Síða 2 af 2
Re: Tölvuvandamál
Sent: Lau 30. Júl 2011 23:06
af AncientGod
Hann er ekki að fara gera þetta hann skrifaði meira að segja comment að hann sé ekki að fara fikta í þessu þannig af hverju eru þið að segja honum að gera eithvað sem hann vill ekki.
Ég veit lítið sem ekkert um tölvur (svo ég ætti ekkert að vera að opna hana og fikta neitt)
Re: Tölvuvandamál
Sent: Lau 30. Júl 2011 23:12
af nonesenze
AncientGod skrifaði:Hann er ekki að fara gera þetta hann skrifaði meira að segja comment að hann sé ekki að fara fikta í þessu þannig af hverju eru þið að segja honum að gera eithvað sem hann vill ekki.
Ég veit lítið sem ekkert um tölvur (svo ég ætti ekkert að vera að opna hana og fikta neitt)
maður verður að byrja einhverstaðar, og ef maður veit svona lítið þá á maður ekki að opna kassann og ryksuga hann, og þess vegna spurði ég hvar hann væri svo einhver gæti litið á þetta
Re: Tölvuvandamál
Sent: Lau 30. Júl 2011 23:15
af AncientGod
ég var ekki tala um þig =D þú skrifaðir 1 sec á undan =S en hann ryksugaði að utan ekki að innan.
tölvan er rykug svo ég ryksuga hana að utan og strýk með ryksugunni yfir aflgjafa grindina,
Re: Tölvuvandamál
Sent: Lau 30. Júl 2011 23:27
af nonesenze
vá hvað ég var að hugsa örgjörva grindina... (heatsink) en psu grindina... þá gæti eitthvað hafa farið af stað í aflgjafanum..... blása ALMENILEGA þangað til að það hættir að koma ryk framan í þig og try again, annars sennilega aflgjafi ónýtur, allavega síðan hún virkaði seinast og ekki núna
Re: Tölvuvandamál
Sent: Lau 30. Júl 2011 23:28
af gangstalicious
ég bý í vesturbænum, 101, rvk
Re: Tölvuvandamál
Sent: Lau 30. Júl 2011 23:30
af nonesenze
gangstalicious skrifaði:ég bý í vesturbænum, 101, rvk
versta er með steriotýpuna af tölvunörd er feitur og nennir ekki að hreyfa sig, en ég er í kef með eitt ungbarn sofandi svo ég kemst hvergi
Re: Tölvuvandamál
Sent: Mán 01. Ágú 2011 19:04
af gangstalicious
Ancientgod fór yfir tölvuna, segir að aflgjafinn sé í góðu standi.. en heldur að móðurborðið sé ónýtt.. haldiði að það sé staðreyndin?
Nenni ekki að fara með hana í kísildal fyrir 4k og fá bara sömu niðurstöðu, ohhhhh vesen!!!
Re: Tölvuvandamál
Sent: Mán 01. Ágú 2011 19:06
af MatroX
gangstalicious skrifaði:Ancientgod fór yfir tölvuna, segir að aflgjafinn sé í góðu standi.. en heldur að móðurborðið sé ónýtt.. haldiði að það sé staðreyndin?
Nenni ekki að fara með hana í kísildal fyrir 4k og fá bara sömu niðurstöðu, ohhhhh vesen!!!
mældi hann aflgjafan með mælir? eða prufaði hann annan aflgjafa?
Re: Tölvuvandamál
Sent: Mán 01. Ágú 2011 19:09
af AncientGod
Ég prófaði aðra 2 aflgjafa sem eiga að virka því þeir hafa virkað fyrir mig en þeir virkuðu ekki á þessari tölvu, tók þetta í sundur, skjákortið er í lagi, hdd, vinnsluminni, þannig ég held að móðurborðið er í steik þar sem ég prófaði hans aflgjafa í mitt low profile setup og það virkaði þannig minn niðurstaða er að móðurborðið eða örgjörvin eru í steik.
Re: Tölvuvandamál
Sent: Mið 03. Ágú 2011 18:48
af gangstalicious
Jæja, Ancientgod hafði rétt fyrir sér.. Ætla byrja á að þakka honum, hann stóð við sitt, mæli sérstaklega með honum ef upp kemur vandamál.
Ég fór með vélina í Kísildal, þeir staðfestu að móðurborðið væri dautt. (R.I.P.), svo ég ákvað að splæsa í nýtt móðurborð sem verður sett í skrímslið og tilbúið á morgun.
Takk fyrir öll svör og hjálp, vaktin.is er standa sig!