Síða 2 af 5

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 00:51
af AciD_RaiN
appel skrifaði:Greinilega óreglumaður þarna sem er verið að henda út, "góðkunningi" á hlemm líklega.

Málið er að Hlemmur hefur verið óreglumanna-magnet síðan það var byggt. Ég notaði hlemm mikið þegar ég var í iðnskólanum og líka þegar ég var að vinna niðri bæj og átti ekki bíl, hlemmur var troðfullur af þessu liði, ölkum með hálfan hugann út úr þessum heimi, váfandi um vitandi ekki hvað þeir eru að gera þarna, og salernin fór maður einfaldlega ekki á, enda sprautufíklar og alkar að kokka, neyta og selja. Ekki beint þessi almenningssamgöngumiðstöð sem Hlemmur átti að vera, frekar óreglumannamiðstöð.

Það að halda þessu fólki frá Hlemm er erfitt en nauðsynlegt verkefni. Kannski ekki lemja það, en kasta út. Fólki er frjálst að eyðileggja sig með þeim skít sem það kýs, en drullist bara til að gera það annarsstaðar en þar sem mikið af börnum eru og þurfa að nota hlemm til að komast á milli staða.
Hef nú bara aldrei skilið hvernig fólk hafði lyst á því að sprauta sig á þessu klósetti. Maður gat alveg farið eitthvað annað sem var þarna nálægt ef maður þurfti að fá sér skot :droolboy

Mikið af þessu fólki gerir bara ekkert af sér annað en að skemma sjálft sig og tveir góðir götumenn hýstu mig einu sinni í 3 mánuði þannig þetta er ekkert verra fólk en hver annar...

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 00:54
af Gúrú
AciD_RaiN skrifaði:Mikið af þessu fólki gerir bara ekkert af sér annað en að skemma sjálft sig og tveir góðir götumenn hýstu mig einu sinni í 3 mánuði þannig þetta er ekkert verra fólk en hver annar...
Ég er kannski crazy en hættir maður ekki samkvæmt skilgreiningu að vera götumaður ef að maður er með hýsingu ekki bara fyrir sig, heldur líka til að bjóða öðrum? :)

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 01:06
af AciD_RaiN
Gúrú skrifaði:
AciD_RaiN skrifaði:Mikið af þessu fólki gerir bara ekkert af sér annað en að skemma sjálft sig og tveir góðir götumenn hýstu mig einu sinni í 3 mánuði þannig þetta er ekkert verra fólk en hver annar...
Ég er kannski crazy en hættir maður ekki samkvæmt skilgreiningu að vera götumaður ef að maður er með hýsingu ekki bara fyrir sig, heldur líka til að bjóða öðrum? :)
Yfirgefið hús með engri kyndingu var þeirra húsnæði á þessum tíma en það var betra en ekkert ;)

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 01:09
af AntiTrust
Ég á bara ekki til orð.

Ef þessi maður var ekki að reyna að tæla kornungar stelpur til sín eða annað álíka er fátt sem réttlætir þetta.

En ég má til með að bæta við, að sumir hér mættu hugsa sig örlítið um áður en slegið er á lyklaborðið.

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 01:10
af Bjosep
AciD_RaiN skrifaði:Djöfull óska ég þessum manni öllu illu. Vona að einhver taki upp á því að skera af honum nefið eða klippa af honum nokkra putta.
Ekkert neitt svona óeðlilegt við þessa athugasemd ... sei sei nei nei :face

Og síðan hinir sem datt í hug að það væri geðveikt gott ráð að kíkja á Hlemm og lemja öryggisvörðinn. Trallala ... :thumbsd

Er ekki Lúkas annars fundinn?

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 01:14
af AciD_RaiN
Bjosep skrifaði:
AciD_RaiN skrifaði:Djöfull óska ég þessum manni öllu illu. Vona að einhver taki upp á því að skera af honum nefið eða klippa af honum nokkra putta.
Ekkert neitt svona óeðlilegt við þessa athugasemd ... sei sei nei nei :face

Og síðan hinir sem datt í hug að það væri geðveikt gott ráð að kíkja á Hlemm og lemja öryggisvörðinn. Trallala ... :thumbsd

Er ekki Lúkas annars fundinn?
Já þetta var óþroskað og barnalegt komment hjá mér... Það gaus upp einhver reiði í mér þegar ég sá þetta og ég tók það út á lyklaborðinu...

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 01:45
af Manager1
Ég ætla alls ekki að réttlæta það sem öryggisvörðurinn gerði en það er ekki eins og hann hafi lamið aumingja manninn almennilega. Hann rétt bankar í hausinn á honum og sparkar laflaust í hann. Ég er nokkuð vissir að flestir vaktarar hafi meitt sig meira við það að reka tánna í dyrakarm eða eitthvað álíka heldur en þessi óreglumaður meiddi sig við þessar barsmíðar.
En ég ætla að endurtaka það að ég er ekki að reyna að réttlæta neitt og barsmíðar eru aldrei réttlætanlegar jafnvel þó hinn aðilinn meiði sig ekki.

Þessi öryggisvörður var greinilega mjög reiður og eins og einhver benti á þá hefur hann unnið þarna í langan tíma og alltaf verið mjög rólegur þannig að það er augljóst að þessi óreglumaður hefur gert honum eitthvað. Ef við vissum hvað það er þá værum við kannski að vorkenna öryggisverðinum en ekki óreglumanninum?

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 02:24
af capteinninn
Mér skilst að þessi öryggisvörður hafi verið laminn reglulega af einhverju liði sem var að hanga þarna á hlemmi, rónar og dópistar og fleiri og hann hafi verið lengi að losna við þá og ég held að þessvegna hafi hann sagt við tökumanninn "Ég þurfti að koma þeim í burtu til að endurheimta Hlemm".

Maður sér líka að maðurinn er að streitast á móti og reynir eitthvað að grípa í hann þarna en það er nú samt ekkert nógu góð ástæða til að sparka í hann eða slá. Hann er líka augljóslega ekkert að hugsa rökrétt þessi öryggisvörður heldur missir sig þarna sem er auðvitað ekki nógu gott.

Mér finnst alveg rosalega léleg blaðamennska að birta ekkert hvernig þetta hófst milli þeirra, ég veit ekkert hvort maðurinn hafi ráðist á öryggisvörðinn fyrst eða neitt. Ég er alls ekki sammála því að forsagan skiptir engu máli því það getur útskýrt hversvegna hann missir svona stjórn á sér.

Ég er samt ekki að segja að þetta sé rétt hjá verðinum að gera þetta og hann gekk of langt að mínu mati en ég vill vita meira um baksögu málsins. Grapevine birtir hana ekki og auðvitað ekki Vísir sem er að mínu mati orðin einhverskonar blanda af bleikt.is, menn.is, b2 og hvaðeina þar sem birtar eru "fréttir" sem eru ekkert unnar eða fjalla bara um eitthvað fyndið myndband eða eitthvað í svipuðum dúr. Þessi frétt er alger æsifréttamennska og ég ætla að fylgjast með þessu næstu daga og sjá hvort þetta verður eitthvað meira unnið og útskýrt en ég tel það mjög ólíklegt að muni gerast. Vísir og Grapevine fær helling af pageviews og lestur í blöðunum sínum án þess að útskýra neitt hvað er að gerast, sýna bara myndband af öryggisverði að missa stjórn á skapi sínu og allir horfa á lætin en það er ekkert útskýrt neitt í kringum fréttina.

Svo vill ég segja við þá sem eru að kommenta á þennan þráð og í öðrum spjallborðum að það eigi að berja öryggisvörðinn og limlesta eins og Acid_Rain finnst vera það rétta í stöðunni að þau eru svo mikið verri en þessi öryggisvörður, það er eitthvað mikið að ykkur sem komið með svona tillögur.

Annars þekki ég þennan öryggisvörð bara því hann hefur komið í búðina sem ég vinn í og ég hef spjallað eitthvað aðeins við hann þar.

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 02:27
af AntiTrust
Fyrir mitt leyti þá skiptir forsagan engu máli. Það getur vel verið að þetta sé indælasti maður á Íslandi, en ef hann hefur ekki betri stjórn á skapinu sínu en þetta, þótt um undantekningartilfelli sé, hefur hann því miður ekki þá eiginleika sem þarf til að sinna starfi öryggisvarðar.

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 03:11
af 322
jobbzi skrifaði:
bulldog skrifaði:þetta hlýtur að vera brottrekstrarsök
og hver myndi vilja fá hann aftur í vinnu hjá einhverjum ??? :biturk
Lögreglan?

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 03:28
af Xberg
Af því að maðurinn missir skapið sitt þá er bara búið að dæma manninn útlaginn. Hafa ekki flest allir misst sig í skapinu einhverntíman ? vill bara svo til að það næst ekki allt á myndband af æsifréttamönnum.

P.s Þetta gætu verið bræður/frændur eða vinir sem hafa lent uppá kant við hvorn annan.

Fólk þarf að fara hætta dæma aðara fyrr enn það veit eitthvað um málin. ](*,)

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 03:56
af HoBKa-
hannesstef skrifaði:ég veit ekkert hvort maðurinn hafi ráðist á öryggisvörðinn fyrst eða neitt.
Þá sagði Reynir að upptaka úr öryggismyndavél sýni að öryggisvörðurinn hafi átt frumkvæði að barsmíðunum.
http://www.visir.is/-helvitis-lygamordu ... 2120609598

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 04:13
af Varasalvi
Xberg skrifaði:Af því að maðurinn missir skapið sitt þá er bara búið að dæma manninn útlaginn. Hafa ekki flest allir misst sig í skapinu einhverntíman ? vill bara svo til að það næst ekki allt á myndband af æsifréttamönnum.

P.s Þetta gætu verið bræður/frændur eða vinir sem hafa lent uppá kant við hvorn annan.

Fólk þarf að fara hætta dæma aðara fyrr enn það veit eitthvað um málin. ](*,)
Ég veit ekki hvernig fólk þú þekkir, en ég þekki enga sem geta misst skapið sitt svo mikið að þau ráðast á einhvern. Ég hef öskrað á fólk en aldrei ráðist á einhvern, og ég held að línan þar á milli sé stór.

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 04:14
af Pandemic
Er ég sá eini sem sé létt bank í hausinn sem gæti ekki skaðað nokkurn mann og laust spark í rassinn. Svo dregur öryggisvörðurinn hann út eins og ég myndi eflaust halda að flestir myndu draga fólk út ef þörf kæmi.
Held að fólk þurfi aðeins að draga andan og sjá að þarna er ekki um neina stórkostlega líkamsáras að ræða.

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 07:21
af Benzmann
ég vinn sem dyravörður um helgar, en þetta sem þessi maður er að gera er gjörsamlega úr böndunum, eins og einhver sagði hér áður fyrr, þá á þessi maður eftir að fá feita kæru á sig.

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 08:01
af worghal
get nú alveg sagt ykkur það að þessi maður hlaut engann skaða af.
það er rétt svo potað í hann og svo dreginn út og hann ætlar bara aftur inn :lol:

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 09:31
af Daz
Pandemic skrifaði:Er ég sá eini sem sé létt bank í hausinn sem gæti ekki skaðað nokkurn mann og laust spark í rassinn. Svo dregur öryggisvörðurinn hann út eins og ég myndi eflaust halda að flestir myndu draga fólk út ef þörf kæmi.
Held að fólk þurfi aðeins að draga andan og sjá að þarna er ekki um neina stórkostlega líkamsáras að ræða.
:happy

Ég fór annars að velta fyrir mér hvað þessi maður hefði eiginlega gert, vörðurinn er að kalla hann "lygamörð", það kemur varla til af því að hann sé að hóta fjölsklydunni hans?

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 09:39
af hagur
Æi, mér finnst þetta mál stormur í vatnsglasi. Bara get ekki að því gert.

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 09:41
af AntiTrust
Tekið af kommentakerfinu á DV og því marktækt eftir því:
Þessi sami öryggisvörður beitti 2 menn hrottafengnu ofbeldi á Hlemmi nýlega. Voru þeir kannski líka að hóta honum? Nei, þeir voru að röfla saman og tóku ekkert eftir umhverfinu. Það var átakanlegt að horfa á atganginn.

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 09:57
af beggi90
hagur skrifaði:Æi, mér finnst þetta mál stormur í vatnsglasi. Bara get ekki að því gert.
Sammála

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 10:07
af lukkuláki
hagur skrifaði:Æi, mér finnst þetta mál stormur í vatnsglasi. Bara get ekki að því gert.
En ef þessi maður hefði verið þú eða einhver þér nákominn ?
Nú þekki ég ekki forsöguna og hvað gerðist þarna á undan en mér finnst fátt réttlæta svona hörku og hrottaskap.

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 10:09
af ManiO
*Fólk er fífl.
*Það eru alltaf minnst 2 hliðar á hverju máli.
*etc.

Persónulega þekki ég þetta mál ekki nógu vel til að mynda mér skoðun á þessu. Þetta lítur illa út, en maður veit ekkert um þetta.

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 10:28
af flottur
ManiO skrifaði:*Fólk er fífl.
*Það eru alltaf minnst 2 hliðar á hverju máli.
*etc.

Persónulega þekki ég þetta mál ekki nógu vel til að mynda mér skoðun á þessu. Þetta lítur illa út, en maður veit ekkert um þetta.
Góður, þetta er það sem mig langaði til að segja en ég vissi ekki hvernig ég átti að orða það.

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 10:39
af intenz
Þetta er kannski fullgróft en það sést bersýnilega að fórnarlambið er útigangsmaður og hefur ekkert erindi inn á Hlemm. Hlemmur hefur alla tíð verið með mjög slæman stimpil á sér, þar sem það er allt morandi í útigangsmönnum og óþurftarlýð þarna. Alveg frá því ég var krakki var mér kennt að forðast Hlemm og hef í alla tíð verið illa við þennan stað.

Þó mér finnist þetta nú vera fullgróft þá er mjög mikil þörf á hörku þarna.

Re: Er þetta leyfilegt??

Sent: Þri 05. Jún 2012 11:53
af dori
Ég var einhverntíma að taka strætó á Hlemmi og horfði á öryggisvörð vera í einhverjum "bardaga" við að halda útigangsmanni úti. Var búinn að segja honum að fara og henda honum út einu sinni eða tvisvar á meðan ég var þarna að bíða. Svo ráfar maðurinn aftur inn og þá snýr öryggisvörðurinn hann niður. Rífur beltið og úlpuna sem greyið var í og hendir honum út.

Mér blöskraði það eiginlega og sá eftir að hafa ekki tekið þetta uppá myndband því að ég fann á mér að það yrði eitthvað vesen þegar gæinn ráfaði þarna inn í síðasta skiptið.

En hvernig er það, augljóslega er þetta fólk sem ég myndi ekki bjóða inn til mín. En ef það er ekkert að gera af sér annað en að sitja inni í hitanum á einhverjum bekk og gerir annars ekki flugu mein. Er hægt að banna því það? Er þetta ekki eitthvað svona "almenningssvæði"? Þarf ekki bara að hafa fleiri og yfirvegaðri öryggisverði þarna?