Síða 2 af 2

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Mið 29. Ágú 2012 19:03
af Revenant
Ég ætla að mæla með Vodafone, hef ekki lent í vandræðum hjá þeim.
Það sem er líka plús við þá að þeir eru með sinn eiginn youtube spegil, þ.a. youtube gláp telst (oftast) ekki til niðurhals.

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Mið 29. Ágú 2012 19:06
af Jimmy
Þá að máli málanna, hvaða router á maður að fá sér?

Netgear WNDR4500 ?
WD My Net N900 ?

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Mið 29. Ágú 2012 20:43
af J1nX
ég gleymdi alveg að spurja þá hjá Hringdu að þessu, fylgir router með ljósleiðaratengingunni eða ætlast þeir til þess að maður tengi beint í boxið? ef það fylgir með router, er þá eitthvað varið í hann eða ætti maður að kaupa sér nýjan?

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Mið 29. Ágú 2012 20:48
af Gúrú
J1nX skrifaði:ég gleymdi alveg að spurja þá hjá Hringdu að þessu, fylgir router með ljósleiðaratengingunni eða ætlast þeir til þess að maður tengi beint í boxið? ef það fylgir með router, er þá eitthvað varið í hann eða ætti maður að kaupa sér nýjan?
Þeir selja routera. Leigja þá ekki.

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Mið 29. Ágú 2012 20:55
af Moquai
Ég var upprunalega hjá hringdu, með 100mb/s -> 250GB. Og það var áán efa mesta sull sem ég hefði keypt mér.

En hef ekki lent núna í veseni í måske 4-5 mánuði.

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Mið 29. Ágú 2012 20:59
af Gúrú
Moquai skrifaði:En hef ekki lent núna í veseni í måske 4-5 mánuði.
Hjá Hringdu semsagt? Hef verið að íhuga það að skipta.

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Mið 29. Ágú 2012 21:07
af Moquai
Gúrú skrifaði:
Moquai skrifaði:En hef ekki lent núna í veseni í måske 4-5 mánuði.
Hjá Hringdu semsagt? Hef verið að íhuga það að skipta.
Já.

Ef þetta heldur áfram eins og þetta er hjá mér núna þá mæli ég alveg 100% með þessu, en ég verð að viðurkenna að ég treysti þeim ekki aaalveg. Þar sem þetta var í algjöru fucki.

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Mið 29. Ágú 2012 21:09
af J1nX
maður er þá ekkert skyldugur til að kaupa router af þeim eða? hafði hugsað mér að kaupa mér eitthvern almennilegan router, mæliði með eikkerjum góðum? má samt ekki kosta of mikið, helst max 10k

*edit* ekki að ég sé að stressa mig á að finna router, hann sagði að þetta gæti tekið allt að 3vikur fyrst að það á eftir að tengja boxið í íbúðina :P

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Mið 29. Ágú 2012 21:20
af DJOli
Ég ætla að skipta úr Símanum yfir í Hringdu í enda september.
Er þó bara á adsl, en það er þó það. Ætti ég að biðja um einhvern annann router?

*ætla að skipta vegna þess að ég sá verðmuninn, og muninn á gagnamagninu
(16mb/140gb=7.890) [Síminn adsl] vs.(12mb/250gb=5.495) [Hringdu adsl]