Síða 2 af 2

Sent: Mið 14. Apr 2004 20:38
af Nemesis
Tók eftir því :D:D:D Þ

Þið þurfið helst að gera eitthvað í því, þetta gengur varla :P

Sent: Mið 14. Apr 2004 20:41
af gumol
Afhverju ekki? Þetta er bara gott held ég, þeir eru að tryggja viðskiptavinum sínum lægsta verðið. Núna getur maður (allavega í ca. sólarhring) farið og skoðað örgjörva á þessari síðu og vitað að þeir eru með lægsta verðið

Sent: Mið 14. Apr 2004 21:01
af Nemesis
Þetta gæti leitt til stöðnunar í vörulækkunum, í staðinn fyrir að lækka um eitthvað af alvöru lækka verslanirnar bara krónu meira en hinar og eru þá komnar með grænt ljós.

Sent: Mið 14. Apr 2004 23:29
af ErectuZ
"Þú sparar á bt.is" BT setur inn verðin sem eru ef þú kaupir af þeim með netinu...Það er cheap, finnst mér.

Sent: Fim 15. Apr 2004 09:02
af xpider
nú finnst mér að það eigi að gera eitthvað!!
task búið að setja verð á fullt af örgjörvum án þess að hafa þá í boði á síðunni hjá sér!
og hafa allt 1kr ódýrari en næst ódýrasti til að vera að grænir! 1KR!!!!!
lélegt (that's just my opinion!)

Sent: Fim 15. Apr 2004 11:41
af GuðjónR
xpider skrifaði:nú finnst mér að það eigi að gera eitthvað!!
task búið að setja verð á fullt af örgjörvum án þess að hafa þá í boði á síðunni hjá sér!
og hafa allt 1kr ódýrari en næst ódýrasti til að vera að grænir! 1KR!!!!!
lélegt (that's just my opinion!)
Það sem er lélegt er ekki að vera krónu ódýrari, það er hálfu lélegra að bjóða lægra verð og eiga svo ekki hlutina.
Þeir eru búnir að taka út verðin, enda stóðst þetta ekki hjá þeim.

Sent: Fim 15. Apr 2004 15:13
af Nemesis
Rainmaker: Það er ekkert cheap, ef þú getur fengið vöruna á því verði sem hún er auglýst á finnt mér það eiga rétt á sér.

Sent: Fim 15. Apr 2004 20:59
af so
Verslanir eins og task og kannski fleiri sem ætla að beita sjónhverfingum og lélegri sölumennsku með því að auglýsa kannski vöru sem þeir eiga ekki til eru bara að pissa í skóinn sinn, það er skammgóður vermir en að lokum veður manni helv.... kalt.

Sent: Sun 18. Apr 2004 10:16
af skurkur
ParaNoiD skrifaði:iss ég fór í BT að kaupa minni í gærmorgun þá voru þeir búnir að hækka í 12999kr, en samkvæmt vaktinni þá er það á 7199kr .

svoldið slæmt þegar menn flýta sér að setja inn lækkanir en sleppa að setja inn hækkanir.
Sæll þetta er ekki allkostar rétt hjá þér það er sér netverslun hjá BT sem selur þessi minni á kr 7199,- BT.IS . Ég keypti 2 stk. Princeton DDR400 512mb og mæli ekki með þessu minni er að fara aftur með þau til að skila þeim móbóið vill ekki sjá þetta minni (Asus P4P800 keypt hjá BT ?).
Fæ mér frekar 1 Kingston fyrir sama verð:(
Góðar stundir.

P.S. Það verður að aðskilja BT frá BT.IS á vaktinni

Sent: Sun 18. Apr 2004 11:23
af gnarr
prófaðu að hækka spennuna inná minnið um 0.1v, það gæit fixað þetta vandamál.

Sent: Sun 18. Apr 2004 13:10
af Pandemic
Ég hrópa húrra fyrir start.is þar sem þeir hafa ekki verið með nein svona brögð eins og flestar hinar búðirnar :)

Sent: Sun 18. Apr 2004 13:33
af Nemesis
Af hverju hróparu þá ekki húrra fyrir Att.is, Expert, Tölvulisanum, Hugveri, Tæknibæ, Boðeind, KT tölvum, Þór hf og KK tölvum líka? Hvað kallar þú "flestar hinar búðirnar"? Þetta er bara illa falin hlutdrægni, flestar verslanirnar hérna á vaktinni hafa staðið sig mjög vel.

Sent: Mán 19. Apr 2004 10:05
af skurkur
gnarr skrifaði:prófaðu að hækka spennuna inná minnið um 0.1v, það gæit fixað þetta vandamál.
:shock: Hvernig gerir maður það ??? :shock: Vélin detectar minnið en verður bara óstabíl, krassar illa. Ég vara að skoða inná heimasíðu Asus lista yfir þau minni sem þeir mæla með og Princeton minnið er ekki á lista hjá þeim.

http://www.asus.com/products/mb/socket4 ... 00_QVL.pdf

Sent: Mán 19. Apr 2004 10:49
af Fletch
haha, sýnið mér gigabyte borðið á svona FSB

Mynd

MAX3 gets my vote ;)

Fletch

Sent: Mán 19. Apr 2004 11:17
af wICE_man
Þetta var vitlaus þráður fyrir þetta svar held ég.

Hvernig var þessu náð?

Anandtech gerði prófanir á þessu borði og komst ekki hærra en 270MHz með hefðbundinni kælingu sem er bara nokkuð í meðallagi. Það má alltaf ná einhverju crazy með niturkælingu :)

Eða bara með photoshop skills :wink:

Sent: Mán 19. Apr 2004 13:49
af gnarr
wtf!! hvernig náðu þeir multi niður á p4?? er komin leið til að aflæsa þeim?