Síða 2 af 5
Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Mán 26. Des 2011 22:46
af halli7
blackanese skrifaði:allavega ekki hjá björgunarsveitunum.
myndi aldrei detta í hug að kaupa hjá þeim og styrkja einhverja kalla sem leika sér á snjósleða uppá jökli.
Þetta er með því heimskulegra sem ég hef séð.
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Mán 26. Des 2011 22:48
af Klaufi
blackanese skrifaði:fatta ekki afhverju fólki finnst eins og það sé einhver skylda að styrkja þá, og hrauna yfir fólk sem dirfist að versla annars staðar.
frjáls markaður.
Verð samt að vera sammála þessu[/quote]
Þetta er alveg rétt, áróðurinn er svakalegur..
Maður skilur samt vel punktinn hjá þeim sem búast ekki við að þurfa nokkurntíman á hjálp þeirra að halda, þetta er allt önnur hugsun heldur en hjá þeim sem ferðast mikið eða búa þar sem oft er snarvitlaust veður.
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Mán 26. Des 2011 22:56
af urban
Klaufi skrifaði:blackanese skrifaði:fatta ekki afhverju fólki finnst eins og það sé einhver skylda að styrkja þá, og hrauna yfir fólk sem dirfist að versla annars staðar.
frjáls markaður.
Verð samt að vera sammála þessu
Þetta er alveg rétt, áróðurinn er svakalegur..
Maður skilur samt vel punktinn hjá þeim sem búast ekki við að þurfa nokkurntíman á hjálp þeirra að halda, þetta er allt önnur hugsun heldur en hjá þeim sem ferðast mikið eða búa þar sem oft er snarvitlaust veður.[/quote]
búa ekki allir hérna á íslandi ?
allavega svona þeir sem að eru að spá í flugeldum hér á landi allaveganna.
það geta verið snarvitlaus veður um allt land hérna, undanfarnir dagar sýna það annsi vel
og síðan hitt, þó svo að "þú" búir í kjarnorkuheldu húsnæði, þá gerir systir þín eða foreldrar það hugsanlega ekki, já eða annað skyldfólk.
en já, ég svo sem gagnrýni ekki þá sem að versla ekki við björgunarsveitirnar, sérstaklega þar sem að ég á frekar erfitt með það, kaupi lítið eða ekkert af flugeldum sjálfur, en að halda því fram að björgunarsveitar fólk sé að leika sér á vélsléðum upp á jökli eða álíka, svoleiðis vitleysa fer í taugarnar á mér.
jújú vissulega fær fólk að nota þessi tæki á einn eða annan hátt, yfirleitt kallast þetta æfingar, og let´s face it, þú æfist aldrei betur á neinu tæki en einnmitt með því að "leika þér" á því
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Mán 26. Des 2011 23:00
af Klaufi
urban skrifaði:
búa ekki allir hérna á íslandi ?
allavega svona þeir sem að eru að spá í flugeldum hér á landi allaveganna.
það geta verið snarvitlaus veður um allt land hérna, undanfarnir dagar sýna það annsi vel
Munurinn á því hvaða áhrif veðráttan hefur á kaffihúsafastagestinn sem býr í 101 og mannin sem býr á sveitabæ einhversstaðar fyrir austan vatnajökul er töluverður.
Það var minn punktur,
en þetta fólk
ætti að vera í minnihluta.
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Mán 26. Des 2011 23:22
af urban
Klaufi skrifaði:urban skrifaði:
búa ekki allir hérna á íslandi ?
allavega svona þeir sem að eru að spá í flugeldum hér á landi allaveganna.
það geta verið snarvitlaus veður um allt land hérna, undanfarnir dagar sýna það annsi vel
Munurinn á því hvaða áhrif veðráttan hefur á kaffihúsafastagestinn sem býr í 101 og mannin sem býr á sveitabæ einhversstaðar fyrir austan vatnajökul er töluverður.
Það var minn punktur,
en þetta fólk
ætti að vera í minnihluta.
jájá vissulega hefur það minni áhrif á þann sem að býr í 101.
en aftur á móti er ekki einsog það sé alltaf sama fólkið sem að björgunarsveitir aðstoða.
og í raun allir í svipaðri hættu þegar að kemur að því.
(lagaði kvótið fyrir þig)
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Þri 27. Des 2011 00:37
af ZiRiuS
Smá trololol
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Þri 27. Des 2011 01:27
af Glazier
methylman skrifaði:pattzi skrifaði:Var að panta tvo 10 flugeldar í pakka á kraftkaup
Þetta er nærri því óséð það er ekkert mál á flugeldunum, eða ekkert eldspítur eða annað sem hægt er að meta stærðna á þessu eftir. Dettur ekki í hug að kaupa neitt óséð
Aldrei heyrt talað um að stærðin skipti ekki máli?

Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Þri 27. Des 2011 01:46
af methylman
Glazier skrifaði:methylman skrifaði:pattzi skrifaði:Var að panta tvo 10 flugeldar í pakka á kraftkaup
Þetta er nærri því óséð það er ekkert mál á flugeldunum, eða ekkert eldspítur eða annað sem hægt er að meta stærðna á þessu eftir. Dettur ekki í hug að kaupa neitt óséð
Aldrei heyrt talað um að stærðin skipti ekki máli?

Þarna gerir hún það, fyrir mig allavega. Ekkert smáprump.
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Þri 27. Des 2011 02:41
af DabbiGj
blackanese skrifaði:allavega ekki hjá björgunarsveitunum.
myndi aldrei detta í hug að kaupa hjá þeim og styrkja einhverja kalla sem leika sér á snjósleða uppá jökli.
fatta ekki afhverju fólki finnst eins og það sé einhver skylda að styrkja þá, og hrauna yfir fólk sem dirfist að versla annars staðar.
frjáls markaður.
imo.
Fyrirgefið að ég skuli vera að vera með smá þráðrán, en sjálfur er ég í björgunarsveit og hef verið í rúm 5 ár, sjálfur ferðast ég mikið á fjöllum og vinn sömuleiðis mjög mikið uppi á fjöllum og í óbyggðum Íslands við mína vinnu. Til að gefa smá hugmynd að þá eyði ég að jafnaði kannski 10-20 tímum í hverri viku í ýmiskonar sjálfboðavinnu í minni björgunarsveit og það er viðhald á tækjum, sjá til þess að búnaður er útkallshæfur, tiltektir, sinna mínum eigin persónulega útkallsbúnaði sem að ég hef verslað fyrir mína peninga og nýlega reiknaði ég að það væri búnaður að andvirði rúmlega 700.000 kr. sem að ég væri með í mínum skáp.
Björgunarsveitir á Íslandi eru flestar að nánast öllu leyti reknar fyrir tekjurnar af flugeldasölunni sem þýðir að þær hafa 6 daga á ári til að ná að brúa árið og fá fjármagna starfið yfir það ár. Sumar minni sveitir t.d. geta lent í vandræðum ef að tæki tjónast og hætta er á að þær leggist einfaldlega niður og sömuleiðis ef að flugeldasala gengur illa þarsem að ríkið styrkir björgunarsveitirnar ekki beint en kemur að rekstri 13 björgunarskipa sem eru hringinn í kringum landið.
Sjálfur hef ég ekkert á móti því að einkasalar séu að selja og fagna þeirri fjölbreytni sem þeir bjóða uppá og allt gott og ljómandi ef að fólk verslar þar.
En svona heimskuleg ummæli sem að byggja á ekki neinu nema fáfræði og skilningsleysi á því stórmerkilega starfi sem að er unnið undir merkjum björgunarsveita á Íslandi og er bara væl sem á ekki neinn rétt á sér.
Ég vona bara að ég sjái sem flesta Vaktara koma og versla af björgunarsveitum í sinni heimabyggð og vona að allir gott yfir hátíðirnar og eigi gleðilegt nýtt ár sama hvar þeir versli sína flugelda, þ.e. allir nema blackanese sem er klárlega rasshaus sem veit voðalega lítið.
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Þri 27. Des 2011 02:59
af Robertas Denton
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Þri 27. Des 2011 03:04
af SolidFeather
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Þri 27. Des 2011 03:09
af Magneto
mér finnst skáti svo lame orð.......

Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Þri 27. Des 2011 03:13
af Robertas Denton
Skátar eru grjótharðir naglar sem taka pottorma eins og þig í bóndabeygju eins og að drekka vatn. Show some respect
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Þri 27. Des 2011 03:17
af Magneto
Robertas Denton skrifaði:Skátar eru grjótharðir naglar sem taka pottorma eins og þig í bóndabeygju eins og að drekka vatn. Show some respect
U mad bro ?
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Þri 27. Des 2011 03:22
af Robertas Denton
Kanntu annan, væni? Ég læt ekki einhverja netdólga eins og þig koma mér úr jafnvægi.
Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Þri 27. Des 2011 03:25
af ZiRiuS
Robertas Denton skrifaði:Kanntu annan, væni? Ég læt ekki einhverja netdólga eins og þig koma mér úr jafnvægi.
Sýnist þú bara vera kominn úr jafnvægi alveg á eigin spítur

Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Þri 27. Des 2011 03:27
af Robertas Denton
Sitt sýnist hverjum hater

Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Þri 27. Des 2011 03:28
af ZiRiuS
http://www.youtube.com/watch?v=WRmBChQjZPs" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Þri 27. Des 2011 03:29
af braudrist
Robertas Denton skrifaði:Skátar eru grjótharðir naglar sem taka pottorma eins og þig í bóndabeygju eins og að drekka vatn. Show some respect
Læra skátar sem sagt sjálfsvarnarlistir líka? Hélt að maður lærði bara hnúta og að kveikja eld í skátunum.
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Þri 27. Des 2011 03:40
af Robertas Denton
Ég held að þú sért búinn að horfa á aðeins of mikið af Disney myndum því þú ert greinilega með brenglaða hugmynd í kollinum um það að skátarnir snúist bara um að haldast í hendur og syngja kumbaya á meðan þeir grilla sykurpúða og orna sér við opinn eld.
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Þri 27. Des 2011 03:50
af fallen
Robertas Denton skrifaði:Hvernig dirfast þessi söluaðilar að ryðjast inn á þennan frjálsa markað
Also, fólk er akkúrat ekkert skuldbundið til þess að kaupa flugelda hjá björgunarsveitum. Þessi heimtifrekja er beyond mindblowing. Í hvert skipti sem einhverjum dettur í hug að versla púðrið sitt annarsstaðar þá hrópa menn landráð, hvílíka ruglið.
Fólki er frjálst að eyða peningunum sínum á þeim stöðum sem það kýs. Ekki myndi ég reka bissness undir því yfirskyni að 1 vika á ári borgi fyrir reksturinn og hvað þá ef sú vika innifelur ekki sölu á neinu sem ég hef einkaleyfi á. Björgunarsveitir ættu ekki heldur að gera það. Fólk ætti frekar að vera heimta nýjar söfnunaraðferðir en að standa í nornaveiðum á samborgurum sínum vegna þess að það er ekki í áskrift að forræðishyggju þeirra.
Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Þri 27. Des 2011 05:25
af Gúrú
GormurX skrifaði:Okkur ber siðferðileg skylda til að standa dyggilega við bakið á hjálparsveitunum um áramótin og flugeldasala er þeirra aðal tekjulind.
Þetta fólk fórnar ótrúlega miklu fyrir okkur, bæði í tíma og eigin fjármunum auk þess að það leggur sig í stór hættu við björgunarstörf.
Það kemur ENGINN annar flugeldasali og neglir fyrir gluggan þinn ef hann brotnar í ofviðri eða þakið fýkur af.
Ég veit ekki hvaða undarlega heimi þú og þeir sem að fallast undir þessa "okkur" lifa í
en mér ber ekki siðferðisleg skylda til að styrkja hjálparsveitir.
Sannleikurinn er sá að með því að kaupa flugelda hjálparsveitanna á
dýrara verði er maður einfaldlega
að kjósa það að styrkja um leið hjálparsveitirnar og fá þar með minna af flugeldum fyrir peninginn sinn.
Það eru mun verðugri góðgerðarsamtök en hjálparsveitirnar á Íslandi og mörg þeirra geta bjargað mun fleiri mannslífum fyrir peninginn en þær.
Ef eitthvað er þá ber þér siðferðisleg
skylda til að styrkja þau góðgerðarsamtök sem að munu nýta fjármagnið best;
bjarga sem flestum mannslífum og lágmarka hvað mestan sársauka.
Það eru hinsvegar ekki hjálparsveitirnar á Íslandi - og þær eru ekki nálægt því -, svo að þú ættir ekki að skírskota til siðferðislegra skyldna.
DabbiGj skrifaði:Björgunarsveitir á Íslandi eru flestar að nánast öllu leyti reknar fyrir tekjurnar af flugeldasölunni sem þýðir að þær hafa 6 daga á ári til að ná að brúa árið og fá fjármagna starfið yfir það ár.
Ég veit fyrir víst að þetta eru í besta falli ýkjur, vissulega kemur megnið af fjármagninu inn um áramótin
en það er mjög misvísandi að segja "að nánast öllu leyti" ef þú spyrð mig.

Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?
Sent: Þri 27. Des 2011 12:44
af GuðjónR
fallen skrifaði:Robertas Denton skrifaði:Hvernig dirfast þessi söluaðilar að ryðjast inn á þennan frjálsa markað
Also, fólk er akkúrat ekkert skuldbundið til þess að kaupa flugelda hjá björgunarsveitum. Þessi heimtifrekja er beyond mindblowing. Í hvert skipti sem einhverjum dettur í hug að versla púðrið sitt annarsstaðar þá hrópa menn landráð, hvílíka ruglið.
Fólki er frjálst að eyða peningunum sínum á þeim stöðum sem það kýs. Ekki myndi ég reka bissness undir því yfirskyni að 1 vika á ári borgi fyrir reksturinn og hvað þá ef sú vika innifelur ekki sölu á neinu sem ég hef einkaleyfi á. Björgunarsveitir ættu ekki heldur að gera það. Fólk ætti frekar að vera heimta nýjar söfnunaraðferðir en að standa í nornaveiðum á samborgurum sínum vegna þess að það er ekki í áskrift að forræðishyggju þeirra.
Algjörlega sammála, maður fær samviskubit ef maður hugsar um að spara og kaupa af öðrum en björgunarsveitunum, slíkur er áróðurinn og heilaþvotturinn.

Re: Fyrir þá sem versla flugelda af björgunarsveitunum
Sent: Þri 27. Des 2011 13:47
af coldcut
Er Hjálparsveit Skáta það sama og Björgunarsveitin?

Re: Fyrir þá sem versla flugelda af björgunarsveitunum
Sent: Þri 27. Des 2011 13:58
af g0tlife
eftir að hafa lesið þennann þráð þá hef ég tekið þá ákvörðun að ég ætla aldrei að versla flugelda hjá björgunarsveitinni aftur