Síða 2 af 3

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mán 31. Okt 2011 20:18
af bulldog
vesley skrifaði:
bulldog skrifaði:Nei því miður er að fara að kaupa mér skjákort \:D/

Hlýtur að geta pungað út 1500kall auka fyrir neyðarkallin ;)
það er spurning ... kortið er svo dýrt en ég veit fyrir hvað neyðarkallinn stendur. Það er fáránlegt að björgunarsveitirnar þurfi að vera að selja svona því að þær ættu að vera á fjárlögum ríkisins.

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mán 31. Okt 2011 20:23
af Black
bulldog skrifaði:
vesley skrifaði:
bulldog skrifaði:Nei því miður er að fara að kaupa mér skjákort \:D/

Hlýtur að geta pungað út 1500kall auka fyrir neyðarkallin ;)
það er spurning ... kortið er svo dýrt en ég veit fyrir hvað neyðarkallinn stendur. Það er fáránlegt að björgunarsveitirnar þurfi að vera að selja svona því að þær ættu að vera á fjárlögum ríkisins.
Mynd

Skjákortið kemur þér ekki til bjarga :megasmile

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mán 31. Okt 2011 20:28
af bulldog
Góður =D> Ég hætti mér aldrei upp á hálendið og mér sýnist maðurinn sem er verið að bjarga vera miklu grennri en ég ...... Spurning hvort þyrlan myndi ekki hrapa með mig þarna :oops:

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mið 31. Okt 2012 16:20
af Black
Þetta er Neyðarkall! fjáröflun Björgunarsveitanna er 1-3 nóvember

Mynd

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mið 31. Okt 2012 16:32
af jagermeister
Kaupi að sjálfsögðu!

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mið 31. Okt 2012 16:36
af Talmir
Kaupi mér alltaf neyðarkall.

Bulldog : Ég er í sama bát. Ég fer aldrei út á land, lýður mun betur fyrir framan stafræna ferkantaða ávanapúkann. Hinsvegar þá á ég mér vini og vandamenn sem fara á hálendið og hefur verið bjargað oftar en einu sinni af björgunarsveitunum. Ef það er eitthvað sem allir eiga að styrkja þá er það þetta.

Ó, og niður með kringluna!

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mið 31. Okt 2012 16:41
af worghal
ég mun líklegast kaupa kallinn ef ég labba framhjá einhvejum sem er að selja.
annars fer ég sjálfur ekkert út á land en hann pabbi er mikið að jeppast og mamma mikið í göngum svo ég legg mitt fram :happy

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mið 31. Okt 2012 16:45
af halli7
Kaupi eitt stykki.

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mið 31. Okt 2012 17:03
af dabb
Hvað fer mikið af þessum pening í að bjarga útlendingum sem príla upp á hálendið í stuttermabol?

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mið 31. Okt 2012 17:11
af GuðjónR
dabbtech skrifaði:Hvað fer mikið af þessum pening í að bjarga útlendingum sem príla upp á hálendið í stuttermabol?
LOL ég var einmitt að segja þetta við konuna mína, er ekki stór partur af starfseminni í því fólginn að elta útlendinga sem keyra uppá jökul á sumardekkjunum?
Útlendingar sem ætla sér á hálendið ættu að vera skyldugir að kaupa sér tryggingar, ef þeir gera það ekki þá er það bara þeirra mál ef þeir týnast.
Ferðamannastraumur til landsins er alltaf að aukast og það er fáránlegt að vera með samtök sem kosta hundruð milljóna á ári til þess að passa upp á þetta fólk.
Útlendingar kaupa hvorki Neyðarkallinn né flugelda þannig að ekki koma með "en hvað með íslendinga sem týnast".

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mið 31. Okt 2012 17:25
af Xovius
Eru þeir að fá einhverja styrki úr ferðasjóði (eða hvað sem það heitir) líka? Það væri allavegana rökrétt :)

Og auðvitað svara ég kallinu :)

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mið 31. Okt 2012 17:29
af oskar9
kaupi alltaf 2-3 kalla og svo flugelda fyrir tugi, stundum hundruðu þúsunda

Er mikið á fjallaskíðum og vélsleðum og vil vita af þessum mannskap ef eitthvað kemur uppá hjá manni :happy

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mið 31. Okt 2012 17:31
af hfwf
GuðjónR skrifaði:
dabbtech skrifaði:Hvað fer mikið af þessum pening í að bjarga útlendingum sem príla upp á hálendið í stuttermabol?
LOL ég var einmitt að segja þetta við konuna mína, er ekki stór partur af starfseminni í því fólginn að elta útlendinga sem keyra uppá jökul á sumardekkjunum?
Útlendingar sem ætla sér á hálendið ættu að vera skyldugir að kaupa sér tryggingar, ef þeir gera það ekki þá er það bara þeirra mál ef þeir týnast.
Ferðamannastraumur til landsins er alltaf að aukast og það er fáránlegt að vera með samtök sem kosta hundruð milljóna á ári til þess að passa upp á þetta fólk.
Útlendingar kaupa hvorki Neyðarkallinn né flugelda þannig að ekki koma með "en hvað með íslendinga sem týnast".
Good point. Ferðamannaskattur go!

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mið 31. Okt 2012 17:35
af Frost

Þetta gengur nú ekki allt að leita að týndum túristum. Gengur líka út á að hjálpa fólki landsins á veturna og þarf stór og góð faratæki í það sem eflaust þarfnast viðhalds.

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mið 31. Okt 2012 17:46
af vesi
Kaup kallinn og álfin á hverju ári og fer ekki að hætta því núna,, þetta er það minsta sem maður getur gert fyrir þetta góða starf sem báðir aðilar vinna.

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mið 31. Okt 2012 19:57
af Glazier
GuðjónR skrifaði:
dabbtech skrifaði:Hvað fer mikið af þessum pening í að bjarga útlendingum sem príla upp á hálendið í stuttermabol?
LOL ég var einmitt að segja þetta við konuna mína, er ekki stór partur af starfseminni í því fólginn að elta útlendinga sem keyra uppá jökul á sumardekkjunum?
Útlendingar sem ætla sér á hálendið ættu að vera skyldugir að kaupa sér tryggingar, ef þeir gera það ekki þá er það bara þeirra mál ef þeir týnast.
Ferðamannastraumur til landsins er alltaf að aukast og það er fáránlegt að vera með samtök sem kosta hundruð milljóna á ári til þess að passa upp á þetta fólk.
Útlendingar kaupa hvorki Neyðarkallinn né flugelda þannig að ekki koma með "en hvað með íslendinga sem týnast".
Lang flestar leitir eru framkvæmdar innanbæjar..
Að alzheimer sjúklingum og börnum.

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mið 31. Okt 2012 20:01
af lukkuláki
dabbtech skrifaði:Hvað fer mikið af þessum pening í að bjarga útlendingum sem príla upp á hálendið í stuttermabol?
Þeir borga slatta til baka í formi hraðasekta :D

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mið 31. Okt 2012 20:02
af GuðjónR
Glazier skrifaði:Lang flestar leitir eru framkvæmdar innanbæjar..
Að alzheimer sjúklingum og börnum.
Virkilega?

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mið 31. Okt 2012 20:07
af Glazier
GuðjónR skrifaði:
Glazier skrifaði:Lang flestar leitir eru framkvæmdar innanbæjar..
Að alzheimer sjúklingum og börnum.
Virkilega?
Jeb.

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mið 31. Okt 2012 21:30
af Bjosep
Glazier skrifaði: Að alzheimer sjúklingum og börnum.
Ég vænti þess þó að innanbæjarleit sé umtalsvert ódýrari en hálendisbjörgun fyrir björgunarsveitirnar.

En margt smátt gerir vissulega eitt stórt ...

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mið 31. Okt 2012 22:43
af Klaufi
Já.

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Fim 01. Nóv 2012 00:25
af JReykdal
Það að gera leit að spurningu um kostnað býður bara upp á að fólk fer að veigra sér við að kalla til björgunaraðila af ótta við að fá reikning. Þá fyrst fara lífin að týnast.

Björgunarsveitirnar eru eiginlega orðnar hluti af "samfélagssáttmála" Íslendinga. Þeir bjarga okkur og við látum þá fá pening ef við erum aflögufær.

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Fim 01. Nóv 2012 00:55
af chaplin
GuðjónR skrifaði: Gæti ekki verið meira sammála...leggja niður þjóðkirkjuna og stórefla björgunarsveitirnar.
Getur e-h svarað því hvað það fer mikill kostnaður í að reka þjóðkirkjuna eða bara öll trúarfélög og því sem þeim tengist (laun, húsnæði osfrv) á ári?

Annars já, auðvita kaupir maður Neyðrakallinn. :happy

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Fim 01. Nóv 2012 08:38
af SIKk
Black skrifaði:Þetta er Neyðarkall! fjáröflun Björgunarsveitanna er 1-3 nóvember

Mynd
1.-3. Nóvember?

Ættuð að gera samning við lágvöruverðsverslanir eins og Bónus og Krónuna og svona staði og leyfa þeim að selja það við kassann...
Gæti verið í sölu í amk mánuð með því móti ..

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Fim 01. Nóv 2012 09:41
af KermitTheFrog
Tek tvo, en ekki af þér...