Síða 2 af 2

Re: TS: 42“ Panasonic Plasma TV PV70F – ódýrt

Sent: Fös 03. Feb 2012 22:51
af AciD_RaiN
Varstu eitthvað búinn að ráðfæra þig við lögfræðing??? Synd að lenda í svona... Ég bara óska þér alls hins besta.

Svartækni :pjuke

Re: TS: 42“ Panasonic Plasma TV PV70F – ódýrt

Sent: Fös 03. Feb 2012 23:00
af Claw
AciD_RaiN skrifaði:Varstu eitthvað búinn að ráðfæra þig við lögfræðing??? Synd að lenda í svona... Ég bara óska þér alls hins besta.

Svartækni :pjuke
Sælir.

Takk fyrir stuðninginn. Já ég var búinn að því, hér er svar lögfræðings:

Það er alveg ljóst að sjónvarpstæki af þessari gerð falla í þennan flokk sem neytendalöggjöfin telur að eigi að hafa lengri ábyrgðartíma en 2 ár.
Eins og þú veltir hins vegar réttilega fyrir þér þá er það hins vegar spurning hvort það sé kostnaðarins virði að leggja í málaferli út af þessu.
Það sem þú getur hins vegar gert er að skjóta málinu til úrskurðarnefndar í lausafjárkaupum. Það kostar ekkert að leggja málið fyrir nefndina.
Þú getur sjálfur fyllt út þá pappíra sem þarf að ganga frá.
Reyndar er seljandinn ekki skuldbundinn til að fylgja úrskurðinum en þetta er amk það sem þú getur gert án þess að leggja út í umtalsverðan kostnað.
Upplýsingar um kærunefndina eru á síðu neytendastofu.


Kv.
Claw

Re: TS: 42“ Panasonic Plasma TV PV70F – ódýrt

Sent: Fös 03. Feb 2012 23:05
af AciD_RaiN
Vá ömulegt :( Mann langar helst að safna í sjóð og borga lögfæðing til að fara í málið því þetta er bara horbjóður að lenda í svona rugli...

Re: TS: 42“ Panasonic Plasma TH-37PV70F – ódýrt

Sent: Sun 05. Feb 2012 14:42
af Claw
Er kominn með tilboð uppá 25þús en tækið fer á 30þús núna í dag ef það tilboð kemur.

Re: TS: 42“ Panasonic Plasma TV PV70F – ódýrt

Sent: Sun 05. Feb 2012 16:17
af pattzi
russi skrifaði:get líka bent áþað, að þó þú hefðir allt bakvið þig rétt, þa stórefa ég að nafni minn í SvarTækni myndi ábyrgjast þetta hann hefur skipt allavega 2x um kennitölur á síðustu fimm árum.
Í mínum bissness er hreinlega varað við honum, þetta er maðurinn sem kom Tæknival á hausinn, enn hann kom þeim líka á toppinn á sinum tíma

http://rsk.is/fyrirtaekjaskra/arsreikn/ ... ni+ehf&kt=" onclick="window.open(this.href);return false;


Tvær eru nú ekki mikið á fimm árum þar sem það hefur örugglega einhvað gerst sem var valdur af gjaldþroti

Re: TS: 42“ Panasonic Plasma TV PV70F – ódýrt

Sent: Sun 05. Feb 2012 16:21
af pattzi
pattzi skrifaði:
russi skrifaði:get líka bent áþað, að þó þú hefðir allt bakvið þig rétt, þa stórefa ég að nafni minn í SvarTækni myndi ábyrgjast þetta hann hefur skipt allavega 2x um kennitölur á síðustu fimm árum.
Í mínum bissness er hreinlega varað við honum, þetta er maðurinn sem kom Tæknival á hausinn, enn hann kom þeim líka á toppinn á sinum tíma

http://rsk.is/fyrirtaekjaskra/arsreikn/ ... ni+ehf&kt=" onclick="window.open(this.href);return false;


Tvær eru nú ekki mikið á fimm árum þar sem það hefur örugglega einhvað gerst sem var valdur af gjaldþroti
Elko Er líka búið að skipta um kennitölu nokkrumsinnum.

Re: SELT: 42“ Panasonic Plasma TH-37PV70F – ódýrt

Sent: Sun 05. Feb 2012 16:53
af Claw
Tækið er selt.

Kv.
Claw