Síða 2 af 2

Re: Nám eftir grunnskóla

Sent: Þri 22. Mar 2011 14:06
af BjarkiB
Þakka fyrir svörin strákar.

Fann á síðunni hjá MA að það er tölvustærðfræði/forritunar val hjá þeim, þó ekki nema fyrir 3-4 bekk.

Re: Nám eftir grunnskóla

Sent: Þri 22. Mar 2011 15:53
af Daz
HelgzeN skrifaði:Ég hef sjálfur fáránlegan áhuga á að fara í Tölvufræði enn hef alls engan áhuga á Stærðfræði er einu ári á eftir og er með svona 4,0 í meðaæeinkun.
Stærðfræði -> Rökfræði -> Forritun.

Forritun þarf ekkert að snúast um stærðfræði (nema ef maður er að þróa 3D vélar eða forrit sem eiga beint við stærðfræði, t.d. í fjármálageiranum), en rökfræðin sem stærðfræði byggir á er mjög mikilvægur undirbúningur.

Bara að skella sér í stærðfræðibækurnar og læra og læra.

Re: Nám eftir grunnskóla

Sent: Þri 22. Mar 2011 15:55
af littli-Jake
Sucre skrifaði:
BjarkiB skrifaði:
SolidFeather skrifaði:Náttúrufræðibraut
Já, hef heyrt um að það sé nánast allt í boði eftir það.
Svo ein spurning í viðbót, gæti ég fengið eitthverjar einingar við að taka stöðupróf í hollensku?
þá sleppuru við að taka þýsku eða dönsku annað hvort er ekki viss samt
Þýsku. Danska er í kjarna til stúdentnáms nema að þú hafir t.d. búið í noregi sem barn og hafir þesvegna lært norsku í grunnskóla.
Ekki það að þú mátt í raun velja hvaða þriðja erlend tungumál sem er svo lengi sem það er kennt. Þýskan er bara algengust

Re: Nám eftir grunnskóla

Sent: Þri 22. Mar 2011 16:56
af AndriKarl
Glazier skrifaði:
BjarkiB skrifaði:Tbtw. hvernig er félagslífið í tækniskólanum?
Það er bara núll félagslíf í tækniskólanum.. :-"

En búinn að skoða hvað VMA hefur uppá að bjóða ?
Hvað meeiniði það er besta félagslífið í Tækniskólanum!!! xD

Neinei, svona án gríns þú finnur ekki verra félagslíf en í Tækniskólanum ](*,)

Re: Nám eftir grunnskóla

Sent: Þri 22. Mar 2011 17:12
af dori
Ég fór í Verzló á tölvusvið og það sem tengdist tölvum þar var alveg drulluleiðinlegt (kannski að hluta til kennarans að setja saman námskeið sem er krefjandi fyrir alla en ekki bara þá sem hafa aldrei snert þetta áður). Ég hefði viljað óska þess að fyrsti tölvu-eitthvað áfanginn sem ég hefði tekið hefði verið SICP. Það er bara dónalegt að bjóða manni uppá það að leika eitthvað með Java applet bara "af því að fólk hefur gaman af því að sjá \"GUI\"".

Urrr...

Btw. taktu alla stærðfræði sem þú getur. Hún mun hjálpa þér. Þjálfar rökfræðihugsun og það er jákvætt.

Re: Nám eftir grunnskóla

Sent: Þri 22. Mar 2011 18:24
af Nariur
Ég mæli hiklaust með eðlisfræðilínu í MA. Reyndar er, ótrúlegt en satt, bara einn valáfangi tengdur tölvum, þ.e. tölvustærðfræði. VMA býður, að minni bestu vitund, ekki upp á neitt sem gæti nýst þér í sambandi við tölvur. Í MA geturðu lært (mikið af) stærðfræði sem er nauðsynlegur grunnur fyrir flest tölvunám. Nema þú viljir fara suður er eðlisfræðilína í MA það eina sem meikar sens.

p.s.: Ég er á 3. ári á eðlisfræðilínu í MA

Re: Nám eftir grunnskóla

Sent: Þri 22. Mar 2011 18:40
af Victordp
Getur farið á eitthverja braut á AK og farið í fjarnám í tölvum, held að verzló sé með þannig :)

Re: Nám eftir grunnskóla

Sent: Þri 22. Mar 2011 18:45
af Frantic
Já það er rétt með félagslífið í Tæknó, algjörlega dautt.
En mér fannst mjög fyndið þegar skólastjórinn ætlaði að vera rosasniðugur og lífga uppá félagslífið í skólanum með því að fá Jónsa úr svörtum fötum til að sýna sig þarna.

Í tölvubraut í tækniskólanum er hægt að velja hvort þú vilt gefa meiri áherslu.
Allir byrja á að taka grunn sem er HTML og photoshop og eitthvað álíka tilgangslaust.
En svo getur maður valið milli software og hardware.
Í sumum hardware áföngum vinnuru þig uppí cisco gráður.
En maður þarf að borga eitthvað til þess að klára gráðurnar.

Þeir eru mismunandi kennararnir. En kennaranir á tölvubrautinni eru snillingar.

Re: Nám eftir grunnskóla

Sent: Þri 22. Mar 2011 19:23
af BjarkiB
Ein spurning er ekki hægt að taka tld. tvö ár fyrir norðan og klára svo stúdent fyrir sunnan í tækniskólanum?

Re: Nám eftir grunnskóla

Sent: Þri 22. Mar 2011 22:31
af jonrh
Raungreinasvið í MA er málið í þinni stöðu, sérstaklega ef þú ert að fá 9,5 í stærðfræði. Ef þú ferð í háskóla í tölvunarfræði/verkfræði/stærðfræði þá er það góður stærðfræðigrunnur sem uppsker best til lengri tíma litið. Held það sé miklu skemtilegra fyrir þig að dunda þér í að læra sjálfur forritun utan skólans, þá hefurðu bæði meira frelsi um hvaða forritunarmál þú notar og hvernig verkefni þú gerir. Ekki hafa neinar áhyggjur samt, þegar í háskólann er komið þá er forritunin kennd þannig að það er byrjað alveg frá núlli og byggt upp. Fyrsta önnin getur verið strembin fyrir þá sem hafa aldrei forritað áður en eftir það eru flestir komnir á sama stað (gefið að þú hafir áhugann).

Re: Nám eftir grunnskóla

Sent: Þri 22. Mar 2011 22:40
af tdog
Farðu í rafvirkjann, á grunndeild rafiðna eru áfangar sem tengjast tölvum og nettækni, allavega í FVA er farið mjög djúpt í rökrásir og netkerfi - dýpra en flestir skólar. Þegar þú ert búinn með rafvirkjann getur þú svo bætt við þig stúdent og unnið sem rafvirki á sumrin með góð laun á meðan þú lærir eitthvað tölvutengt í háskóla.

Það borgar sig að hafa bakköpp plan ;)

Re: Nám eftir grunnskóla

Sent: Þri 22. Mar 2011 23:51
af hauksinick
OFF*TOPIC

Einhverjir hérna sem ætla í FSu næstu önn?

Re: Nám eftir grunnskóla

Sent: Mið 23. Mar 2011 00:04
af Lexxinn
BjarkiB skrifaði:
SolidFeather skrifaði:Náttúrufræðibraut
Já, hef heyrt um að það sé nánast allt í boði eftir það.
Svo ein spurning í viðbót, gæti ég fengið eitthverjar einingar við að taka stöðupróf í hollensku?
Stöðupróf í hollensku getur gefið þér frá 9 og allt að 12 einingar og þá sleppur þú við þriðja tungumálið. Best er að taka stöðuprófin í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Bíður VMA ekki upp á neina vænlega kosti sem góðan grunn fyrir tölvunarfræði og forritun?

Re: Nám eftir grunnskóla

Sent: Mið 23. Mar 2011 00:27
af chaplin
Ef ég væri þú að þá myndi ég persónulega taka eins mikið af grunnáföngum í MK, Kvennó, MH osfv. þar sem félagslífið er gott. Ég get ekki talið upp hvað ég kynntist mikið af fólki í menntaskóla og hvað mér finnst það mikilvægt í dag. Ég fór fyrst í MK, kláraði flest alla grunnáfanga, fór svo í Tækniskólan og kláraði grunnteikningu þar (gæti útskrifast með sveinspróf en langar í stúndentinn), fór svo í FB og tók 2 annir í sálfræði og smá auka í grunnteikningu og er núna fjarnámi hjá FG og klára restina af grunninum. :snobbylaugh

Bottom line, þú vilt fyrsta árið eða tvö komast í skóla með góðu félagslífi, belieeeeve me.. ;)

Re: Nám eftir grunnskóla

Sent: Mið 23. Mar 2011 02:58
af Pandemic
Hugsaðu um gott félagslíf þegar þú velur framhaldsskóla, það er risa partur af því að fara í menntó.

Re: Nám eftir grunnskóla

Sent: Mið 23. Mar 2011 12:00
af BjarkiB
Pandemic skrifaði:Hugsaðu um gott félagslíf þegar þú velur framhaldsskóla, það er risa partur af því að fara í menntó.
Já auðvitað, en verð væntanlega líka að hugsa um hvaða braut ég fer á.
Annars þá er félagslífið í MA gott hef ég heyrt, allavega betra en í VMA.

Hef þó enn 1 og hálft ár til að ákveða mig, margt getur breyst :lol:

Re: Nám eftir grunnskóla

Sent: Mið 23. Mar 2011 12:30
af benson
Hvað sem þú gerir ekki fara á mála- eða félagsfræðibraut.