtube.com/watch?v=BzanOzyqgas" onclick="window.open(this.href);return false;

En Hendrix gjörsamlega ownaði það...

http://www.youtube.com/watch?v=n2bYJQFQ ... re=related" onclick="window.open(this.href);return false;

Einkaleyfi ættu ekki að takmarka sköpun heldur hvetja til sköpunar og hver sem er ætti að geta notað sköpun einhvers annars en að sjálfsögðu með því að greiða tribute...

Ef Samsung á að greiða $1.000.000.000 þá er það eingöngu eðlilegt ef að þeir hafa grætt $100.000.000.000 eða meira á að nota einkaleyfi Apple.

Ef ekki, þá er þetta mjög óréttlátur dómur.

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Sun 26. Ágú 2012 17:05
af beatmaster
Hérna er mjög áhugaverður punktur um þetta

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Sun 26. Ágú 2012 18:11
af skoffin
BjarniTS skrifaði:...Þessi lög um einkarétt ýta undir nýsköpun , framför og kappsemi.
Það er langt síðan þau hættu að gera það.

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Sun 26. Ágú 2012 21:23
af dori
BjarniTS skrifaði:Þessi lög um einkarétt ýta undir nýsköpun , framför og kappsemi.
Rangt, svo rangt. Einkaleyfi eru steypa sem ætti að henda. Sérstaklega þegar einkaleyfin sem um er að ræða eru jafn augljós og þessi. Það er alveg nægur hvati fyrir nýsköpun að einkaleyfi á bara ekki að þurfa. Þau kosta samfélagið bara allt of mikið.
skoffin skrifaði:
BjarniTS skrifaði:...Þessi lög um einkarétt ýta undir nýsköpun , framför og kappsemi.
Það er langt síðan þau hættu að gera það.
Ég er nokkuð viss um að þau hafi aldrei gert það. Nettó hafa þau, miðað við allar upplýsingar sem ég hef lesið, kostað samfélagið peninga og/eða hægt á framförum. Þeir sem hafa rök með einkaleyfum eru yfirleitt með rökin "I made this and therefore deserve moneys".

Fyrsta einkaleyfið var gefið út á 15 öld í Bretlandi á steindu gleri. Það var gert til að lokka handverksmenn frá öðrum Evrópulöndum og virðist alveg hafa verið gert með þeirri vitund að það væri slæmt en í þessu tilfelli skárra en að hafa enga sem geta gert töffaralega steinda glugga fyrir einhverja snobbbyggingu. Svo er helsta dæmið um einkaleyfis-success sem þeir sem eru með þessu benda á, gufuvélin hans Watt, eitthvað sem hægði á iðnbylgingunni um 20 ár. Ég myndi segja að það væri ekki great success.

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Sun 26. Ágú 2012 21:33
af skoffin
Kerfið á að hvetja þá sem finna eitthvað upp til að segja frá uppfinningunni, frekar en að fela hana. Sú hugmynd er ekkert slæm. En þegar þú getur fengið einkaleyfi á allskonar illa skilgreindu bulli og það fer meiri tími í að ganga úr skugga um að uppfinningin þín brjóti engin einkaleyfi en fór í uppfinninguna sjálfa, þá byrjar þetta að vera rugl. Svo versnar það.

http://www.google.com/patents/US4022227" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Sun 26. Ágú 2012 22:40
af audiophile
beatmaster skrifaði:Hérna er mjög áhugaverður punktur um þetta
Spurning hversu sönn þessi frásögn er, en það er samt ekki hægt að neyta að þetta hefur vakið athygli fólks.

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Sun 26. Ágú 2012 22:55
af intenz
Revenant skrifaði:Það sem er fyndnast í öllu þessu er að Apple kaupir stóran hluta af íhlutum í iPhone og iPad af Samsung.
Já og ég vona að þeim samningi verði rift - af Samsung.

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Mán 27. Ágú 2012 09:44
af audiophile
intenz skrifaði:
Revenant skrifaði:Það sem er fyndnast í öllu þessu er að Apple kaupir stóran hluta af íhlutum í iPhone og iPad af Samsung.
Já og ég vona að þeim samningi verði rift - af Samsung.
Það verður ekki gert. Þetta er sér eining innan Samsung samsteypunnar og eins og staðan er í dag berjast menn um að fá að framleiða íhluti fyrir Apple enda er það einn stærsti kaupandi í heimi. Þetta er gullnáma fyrir Samsung.

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Mán 27. Ágú 2012 15:09
af Fletch
Þó að sum af þessum claims hjá apple séu valid þá segir þetta manni meira um hvað einkaleyfa kerfið er orðið spillt/vitlaust

ef það væri verið að þróa bíla í fyrsta skipti í dag, væri hægt að fá einkaleyfi fyrir því að hann væri með 4 hjól? og að hjólin væru öll kringlótt?

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Mán 27. Ágú 2012 18:05
af codec
Einkaleyfa dæmið allt er komið út í rugl.

Ég bara legg þetta hér og bakka hægt út áður en allt springur:

Fyrst er það Video sem sýnir Videoplace (Myron Krueger) sem notar gestures og multi touch í tölvum, video frá 1988
http://www.youtube.com/watch?v=dmmxVA5xhuo" onclick="window.open(this.href);return false;
Hann notar m.a. pinch til að scala hluti upp og niður.
Mynd

Svo er þessi grein hér ágæt, reyndar skrifað af manni sem vinnur hjá Microsoft Reasearch, en Research deildin er langsamlega skásti hluti þess fyrirtækis:
Multi-touch technologies have a long history. To put it in perspective, my group at the University of Toronto was working on multi-touchin 1984 (Lee, Buxton & Smith, 1985), the same year that the first Macintosh computer was released, and we were not the first. Furthermore, during the development of the iPhone, Apple was very much aware of the history of multi-touch, dating at least back to 1982, and the use of the pinch gesture, dating back to 1983. This is clearly demonstrated by the bibliography of the PhD thesis of Wayne Westerman, co-founder of FingerWorks, a company that Apple acquired early in 2005, and now an Apple employee

In making this statement about their awareness of past work, I am not criticizing Westerman, the iPhone, or Apple. It is simply good practice and good scholarship to know the literature and do one's homework when embarking on a new product. What I am pointing out, however, is that "new" technologies - like multi-touch - do not grow out of a vacuum. While marketing tends to like the "great invention" story, real innovation rarely works that way. In short, the evolution of multi-touch is a text-book example of what I call "the long-nose of innovation."
Tekið héðan http://www.billbuxton.com/multitouchOverview.html" onclick="window.open(this.href);return false; , skemmtilegt að skoða gömlu tæknina sem hann fjallar í neðri hlutanum af síðunni.

Það sem ég tek úr þessu er að tækni eins og Apple kynnti með iPhone á sínum tíma er ekki sjálfsprottin úr huga Jobs eða lærisveina hans heldur afrakstur áralangrar þróunar og rannsókna margra aðila m.a. í academíuni (háskólum). Þetta er alls ekki einsdæmi og á við öll þessi fyrirtæki apple, microsoft, google og hvað þau heita, "they all stand on the shoulder of giants" ef svo má segja. Er því er von maður spyrji sig hvort það sé réttlætanlegt að stórfyrirtæki fá breið einkleyfi sem byggja á slíkri tækni og hugmyndum (að hluta til að minnstakosti) og raki inn milljörðum á því?

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Mán 27. Ágú 2012 22:38
af beatmaster
Meira sniðugt...

http://gizmodo.com/5938219/why-the-appl ... socialflow" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Mán 27. Ágú 2012 22:52
af ORION
Fokk nú verða intel kærðir fyrir að hafa i á undan nafninu....

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Mán 27. Ágú 2012 23:56
af tdog
ORION skrifaði:Fokk nú verða intel kærðir fyrir að hafa i á undan nafninu....
Hvernig væri nú að halda þessari umræðu á hærra plani...

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Þri 28. Ágú 2012 00:27
af skoffin
tdog skrifaði:
ORION skrifaði:Fokk nú verða intel kærðir fyrir að hafa i á undan nafninu....
Hvernig væri nú að halda þessari umræðu á hærra plani...
Er þetta ekki bara á pari við réttarhöldin?

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Þri 28. Ágú 2012 00:40
af g0tlife
komu ekki Nokia með fyrsta snjallsímann á markaðinn ? Geta þeir ekki kært alla ..

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Þri 28. Ágú 2012 02:48
af Fridvin
Eitthvað Kyocera rusl var fyrsti "smarthphone-inn" í bandaríkjunum.. næsta lína var svolítið skemmtilegri.
In 2004, HP released the iPaq h6315, a device that combined their previous PDA, the HP 2215 with cellular capability
Nokia N95 var fyrsti síminn sem sameinaði þetta sem við þekkjum í dag í flestum símum.

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Þri 28. Ágú 2012 12:10
af Rúnar

Re: Réttarhaldadrama Samsung og Apple - skaðabætur

Sent: Mið 29. Ágú 2012 14:00
af jericho
Fengið af Reddit (ég gat ekki annað en hlegið):

Apple's legal team
Mynd