Síða 2 af 2

Re: Vantar hjálp við að velja síma

Sent: Sun 13. Maí 2012 20:33
af AronOskarss
Alveg sammála, ios er einfaldara, en tækni heimskt fólk getur vel lært á Android ef það bara byrjar ekki að hugsa "þetta er of flókið"
Fólk er að heyra þetta útum allt og hræðist möguleikann á því að þetta gæti verið of flókið...sem það bara er alls ekki, og ekki fyrir tæknihefta heldur! Þeir þurfa bara hugsa aðeins meira...eins og ég með stærðfræði :-)

Samt er þetta bara aaaaðeins einfaldara hjá iphone, varla að það sé til að tala um það, öll forrit fara á heimaskjá og allar stillingar á sama stað og svo er sem minnstu hægt að breyta. Það er í raun sára lítill munur.


En battery mál ætla ég ekki að fara reyna rökræða.... hef enga reynslu af því, er bara búinn að heyra voða gott um iphone battery endingu.

En eins og hefur og mun oft koma fram.
Iphone vs android endar alltaf með því að allir komist að þeirri niðurstöðu að iphone er fyrir none-fiktara og android fyrir fiktara.
Og hvort sé betra er ekkert hægt að fá botn í.
Hentar misvel fyrir fólk með mismunandi áhugasvið.

Re: Vantar hjálp við að velja síma

Sent: Sun 13. Maí 2012 20:53
af intenz
Ég hef handleikið iPhone nokkrum sinnum og mér finnst satt að segja Android miklu einfaldara. Ég skil ennþá ekki hvernig maður multitaskar í iPhone. :japsmile

Re: Vantar hjálp við að velja síma

Sent: Mán 14. Maí 2012 11:49
af Frantic
Eftir að hafa lesið í gegnum þennan þráð þá er ég alveg á því að IPhone sé síminn fyrir hana.
Er sammála því að stillingarnar og flexability-ið sem Android gefur getur ruglað fólk og þá er IPhone alveg pottþétt málið.
Þetta er líka fyrsti smartphone sem hún kaupir sér.

Kem þessu áleiðis, takk fyrir hjálpina. :megasmile

Re: Vantar hjálp við að velja síma

Sent: Mán 14. Maí 2012 12:18
af Swooper
intenz skrifaði:Ég hef handleikið iPhone nokkrum sinnum og mér finnst satt að segja Android miklu einfaldara. Ég skil ennþá ekki hvernig maður multitaskar í iPhone. :japsmile
Ýtir tvisvar snöggt á home takkann, þá poppar upp bar með opnum öppum. <Edit> Eða swipar milli appa með 4-5 fingrum, ef það er kveikt á þeim fídus. Frekar óþægilegt að gera það á iPad samt, mögulegra hentugra á iPhone.</Edit>

Ég átti iPad áður en ég fékk mér SGS2 svo ég kann á bæði, og mér finnst iOS óttalegt drasl eftir að hafa kynnst Android - en ég myndi líka hiklaust mæla með því frekar fyrir pabba minn (sem kemur og spyr mig um ráðleggingar alltaf þegar vírusvörnin hans poppar upp og biður um uppfærslu) eða aðra tölvu-hefta einstaklinga...

Re: Vantar hjálp við að velja síma

Sent: Mán 14. Maí 2012 12:31
af hfwf
þetta er fyndinn þraður=), iphone er on par fyrir stelpur og eldra folk, sem vil doro sima með storum stöfum. android er framtiðin, se ekki flokna dæmið við siman, eg gæti listað það en nenni ekki þvi eg er i baði=)

Sent from my GT-I9100 using Tapatalk

Re: Vantar hjálp við að velja síma

Sent: Mán 14. Maí 2012 13:21
af hagur
hfwf skrifaði:þetta er fyndinn þraður=), iphone er on par fyrir stelpur og eldra folk, sem vil doro sima með storum stöfum. android er framtiðin, se ekki flokna dæmið við siman, eg gæti listað það en nenni ekki þvi eg er i baði=)

Sent from my GT-I9100 using Tapatalk
Too much info!