Síða 2 af 2

Re: Tölvulistinn

Sent: Mán 02. Jan 2012 19:04
af paze
Tesy skrifaði:Ég er með Razer Naga, þetta gerist hjá mér en þar sem ég spila ekki 1st person shooter leikir þá skiptir þetta rosa litlu máli. Þetta færist líka svo lítið að það skiptir mig engu máli.

Mæli ekki með Naga fyrir þá sem spila 1st person shooter en TOPP mús fyrir MMO
Mér finnst þetta bara ómögulegt á desktopinu líka. Ég er kannski smámunasamur þegar að kemur að svona hlutum en þegar ég er að borga top notch fyrir gæði, þá finnst mér svona galli alveg fyrir neðan allar hellur. Ég tók eftir þessu strax og ég setti hana í samband.

Re: Tölvulistinn

Sent: Þri 03. Jan 2012 16:39
af stebbi23
Verslaði 500GB WD My book disk hjá þeim fyrir nokkrum árum og hann bilaði eitthvað og eftir að hafa verið svona sirka viku hjá þeim þá var hringt mig og ég fékk alveg nýjan flakkara nema það að sá var 1TB
Hef ekki hugmynd um hvort það voru mistök eða ekki en ég var ekkert að kvarta :D

Re: Tölvulistinn

Sent: Mið 04. Jan 2012 01:51
af gunni91
þó svo að tölvulistinn sé ekki sú ódýrasta standa þeir fyrir sínu. Hef nokkrum sinnum átt viðskipti við þá og aldrei neitt vesen.
Verslaði mér móðurborð hjá þeim sem bilaði ári seinna og fékk nýtt í staðin eftir 2 daga bilunargreiningu! toppmenn!

Re: Tölvulistinn

Sent: Mið 04. Jan 2012 10:29
af Baraoli
Fá sér bara g700 og málið er dautt. frábær mús, bæði þráðlaus og beintengd og á ekki við svona laser vandamál að stríða.

Re: Tölvulistinn

Sent: Mið 04. Jan 2012 12:53
af paze
Baraoli skrifaði:Fá sér bara g700 og málið er dautt. frábær mús, bæði þráðlaus og beintengd og á ekki við svona laser vandamál að stríða.
Er að spá í því.

Hérna má sjá z axis vandamálið á naga: http://www.youtube.com/watch?feature=pl ... E8x_-ZsJoY#" onclick="window.open(this.href);return false;!

Phillips Twin eye sensorar eru með þetta vandamál, þannig ef þið spilið leiki að einhverju viti, ekki kaupa mýs með phillips twin eye sensor.

Re: Tölvulistinn

Sent: Mið 04. Jan 2012 14:14
af methylman
Á ég ekki bara að leysa leiservandamálið fyrir þig með því að selja þér Razer Boomslang 2000 ?? :o

Re: Tölvulistinn

Sent: Mið 04. Jan 2012 16:50
af halli7
Er sjálfur með G700 og finnst hún algjör snilld :D

Re: Tölvulistinn

Sent: Mið 04. Jan 2012 16:54
af braudrist
Ég ég alveg sammála paze, pro gamers eiga ekki að láta bjóða sér svona laserdrasl. Ertu búinn að tjekka á nýju R.A.T 9 músinni hvort hún sé með þetta?

Re: Tölvulistinn

Sent: Mið 04. Jan 2012 17:39
af Black
ég var með Razer deathadder um tíma, versta mús sem ég hef prufað lenti sjálfur í þessu með að cursorinn fór alltaf útí horn handónýtar mýs,

Re: Tölvulistinn

Sent: Mið 04. Jan 2012 19:40
af Plushy
Black skrifaði:ég var með Razer deathadder um tíma, versta mús sem ég hef prufað lenti sjálfur í þessu með að cursorinn fór alltaf útí horn handónýtar mýs,
Er búinn að eiga tvær hef ekkert orðið var við þetta.

Re: Tölvulistinn

Sent: Fim 05. Jan 2012 08:56
af paze
braudrist skrifaði:Ég ég alveg sammála paze, pro gamers eiga ekki að láta bjóða sér svona laserdrasl. Ertu búinn að tjekka á nýju R.A.T 9 músinni hvort hún sé með þetta?
R.A.T 9 er með Phillips Twin eye því miður. Sama má segja um allar Cyborg mýsnar.

Re: Tölvulistinn

Sent: Fim 05. Jan 2012 09:00
af paze
Plushy skrifaði:
Black skrifaði:ég var með Razer deathadder um tíma, versta mús sem ég hef prufað lenti sjálfur í þessu með að cursorinn fór alltaf útí horn handónýtar mýs,
Er búinn að eiga tvær hef ekkert orðið var við þetta.
Enda er deathadder optical og á ekki við þetta vandamál að stríða.

Upprunnalegur höfundur; Getur verið að þú sért að tala um eitthvað af öðrum Razer músum hérna með Phillips Twin eye?

Razer Disney TRON Philips Twin Eye PLN 2032 Laser

Razer Imperator Philips Twin Eye PLN 2032 Laser

Razer Lachesis Philips Twin Eye PLN 2031 Laser

Razer Mamba Philips Twin Eye PLN 2032 Laser

Razer Naga Philips Twin Eye PLN 2032 Laser

Razer Orochi Philips Twin Eye PLN 2031 Laser

Razer Spectre Philips Twin Eye PLN 2032 Laser

Annars hefur það verið annað vandamál. En ég er sammála. Razer er drasl. Ég senti þeim mail og sagði þeim að þeir ættu ekki að vera láta eins og þeir væru að selja pro peripherals þegar allir sem hafa eitthvað vit á jaðartækjum og hvaða áhrif þau hafa á hæfni í leikjum, vita að þetta er drasl og ekki nokkrum manni bjóðandi.

Þeir sögðu bara sorrí en að þeir könnuðust ekkert við það sem ég væri að tala um.. Sem þýðir að annaðhvort vita þeir ekki rassgat um eigin vörur eða þeim er skítsama.

Einn stórann putta á Razer héðan. Kaupi aldrei neitt þaðan framar.

Re: Tölvulistinn

Sent: Fim 05. Jan 2012 09:10
af ScareCrow
Ég var með þessa mús sem Black átti lánaða í tíma, og er þetta mesta rusl sem ég hef einhverntíman notað, frekar hefði ég nota mx518 með sambandsleysi.