Síða 2 af 3
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Þri 01. Maí 2012 15:28
af g0tlife
Hvenar byrjaði að koma ''Gildistími inneignar'' og þá 30 daga ? Mér finnst þetta svo mikið kjaftaði ! Eins og ég í mánaðartúrum á sjó, kem í land og bara bam allt farið sem ég átti eftir á inneigninni ? Alltaf verið að reyna krafsa meiri pening útúr fólki
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Þri 01. Maí 2012 15:44
af intenz
Þar sem ég er að spá í að færa mig frá Nova þá tók ég þetta aðeins saman...
Verðin hér fyrir neðan eru miðuð við minnstu/ódýrustu pakkana hjá þeim.
Síminn
+ Margir hjá þeim (stórt tengslanet)
+ Mjög gott 2G/3G dreifikerfi
+ Verð í sanngjarnari kantinum (mánaðargjald = 590 , upphafsgjald = 11.9 , mínútuverð = 11.9 , sms = 12.9 , netið = 25kr/5MB)
- Bara áskrift
- Ekki með frítt innan kerfis, bara "vinakerfi"
Ring
+ Bjóða upp á frelsi
+ Nota stóra tengslanet og góða 2G/3G dreifikerfi Símans
+ Frítt innan kerfis
- Verð í hærri kantinum (mánaðargjald = 990 , upphafsgjald = 7.9 , mínútuverð = 17.9 , sms = 12.9 , netið = 25kr/5MB)
- Þarft að borga 1000 kr. extra til að hringja frítt innan Símans
Nova
+ Bjóða upp á frelsi
+ Mjög stórt tengslanet (margir hjá þeim)
+ Frítt innan kerfis
- Verð í hærri kantinum (mánaðargjald = 690 , upphafsgjald = 9.9 , mínútuverð = 19.9 , sms = 11.9 , netið = 39kr/5MB)
- Eru með lélegt 3G samband
Vodafone
+ Bjóða upp á frelsi
+ Margir hjá þeim (stórt tengslanet)
+ Frítt innan kerfis
+ 1000 SMS óháð kerfi
- Verð í hærri kantinum (mánaðargjald = 990 , upphafsgjald = 7.8 , mínútuverð = 16.5 , sms = 12.5 , netið = 90kr/5MB)
- Nota 3G dreifikerfi Nova
Valdi og Freyr
+ Bjóða upp á frelsi
+ Frekar ódýrir (mánaðargjald = ??? , upphafsgjald = 4.9 , mínútuverð = 14.9 , sms = 4.9 , netið = 25kr/5MB)
+ Frítt innan kerfis
+ Getur fengið 1000 kr. inneign frítt á mánuði gegn því að fá auglýsingar sendar í símann
- Ekkert þjónustuver
- Nota 3G dreifikerfi Nova
- Lítið tengslanet (fáir hjá þeim)
Alterna
+ Bjóða upp á frelsi
+ Ódýrir (mánaðargjald = 490 , upphafsgjald = 10 , mínútuverð = 10 , sms = 10 , netið = 5kr/1MB)
+ Sama mínútuverð í öll kerfi (líka Nova og heimasíma)
+ Frítt innan kerfis
+ Eru með reikisamning við bæði Vodafone og Símann, 2G=Vodafone, 3G=Síminn væntanlega
- Lítið tengslanet (fáir hjá þeim)
Hringdu
+ Sanngjarnir í verði (mánaðargjald = 495 , upphafsgjald = ??? , mínútuverð = 14.9 , sms = 9.9 , netið = 100MB innifalið)
+ Nota 3G dreifikerfi Símans
+ Frítt innan kerfis
+ Gagnamagn innifalið (495 kr. = 100 MB)
- Orð um lélega þjónustu
- Lítið tengslanet (fáir hjá þeim)
Tal
+ Bjóða upp á frelsi
+ Sanngjarnir í verði (mánaðargjald = 1000 , upphafsgjald = 6.8 , mínútuverð = 15.5 , sms = 12 , netið = 25kr/5MB)
+ Nota 3G dreifikerfi Símans
+ Frítt innan kerfis
- Tiltölulega lítið tengslanet (fáir hjá þeim)
Símafélagið
+ Mjög ódýrir (mánaðargjald = 490 , upphafsgjald = 4.9 , mínútuverð = 14.9 , sms = 9.9 , netið = 1 GB innifalið)
+ Mjög mikið gagnamagn innifalið (490 kr. = 1 GB)
- Ekki frítt innan kerfis
- Lítið tengslanet (fáir hjá þeim)
? Eru með eigið dreifikerfi, veit ekki hvort það sé kostur eða galli (fer eftir sambandi)
Ég veit ekki alveg... Ring, Alterna, Hringdu eða Símafélagið
Ring er allavega með besta hlutfall notenda/tengslanets, sambands og verðs.
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Þri 01. Maí 2012 15:54
af bAZik
^ Hvað með Vodafone?
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Þri 01. Maí 2012 15:59
af intenz
bAZik skrifaði:^ Hvað með Vodafone?
Haha steingleymdi þeim

Hendi þeim inn
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Þri 01. Maí 2012 16:07
af intenz
Komið!
Vodafone væri kjörið fyrir mig ef ég væri ekki að flýja Nova út af lélegu sambandi
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Þri 01. Maí 2012 18:18
af razrosk
Símafélagið lookar vel... hvernig er 3G sambandið þeirra?
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Þri 01. Maí 2012 18:51
af pattzi
Er Hjá Tal,NOVA OG Valda og frey
Nota Reyndar bara Tal til að fá 2 vini og fá líka 1000 kr inneign og ég fæ líka mínútur og legg 1000 kall a numerið
Nova til að hringa nova í nova
Valda og frey til að hringja i önnur símtöl sem kosta mig fæ 1500 kall þar því ég er búin að vera þar síðan 2009.
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Þri 01. Maí 2012 19:00
af GullMoli
pattzi skrifaði:Er Hjá Tal,NOVA OG Valda og frey
Nota Reyndar bara Tal til að fá 2 vini og fá líka 1000 kr inneign og ég fæ líka mínútur og legg 1000 kall a numerið
Nova til að hringa nova í nova
Valda og frey til að hringja i önnur símtöl sem kosta mig fæ 1500 kall þar því ég er búin að vera þar síðan 2009.
Flott hjá þér.
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Þri 01. Maí 2012 19:14
af tdog
Hvernig nenniru að vera með 3 síma á þér drengur?
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Þri 01. Maí 2012 19:16
af pattzi
Er nú bara oftast með 2 á mér sko
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Þri 01. Maí 2012 21:29
af urban
tdog skrifaði:Hvernig nenniru að vera með 3 síma á þér drengur?
ég verð þennan mánuðinn með 3 síma.
Einn frá Samskip, einn frá Olíudreifingu og einn frá sjálfum mér (sem að ég reyndar reyni að skilja bara eftir, þar sem að menn vina samskipanúmerið)
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Fim 03. Maí 2012 01:43
af intenz
Er einhver með farsíma hjá Símafélaginu
http://sip.is" onclick="window.open(this.href);return false; ??? Hvernig er dreifikerfið þeirra, 3G samband, ofl. ?
Þetta er svo ódýrt og 1GB á mánuði heillar mjög mikið. En þetta veltur á sambandinu hjá þeim.
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Fim 03. Maí 2012 02:39
af Tiger
Eftir ADSL ævintýrið sem endaði illa hjá Hringdu.is þá mun ég hingað til ekki horfa í aurinn og reyna að spara hann en enda svo uppi með að eyða krónunni + hellings vesen. Þótt ég sé hlyntur samkeppni þá verður allt að vera samkeppnisfært, ekki bara verðið í upphafi og svo búið spil.
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Fim 03. Maí 2012 03:39
af gardar
Tiger skrifaði:Eftir ADSL ævintýrið sem endaði illa hjá Hringdu.is þá mun ég hingað til ekki horfa í aurinn og reyna að spara hann en enda svo uppi með að eyða krónunni + hellings vesen. Þótt ég sé hlyntur samkeppni þá verður allt að vera samkeppnisfært, ekki bara verðið í upphafi og svo búið spil.
Það er nú samt lítið mál að prófa nýjan aðila og skipta svo aftur yfir ef þér líkar ekki við hann... Svo lengi sem þú ert ekkert að skuldbinda þig.
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Fim 03. Maí 2012 09:31
af steinarorri
intenz skrifaði:Er einhver með farsíma hjá Símafélaginu
http://sip.is" onclick="window.open(this.href);return false; ??? Hvernig er dreifikerfið þeirra, 3G samband, ofl. ?
Þetta er svo ódýrt og 1GB á mánuði heillar mjög mikið. En þetta veltur á sambandinu hjá þeim.
Ég sendi þeim e-mail og spurði út í dreifikerfið þeirra.
Kristján hjá Símafélaginu skrifaði:
Viðskiptavinir okkar hafa kostinn á því að reika inn á 3G kerfi Símans og einnig inn á 3G kerfi Vodafone. Svo er tenging við 2G kerfi beggja fyrirtækjanna þar sem 3G er ekki kostur (og að sjálfsögðu ef notandinn hefur ekki 3G símtæki þá getur hann tengst 2G kerfi).
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Fim 03. Maí 2012 10:50
af tdog
Ég sendi Símafélaginu nokkrar spurningar sem ultu á mér um daginn.
Ég stefni á færslu til þeirra í næstu viku.
Örn hjá Símafélaginu skrifaði:Blessaður, og ekkert mál.
– Hvernig er síðan með færsluna sjálfa, hversu lengi má ég búast við sambandsleysi? – Hvernig er það með rúteramál hjá ykkur?
Þú átt ekki að þurfa að vera sambandslaus. Þetta er bara skilgreiningaratriði í kerfi Gagnaveitunnar. Við setjum þjónustuna inn hjá þér, og þú þarft svo að logga þig inn í Gagnaveitukerfið og samþykkja breytinguna.
– Ég sé að þið bjóðið fyrirtækjum upp á gourmet Cisco rútera, mismunandi eftir bandvídd, en hvernig er það með públikkinn, hvernig rútera getið þið skaffað honum?
Við bjóðum upp á ZyXEL routera fyrir públikinn, en einstaklingar geta leight Cisco routera hjá okkur eins og fyrirtæki. Verð fyrir Cisco 871/881 er 3.500 kr. á mánuði. Verð á heimilisrouter er 500 kr. á mánuði frá og með 1. júní.
– Eruð þið með svæði á netinu þar sem ég get séð gagnanotkunina hjá mér?
Já, þú færir bara inn á
http://notkun.simafelagid.is" onclick="window.open(this.href);return false; -- einnig verður fljótlega hlekkur af vefsíðunni.
– Setur Símafélagið einhverjar skorður á þær þjónustur sem ég kýs að hýsa á nettengingu frá félaginu?
Nei. Að vísu ættum við að blokka port 25 hjá viðskiptavinum skv. reglugerð frá Póst- og fjarskiptastofnun, en við höfum ekki verið að fylgja því hingað til. Það er hugsanlegt að það gerist einhverntímann í framtíðinni.
Kveðja,
Örn
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Fim 03. Maí 2012 10:57
af g0tlife
tdog skrifaði:Ég sendi Símafélaginu nokkrar spurningar sem ultu á mér um daginn.

rúteramál ?
públikinn ?
gourmet ?
Hvað er í gangi ?
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Fim 03. Maí 2012 11:20
af tdog
g0tlife skrifaði:
rúteramál ?
públikinn ?
gourmet ?
Hvað er í gangi ?
Mér finnst ógeðslegt að segja ráter. Varðandi hitt, þá er ég ekki á sama leveli og smælingjarnir. MÚHAHAHA.
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Fim 03. Maí 2012 11:39
af playman
En að segja þá bara router?

Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Fim 03. Maí 2012 12:30
af Frantic
Af hverju að blocka port 25? Er það ekki notað fyrir email?
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Fim 03. Maí 2012 13:41
af tdog
Port 25 er notað fyrir SMTP þjónustuna, þetta er til þess að fólk fari ekki að setja upp óþarfa mail relaya á netinu.
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Fim 03. Maí 2012 14:40
af Tiger
gardar skrifaði:Tiger skrifaði:Eftir ADSL ævintýrið sem endaði illa hjá Hringdu.is þá mun ég hingað til ekki horfa í aurinn og reyna að spara hann en enda svo uppi með að eyða krónunni + hellings vesen. Þótt ég sé hlyntur samkeppni þá verður allt að vera samkeppnisfært, ekki bara verðið í upphafi og svo búið spil.
Það er nú samt lítið mál að prófa nýjan aðila og skipta svo aftur yfir ef þér líkar ekki við hann... Svo lengi sem þú ert ekkert að skuldbinda þig.
Ekki alltaf svo auðvelt nei. Að þurfa tugi símtala/e-mail til að hætta að fá reikninga þrátt fyrir að vera löngu kominn annað.
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Fim 03. Maí 2012 14:53
af chaplin
Alterna og Símafélagið lúkka vel, mv. að það mínútugjaldið hjá þeim er líka til Nova þar sem allir sem ég þekki eru þar.
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Fim 03. Maí 2012 15:37
af Frantic
tdog skrifaði:Port 25 er notað fyrir SMTP þjónustuna, þetta er til þess að fólk fari ekki að setja upp óþarfa mail relaya á netinu.
Hvað meinaru með óþarfa mail relay?
Þurfa þá allir að stilla outlookið hjá sér til að taka á móti pósti á öðru porti?
Re: NOVA breytir verðskránni
Sent: Fim 03. Maí 2012 16:04
af tdog
JoiKulp skrifaði:tdog skrifaði:Port 25 er notað fyrir SMTP þjónustuna, þetta er til þess að fólk fari ekki að setja upp óþarfa mail relaya á netinu.
Hvað meinaru með óþarfa mail relay?
Þurfa þá allir að stilla outlookið hjá sér til að taka á móti pósti á öðru porti?
Undir venjulegum kringumstæðum stillir þú póstforritið á að nota mail relay frá netveitunni þinni. Annars er
þetta ágætis grein um opin mail relay.