Síða 2 af 2

Re: Áhyggjufull móðir (rafmagnsvespa)

Sent: Fim 30. Jún 2011 16:32
af hauksinick
Breyta*

Re: Áhyggjufull móðir (rafmagnsvespa)

Sent: Fim 30. Jún 2011 19:32
af zenon
hauksinick skrifaði:Breyta*
vittleysu* (VITLEISU )

Re: Áhyggjufull móðir (rafmagnsvespa)

Sent: Lau 23. Jún 2012 23:58
af Yawnk
Afsakið fyrir að vekja upp gamlan þráð... þetta var sá eini sem ég gat fundið um rafmagnsvespur, er svolítið forvitinn um þetta, þetta flokkast undir létt bifhjól núna er það ekki? s.s tryggingar + próf sem þú þarft á þetta?

Re: Áhyggjufull móðir (rafmagnsvespa)

Sent: Sun 24. Jún 2012 00:00
af Tiger
Neibb ekki allar.

Re: Áhyggjufull móðir (rafmagnsvespa)

Sent: Sun 24. Jún 2012 00:00
af worghal
Yawnk skrifaði:Afsakið fyrir að vekja upp gamlan þráð... þetta var sá eini sem ég gat fundið um rafmagnsvespur, er svolítið forvitinn um þetta, þetta flokkast undir létt bifhjól núna er það ekki? s.s tryggingar + próf sem þú þarft á þetta?
ekki ef að hámarkshraði nær ekki yfir 25km/h
þá fer þetta í sama flokk og reiðhjól.

Re: Áhyggjufull móðir (rafmagnsvespa)

Sent: Sun 24. Jún 2012 00:04
af Yawnk
Nú? ég hélt að þeir ætluðu að herða lög um þetta, og flokka þetta sem létt bifhjól? get svo svarið það að ég sá það á Vísi eða Mbl fyrir stuttu

Re: Áhyggjufull móðir (rafmagnsvespa)

Sent: Sun 24. Jún 2012 00:10
af Sphinx
Yawnk skrifaði:Nú? ég hélt að þeir ætluðu að herða lög um þetta, og flokka þetta sem létt bifhjól? get svo svarið það að ég sá það á Vísi eða Mbl fyrir stuttu
það þarf ekki próf og eingar tryggingar.. ef þetta er ekki á numerum þá er ekki hægt að tryggja :) ég sé 10+ára krakka á þessu útum allt ég get ekki ímyndað mér að þau séu með próf, ég hefði haldið að þetta sé flutt inn bara sem reiðhjól

Re: Áhyggjufull móðir (rafmagnsvespa)

Sent: Sun 24. Jún 2012 00:48
af KermitTheFrog
Jim skrifaði:Segðu barninu að fá sér bíl! Það er fátt hallærislegra en svona vespa, hvað þá vespa sem gengur fyrir rafmagni.
Sérðu virkilega ekkert rangt við það að ráðleggja barni að fá sérbíl?

Þessi rafmagnsvespa er líklegast inni í myndinni þar sem hann hefur hvorki aldur til að aka skellinöðru né bíl...

Re: Áhyggjufull móðir (rafmagnsvespa)

Sent: Sun 24. Jún 2012 00:51
af braudrist
Þeir breyta þessu þegar loksins einhver krakkaandskoti drepur sig á þessu :troll

Re: Áhyggjufull móðir (rafmagnsvespa)

Sent: Sun 24. Jún 2012 00:54
af Daz
braudrist skrifaði:Þeir breyta þessu þegar loksins einhver krakkaandskoti drepur sig á þessu :troll
Challenge accepted


Eða þú veist... djók?

Re: Áhyggjufull móðir (rafmagnsvespa)

Sent: Sun 24. Jún 2012 01:09
af Yawnk
:hillarius
Ég er að forvitnast um þetta því ég fæ ekki bílpróf eftir næstum 1 ár, væri fínt að hafa einhvað sem skýst frá A til B og maður þarf ekki að hafa fyrir því, bara hlaða geyminn.
Mér líst betur á þetta heldur en skellinöðru sem fólk heyrir í úr kílómetra fjarlægð ;)

Re: Áhyggjufull móðir (rafmagnsvespa)

Sent: Sun 24. Jún 2012 05:20
af IceThaw
Tryggingarnar eru held ég að ég fari ekki með rangt mál yfirleitt hærri á mótorhjólum heldur en bílum, þ.e.a.s. í það minnsta slysatryggingin, sem er ætluð ökumanninum, því ef maður lendir í einhverju á mótorhjóli er ekkert eins og á bíl; beyglaður stuðari, bretti eða húdd, heldur gæti maður lent illa í því sjálfur skítt með hjólið (getur skeð líka á reiðhjólum). Þetta er útum allt þessar rafmagnsvespur og mér kom á óvart að sjá hvað þessi grein er gömul. Ég bý nú ekki í Reykjavík en þetta sér maður einmitt, litla krakka reiðandi hvorn annan, maður þarf klárlega að kunna umferðarreglur miðað við hvar þeir eru á þessu og þetta á eftir að enda með ósköpum og enginn á eftir að skilja hvers vegna þetta var leyft þegar þar að kemur. Hvað sem líður langur tími frá því þetta var leyft, það kemur á endanum eitthvað fyrir, aldurstakmark + fræðsla á umferðarlögum; nauðsynleg. Myndi aldrei hleypa barninu mínu (ef ég ætti) út á svona, myndi ekki vita hvað ég myndi gera ef ég myndi missa það svona.

Re: Áhyggjufull móðir (rafmagnsvespa)

Sent: Sun 24. Jún 2012 05:43
af Bjosep
Ég get ekki skilið upphaflega spurninguna öðruvísi en svo að viðkomandi hafi áhyggjur af því að það sé hægt að taka innsiglin úr þessum rafmagnsvespum.

Ég hef heyrt svipaðar áhyggjur frá öðrum. Spurningin er því líklegast: Er hægt að rjúfa innsigli á þessum rafurmagnsvespum eða ekki ?

Pælingar um hversu gáfulegar mönnum finnst þessi farartæki eiga heima annarsstaðar.

Edit -

Tímasetningin á upphaflegu innleggi fór framhjá mér!

Skál fyrir því!

Re: Áhyggjufull móðir (rafmagnsvespa)

Sent: Sun 24. Jún 2012 11:52
af Yawnk
http://mbl.is/frettir/innlent/2012/03/1 ... t_bifhjol/" onclick="window.open(this.href);return false; Fann þetta, þetta er í undirbúningi..

Sjá myndina.. :hillarius

Re: Áhyggjufull móðir (rafmagnsvespa)

Sent: Sun 24. Jún 2012 13:48
af Arnzi
Síðast þegar ég var í Reykjavík gat ég varla tekið nokkur skref útur húsi vegna fullt af litlum gerpum skjótandi útum allt á gangstéttum og voru bara með leiðinda stæla á svona rafmagnsvespu drasli, finnst það eigi að flokka þetta sem létt bifhjól þannig lítil smábörn fari ekki að meiða sig eða aðra.

En ef þessi strákur kann sig almennilega í umferð og allt það er skellinaðra lang besti kosturinn , taka innsigli úr og henda kitti og kraftpústi í :twisted:

Re: Áhyggjufull móðir (rafmagnsvespa)

Sent: Sun 24. Jún 2012 14:02
af upg8
Það þarf líka að kenna fólki að nota bjöllur sem er á svona farartækjum, oft sem maður sér að bjöllur eru notaðar alveg uppvið fólk og það er aldrei að vita hvernig fólk bregst við, sumir stoppa og kíkja í kringum sig, aðrir stökkva jafnvel yfir á hinn helminginn á gangstéttinni af því þeir halda að þeir séu fyrir. Þessi hjól eru flest hljóðlát og það á að nota bjöllur með góðum fyrirvara og jafnvel hægja á þegar fleiri eru á gangstéttinni. Léttilega hægt að slasa fótgangandi þótt hraðinn sé ekki meiri en 25.