Síða 2 af 2

Sent: Mán 24. Mar 2003 16:42
af MezzUp
when its free why make it expensive????? :)
afþví að maður hefur mikla meira vald á tölvunni sinni. Linux er meira svona hands-on stýrikerfi þar sem að það reynir ekkert að gera neitt fyrir aftan bakið á þér og þú getur stillt það einsog þú vilt.
Annars hef ég nú lofað sjálum mér að vera ekki að reyna að troða stýrikerfum á annað fólk.
Use whatever you want.....

Sent: Mán 24. Mar 2003 17:15
af glas
já svo þú segir það....... linux er samt drullu flókið það er ekkert bara nóg að vilja nota það marr þarf að læra einhvern helling til að geta jafnvel sett það upp eða allavega gentoo

Varðandi linux og hversu flókið það er.

Sent: Mán 24. Mar 2003 17:40
af noline
Linux er ekki flókið...það er einfaldlega einfaldara ef eitthvað er, það fer eftir því hvaða útgáfu þú velur þér. Veit um nokkra sem hafa skipt úr Windows yfir í Lycoris og segja eina munin vera að skjáborðið sé aðeins öðruvísi. Þetta voru engir linux menn eða konur, bara venjulegt fólk.
Linux er einfaldlega til í svo mörgum bragðtegundum að það er eitthvað til sem kitlar alla, ég varð uppiskroppa með sömu afsakanir fyrir 2 árum varðandi það að nota ekki linux. Ég er certified microsoft looney (mcp) en ég einfaldlega vissi hvenær rökin hjá mér hættu að halda vatni og játaði mig sigraðan fyrir mér fróðari mönnum. Ég veit ekki með þig, en þetta er ekki mikið mál að læra þetta, tekur bara hugarfarsbreytingu, vilja og góðan kaffibolla.

Sent: Mán 24. Mar 2003 19:04
af Voffinn
en ef ég drekk ekki kaffi ?
...nei djókur.

En þetta Lycoris sem þú talar um. Ertu bara að segja þetta af því að fyrirtækið þitt er að fara að selja þetta, eða finnst þér þetta í alvörunni?

Sent: Mán 24. Mar 2003 19:35
af MezzUp
noline: doing a little adversting are we :D :?: :D
Það er rétt að maður þarfi að lesa(og hugsa) helling til þess að fá Gentoo til þess að virka en RedHat er ekkert mál að setja upp.

Jamms

Sent: Mán 24. Mar 2003 20:09
af noline
Já, bæði og! Mér finnst ekkert að því að benda fólki á alternetive við windows eftir að mbl.is birti einhliða grein frá microsoft á íslandi þar sem að Elvar hjá microsoft.is hélt því fram að windows væri notað í öllum critical þjónustum. Reyndar væri gaman að fá að heyra af hverju microsoft notar þá linux í alla sína critical netþjóna.
Hins vegar varðandi auglýsingar, jú, maður lætur vita þegar maður sjálfur eða aðrir eru að bjóða uppá eitthvað sem er hagstætt í anda vaktarinnar ekki satt?

Sent: Mán 24. Mar 2003 22:04
af glas
þetta linux sem þú varst að tala um er það líka sonna console sickness?

(ég þoli ekki að hugsa)

Sent: Mán 24. Mar 2003 22:09
af glas
by the way þetta lycoris er ískyggilega líkt windows......! Hvurs ætti þetta að vera eitthvað betra... ég spyr bara af fávísi :wink:

Sent: Mán 24. Mar 2003 22:10
af Voffinn
lol...hvða kallar þú "console sickness" ?

Sent: Mán 24. Mar 2003 22:13
af glas
"linux" :P
noline hvaða linux ert þú að nota?

Sent: Þri 25. Mar 2003 19:30
af halanegri
það er kannski allt í lagi að nota gentoo, en það bara brjálæði að compila allt, ef maður á ekki góða tölvu. t.d. kde, gæti tekið sólarhring.

Svörin.

Sent: Mið 26. Mar 2003 01:14
af noline
Ég nota sjálfur Lycoris, og jú það er líkt windows í útliti, en þar hættir samanburðurinn. Lycoris er eins og allir linux-ar, mun öflugri, öruggari og stabilli heldur en windows. Lycoris er jú mjög einfalt í uppsetningu meðan að gentoo og aðrir eru kannski ýfið flóknari fyrir þá sem hafa aldrei komið nálægt linux. Náttúrulega mæli ég með lycoris, en það væri ekki heiðarlegt af mér að mæla með vöru sem við seljum, þannig að ég get líka bent á redhat sem er álíka einfaldur og svo mandrake, lindows og xandros.

Sent: Fim 27. Mar 2003 00:50
af glas
jæja félagar. getur einhver sagt mér afhverju ég get ekki strauað vélina mína og sett upp windows (var fyrir linux) þarf að gera eitthvað or sum til að hann lesi diskinn. HJÁLP!!! =)

Sent: Fim 27. Mar 2003 12:16
af Jakob
Hmmm
Setur bara Windows CD í og bootar... Eyðir partitionunum út og formattar.
Very simple.

Sent: Fös 28. Mar 2003 00:54
af glas
en ef ég vill bæta windows 2k við og hafa bæði linux og windows hvað går man þá? :oops: