Síða 2 af 2

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Fös 13. Jan 2012 13:45
af Joi_BASSi!
æi ég fattaði þetta, dori er með góðar pælingar og ég hefði ekki átt að líta á þetta sem svona einfalt mál.

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Fös 13. Jan 2012 13:55
af CendenZ
done

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Fös 13. Jan 2012 14:55
af dori
Joi_BASSi! skrifaði:æi ég fattaði þetta, dori er með góðar pælingar og ég hefði ekki átt að líta á þetta sem svona einfalt mál.
Joi_BASSi! skrifaði:ef að það má loka síðum með barnaklámi ef hverju má þá ekki loka síðum með annarsskonar viðbjóði?
Flott að þú sért búinn að fatta þetta... Málið er nefnilega að það má alveg loka síðum almennt. Ef það er virkilegt lögbrot í gangi og um er að ræða ólöglegt efni (væntanlega það sem þú kallar viðbjóð). Þá er sá sem hýsir það að brjóta lög með því að hýsa það. Það er ekkert mál að loka því í dag en það kostar svolítinn pening. Eitthvað sem við sjáum ekkert eftir þegar þetta er lögreglan að elta barnaperra eða ofbeldismenn.

Ástæðan fyrir því að það er verið að ýta þessu í gegn er að þá sleppa þessir hagsmunaaðilar við þetta ferli að hvert mál sé "custom" og að þurfa að eyða lögfræðingum í það (auk þess sem það sem þeir vilja loka á er ekki lögbrot skv. núgildandi lögum). Þessi lög ganga ekki útá að leyfa lokun á vefsíðum. Þetta gengur útá að ef það er rökstuddur grunur um að það sé eitthvað sem stuðlar að brotum gegn höfundarréttarlögum þá má loka fyrir án virkilegrar málsmeðferðar. Það er svo bara ef aðilinn kvartar sem málsmeðferðin fer í gang. Þetta er nokkuð sem brýtur nokkuð illa gagnvart grundvallar mannréttindum eins og tjáningarfrelsi og þeim reglum sem við byggjum á varðandi sakleysi uns sekt er sönnuð og annað slíkt.

Fyrir utan allt það. Þá finnst mér það að loka DNS færslum og að null routa IP tölum eins og var gert í dæmi slembings um árið mjög röng aðferð. Ef þú vilt loka á eitthvað sem er á internetinu er eina leiðin að ráðast á uppsprettuna. Allt annað er bara yfirborðsklór sem verndar engann.

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Mið 18. Jan 2012 18:46
af chaplin
Buttwipe-ið hann Lamar Smith gripin við að stela á netinu!

http://www.dailytech.com/Obama+Admin+De ... e23783.htm" onclick="window.open(this.href);return false;
http://mashable.com/2012/01/12/sopa-sponsor/" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.forbes.com/sites/insertcoin/ ... ocritical/" onclick="window.open(this.href);return false;

Mynd

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Mið 18. Jan 2012 19:43
af slubert
http://www.flickr.com/photos/slubert84/ ... hotostream" onclick="window.open(this.href);return false;

Flickr bauð mér að dekkja myndirnar mínar til þess að mótmæla sopa, ég gerði það við nokkrar.

SOPA: Er fáránleg lögjöf. Þetta snýst bara um peninga og völd og auðvita bitnar svona valdaníðsla á almeningi.

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Mið 18. Jan 2012 19:49
af htdoc
Blackout@Wikipedia,
ætli fyrirtæki eins og Google, Facebook, Yahoo, muni fylgja þessu eftir á sama degi?

https://en.wikipedia.org/wiki/Wikipedia ... Learn_more

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Mið 18. Jan 2012 19:51
af Gúrú
htdoc skrifaði:Blackout@Wikipedia,
ætli fyrirtæki eins og Google, Facebook, Yahoo, muni fylgja þessu eftir á sama degi?
https://en.wikipedia.org/wiki/Wikipedia ... Learn_more
Facebook líklega alls ekki en Bing, Google og Yahoo myndu allir þurfa að sættast á það að gera þetta samtímis,
annars myndi fyrirtækið sem að tekur þátt bara missa umferð yfir á hina. :)

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Mið 18. Jan 2012 19:58
af Kristján
það er nú ekki bara þetta drasl sem er í gangi

er reyndar ekki buinn að lesa neitt af þessu almenniglega en bíst við að þessa sé slæmt

en hvað með ACTA önnur mjög slæm skammstöfun Anti-Counterfeiting Trade Agreement

http://en.wikipedia.org/wiki/Anti-Count ... _Agreement" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.youtube.com/watch?v=citzRjwk-sQ" onclick="window.open(this.href);return false;

er þetta líka ekki eitthvað sem er að fara að koma yfir okkur öll líka.

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Mið 18. Jan 2012 19:58
af Gunnar
google ætlaði að hafa enþá leitarvélina í gangi en hafa svartann ramma yfir google merkinu. getur verið að það sé bara í bandaríkjunum samt.

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Mið 18. Jan 2012 21:09
af dori
Kristján skrifaði:það er nú ekki bara þetta drasl sem er í gangi

er reyndar ekki buinn að lesa neitt af þessu almenniglega en bíst við að þessa sé slæmt

en hvað með ACTA önnur mjög slæm skammstöfun Anti-Counterfeiting Trade Agreement

http://en.wikipedia.org/wiki/Anti-Count ... _Agreement" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.youtube.com/watch?v=citzRjwk-sQ" onclick="window.open(this.href);return false;

er þetta líka ekki eitthvað sem er að fara að koma yfir okkur öll líka.
Mér finnst einmitt skrýtið hvað ACTA fær lítið hatur. Næstum því jafn slæmt. Allar rannsóknarkröfurnar og ógeðið nema að ég held að það sé ekki verið að krukka í dns eitri þar.

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Mið 18. Jan 2012 23:13
af chaplin
Ætlar Obama ekki að nota neitunarvald sitt nema skilmálunum verið breytt?

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Mið 18. Jan 2012 23:25
af Tesy
Wikipedia er lokað til að mótmæla SOPA.. perfect tími, akkurat þegar ég þarf að skrifa ritgerð og þarf wikipedia!!

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Mið 18. Jan 2012 23:39
af Joi_BASSi!
dori skrifaði:
Joi_BASSi! skrifaði:æi ég fattaði þetta, dori er með góðar pælingar og ég hefði ekki átt að líta á þetta sem svona einfalt mál.
Joi_BASSi! skrifaði:ef að það má loka síðum með barnaklámi ef hverju má þá ekki loka síðum með annarsskonar viðbjóði?
Flott að þú sért búinn að fatta þetta... Málið er nefnilega að það má alveg loka síðum almennt. Ef það er virkilegt lögbrot í gangi og um er að ræða ólöglegt efni (væntanlega það sem þú kallar viðbjóð). Þá er sá sem hýsir það að brjóta lög með því að hýsa það. Það er ekkert mál að loka því í dag en það kostar svolítinn pening. Eitthvað sem við sjáum ekkert eftir þegar þetta er lögreglan að elta barnaperra eða ofbeldismenn.

Ástæðan fyrir því að það er verið að ýta þessu í gegn er að þá sleppa þessir hagsmunaaðilar við þetta ferli að hvert mál sé "custom" og að þurfa að eyða lögfræðingum í það (auk þess sem það sem þeir vilja loka á er ekki lögbrot skv. núgildandi lögum). Þessi lög ganga ekki útá að leyfa lokun á vefsíðum. Þetta gengur útá að ef það er rökstuddur grunur um að það sé eitthvað sem stuðlar að brotum gegn höfundarréttarlögum þá má loka fyrir án virkilegrar málsmeðferðar. Það er svo bara ef aðilinn kvartar sem málsmeðferðin fer í gang. Þetta er nokkuð sem brýtur nokkuð illa gagnvart grundvallar mannréttindum eins og tjáningarfrelsi og þeim reglum sem við byggjum á varðandi sakleysi uns sekt er sönnuð og annað slíkt.

Fyrir utan allt það. Þá finnst mér það að loka DNS færslum og að null routa IP tölum eins og var gert í dæmi slembings um árið mjög röng aðferð. Ef þú vilt loka á eitthvað sem er á internetinu er eina leiðin að ráðast á uppsprettuna. Allt annað er bara yfirborðsklór sem verndar engann.
ég tala um svoan hluti sem viðbjóð en ekki ólöglega hliti því að að það að einhvað sé ólöglegt er ekki ástæða. það þarf ástæðu fyrir hluti til að vera ólöglega svo að það er ástæðan fyrir því. (það þarf að lesa þetta vandlega þetta varð svolítið ruglingslegt)

annars er ég sammála því að vera á móti þessu.

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Fim 19. Jan 2012 00:11
af htdoc
daanielin skrifaði:Ætlar Obama ekki að nota neitunarvald sitt nema skilmálunum verið breytt?
hann hefur ekkert gefið út um það, en skv. fréttum vestanhafs hafa ráðgjafar hans ráðlagt honum að nota neitunarvald sitt

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Fim 19. Jan 2012 00:13
af htdoc
btw. var að taka eftir að firefox er með yfirlýsingu á móti SOPA ef maður opnar firefox browserinn

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Fim 19. Jan 2012 00:16
af Gunnar
htdoc skrifaði:btw. var að taka eftir að firefox er með yfirlýsingu á móti SOPA ef maður opnar firefox browserinn
endilega taka screenshot og posta því fyrir þá sem nota ekki firefox :)

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Fim 19. Jan 2012 00:32
af Klaufi
I DON'T KNOW WHAT WE ARE YELLING ABOUT!!!

Hvað getum við sem Íslendingar gert til að mótmæla þessu?

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Fim 19. Jan 2012 03:00
af Moldvarpan
SOPA blackouts lead to at least 10 senators withdrawing support!

PIPA support collapses, with 13 new Senators opposed


Flottar fréttir :happy

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Fim 19. Jan 2012 03:24
af worghal
hvað ætli gerist ef youtube geri sitt eigið blackout líka xD

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Fim 19. Jan 2012 09:36
af dori
Moldvarpan skrifaði:SOPA blackouts lead to at least 10 senators withdrawing support!

PIPA support collapses, with 13 new Senators opposed


Flottar fréttir :happy
Sýnir þetta ekki bara hvað þeir voru búnir að kynna sér málið illa?

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Fim 19. Jan 2012 12:01
af Matti21
Moldvarpan skrifaði:SOPA blackouts lead to at least 10 senators withdrawing support!

PIPA support collapses, with 13 new Senators opposed


Flottar fréttir :happy
Alltaf flott að sjá fleiri bætast í hópinn en þetta eru ekkert rosalegar tölur ef þú skoðar hvað það eru margir á þingi í bandaríkjunum...

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Fim 19. Jan 2012 12:48
af appel
Matti21 skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:SOPA blackouts lead to at least 10 senators withdrawing support!

PIPA support collapses, with 13 new Senators opposed


Flottar fréttir :happy
Alltaf flott að sjá fleiri bætast í hópinn en þetta eru ekkert rosalegar tölur ef þú skoðar hvað það eru margir á þingi í bandaríkjunum...
Þetta eru stórar tölur fyrir öldungadeildina, þar sem eru mun færri en á þinginu.

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Fim 19. Jan 2012 12:50
af dori
Hvernig er staðan núna? Ég veit ekki hvar er best að finna góðar upplýsingar um bandarísk pólitísk málefni. Var eitthvað að reyna að leita á google og skoðaði sopaopera.com en veit ekki hversu nýjar upplýsingar ég var að fá.

Re: SOPA/PIPA bills

Sent: Fös 20. Jan 2012 13:19
af nino
Gunnar skrifaði:
htdoc skrifaði:btw. var að taka eftir að firefox er með yfirlýsingu á móti SOPA ef maður opnar firefox browserinn
endilega taka screenshot og posta því fyrir þá sem nota ekki firefox :)
Ég tók saman helstu síðurnar og setti í gallerí sem hægt er að sjá hérna:

Svona leit internetið út þegar SOPA var mótmælt