Síða 2 af 3

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 11:28
af Garri
Það er vanþakklátt starf að vera stjórnandi. Finnst þið fara ansi hörðum orðum um þá hérna.

Stjórnendur eru aldrei fullkomnir á svona spjallborðum, lang flestir reyna sitt besta. Það að slá á tröllaskap er alltaf til bóta og þótt sumir sleppi stundum, þá þýðir það alls ekki að allir eigi að sleppa alltaf.

Sama gildir með lög okkar og reglur út í þjóðfélaginu. Stundum komumst við upp með að keyra alltaf of hratt, stundum ekki. Það getur enginn sem tekinn er fyrir of mikinn hraða bent á alla hina sem keyra of hratt, jafnvel þótt þeir séu að keyra of hratt á sama kafla og þið.

Vaktin er sniðugur vefur til að kaupa og selja vörur á sem og, fá upplýsingar um mál tengd tölvum og hugbúnaði. Alls konar stælar, neikvæðni og leiðindi gætu auðveldlega eyðilagt spjallvefinn.

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 12:09
af tdog
worghal skrifaði: heirðu halló halló.

ég held það þufi að fínkemba spjallið nokkuð rækilega og gefa nokrum vel völdum einstaklingum fleiri hundruðir af viðvörunum.
alltaf þegar það kemur einhver með eitthvað mac tengt þá eru u.þ.b. 20 comment um að OP eigi bara að henda makkanum og fá sér "alvöru tölvu" í staðinn.
Ég er alveg rosalega sammála þessu. Það er voðalega mikið Mac-hatered hérna. Það er liggur við í undantekningatilfellum sem fólki er ekki bent á Mac-spjallið þegar það segist vera með Makka. Síðan er fólk oft skotið í kaf þegar það mælir með Macbókum, hvað er að hérna?

Annars átti þetta innlegg frá Bjarna ekkert erindi á títt nefndann þráð og hefði að öllum líkindum espað hörðustu Machatarana í að úthúða makkann á þræðinum.

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 12:14
af Benzmann
:face

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 12:17
af braudrist
Ef það ætti að fara eftir 4 reglu, þá ætti nú að henda svona 90% af ruslinu sem kemur á Koníakstofuna. Eins og fólk sem linkar bara á myndir frá 9gag.com á þráðinn "You laugh, you lose".

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 12:22
af Jon1
braudrist skrifaði:Ef það ætti að fara eftir 4 reglu, þá ætti nú að henda svona 90% af ruslinu sem kemur á Koníakstofuna. Eins og fólk sem linkar bara á myndir frá 9gag.com á þráðinn "You laugh, you lose".

er það ekki meira þræðir sem eru ætlaðir í þannig, svona ánþess að ég nenni að skipta mér af þessu ! það er bara ekkert að gera í vinnuni

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 12:26
af Daz
braudrist skrifaði:Ef það ætti að fara eftir 4 reglu, þá ætti nú að henda svona 90% af ruslinu sem kemur á Koníakstofuna. Eins og fólk sem linkar bara á myndir frá 9gag.com á þráðinn "You laugh, you lose".
Það eru einmitt póstar sem eiga við, umfjöllunarefnið er "you laugh you lose" og allir reyna að setja inn innlegg sem fá aðra til að hlæja. Þegar einn notandi stofnar þráð og spyr spurningar og inn kemur svar sem er hvorki hjálplegt, né efninu tengt, þá finnst mér það óviðeigandi.

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 13:42
af SIKk
JoiKulp skrifaði:Hef tekið það á mig að vera lögfræðingur BjarnaTS í þessu máli.
hló smá :troll

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 14:15
af Moldvarpan
snilld

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 14:21
af Varasalvi
Þú braust reglu 2 mínótum efir að þú gerðir þennan þráð. Held að þú ættir að lesa reglunar áður en þú býrð til þráð til að kvarta um reglunar.

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 14:31
af urban
Hérna, kannski er það bara bjórinn sem að ég drakk í gær
kannski er ég óvenju vitlaus í dag
kannski er ég ekki almennilega vaknaður

en hvað er að gerast í þessum þræði ?
FuriousJoe skrifaði: Það er löngu vitað að stjórnendur hérna eru í algjöru kjaftæði.
heyrðu þakka þér félagi.
viltu ekki bara vera úti ef að þú telur stjórnunina vera í algeru kjaftæði ?
það er enginn að neyða þig til að vera hérna.

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 14:34
af AciD_RaiN
Ég er búinn að fá mjög margar viðvaranir bæði fyrir óþarfa innlegg og bumpa of snemma.

Maður hefur gott af því að láta minna sig á þegar maður misstígur sig því annars lærir maður aldrei ;)

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 15:19
af tdog
urban skrifaði:
FuriousJoe skrifaði: Það er löngu vitað að stjórnendur hérna eru í algjöru kjaftæði.
heyrðu þakka þér félagi.
viltu ekki bara vera úti ef að þú telur stjórnunina vera í algeru kjaftæði ?
það er enginn að neyða þig til að vera hérna.
Mér finnst þetta attitude til dæmis mjög leiðinlegt, í stað þess að vísa Brjálaða Jóa svona á dyrnar, hvernig væri þá bara að spyrja hvað mætti fara betur og hvað ekki? Við erum öll mannleg og gerum mistök, stjórnendurnir líka – Það er ekkert að því að benda þeim á það. Og slíkt ætti ekkert að vera leyndarmál, t.d að eyða þráðum þar sem bent er á ruddaskap stjórnenda, þetta eru hlutir sem koma flestum notendum hérna við.

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 15:47
af Jim
tdog skrifaði:
urban skrifaði:
FuriousJoe skrifaði: Það er löngu vitað að stjórnendur hérna eru í algjöru kjaftæði.
heyrðu þakka þér félagi.
viltu ekki bara vera úti ef að þú telur stjórnunina vera í algeru kjaftæði ?
það er enginn að neyða þig til að vera hérna.
Mér finnst þetta attitude til dæmis mjög leiðinlegt, í stað þess að vísa Brjálaða Jóa svona á dyrnar, hvernig væri þá bara að spyrja hvað mætti fara betur og hvað ekki? Við erum öll mannleg og gerum mistök, stjórnendurnir líka – Það er ekkert að því að benda þeim á það. Og slíkt ætti ekkert að vera leyndarmál, t.d að eyða þráðum þar sem bent er á ruddaskap stjórnenda, þetta eru hlutir sem koma flestum notendum hérna við.
FuriousJoe benti alls ekki á hvað mætti betur fara heldur sagði að stjórnendurnir væru "í algjöru kjaftæði". Urban svarar með sama viðhorfi og þú ávítar hann fyrir að vera ekki kurteisari? Það má s.s. koma illa fram við stjórnendur og þeir mega aldrei svara fyrir sig?

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 16:05
af Pandemic
Ég gaf ekki út þessa viðvörun útaf neinu hatri í garð Apple. Þetta innlegg var bara sóun á bandbreidd í ljósi þess að maðurinn kom hingað til að fá hjálp við vandamálum sínum ekki leita að nýrri tölvu til að kaupa.
Eins og ég sagði þá bætir þetta ekki neinu við umræðuna.

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 16:56
af urban
tdog skrifaði:
urban skrifaði:
FuriousJoe skrifaði: Það er löngu vitað að stjórnendur hérna eru í algjöru kjaftæði.
heyrðu þakka þér félagi.
viltu ekki bara vera úti ef að þú telur stjórnunina vera í algeru kjaftæði ?
það er enginn að neyða þig til að vera hérna.
Mér finnst þetta attitude til dæmis mjög leiðinlegt, í stað þess að vísa Brjálaða Jóa svona á dyrnar, hvernig væri þá bara að spyrja hvað mætti fara betur og hvað ekki? Við erum öll mannleg og gerum mistök, stjórnendurnir líka – Það er ekkert að því að benda þeim á það. Og slíkt ætti ekkert að vera leyndarmál, t.d að eyða þráðum þar sem bent er á ruddaskap stjórnenda, þetta eru hlutir sem koma flestum notendum hérna við.
ahh sjáðu til, hefði hann ekki nefnt okkur alla stjórnendurnar og það að við værum bara alltaf í algjöru kjaftæði, þá hefði ég nú líklegast alveg brugðist öðruvísi við.

En ef að hann er svona svakalega ósáttur við okkur alla þá er það bara honum fyrir bestu að vera ekki að pirra sig á okkur (bara að hugsa um hann sjáðu til)
ég leyfi mér að stórefast um það við allir stjórnendur séum að fara að hætta hérna og tjahh ég hef ekki fengið margar kvartanir yfir því að stjórnunin sé alltaf í algeru kjaftæði, þar að leiðandi geri ég ráð fyrir því að þetta sé ekki hugsun allra á spjallborðinu.

Nú ef svo er, það er að ég eigi minn hluta í því að stjórnunin hérna sé svona mikið kjaftæði, þá get ég alveg látið taka þessi stjórnanda réttindi af mér, ég lifi alveg með því að þurfa ekki að eyða tíma mínum í það að láta hrauna yfir mig.


með kveðju.
urban

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 17:12
af GuðjónR
urban skrifaði:...ég lifi alveg með því að þurfa ekki að eyða tíma mínum í það að láta hrauna yfir mig.


með kveðju.
urban
hahahaha vel mælt :megasmile

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 18:31
af lifeformes
má ekki bæta við reglu 4.
4. gr.

Ekki senda inn óþarfa bréf
Ekki senda inn bréf nema þú hafir eitthvað að segja eða spyrja um. Ekki senda inn
2 bréf í röð á sama þráðinn, þú getur notað breyta takkan til að bæta við eldri bréf.
Það er stranglega bannað að búa til tvo eða fleiri þræði um sama
don´t be a dick
:megasmile

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 18:42
af BjarniTS
Hefði hugsanlega getað orðað þetta öðruvísi.

En eins og sjá má í upphafsinnleggi
Kæastann gerði þau mistök að stökkva á Toshiba L650 11C

tölvan er alltílæ svosem.. fyrir utan að batterí-ið er slappt en það var vitað fyrirfram.

okok..

En wireless búnaðurinn í henni er eitt mesta junk sem ég hef átt við og er byrjaður að fá grá hár útaf honum.


tölvan er uppsett með windows 7 home premium. routerinn mun vera Thomson TG789vn frá Tal.

í öllum öðrum tölvum og búnaði á heimilinu virkar routerinn fínt. alt frá ipod/iphone yfir í macbookpro og meira segja segja 5 ára gamla HP fartölvu.

Wifi stjórnartaugin í þessari Toshiba vél er Realtek rtl8191se sem samkvæmt miklu netráppi er að valda hausverk útum allan heim og ætti ekki að vera notað nema til að opna dósir.


EFtir mikla lesningu og marga daga í að vesenast í þessu stökk ég á ráð að versla Planet wifi dongle með svona lofneti.. gafst upp á sendistyrknum í því og plöggaði stórt Gigabyte loftnet við það í stað default loftnetsins sem fylgdi.

en það er ömurleg lausn .

Hugsanlegar lausnir sem ég sé eru:

1. Selja einhverju greyji þessa Toshiba tölvu og versla bara macbook pro eða áliíka.

2. Versla Wifi tengipunkt (og vona að hann gefi betri tenginu hingað inn)

3. leita fleiri ráða hjá snillingum.

Routerinn er miðsvæðis heima.

Allar aðrar tölvur ná mjög góðu sambandi við hann.

Búið að er reyna að hafa bara Toshiba ruslið tengt við og slökkt á öðrum græjum, láta hana fá eigin IP frá router og allsyns hundakúnstir og fult af stilingum og tölvum prufaðar. Toshiba tölvan var straujuð og settir upp nýjir driverar. hún er fín ef það er engin veggur á milli tölvu og routers.. annars er þetta bara wifi laus tölva bakvið vegg sem er frekar sorglegt og leiðinlegt.

Hvaða græju er sniðugt að kaupa sem tekur á móti wifi frá Thomson TG789vn og basicly reapeater signalið/endukastar/magnar/ acces point?
Mitt svar í þráðinn var bara að mæla með þessum kosti. Hann hafði þarna verið vissulega laus við vandamál. En auðvitað eru aðrar lausnir í stöðunni , hefði ekki farið að mæla með mac-kaupum ef að þetta hefði ekki komið fyrir. Orðin vel þreytt rulla. En ég byðst afsökunar á því að hafa gert lítið úr Pandemic sem stjórnanda. Frábær náungi sem hugsar með hjartanu eins og við sjáum svart á hvítu í þessu litla ævintýri.
Óska Toshiba eiganda góðs gengis í blóðugri baráttu sinni við netvandamál.

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 18:46
af FuriousJoe
Nei rólegir kútar, stjórnendur hérna eiga oft góða og slæma daga alveg eins og ég þegar ég skrifaði þetta komment um að þeir væru í rugli, var á nokkrum dollum og eitthvað pirraður :)

Tek þetta til baka, en þó eiga stjórnendur til með að gera heimskulega hluti stundum, en standa sig vel megnið af tímanum ;)

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 19:30
af Gúrú
Það er alveg svolítið kjánalegt að gefa einhverjum viðvörun og eyða innleggi þegar að þetta boldaða þarna er í OP.

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Sun 20. Maí 2012 20:08
af Pandemic
Verð nú reyndar að viðurkenna að ég sá ekki einu sinni þetta sem var boldað. Mín mistök.
Annars hefði ég kannski mátt orða þetta betur í sambandi við viðvörunina en svona framvegis þá er ágætt fyrir okkur alla að reyna að halda smá innihaldi í því sem við skrifum.

Vonandi eru allir vinir =D>

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Mán 21. Maí 2012 00:01
af g0tlife
Bjarni kominn með lögfræðing, Joe er orðinn brjálaður .. Hvað er í gangi

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Mán 21. Maí 2012 01:15
af coldcut
Endalausa væl er þetta orðið hérna...

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Mán 21. Maí 2012 01:18
af CendenZ
Annað hvort vælið þið að við gerum of lítið eða þið vælið að við séum of strangir.

Þið eruð alveg eins og vinstri sinnaða liðið... aldrei hægt að gera ykkur til geðs. Þið fáið aldrei nóg og heimtið alltaf meira eða minna
:|

Re: Rosalega sár með viðvörun

Sent: Mán 21. Maí 2012 02:00
af Gúrú
CendenZ skrifaði:Annað hvort vælið þið að við gerum of lítið eða þið vælið að við séum of strangir.
Þið eruð alveg eins og vinstri sinnaða liðið... aldrei hægt að gera ykkur til geðs. Þið fáið aldrei nóg og heimtið alltaf meira eða minna
Til hamingju, þetta er barnalegasta og kjánalegasta innleggið í öllum þræðinum.

Auðvitað munu einhverjir stundum kvarta yfir því að of lítið sé gert og þá talandi um x
og sumir að of mikið sé gert talandi um y, þýðir það þá að það eigi bara að segja "Mímímí vælukjóar, ákveðið ykkur" við hverri einustu kvörtun? Nei.
En þú fékkst víst ekki memoið um það.