Síða 2 af 2
Re: Ný tollalög
Sent: Mán 06. Feb 2012 18:06
af Hargo
Nú á líka að fara að hækka tolla á tölvuskjái sem eru með Displayport tengi og tolla þá sem sjónvörp.
https://www.okbeint.is/hpbeint/ui/frett ... do?id=5026
Re: Ný tollalög
Sent: Mán 06. Feb 2012 18:08
af worghal
hef ég einhverntímann sagt ykkur frá HATRI mínu á íslenskum tollum ?

Re: Ný tollalög
Sent: Mán 06. Feb 2012 18:23
af Pandemic
natti skrifaði:
Ef ég panta vöru sem ég þarf að sækja til íslandspósts/tollafgreiðslu upp á höfða (Jörfa), þá er ég nær undantekningalaust beðinn um visa yfirlit ef ég borgaði fyrir vöruna með kredit korti.
Þeir eru mjög tregir við að taka tölvupósta eða önnur "invoice" gild.
Og ég hef verið mjög tregur við að sýna visa yfirlitið þar sem þar koma fram hlutir sem að tollinum kemur ekkert við er varðar aðra neyslu mína.
(Og nei þeir taka það ekki gilt ef ég kem með yfirlit sem er búið að eiga við í tölvu og blurra allar aðrar irrelevant línur.)
En yfirleitt nenni ég ekki að standa í þessu veseni og enda á því að sýna útprentað visa yfirlit hvort eð er. Líka þegar ég er að kaupa bækur af t.a.m. amazon.
Ég vil benda þér að hafa samband við persónuvernd einn tveir og bingó. Þeir hafa engan rétt á því að sjá kreditkortayfirlitin þín.
Re: Ný tollalög
Sent: Mán 06. Feb 2012 20:46
af dori
Hafa þeir ekki einmitt verið að gera þetta líka með skjái sem hafa HDMI tengi í einhvern tíma?
Re: Ný tollalög
Sent: Mán 06. Feb 2012 21:10
af Hargo
dori skrifaði:
Hafa þeir ekki einmitt verið að gera þetta líka með skjái sem hafa HDMI tengi í einhvern tíma?
Það gæti verið. Skjáirnir sem OK flytja inn eru samt eflaust meira fyrirtækjaskjáir og gætu bara verið með VGA, DVI og Displayport tengjum. Þekki það annars ekki nógu vel. Annars eru þessi tollalög svo vangefin.
Re: Ný tollalög
Sent: Þri 07. Feb 2012 00:32
af gardar
natti skrifaði:
Ástæðan fyrir þessum breytingum er eflaust sú að sum hraðflutningsfyrirtæki hafa tekið "nótuna" sem að er með í pakkanum gilda.
Ástæðan sem er gefin upp er sú að þetta sé gert til þess að sporna við innflutningi eiturlyfja, þar sem talið var að menn væru að nýta hraðsendingar í það.
Samkvæmt talsmönnum hraðsendingafyrirtækja þá segja þau hinsvegar að allar sendingar þeirra fari í gegn um strangara tollaeftirlit en alamennar sendingar.
Hvort undirliggjandi ástæða tollayfirvalda sé sú sem þú nefndir og að hraðsendingarfyrirtækin séu að segja satt og rétt frá hef ég ekki hugmynd um en þetta var amk það sem kom fram í fréttum.
dori skrifaði:Smá off topic en eiga þeir einhvern rétt á því að fá að sjá Visa yfirlitið þitt? Mér finnst það alveg fáránlegt ef svo er.
Þeir geta ekki skoðað kreditkortayfirlitið þitt nema þú gefir þeim heimild til þess, opnir heimabankann fyrir framan þá eða prentir yfirlitið út.
Hvort þeir megi halda pakkanum "í gíslingu" þangað til þú sýnir þeim greiðsluyfirlit er svo annað mál sem ég hef ekki kynnt mér. Það ætti þó auðvitað að vera nóg að mæta með greiðslukvittun frá seljanda.
Re: Ný tollalög
Sent: Þri 07. Feb 2012 00:37
af GullMoli
dori skrifaði:
Hafa þeir ekki einmitt verið að gera þetta líka með skjái sem hafa HDMI tengi í einhvern tíma?
Jú.
Ég bíð eftir því að þeir breyti þessu svo að skjáir með jack in/output falli í sama flokk..
Re: Ný tollalög
Sent: Þri 07. Feb 2012 00:42
af appel
Verði ég forsætisráðherra er Tollstjóraembættið fyrsta stofnunin sem ég legg niður.
Re: Ný tollalög
Sent: Þri 07. Feb 2012 01:16
af vesley
GullMoli skrifaði:dori skrifaði:
Hafa þeir ekki einmitt verið að gera þetta líka með skjái sem hafa HDMI tengi í einhvern tíma?
Jú.
Ég bíð eftir því að þeir breyti þessu svo að skjáir með jack in/output falli í sama flokk..
Held nú að þetta sé bara gömul saga með HDMI tölvuskjái.
Re: Ný tollalög
Sent: Þri 07. Feb 2012 01:26
af Olafst
vesley skrifaði:
Held nú að þetta sé bara gömul saga með HDMI tölvuskjái.
Gömul saga og enn í gildi.
Re: Ný tollalög
Sent: Mið 08. Feb 2012 09:08
af Arkidas
Sendi alltaf bara tölvupóst - aldrei vesen lol.
Re: Ný tollalög
Sent: Mið 08. Feb 2012 12:14
af Frantic
natti skrifaði:Pandemic skrifaði:
Ég hef pantað mikið á netinu og hef aldrei lent í þessu nema einu sinni þar sem ég fékk nótu fyrir annarri vöru sem var keimlík. Ég hef heldur aldrei lent í því að þurfa að framvísa Visa yfirliti.
Er það okkur sem viðskiptavinum að kenna að verslanir geta klúðrað málunum? Það eru ekki við sem erum að brjóta lög eða reyna að komast framhjá þeim ef seljendur senda vitlausa reikninga með.
Ef ég panta vöru sem ég þarf að sækja til íslandspósts/tollafgreiðslu upp á höfða (Jörfa), þá er ég nær undantekningalaust beðinn um visa yfirlit ef ég borgaði fyrir vöruna með kredit korti.
Þeir eru mjög tregir við að taka tölvupósta eða önnur "invoice" gild.
Þetta er reyndar rangt.
Ég hef aldrei sýnt þeim neitt yfirlit.
Það hefur alltaf verið nóg fyrir mig að prenta annaðhvort kvittunina sem ég hef fengið á email eða beint af síðunni.
...og ég er ekkert lítið búinn að vera að panta af netinu undanfarið ár.
Lenti samt í því um daginn að það vantaði á síðuna "Grand Total" og þá áætlaði tollurinn nákvæmlega $100 meira á mig en þetta kostaði.
Þvílíkur tröllaskapur í þeim.
Re: Ný tollalög
Sent: Mið 08. Feb 2012 13:23
af GullMoli
Olafst skrifaði:vesley skrifaði:
Held nú að þetta sé bara gömul saga með HDMI tölvuskjái.
Gömul saga og enn í gildi.
Þeir eru ekki flokkaðir sem "sjónvarp" beint en þeir eru í flokki sem ber sömu gjöld og sjónvörp. Þetta gekk í gegn í lok síðasta árs.