Síða 2 af 3

Re: Mín heppni .....

Sent: Fös 25. Feb 2011 15:35
af bulldog
Það er hjá tryggingarfélaginu eins og er. Ég er ekki búinn að segja mitt síðasta í þessu, ætla að tala við þá eftir helgi og reyna að koma smá glóru í hausinn á þeim.

Re: Mín heppni .....

Sent: Lau 26. Feb 2011 17:26
af stebbi23
hvaða tæki varstu með?

Re: Mín heppni .....

Sent: Lau 26. Feb 2011 21:02
af bulldog
sharp 32" full hd

Re: Mín heppni .....

Sent: Lau 26. Feb 2011 22:26
af Jimmy
Ég hef hreinlega aldrei heyrt um tryggingafyrirtæki sem véfengir matsaðila á nokkru tæki.. Hugsa að þú ættir allavega að fá að tala við einhvern yfirmann á svæðinu og útskýra þitt mál, minnast klárlega á það að það hafi ekki verið séð neitt á tækinu áður en þeir fóru að senda það á milli sín..

Re: Mín heppni .....

Sent: Lau 26. Feb 2011 22:57
af bulldog
Frænka mín sem ég bý heima hjá ætlar að tala við þá fyrir mig á mánudaginn. Tækið sem þeirra miða við er bara hd ready lágmark að miða við full hd tæki og þá ekki tæki sem er á tilboði.

Re: Mín heppni .....

Sent: Lau 26. Feb 2011 22:58
af biturk
bulldog skrifaði:Frænka mín sem ég bý heima hjá ætlar að tala við þá fyrir mig á mánudaginn. Tækið sem þeirra miða við er bara hd ready lágmark að miða við full hd tæki og þá ekki tæki sem er á tilboði.

þessi tæki eru ekki sambærileg fyrir þínar þarfir og þar við situr, þú átt EKKI að sætta þig við þetta og farðu með þetta alla leið, það er bara verið að svindla á þér af því að þú ert ungur og þá líklegur til að sætta þig vona svona.

Re: Mín heppni .....

Sent: Lau 26. Feb 2011 23:04
af SolidFeather
biturk skrifaði:
bulldog skrifaði:Frænka mín sem ég bý heima hjá ætlar að tala við þá fyrir mig á mánudaginn. Tækið sem þeirra miða við er bara hd ready lágmark að miða við full hd tæki og þá ekki tæki sem er á tilboði.

þessi tæki eru ekki sambærileg fyrir þínar þarfir og þar við situr, þú átt EKKI að sætta þig við þetta og farðu með þetta alla leið, það er bara verið að svindla á þér af því að þú ert ungur og þá líklegur til að sætta þig vona svona.
Er hann ekki 34 ára?

Re: Mín heppni .....

Sent: Lau 26. Feb 2011 23:05
af biturk
SolidFeather skrifaði:
biturk skrifaði:
bulldog skrifaði:Frænka mín sem ég bý heima hjá ætlar að tala við þá fyrir mig á mánudaginn. Tækið sem þeirra miða við er bara hd ready lágmark að miða við full hd tæki og þá ekki tæki sem er á tilboði.

þessi tæki eru ekki sambærileg fyrir þínar þarfir og þar við situr, þú átt EKKI að sætta þig við þetta og farðu með þetta alla leið, það er bara verið að svindla á þér af því að þú ert ungur og þá líklegur til að sætta þig vona svona.
Er hann ekki 34 ára?

er það? af hverju fynnst mér eins og ég hafi lesið eh staðar að hann væri17 ára #-o
:-k

Re: Mín heppni .....

Sent: Lau 26. Feb 2011 23:28
af bulldog
Ég var 17 ára árið 1993 \:D/

Verð 35 ára um miðjan apríl ](*,)

Re: Mín heppni .....

Sent: Sun 27. Feb 2011 03:07
af snaeji
Þetta eru bara basic vinnubrögð eins og tíðkast hjá tryggingunum.

Þeir reyna komast upp með að borga þér eins lítið og þeir geta, og já þeir vinna við það þannig þeir eru eflaust orðnir svolítið góðir í því.

Annars þá áttu bara berja hnefann í borðið og ef þú færð skriflegt mat frá búðinni, biður bara afgreiðslumanninn að skrifa niður hvað sambærilegt tæki kostar í dag hjá þeim og kvitta undir, þá geta þeir ekki véfengt það.

Virkar allveg eins og þegar þú rennir á bílasölu og færð eh til að gefa út raunvirði á bíl sem á að borga út.

Ef sjónvarpið er ekki til sölu á íslandi þá geturu reiknað út hvað kostar að flytja það inn með vsk og toll.

Re: Mín heppni .....

Sent: Sun 27. Feb 2011 09:47
af bulldog
þeir eru hættir að selja þessa týpu sem ég keypti en eru með annað mjög svipað sem er sambærilegt tæki sem þeir selja í staðinn. það er líka 32" sharp og kostar 150.000

Re: Mín heppni .....

Sent: Sun 27. Feb 2011 12:58
af Hauksi
Tæki dæmt ónýtt útaf einum dauðum pixel, spúkí!
Fara með tækið á verkstæði útaf einum dauðum pixel,spúkí!

Tækið sem tekur við af þínu 1-2 kynslóðum síðar
kostar í dag 150.000 (samkvæmt þeim hjá Ormsson)
Samkvæmt því þá hefur tækið sem þú keyptir kostað 180.000+

Tryggingafélagið ætti því að meta tjónið útfrá 150.000
tjónatækið er innan 2.ára, enginn frádráttur á verði..
Sjálfsábyrgð 30.000
Þannig að þú ættir að fá 120.000 punktur

Á hæðinni fyrir ofan mig er 5.ára 32" Sharp,fínasta
tæki í það sem það er notað...til að horfa á fréttirnar.

Þitt tæki er líka 32" Sharp, bara ekki samskonar...

Ef þú gefur upp týpunúmer á 32" tækinu sem málið snýst um
þá væri auðveldara fyrir mann að mynda sér skoðun.

Gangi þér vel

Re: Mín heppni .....

Sent: Sun 27. Feb 2011 13:30
af bulldog
http://www.ormsson.is/mods/netverslun/prent.asp?id=2468

LC32X20S
32" LCD sjónvarp
Full HD upplausn - 1920x1080 pixlar
Kontrast: 2000:1 (Dynamic 10.000:1) - frábær dýpt og litaskerpa
6 ms svartími - enginn draugur á eftir hreyfingum
Sjónsvið: 176°/176°- myndgæðin haldast þó horft sé frá hlið
Birta: 450 cd/m2
DVB-T stafrænn sjónvarpsmóttakari með C.I. rauf fyrir myndlykilskort
Clear Flat hljóðkerfi - góður hljómur
TrueD myndvinnsla - eykur skerpu, mýkir línur og hreyfingar
Tengingar: 3xHDMI, 2xSCART, VGA/Component (D-Sub), AV/S-Video
Verð: 199.900 kr.

Re: Mín heppni .....

Sent: Sun 27. Feb 2011 14:28
af valdij
Whuut, án þess að vera hi-jacka þráðinn finnst mér þetta fáránlega hátt verð fyrir 32" sjónvarp.
Ég borgaði 230.000 fyrir 42" LG LED LCD sjónvarp með betri svartími, fleiri tengimöguleikum og betri skerpu á blaði (svo lítið að marka þessar tölur)

Re: Mín heppni .....

Sent: Sun 27. Feb 2011 15:03
af bulldog
var það full hd tæki ?

Re: Mín heppni .....

Sent: Sun 27. Feb 2011 15:08
af valdij
Jeb, FullHD sjónvarp, var keypt í Elko á þessu ári

Re: Mín heppni .....

Sent: Sun 27. Feb 2011 15:11
af bulldog
sjónvarpið mitt var keypt í júlí 2009 :)

Re: Mín heppni .....

Sent: Sun 27. Feb 2011 15:56
af Hauksi
Sharp X20 er 3.ára gamalt módel.
Þú keyptir það nýtt (ónotað) fyrir einu og hálfu ári og ert með nótu því til sönnunar!

Ef verðið á nótunni sé lægra en tækið sem Ormsson mælir með þá á nótuverðið að ráða...!
Á hvað keyptir þú tækið?

SHARP LC-32LE320E er árs gamalt (apríl 2010) og Ormsson selur á uppsprengdu verði...

Ef þú villt LE320 í staðinn fyrir það ónýta. Þá mæli ég með því að þú bjóðir Ormsson
30.000+ það sem þú færð út úr tryggingunum fyrir tækið...Ormsson tapar ekki á því
jafnvel þó svo þú fáir bara 70.000 í bætur...

Ef Ormsson hafnar því, þá er bara að leita á önnur mið með aurinn...
:|

Re: Mín heppni .....

Sent: Sun 27. Feb 2011 16:00
af bulldog
Ég fékk tækið á 149.900 með afslætti sem er það sama og nýja týpan kostar.

Re: Mín heppni .....

Sent: Sun 27. Feb 2011 16:08
af Hauksi
Þá áttu að fá 119.900 fyrir tjónið.

Re: Mín heppni .....

Sent: Sun 27. Feb 2011 16:13
af bulldog
það er það sem ég vil meina líka.

Re: Mín heppni .....

Sent: Mán 28. Feb 2011 07:32
af bulldog
Ég fæ að vita meira í dag hvernig fer læt ykkur síðan vita.

Re: Mín heppni .....

Sent: Þri 01. Mar 2011 15:34
af bulldog
68.000 kr lokaniðurstaðan :-({|=

Re: Mín heppni .....

Sent: Þri 01. Mar 2011 15:41
af MatroX
bulldog skrifaði:68.000 kr lokaniðurstaðan :-({|=
tókstu þá bara ekki sjónvarpið aftur?

Re: Mín heppni .....

Sent: Þri 01. Mar 2011 15:52
af hsm
bulldog skrifaði:68.000 kr lokaniðurstaðan :-({|=
Og ætlar þú að sætta þig við það ?
Hver eru rök tryggingafélagsins fyrir þessu mati ?

Ég hef 2x farið með mál lengra þar sem tryggingafélagið (Sjóvá) vildi ekki bæta mér tjón að fullu eins og ég taldi mig eiga rétt á og ég vann bæði málin.
bæði voru þetta mál vegna bifreiða, önnur var borguð út og hitt var vegna þess að ég vildi fá bílaleigubíl allan tíman meðan á viðgerð stóð sem var um 5.vikur (þeir vildu bara borga 1.viku) þar sem að varahlutir voru ekki til í landinu.
Ég tók sjálfur bílaleigubíl á mínu nafni í óþökk Sjóvá og þeir enduðu með að vera dæmdir til að borga bílaleigubílinn :happy