Síða 2 af 2
Sent: Mið 19. Mar 2003 17:49
af coel
er enginn annar söluaðili með asus en boðeind?
Sent: Mið 19. Mar 2003 18:15
af Atlinn
Hérna sá ég fullt af ASUS borðum
Sent: Fim 20. Mar 2003 00:13
af GuðjónR
coel ég er búinn að bíða eftir Viewsonic flatskjá frá Bodeind í mánuð eða meira...þetta er alltaf að koma segja þeir en svo gerist ekki neitt, svo síðast þá var mér sagt að þetta væri ekki til hjá byrgjanum úti, en ef ég væri til í að borga FEDEX þá gæti ég fengið þetta strax. (þá allt í einu var þetta til hjá byrgjanum)
Og einu sinni var þetta komið í tollinn og átti að koma í búðina seinna í vikunni, svo seinna í vikunni þegar ég talaði við annan starfsmann þá var þetta ekki komið til landssins. hehehehe slæmt þegar margir eru að ljúga og einn veit ekki hvað hinir eru að segja.
Ég hélt að þetta væri enangrað tilfelli, en ég sé að þú ert að lenda í þessu með móbóið þitt líka, ætli þeir séu kannski að reyna að klára lager og hætta???
Allaveganna er ekki hægt að reka verslun svona.
Sent: Fim 20. Mar 2003 13:41
af Voffinn
lol...aldrei myndi ég bíða eftir neinum sköpuðum hlut...annað hvort ferðu þanngað og rífur kjaft eða beinir viðskiptum þínum annað... bendi t.d. á tölvulistann.... þeir hafa aldrei verið annað en góðir við mig

Sent: Fim 20. Mar 2003 14:01
af coel
mjen.... mig vantar kreditkort :/
Sent: Fim 20. Mar 2003 15:36
af Voffinn
mátt fá mitt lánað
Sent: Þri 25. Mar 2003 13:47
af coel
já, hvernig væri það

Sent: Þri 25. Mar 2003 16:46
af gumol
Voffinn = hundur tölvulistans. Nei, nei bara grín
afhverju vantar þér kreditkort coel? ég hélt að það væri hægt að versla allstaðar með peningum eða millifærslum.
Sent: Þri 25. Mar 2003 17:56
af Atlinn
well you thought wrong
Sent: Lau 29. Mar 2003 21:20
af gnarr
MÓÐURBORÐ - Gigabyte SINXP Pentium 4 478 pinna/SIS655/DDR/8X AGP/SATA/IEEE1394/DUAL RAID/USB 2.0
http://www.computer.is/vorur/3586
ÖrRGJÖRVI - Intel Pentium 4 2.40BGHz Northwood Örgjörvi 512K L2 Flýtiminni og 533 FSB CPU
http://tolvuvirkni.net/pw?inc=view&flo= ... L_P4_2.40B [ veit einhver hvað þetta B er í 2.40B GHZ ?? ]
MINNI 2x Kingston HyperX KHX2700/512 512MB DDR 333MHz (PC2700)
http://tolvuvirkni.net/pw?inc=view&flo= ... _512Mb_333
SKJÁKORT - ATI Radeon 9700 PRO 128 MB DDR með Dual Heads, TV-out og DVI, 8xAGP
http://www.bt.is/BT/Tolvubunadur/Skjabu ... 8M+DDR.htm
HARÐUR DISKUR - Maxtor 160 GB 7200RPM EIDE ATA133 8 MB Buffer Hard Drive (6Y160P0)
http://www.computer.is/vorur/2645
HARÐUR DISKUR - SATA! - Seagate (ST380023AS) 80 GB Serial ATA (SATA) 7200 sn/mín
http://www.computer.is/vorur/2574
HLJÓÐKORT - Creative Labs Sound Blaster Audigy 2 - Sound Card - innpakkað
http://www.computer.is/vorur/1548
KASSI - Stealth Tower
https://www.chillblast.com/productsdeta ... &PGSID=232
AFLGJAFI -
https://www.chillblast.com/productsdeta ... &PGSID=493
---
Ég setti bæði SATA 80Gb og ATA133 160Gb vegna þess að það er frekar lítill hraðamunur á þessum diskum. en ef þú vilt hámarks hraða myndi ég frekar taka 2 SATA heldur en einn ATA133. 160Gb dikurinn er með ódýrasta Gb. ég setti ATI 9700pro vegna þess að það er hraðasta kortið á markaðnum (GFFX er bara hávaða rusl). það yrði að panta kassann og psu frá usa eða uk, en það er þess virði. algjörlega þögn í tölvunni (algjör nauðsin ef mar vill hafa d/l í gangi yfiri nótt itldæmis ef tölvan er í sama herbergi. ég setti líka 2.4GHz vegna þess að það er ómælanlegur munur á honum og 3.06GHz.. kanski örlítill munur á AI en valla þannig að maður taki eftir því. hér eru nokkur verð, eftir því hvað fólk telur sig þurfa
300w ATA133 174.277
300w 2xSATA 184.585
400w ATA133 178.530
400w 2xSATA 188.838
verðið gæti breyst eitthvað vegna þess að ég er alger hálfviti og veit ekkert um sona innflutning.. ég setti verðið á kassanum og aflgjafanum með vsk. sem er úti, en ekki með innflutningsgjaldi eða neinum öðrum sköttum. (hvennig er þetta annars? borgar mar vsk. fyrir hluti sem mar pantar að utan?)
þesi tölva ætti að vera með öflugasta sem er til

Sent: Lau 29. Mar 2003 22:58
af GuðjónR
Þú tekur verðin sem eru úti bætir við þau flutningskostnaði til landsins og reiknar svo 24.5% vsk ofan á allt saman.
Ég veit ekki hvort það leggst 10% vörugjald líka á allt stöffið, en það er hugsanlegt.
Sent: Sun 30. Mar 2003 05:55
af halanegri
þetta B í p4 örgjörvunum þýðir:
Upphaflegur(ekki A eða B) = 0.18 míkrómetra stórir smárar á örgjörvanum og 400 MHz Front Side Bus
A = 0.13 míkrómetra stórir smárar á örgjörvanum og 400 MHz Front Side Bus
B = 0.13 míkrómetra stórir smárar á örgjörvanum og 533 MHz Front Side Bus
Sent: Þri 08. Apr 2003 16:38
af svennz
halanegri skrifaði:.....stórir smárar á örgj.....
ARGH! Ég þoli ekki þetta orð "smárar"..... Nota bara transistorar mar!