Síða 2 af 2

Re: Terra Nova

Sent: Fös 21. Okt 2011 22:55
af GuðjónR
Ég er búinn með fyrstu 3...gef þeim 5.5 - 6.5 í einkun.
Ætla að horfa áfram, gefa þessu séns.

Re: Terra Nova

Sent: Mið 16. Nóv 2011 09:39
af appel
Þessir þættir minna mig einum of á ...

Mynd

Re: Terra Nova

Sent: Mið 16. Nóv 2011 09:58
af AncientGod
Þetta er að verða betra núna og minna þetta unglinga drama

Re: Terra Nova

Sent: Mið 23. Nóv 2011 10:17
af appel
Nýjasti þátturinn er góður, loksins veit maður eitthvað aðeins meira um hvað er að gerast...supposedly :)

Re: Terra Nova

Sent: Mið 21. Des 2011 00:33
af appel
Season finale búinn.


Ég er doldið "blown away". :wtf

Re: Terra Nova

Sent: Mið 21. Des 2011 14:17
af kizi86
ef það kemur ekki ný sería af þessu, þá er þetta project mesta money gone to waste i sögunni, þar sem þetta voru svoooo dýrir þættir í framleiðslu..

en talandi um twist í plottinu þarna í endann á lokaþættinum, fær mann til að hugsa aðeins of mikið hvað gæti verið i gangi þarna, a new time rift? framtíðin var fortíðin, hvað?

þegar byrjaði að horfa a þetta, byrjaði ég með sama hugarfari og þegar var að horfa a SGU, gefa þessu séns og sja hvort þetta færi ekki batnandi, með sgu, þá gafst ég upp, en sjæse sé ekki eftir að hafa fylgst með Terra Nova, eru að stefna í alvöru sci-fi þætti núna, en ekki bara þetta bold and the beautiful/neighbours with a dash of scifi eins og sgu endaði sem..

Re: Terra Nova

Sent: Þri 06. Mar 2012 13:23
af axyne

Re: Terra Nova

Sent: Þri 06. Mar 2012 13:50
af Gilmore
Farið hefur fé betra!!!

En samt fúlt hvað þessar sjónvarpsstöðvar eru farnar að stoppa framleiðslu á þáttum fljótt. Maður er eiginlega hættur að nenna að byrja að horfa á eitthvað því það eru miklar líkur á að það verði ekkert framhald. T.d. horfði ég á The Event sem voru þokkalega góðir þættir, en svo var hætt eftir 1 season, því það var ekki nægt áhorf.

Ég held að ein af ástæðunum að fólk horfir mest á þessa viðbjóðslegu raunveruleikaþætti og markaðurinn fyrir almennilegt sjónvarpsefni fer minnkandi. :mad

Svo ættu þessir framleiðendur allavega að sýna þeim áhorfendum sem hafa verið að horfa á þættina þeirra þá kurteisi, að gefa þeim almennilegan endi í stað þess að hætta bara í miðju kafi.

Terra Nova

Sent: Þri 06. Mar 2012 13:52
af GuðjónR
Ég græt ekki þessa þætti, fannst þeir barnalegir og einfaldir, rétt eins og Alcatraz er.

Re: Terra Nova

Sent: Þri 06. Mar 2012 15:33
af Domnix
GuðjónR skrifaði:Ég græt ekki þessa þætti, fannst þeir barnalegir og einfaldir, rétt eins og Alcatraz er.
Getur nú varla sagt að Alcatraz séu einfaldir nema þú vitir fyrirfram hvað sé að fara gerast.
Skal viðurkenna að þessir þættir séu farnir að endurtaka sig en fullharkalegt að kalla þá einfalda.

Re: Terra Nova

Sent: Þri 06. Mar 2012 15:48
af GuðjónR
Domnix skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Ég græt ekki þessa þætti, fannst þeir barnalegir og einfaldir, rétt eins og Alcatraz er.
Getur nú varla sagt að Alcatraz séu einfaldir nema þú vitir fyrirfram hvað sé að fara gerast.
Skal viðurkenna að þessir þættir séu farnir að endurtaka sig en fullharkalegt að kalla þá einfalda.
Í einum þættinum þá var vondur kall að eitra fyrir nokkrum asíubúum, þetta náðist á video á síma og var komið á youtube og til "góðu gæjana" 10 sec síðar, 2 mín eftir það voru þau mætt á staðinn fyrst allra. Með þremur skipunum á tölvuskjá náði síðan "yfir-gaurinn" að eyða út þessu vídeoi af öllu internetinu...

Í öðrum þætti þá var glæpamaður að setja eitur í loftræstingu á hraðlest, 5 sec síðar sáu "okkar menn" það á tölvuskjá, þau hlupu út og ofan í næsta ræsi. tveimur mínútum síðar voru þau komin að lestinni og að sjálfsögðu í tæka tíð til að bjarga öllum.

Ef þetta er ekki barnalegur söguþráður þá veit ég ekki hversu barnalegur hann þarf að vera til að teljast barnalegur.

Re: Terra Nova

Sent: Þri 06. Mar 2012 16:15
af appel
Domnix skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Ég græt ekki þessa þætti, fannst þeir barnalegir og einfaldir, rétt eins og Alcatraz er.
Getur nú varla sagt að Alcatraz séu einfaldir nema þú vitir fyrirfram hvað sé að fara gerast.
Skal viðurkenna að þessir þættir séu farnir að endurtaka sig en fullharkalegt að kalla þá einfalda.
Alcatraz eru týpískir svona "monster of the week" þættir, sá að þeir yrðu það strax í upphafi, og hætti að horfa á þá eftir 2. þátt, því ég nennti ekki að horfa á 400 þætti með sama plott: vondur kall drepur saklausa, þau ná honum.